Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 16
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 16
Stærsti hluti aðgerðaáætl-
unar ríkisstjórnarinnar
um losun fjármagnshafta
tekur til slitabúa föllnu
bankanna en heildarum-
fangið í þeim þætti máls-
ins einum er um 900 millj-
arðar króna. Í kynningu
á áætluninni vakti sér-
staka athygli að fram kom
að stærstu kröfuhafar sli-
tabúanna hafi þegar lýst
því yfir að þeir vilji ganga
að svonefndum stöðug-
leikaskilyrðum. Þetta eru stórtíð-
indi og mikið fagnaðarefni að nú
hilli loks undir lok fjármagnshaft-
anna.
Trúverðug aðgerðaáætlun
Að mínu mati er ein meginástæða
þess að málin þróuðust með þess-
um jákvæða hætti sú hversu skýr,
gagnsæ og ófrávíkjanleg áætlun
stjórnvalda varðandi slitabúin
er í raun. Kröfuhafar gerðu sér
grein fyrir að öll framvinda máls-
ins var á forræði stjórnvalda sem
settu fram tvo skýra valkosti; ófrá-
víkjanleg stöðugleikaskilyrði eða
stöðugleikaskatt – gulrót eða kylfu
eins og einhverjir hafa kosið að
nefna þessa kosti. Klókindin felast
svo í fyrirsjáanleikanum varðandi
framhald málsins. Ef ekki verður
búið að ljúka nauðasamningum,
sem rúmast innan stöðugleika-
skilyrða, í árslok 2015 leggst 39%
stöðugleikaskattur á heildareign-
ir slitabúa. Um þetta verður ekki
samið og enginn afsláttur gefinn.
Trúverðug áætlun sem er þessum
kostum búin var forsenda þess
að mögulegt væri að leysa vanda
slita búanna með skilvirkum hætti.
Vandað frumvarp til laga um
stöðugleikaskatt
Eftir að hafa kynnt mér frum-
varp til laga um stöðugleika-
skatt kemur ekki á óvart að stór
hluti kröfuhafa hafi lýst yfir vilja
sínum til að semja við stjórnvöld.
Mjög hefur verið vandað til verka
við smíði frumvarpsins og hugað
hefur verið að þeim grundvallar-
atriðum að skatturinn sé lagður á
eftir almennum efnislegum mæli-
kvarða, jafnræðis sé gætt og skatt-
þegnum sé ekki mismunað.
Fleiri atriði skipta máli við mat
á stjórnskipulegu gildi skattlagn-
ingar. Þannig varðar miklu hvert
sé markmið viðkomandi lagasetn-
ingar, hvers eðlis skattur
er og við hvaða aðstæður
lög eru sett. Það eru ein-
mitt þessi atriði sem eru
helstu styrkleikar frum-
varpsins um stöðugleika-
skatt. Samkvæmt 1. gr.
frumvarpsins er markmið
þess að stuðla að losun
fjármagnshafta með efna-
hagslegan stöðugleika og
almannahag að leiðar-
ljósi. Tilgangur skattsins
er þannig ekki sá að afla
ríkissjóði tekna til þess að standa
undir útgjöldum heldur að draga
umtalsvert úr áhættunni sem felst
í slitum búanna og treysta þannig
efnahagslegan stöðugleika.
Fordæmalausar aðstæður
Ef til þess kemur að stöðugleika-
skattur verður lagður á og deilt
verður um stjórnskipulegt gildi
hans fyrir dómi er ég þeirrar
skoðunar að dómur Hæstaréttar
10. apríl 2014 í máli nr. 726/2013,
þar sem deilt var um álagningu
svokallaðs auðlegðarskatts, sé
mikilvægt fordæmi sem vafalaust
verður horft til við matið. Í dóm-
inum nefnir Hæstiréttur sérstak-
lega, til stuðnings niðurstöðu um
lögmæti auðlegðarskattsins, að
hann hafi fyrst verið leiddur í lög
í lok árs 2009 en á þeim tíma hafi
verið „við að etja einstæðan vanda
í ríkis fjármálum“.
Þau sjónarmið og röksemdir
sem Hæstiréttur reifar í Auðlegð-
arskatts-málinu eiga ekki síður við
varðandi álagningu stöðugleika-
skatts þar sem um er að tefla for-
dæmalausan vanda þar sem í húfi
er efnahagsleg velferð þjóðarinn-
ar. Það voru hin föllnu fjármála-
fyrirtæki sem að verulegu leyti
sköpuðu þann „einstæða vanda“
sem þjóðin stendur frammi fyrir.
