Fréttablaðið - 26.01.2015, Page 13

Fréttablaðið - 26.01.2015, Page 13
MÁNUDAGUR 26. janúar 2015 | SKOÐUN | 13 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Þorrablót er trúarhátíð. Siður- inn hefur verið rakinn til veit- ingamannsins og síðar prestsins Halldórs Gröndal sem rak Naust- ið á sjöunda áratug síðustu aldar og hóf þá nýbreytni að bjóða upp á gamlan íslenskan súrmat undir þessu nafni; og varð afar vinsælt. Til eru þeir sem telja þetta allt saman kænlega markaðssetn- ingu hjá hinum verðandi klerki. Aðrir segja að íslenskir stúdent- ar í Kaupmannahöfn hafi endur- vakið siðinn á 19. öld. Það skiptir ekki máli. Þetta er samverustund á kaldasta og ónotalegasta tíma ársins, til þess fallin að láta fólk hafa yl hvert af öðru – og styrk. Þorrablótið er haldið til þess að öðlast styrk. Það er trúarhátíð. Þorrinn er Morrinn Þetta er ekki bara eitthvert partí. Þorrablótið á sér rætur í forneskju og heiðnum sið. Djúp- ar rætur, hvað sem kann að líða klerklegum markaðssetningum. Eitt og annað í íslenskri menn- ingu hefur varðveist gegnum aldirnar. Þannig geymdu lands- menn sögur af heiðnum goðum sínum í nokkurs konar pækli sem Snorri Sturluson útbjó með Eddu sinni. Þessi hugmynda- og sagna pækill er skáldamál drótt- kvæða og rímna síðar meir, kenn- ingarnar sem vísa iðulega á til- teknar sögur, einkum af Óðni, og með þessum hætti héldust þess- ar sögur í sameiginlegu minni þjóðarinnar, þar með nokkurs konar trúariðkun. Hið flókna og dulráða skáldamál rímnanna er aðferð við að blóta á laun. Fræði- menn tala gjarnan um að þetta sé inntakslaust orðaprjál, en þá gleymist hitt: að fyrir vikið geymdust þessar sögur í sam- eigin legu minni þjóðarinnar. Þorrablótið er önnur tegund af menningarleifum. Í forneskju hefur fólk væntanlega séð fyrir sér einhvers konar vætt með þessu nafni. Að vísu er talað um Þorra sem norskan konung í Orkneyinga sögu, og hafi verið sonur Snæs en faðir Góu. En er augljóslega vættakyns. Aðrir tengja nafnið við Þór og sjá fyrir sér að þarna hafi verið um að ræða Þórsblót. Og því ekki það? Eins og tíðk- ast um upprunaleg og sjálf- sprottin trúarbrögð er hér um að ræða tákngerving náttúruafla og Þorrablótið snýst um að blíðka þau goðmögn sem við heyrum ýla á glugga dag eftir dag, nótt eftir nótt. Reynt er að ná eyrum þessa tákngervings vetrarríkisins, tak- ast á við hann, fá hann til að lina tök sín og hverfa á braut. Þorr- inn er nefnilega Morrinn. Köld og lamandi ógnarvera sem allt frýs í kringum. Þess vegna er kvæði Kristjáns Fjallaskálds, sem við syngjum enn, Þorraþrællinn – Nú er frost á Fróni – frásögn af tilraunum manna til að fá Þorr- ann til að sjá aumur á sér; „æðr- ast skipstjórinn“ o.s.frv. Í seinasta erindinu tekst það: „Þögull Þorri heyrir / þetta harmakvein“ og endar á því að svífa á braut. Tilvistarleg tjáning Allt hefur merkingu á Þorra- blótinu. Það kann að koma manni spánskt (eða öllu heldur íslenskt) fyrir sjónir hversu mikil áhersla er lögð á að neysla matar sé þol- raun fremur en nautn; að það sé með öðrum orðum eftirsóknar- vert að snæða bragðvondan mat, ólystugan að sjá og óþægilegan í munni og skola honum niður með bragðvondum kúmensnafsi; tala svo hátt og kjamsandi um hversu gott þetta sé. Þetta er ritúal, og þekkist svo sem víðar; oft í formi verulega daunillra osta. Neyslan skilur sauðina frá höfrunum: mér er sagt að á tilteknu Þorrablóti sé talað um „aumingjaborðið“ og er þá vísað til þess að þar mun á boðstólum hefðbundinn veislu- matur; það er að segja, bragðgóð- ur matur. Með því að borða þennan mat sannar maður hollustu sína við hið séríslenska og finnur til skyldleika við aðra sem það gera líka. Því neyslan er líka tilvistarleg