Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 14
16. júlí 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í lok júní var úttekt á rekstri og stjórn-
sýslu Hafnarfjarðar birt á vef bæjarins.
Þessi greining er afar ítarleg og birt í
anda opinnar stjórnsýslu til þess að auð-
velda íbúum aðgengi að upplýsingum.
Tilgangur úttektarinnar var tvíþættur,
annars vegar að fá greinargott yfirlit
yfir starfsemi og þjónustu og hins vegar
að leita leiða til að bæta slæma fjárhags-
stöðu bæjarins.
Greiningunni fylgja tillögur skýrslu-
höfunda sem myndu, ef allar næðu fram
að ganga, auka svigrúm í bæjarrekstr-
inum um 900 milljónir, sem svarar til
5% af heildarumfangi. Fram undan er nú
úrvinnsla þessara tillagna með aðkomu
bæjarstjórnar, starfsfólks og íbúa í
bænum og markmiðið er að sú vinna
skili bættri afkomu að andvirði 5-600
milljóna á ársgrundvelli, sem mun gera
okkur kleift að snúa vörn í sókn í rekstri
bæjarins. Breytingar á stjórnskipulagi
sem samþykktar voru í bæjarstjórn í
júní mörkuðu upphaf þessa ferlis, sem
mun svo halda áfram af fullum krafti í
haust. Höfuðmarkmið þessarar vinnu
er að nýta fjármagn betur og um leið að
veita betri og skilvirkari þjónustu.
Auk heildstæðrar greiningar á starf-
semi Hafnarfjarðar kom nýverið út
sérstök úttekt á rekstri, fjármálum og
stjórnsýslu Hafnarfjarðarhafnar, sem
einnig má sjá á vef bæjarins og verður
nýtt til grundvallar stefnumótun í starf-
semi og rekstri hafnarinnar.
Úttekt á samningum bæjarins við
íþróttafélög, vegna uppbyggingar og
reksturs íþróttamannvirkja og niður-
greiðslukerfis til bæjarbúa vegna tóm-
stundavirkni barna, hefur jafnframt litið
dagsins ljós og verið birt. Þverpólitískur
vilji er til að breyta formi og fram-
kvæmd styrkja til tómstundastarfs og
mun greiningin koma í góðar þarfir við
þá vinnu.
Björt framtíð leggur áherslur á mikil-
vægi þess að fá fram staðreyndir og
meta niðurstöður greininga á hlutlægan
hátt með aðkomu sem flestra. Birting
ofannefndra úttekta auðveldar að okkar
mati bæjarbúum að fá yfirsýn yfir þá
þjónustu sem veitt er, sem og að hafa
áhrif á breytingar á henni til framtíðar.
Álit óháðs aðila á stöðu mála er að
okkar mati nauðsynlegur grunnur til að
hefja samtal – góður upphafspunktur.
Næstu skref byggja síðan á upplýstri
umræðu og skoðanaskiptum sem verða
því betri eftir því sem fleiri taka þátt.
Saman getum við gert góðan bæ betri.
Hafnarfjörður
BÆJARMÁL
Guðlaug
Kristjánsdóttir
bæjarfulltrúi Æ-
listans í Hafnarfi rði
Einar Birkir
Einarsson
bæjarfulltrúi Æ-
listans í Hafnarfi rði
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Travel John ferðaklósett
leysa málið
Fyrirferðalítil, létt, einföld og hreinleg í notkun.
Engin kemísk efni, engin þrif, aðeins tvöfaldur
poki með efni sem gerir vökva að geli og eyðir
lykt. Pokanum er lokað eftir notkun, einfaldara
verður það varla. Pokana má nota í venjuleg
ferðaklósett til að losna við að þrífa þau.
Travel John pokar fyrir þvag eða uppköst gelgera
vökvann og eyða lykt. Verð 3 stk. í pakka
kr. 1.280,- Klósettpokar 3 stk. í pakka kr. 1.370,-
Klósettstóll kr. 6.820,- Tilboð ásamt 3 pökkum
af pokum kr. 8.500,- fæst hjá Donnu, Móhellu 2,
Hafnarfirði. Póstsendum.
E
ngum blöðum er um það að fletta að ástandið í heilbrigðis-
málum þjóðarinnar er grafalvarlegt. Nokkur hundruð
hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á Landspítal-
anum. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hefur sagt
að byggja þurfi upp kerfið og nóg af öflugu starfsfólki sé
lykilatriði. Hér á landi, vel að merkja, ekki í Noregi þar sem mikið
af því góða starfsfólki sem nú starfar á spítalanum verður í vinnu í
vetur. Forstjórinn og ráðamenn hafa líka sagt að nauðsynlegt sé að
sátt náist um kjör stéttarinnar.
Kannski er sáttina um kjör
hjúkrunarfræðinga að finna hjá
ráðamönnum, en hjúkrunar-
fræðingar sýndu það í verki í
gær að hjá þeim er hana ekki
að finna. Um 88% þeirra felldu
kjarasamning og allt stefnir í að
launadeilan fari fyrir gerðardóm.
Viðbrögð Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar, ábyrgðarmanns heilbrigðismála, eru á þá leið að líklega þurfi
að flytja inn erlenda hjúkrunarfræðinga. Og Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra, maðurinn sem ber ábyrgð á kjörum hjúkrunar-
fræðinga, segir að málið eigi bara að fara í gerðardóm.