Sá vandi snertir greiðslujöfnuð
þjóðarbúsins og er ástæða þess að
hér hafa verið fjármagnshöft frá
árinu 2008. Á sama tíma hafa slita-
búin fengið rými, í skjóli haftanna
og með umfangsmiklum undan-
þágum, til að hámarka endur-
heimtur eigna sinna. Þegar svo
háttar til er ekki óeðlilegt að sli-
tabúin, þar sem núverandi kröfu-
hafar keyptu flestir kröfurnar á
hrakvirði, greiði skatt til að mæta
greiðslujafnaðarvandanum. Með
því móti er efnahagslegur stöðug-
leiki varðveittur.
Ólíklegt að stöðugleikaskattur
verði lagður á eignir slitabúa
Þó að sennilegast sé að stöðug-
leikaskattur verði ekki lagður á
slitabúin er kálið ekki sopið þó í
ausuna sé komið. Fram undan er
langt ferli sem ekki sér fyrir end-
ann á. Þannig liggur t.a.m. fyrir að
aðeins hluti af kröfuhöfum slitabú-
anna standa að baki yfirlýsingun-
um en ekki slitastjórnirnar sjálfar
og enn á eftir að leggja tillögurnar
fyrir kröfuhafafundi til samþykkt-
ar eða synjunar.
Þó að ég sé vissulega þeirr-
ar skoðunar að heppilegt sé að
fara nauðasamningsleiðina þá er
ástæðulaust að óttast ef mál þró-
ast á annan veg. Mun þá koma til
álagningar stöðugleikaskattsins
sem skila mun ríkissjóði 850 millj-
arða króna tekjum og þannig nást
markmið skattlagningarinnar um
að tryggja efnahagslegan stöðug-
leika. Í framhaldinu munu slitabú-
in vafalaust láta reyna á lögmæti
skattsins fyrir dómi.
Ef til þess kemur kvíði ég ekki
niðurstöðunni. Þó að stöðugleika-
skatturinn sé vissulega óvenju-
legur skattur er engin krafa um
það gerð að skattlagning þurfi að
vera hefðbundin ef hún uppfyllir
að öðru leyti þau grundvallaratriði
sem nefnd voru hér að framan um
jafnræði og málefnaleg sjónarmið.
Staðreyndin er sú að Hæstiréttur
hefur játað löggjafanum veru-
legt svigrúm til álagningar skatta
og raunar svo víðtækt að aðeins
í tvö skipti á öllum lýðveldistím-
anum hefur rétturinn komist að
þeirri niðurstöðu að skattlagning
hafi gengið gegn stjórnarskrá. Að
mínum dómi hvílir álagning stöð-
ugleikaskattsins á traustum laga-
grunni og ekki er efni til annars
en að stöðugleikaskatturinn verði
metinn stjórnskipulega gildur ef á
hann yrði látið reyna fyrir dómi.
Stöðugleikaskilyrði eða skattur
Herra Schutz, sendi-
herra Ísraels í Noregi og
á Íslandi. Ég tók eftir les-
endabréfi þínu í Frétta-
blaðinu um daginn og
get ekki staðist mátið að
senda þér nokkrar línur
sem svar.
Þú veist jafn vel og ég að
í átökum Ísraela og Palest-
ínumanna hernemur annar
aðilinn hinn, stundar þar
landrán og reisir landráns-
byggðir í trássi við sam-
þykktir Sameinuðu þjóð-
anna, Genfarsáttmálann
og önnur alþjóðalög.
Þú minnist þó ekki einu orði á
hernámið í grein þinni eða þá stað-
reynd að samkvæmt alþjóðalög-
um og áliti Sameinuðu þjóðanna
er Gaza hernumið svæði. Ísraels-
her ræður land- og lofthelgi þess
ásamt landamærum og „örygg-
isvæðum“ – og ber því sem her-
námsaðila að tryggja öryggi íbú-
anna.
Líkt og þú hafa ísraelskir ráða-
menn og margir talsmenn Hamas
átt erfitt með að horfast í augu við
niðurstöðu nýrrar skýrslu Samein-
uðu þjóðanna þar sem upplýst er
um stórfellda stríðsglæpi Ísraels-
hers, dráp á 551 palestínsku barni
og hátt í tvö þúsund óbreyttum
borgurum. Þar er einnig fjallað
um glæpi og gróf mannréttinda-
brot Hamas og árásir þeirra á
Ísrael sem kostuðu sex óbreytta
borgara lífið, þar á meðal barn.
Tilefni skrifa þinna
er leiðari Óla Krist-
jáns Ármannssonar, Um
stríðsglæpi, þar sem
hann fjallar um niður-
stöðu skýrslunnar. Þar
segir þú umræddan blaða-
mann stunda lélega frétta-
mennsku og gefur í skyn
að skrif hans séu afurð
fordóma og gyðingahaturs.