tjáning, ákveðin tilraun til að éta sig í sátt við hlutskipti sitt sem Íslendingur. Það að leggja sér til munns súrmat og skola niður með snafsi er ígildi þess að fara út í snjóbyl léttklæddur og standa þar keikur og bjóða veðrinu byrg- inn. Maður undirgengst þolraun og komist maður frá henni án þess að bregða sér eða kúgast er maður jafnframt hertur og reiðubúinn að takast á við frek- ari raunir. Maður mætir Þorra og horfist í augu við hann án þess að hvika. Þorramaturinn er ekkert eins og hver annar matur heldur er hann þrunginn merkingu, rétt eins og í öðrum trúarathöfnum. Jafnvel mætti segja að súrmat- urinn sé nokkurs konar obláta Íslendinga. Þar snæðir Íslend- ingurinn sauðkindina, sinn þús- und ára förunaut í þessu landi, hann snæðir Íslands þúsund ær. Og hann leggur sér sauðkindina til munns í nokkurs konar mynd ódauðleikans; því súrmaturinn geymist út í hið óendanlega. Og samt er Þorrablótið um leið hið íslenska karnival. Þegar borð- haldið er um garð gengið með til- heyrandi ánægjukjamsi og heit- strengingum um hvílíkt lostæti þetta sé er yfirleitt farið með gamanmál og þar er einatt gert grín að mikilsháttar persónum í samfélaginu – oftast í formi brags sem allir kyrja saman. Karlar – oft í valdastöðum í við- komandi samfélagi – koma líka fram í kvenmannsklæðum, dilla sér og skrækja, en viðsnúningur á hefðbundnum kynhlutverkum og valdahlutföllum er einmitt helsta einkenni karnivalsins. Slík gleði eykur enn á samkenndina og þá tilfinningu viðstaddra að eiga eitthvað mikilsvert saman og engin ástæða sé til að láta bug- ast af ótíð og kulda. Þetta er samveru- stund á kaldasta og ónotalegasta tíma ársins, til þess fallin að láta fólk hafa yl hvert af öðru– og styrk. AF NETINU Fyrirmyndarskóli Um tíma gekk lím- faraldur yfir skólann, þ.e. nokkur hópur nemenda var að sniffa lím. Þetta komst í blöðin og hömlur voru lagðar á sölu Aurora-módelalíms. Þá svissuðu sumir yfir í kveikjara- bensín. Í kjallara skólans starfaði skátafélag. Í skátaútilegum fékk maður alls kyns óhefðbundna fræðslu. Eftir því sem ég kemst næst er starfsemi Hagaskóla algjörlega til fyrirmyndar nú– eins og sunnu- dagaskóli miðað við það sem ég upplifði. Kannski er það röng líking, því líklega er skólinn laus við þá stóreinkennilegu kristindóms- fræðslu sem þá tíðkaðist. Þess utan á ég góðar minningar úr Hagaskóla, þótt ég geti seint talist fyrirmyndarnemandi http://www.eyjan.pressan.is/ silfuregils Egill Helgason fj ömiðlamaður Fylgdu okkur á facebook. facebook.com/kiamotorsisland ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Kia Rio bíður þín í Öskju, Krókhálsi 11. Komdu og prófaðu, við tökum vel á móti þér. Nútímatækni og hönnun hafa ekki einungis skilað kraftmiklum gæðabíl heldur er hann líka einn sparneytnasti dísilbíll í heimi — eyðir um 3,6 l/100 km í blönduðum akstri. 7 ára ábyrgð fylgir nýjum Kia Rio sem gildir til ársins 2022. Kia Rio LX 1,1 — dísil, beinskiptur. Verð frá 2.550.777 kr. Eða 37.777 kr. á mánuði í 84 mánuði* *Mánaðarleg afborgun miðast við 10% útborgun og bílalán til 84 mánaða. Bílalánstölur eru viðmiðunarverð og geta breyst án fyrirvara. Þorrablótið Þöggunin á RÚV Hvernig getur það verið að RÚV beiti þöggun þegar kemur að Gunnari Nelson og þeirri íþrótt sem hann stundar? Þetta er orðin ein vinsælasta íþrótt veraldar og fleiri þúsundir manna og kvenna mæta um hverja helgi allt árið um kring út um allan heim til þess að hvetja sitt fólk áfram. http://www.pressan.is/pressu- pennar/Lesa_Bubba/ Bubbi Morthens tónlistarmaður 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 7 D -A 5 F C 1 7 7 D -A 4 C 0 1 7 7 D -A 3 8 4 1 7 7 D -A 2 4 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.