Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.01.2015, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 26.01.2015, Qupperneq 16
FÓLK| límdi upp á nýtt, litaði hann og lakkaði. Ég er búin að gera upp ansi mikið af húsgögnum en hef aldrei fengið annan eins og þennan stól í hendurnar,“ segir Guðrún en hún gerir upp gömul húsgögn alla daga á verkstæðinu. „Við erum ekki í nýsmíði, gerum eingöngu upp gamalt. Ef við værum með réttu vélarnar værum við komnar út í eigin hönnun og smíði. Það er alltaf á döfinni að bæta úr því. En það er mjög gaman að gera upp gamalt og gefandi, sérstaklega þegar við fáum eitthvað til okkar sem er búið að dæma jafnvel ónýtt og við náum að gera það upp aftur. Ef það er ekki búið að kveikja í því er nánast hægt að bjarga öllu.“ Guðrún viðurkennir að mikla þolinmæði þurfi við að gera upp illa farin húsgögn svo vel sé. Það geti tekið á taugarnar en þá skipti þær með sér verkum á verkstæðinu. Stundum fari húsgagn í „skammar- krókinn“ í nokkra daga en svo haldi verkið áfram. NÓG AÐ GERA „Við byrjuðum fyrir þremur árum í skúr niðri á Eyri, keyptum okkur svo varanlegt húsnæði í mið- bænum og höfum nóg að gera. Meirihluti þess sem við vinnum er fyrir viðskiptavini en svo er eitt- hvað um húsgögn sem við tökum alveg að okkur og seljum svo sjálfar. Það er mikið um að fólk hafi fengið eitthvað í arf og á eitthvað sem hefur verið í geymslunni í mörg ár. Fólk er yfirleitt ekki stressað yfir því þó það geti tekið langan tíma að laga hús- gagn. Þessum bransa fylgir ekki hraði og stress.“ HANS WEGNER Í UPPÁHALDI „Fyrir utan það sem ég hef smíðað sjálf er allt heima hjá mér gamalt. Það er til fullt af flottri nýrri hönnun en gömlu húsgögnin eru bara svo miklu betur smíðuð og úr betri efnum en mörg ný hús- gögn í dag. Sumt má varla flytja milli herbergja án þess að það liðist í sundur. Ég er voða veik fyrir tekkhúsgögnum og þá er hönnun Hans Wegner ofarlega á listanum,“ segir Guðrún. SKÁLDASTÓLL Gamla hægindastólinn keypti mamma Guðrún- ar notaðan og segir sagan að rithöfundur hafi átt stólinn. Guðrún tók hann allan í sundur og límdi upp á nýtt, litaði og lakkaði. VOLDUGUR Ruggustólinn hönnuðu Guðrún og Dídí, samstarfs- kona hennar, í skólanum þegar bekkurinn átti að smíða eftir hús- gagni úr verslun. AÐALMUBLAN Í STOFUNNI Stofustássið er útskriftarverkefni Guðrúnar úr húsgagnasmíði í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Skápurinn er hennar eigin hönnun og smíð. Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac Bifidobacteria & Fibre hollur kostur á 5 mín. Gríms fiskibollur NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022 NÝTT – NÝTT 8 rétta hlaðborð í hádeginu TILBOÐ KR. 1.590.- OPIÐ KL. 11:00-14:00 Hlaðborðið er alla virka daga. ekki um helgar. HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 ● HLJÓÐFÆRI Ungverski píanistinn Gerg erly Bogányi hef- ur endurhannað flygil- inn í þeim tilgangi að auka hljóðgæði. Útkoman er nýstárleg og minnir hljóðfærið helst á skúlptúr. Hörðum línum hins hefðbundna flygils skiptir Bogányi út fyr- ir straum línulagaðar línur. Bogányi hannaði einnig píanóstól í sama stíl og á þetta að endurspegla flæðið í klassískri tónlist að sögn tónlistarmannsins. Þrátt fyrir nýstárlegt og íburðarmikið útlitið er píanóið fyrst og fremst hannað með það í huga að ná sem bestum hljómi úr því. „Í mörg ár hef ég spilað með visst hljóð í huga sem hefur verið annað en kemur úr hljóðfærinu,“ sagði Bogányi í viðtalið við veftímaritið Dezeen. Nú hafa ímyndunin og raunveruleikinn náð saman. NÝSTÁRLEGUR FLYGILL 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 D -5 2 0 C 1 7 7 D -5 0 D 0 1 7 7 D -4 F 9 4 1 7 7 D -4 E 5 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.