Leiðari Óla Kristjáns
er vissulega beittur og
gagnrýnir að samþykktir
alþjóðsamfélagsins séu að
engu hafðar í Ísrael. Þar
er þó tekið fram strax í byrjun
að stríðsglæpir hafi verið framd-
ir af bæði Ísraelsmönnum og Pal-
estínumönnum. Benjamín Netan-
jahú forsætisráðherra Ísraels fær
svo heila málsgrein í leiðaranum
til að útskýra hlið Ísraels, meðan
hvorki talsmenn Palestínumanna
né Hamas fá slíkt pláss.
Vondur málstaður að verja
Þar er þó sögð saga eins fórn-
arlambs stríðsins, hins sex ára
gamla Baders Qdeih, sem fannst
á flótta frá þorpinu Kuzah hlaup-
andi með innyflin úti og lést stuttu
síðar í sjúkrabíl við varðstöð Ísra-
elshers. Þú segir réttilega að dauði
drengsins sé ömurlegur, en tekur
síðan fram að það að „lítill dreng-
ur lét lífið er því miður fórnin sem
er færð með háttalagi Palestínu-
araba“. Talandi um fordóma. Að
réttlæta dráp á barni, palestínsku
eða ísraelsku, með því að að tala
um slæmt háttalag heillar þjóðar
finnst mér í besta falli ósmekklegt.
Segir margt um þinn málflutning.
Þegar maður hefur vondan mál-
stað að verja, eins og dráp á börn-
um og hernám á heilli þjóð, er
kannski eðilegt að fara út á hálan
ís í röksemdafærslum sínum. En
að reyna að réttlæta voðaverk her-
manna eða hernámsstefnu ísra-
elskra yfirvalda með því að tala
um gyðinghatur er ekki aðeins
lágkúrulegt, heldur vanvirðing
við fórnarlömb gyðinghaturs fyrr
og nú.
Það er ekki að ástæðulausu
að fjölmörg samtök gyðinga um
allan heim hafi mótmælt árásar-
stríði Ísraels á Gaza. Þau hundruð
þúsunda, gyðingar sem aðrir, sem
streymdu út á göturnar í borgum
og bæjum, m.a. í New York og á
Ísafirði, fyrir ári til að mótmæla
árásum Ísraelshers á Gaza og her-
námi Palestínu eru kannski ekki
sömu skoðunar og þú. En þetta fólk
er ekki gyðinghatarar. Frekar en
þeir blaðamenn sem voga sér að
fjalla um framferði Ísraelshers í
hertekinni Palestínu.
Kæri sendiherra
Gríska þjóðin er í spenni-
treyju Evrópusambands-
aðildar. Mistökin hjá
Grikkjum voru í upphafi
að gerast aðili að Evrópu-
sambandinu. Önnur mis-
tök voru að taka upp evru
sem gjaldmiðil án þess að
geta það í raun og fórna
þar með efnahagslegu
sjálfstæði sínu og rétt-
inum til að bregðast við á
eigin forsendum.
Ógæfa Grikkja
Grikkir eiga nú fárra kosta völ.
Sitji maður fastur, sokkinn í
fenið, dugar skammt að draga
sjálfan sig upp á hárinu. Best
er til framtíðar að ræsa burt og
þurrka upp fenið og segja sig úr
Evrópusambandinu.
Í skjóli laga og reglna Evrópu-
sambandsins var grísku þjóð-
inni komið í þá erfiðu stöðu
sem þeir eru nú í. Það var ljóst
fyrir nokkrum árum að stefndi
í hreinan ófarnað hjá gríska
ríkinu. Valdið til að grípa inn í
var framselt til stofnana Evr-
ópusambandsins sem alls ekki
reynast færar um að takast á við
slíka stöðu. Það eina sem Evr-
ópusambandið getur boðið eru
hertar sultarólar almennings,
svipuhögg og hótanir en kapítal-
ið og valdið vilja fá sitt.
Gæfa Íslendinga
Mér verður hugsað til okkar
Íslendinga, hvernig við værum
staddir ef við hefðum gerst
aðilar að ESB og tekið upp evru.
Það var í skjóli regluverks Evr-
ópusambandsins sem allt fór
úr böndum hér á landi og útrás
banka og fjármálafyrirtækja
hófst.
Sem betur fór stóðum við utan
Evrópusambandsins, með okkar
eigin mynt og réttinum til að
setja okkur lög. Þar skilur milli
okkar og Grikkja. Værum við í
ESB hefðum við ekki getað sett
neyðarlögin, ekki sett á gjaldeyr-
ishöft til að vernda eigin mynt og
efnahag. Við gátum sett okkar
eigin lög um endurgreiðslur
kröfuhafanna til ríkisins, eins
konar skaðabætur fyrir það tjón
sem þeir ollu íslenskum efnahag,
það tjón sem unnið var í skjóli
reglna frá ESB sem við vorum
skylduð til að innleiða.