Kristján og Bjarni eru báðir í Sjálfstæðisflokknum. Fyrir síðustu
kosningar gaf sá flokkur eftirfarandi út, til að fá sem flesta til að
kjósa sig, en út á það gengur kosningastefnuskrá:
„Mikilvægt er að auka gegnsæi og breyta forgangsröðun við
fjárveitingar til endurskipulagningar og uppbyggingar á heilbrigðis-
kerfinu í þágu sjúklinga og starfsfólks.“
Og til að skýra málið enn frekar var vitnað í ályktun velferðar-
nefndar síðasta landsfundar flokksins:
„Leggja verður ríka áherslu á breytta forgangsröðun varðandi
fjárveitingar til endurskipulagningar og uppbyggingar á heilbrigðis-
kerfinu í þágu sjúklinga og með bættu starfsumhverfi og kjörum
heilbrigðisstétta.“
Nú má vel vera að sjálfstæðismenn hafi aðeins verið að ræða um
kjör lækna, en ekki annarra heilbrigðisstétta, en það hefði verið
betra að vita það fyrir kosningar.
Ríkisstjórnin setti sér líka stefnu í heilbrigðismálum. Þar er sagt
brýnt að vinna að langtímastefnumótun heilbrigðiskerfisins með
eðlilegu samráði við fagfólk heilbrigðisstarfsfólks og það verður
áhugavert að sjá hvað kemur út úr þeirri vinnu, sem hlýtur að vera
vel á veg komin. Þar segir líka:
„Íslenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnisfært við
nágrannalönd um tækjakost, aðbúnað sjúklinga og aðstæður starfs-
manna.“
Það er morgunljóst að íslenskt heilbrigðiskerfi er ekkert af því
sem ríkisstjórnin lofaði að það yrði í stefnuyfirlýsingu sinni sem
samin var af þeim Bjarna og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í vor-
blíðunni á Laugarvatni fyrir tveimur árum.
Ábyrgðina á því ástandi sem ríkir í heilbrigðismálum bera stjórn-
málamenn svikalaust. Ekki bara þeir sem nú sitja við völdin, líka
þeir sem árum og áratugum saman leyfðu ástandinu að þróast
þannig að vel menntað og hæft starfsfólk flýr land. Þeir sem nú eru
við stjórnvölinn eiga hins vegar að standa við það sem þeir lofuðu.
Ef þjóðfélagið fer á hliðina við að hjúkrunarfræðingar hafi mann-
sæmandi laun, þá á einfaldlega ekki að lofa slíku fyrir kosningar.
Loforð sem ekki á að standa við, eða lygar, hafa nefnilega afleiðingar
og undan þeim svíður.
Ástand heilbrigðismála er á ábyrgð ráðamanna:
Sárt svíður undan
sviknum loforðum
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Vond afmælisgjöf
Það var ekki beinlínis draumaafmæl-
isgjöfin sem Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra fékk á afmælis-
daginn sinn í gær, þegar hann varð
58 ára. Ákaflega erfið deila hjúkr-
unarfræðinga og íslenska ríkisins
fór aftur á byrjunarreit þegar þeir
fyrrnefndu kolfelldu kjarasamning
í atkvæðagreiðslu. Og niðurstaðan
því væntanlega ávísun á flóknari
úrlausnarefni næstu
daga og vikur en ell-
egar hefði verið. Þá er
bara að vona að aðrar
gjafir til ráðherrans
hafi glatt meira.
Og til hamingju
með gærdaginn,
Kristján.
Úrræðagóður þingmaður
Það mátti svo sem alveg búast
við því að fólk kepptist við það að
hneykslast á fyrirhugaðri byggingu
Landsbankans við Austurhöfn. Enda
nýtt hús rándýr framkvæmd og lóðar-
leigan ekki gefins. Sumir láta sér ekki
nægja að hneykslast heldur koma
með tillögur á móti. Þeirra á meðal
er Frosti Sigurjónsson þingmaður
sem leggur til að Landsbankinn komi
sér fyrir í Kópavogi. Mikið hefði verið
ánægjulegt ef forverar Frosta á þingi
hefðu verið jafnséðir og hann þegar
bygging Hörpunnar var á umræðu-
stiginu fyrir nokkrum árum. Opinber
bygging sem er margfalt
dýrari en nýbygging
Landsbankans og verður
ekki greidd upp alveg
á næstunni.
Áætlunum flýtt
Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins
sendi Seðlabankanum skeyti um
daginn í gegnum fjölmiðla. Í erindi
sínu mæltust Samtök atvinnulífsins
til þess að Seðlabankinn heimilaði
lífeyrissjóðunum (og öðrum inn-
lendum aðilum) að fjárfesta erlendis
fyrr en áætlað var. Áætlunin gerði
upphaflega ráð fyrir að slík heimild
yrði gefin eftir áramót. Hvort
sem það var fyrir áeggjan
Samtaka atvinnulífsins, eða
af öðrum ástæðum, þá er
ljóst að Seðlabankinn hefur
slegið til og ákveðið að flýta
fyrirætlunum sínum.
jonhakon@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-E
E
E
C
1
7
5
4
-E
D
B
0
1
7
5
4
-E
C
7
4
1
7
5
4
-E
B
3
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K