Framsalssinnar
Vissulega settu Bretar á okkur
hryðjuverkalög í skjóli ESB
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Greiðsla Icesave og afhending
bankanna til kröfuhafa áttu að
liðka fyrir umsókninni að ESB
árið 2009. Um mitt ár 2011 var
hins vegar ljóst að umsóknin og
samningar um inngöngu í ESB
var strand vegna krafna ESB um
að Ísland gæfi upp á bátinn eigin
lög og stofnanaumgjörð í land-
búnaði, dýraheilbrigðismálum og
framseldu forsjá fiskimiðanna
til ESB.
ESB hafði verið blekkt
til að taka við umboðs-
lausri inngöngubeiðni
sumarið 2009. Ég er
stoltur af mínum hlut í
að stöðva inngönguferlið í ESB
á þeim tíma. Þegar kröfur ESB
lágu á borðinu er þeim mun
undarlegra að enn skyldi vera til
hópur stjórnmálamanna, heilir
flokkar á Alþingi sem vildu
halda áfram umsókninni, veg-
ferðinni inn í ESB.
Ólíkindi
Nú síðast í vor var forysta fjög-
urra stjórnmálaflokka á Alþingi
enn blinduð í ESB-trúnni. For-
menn Samfylkingar, Bjartrar
framtíðar, Vinstri grænna og
Pírata fluttu tillögu um fram-
hald umsóknarinnar sem þeir þó
vissu að var stopp vegna krafna
frá ESB og fyrirvara frá Alþingi
sem ekki var heimilt að víkja frá.
Nú þegar við heyrum stöðu
Grikkja og samskiptin við ESB
er með hreinum ólíkindum að
nokkrum heilvita íslenskum
stjórnmálamanni skuli hafa
dottið í hug að leggjast á hnén og
biðja um inngöngu í ESB sumar-
ið 2009. Tökum gilda þá afsökun
þeirra að hafa ekki vitað hvað
þeir voru að gera. Þá er nú kom-
inn tími fyrir forystumenn ríkis-
stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur
að biðjast fyrirgefningar á því
voðaverki, þeirri yfirsjón sem
Evrópusambandsumsóknin var.
Biðjist afsökunar
og styðjið Grikki!
Í ljósi hörmulegrar stöðu
Grikkja er enn ríkari ástæða
til að allir stjórnmálaflokkar
sameinist um þann skilning að
umsókn Íslands um aðild að ESB
sé afturkölluð og engin áform
um að sótt verði um aðild að
nýju. Það er ekkert til sem heit-
ir „að kíkja í pakkann“ hjá ESB.
Það fá nú Grikkir að reyna.
Þeir stjórnmálamenn sem sóttu
um inngöngu í ESB annaðhvort
af fávisku eða barnslegri for-
vitni til „að kíkja Í pakkann“
ættu að hafa kjark til þess að
biðja kjósendur sína og þjóðina
fyrirgefningar, afturkalla til-
löguna á Alþingi um framhald
inngöngubeiðninnar og standa
að þeirri kröfu að umsóknin frá
2009 sé ótvírætt afturkölluð.
Það eru í raun bestu skilaboð
sem íslenskir stjórnmálamenn
og þjóðin öll geta sent grísku
þjóðinni og hvatt hana þar með
til að endurheimta sjálfstæði sitt
og sjálfsforræði og segja sig úr
ESB.
Nú skammast
menn sín fyrir
umsóknina að ESB
➜ Ef ekki verður búið að
ljúka nauðasamningum,
sem rúmast innan stöðug-
leikaskilyrða, í árslok 2015
leggst 39% stöðugleikaskatt-
ur á heildareignir slitabúa.
Um þetta verður ekki samið
og enginn afsláttur gefi nn.
EFNAHAGSMÁL
Einar Hugi
Bjarnason
hæstaréttarlög-
maður.
PALESTÍNA
Eldar Ástþórsson
varaformaður
Félagsins
Ísland-Palestína
og varaþingmaður
Bjartrar framtíðar
➜ Þú minnist þó ekki einu
orði á hernámið í grein
þinni eða þá staðreynd að
samkvæmt alþjóðalögum og
áliti Sameinuðu þjóðanna er
Gaza hernumið svæði.
EVRÓPUMÁL
Jón Bjarnason
formaður Heims-
sýnar og fyrrver-
andi ráðherra
➜ Valdið til að grípa
inn í var framselt til
stofnana Evrópusam-
bandsins sem alls
ekki reynast færar um
að takast á við slíka
stöðu.
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
365.is Sími 1817
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-C
7
6
C
1
7
5
4
-C
6
3
0
1
7
5
4
-C
4
F
4
1
7
5
4
-C
3
B
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K