Fréttablaðið - 16.07.2015, Qupperneq 23
Fallegt handverk
Ágústa Bárðardóttir
hannar skartgripi og
passar upp á að hver
hlutur sé einstakur.
SÍÐA 2
Athyglissýki eða …?
Systkinin Pippa og James Middleton
hafa baðað sig í sviðsljósinu eftir að
systir þeirra giftist inn í bresku
konungsfjölskylduna. Ekki eru
allir sáttir við það.
SÍÐA 4
Þegar manni finnst eitthvað fallegt þá velur maður það gjarna,“ segir Sigríður Ásta
Árnadóttir, nýútskrifaður rit-
stjóri frá HÍ og harmóníkuleikari í
tangósveitinni Mandólín, en hún er
doppudýrkandi mikill. „Ég er veik
fyrir fallegum litum og mynstrum
og hneigist til að velja doppótta
hluti þegar þeir fást. Ég hef ekki
alltaf verið svona, ég átti röndótt
tímabil fyrir einhverju síðan. Þá var
allt í kringum mig og heima hjá mér
röndótt. Ég hef líka átt svona skeið
með liti, einu sinni keypti ég allt
blátt, svo var allt grænt og svo var
rautt tímabil líka. Nú er það dopp-
ótt. Ég hugsa ekkert mjög mikið
þegar ég er að velja mér hluti. Það
er kannski til eitthvað þrennt mis-
munandi og ég veit alltaf um leið
hvað mér finnst fallegast.“ Sigríður
Ásta segist aldrei hafa átt drapp-
litað eða svart tímabil. „Ég hef
reynt að hafa svartan þemadag upp
á sportið en það endar alltaf á því
að ég er komin í skærlita sokka eða
doppótta skó. Einu sinni vantaði
mig nauðsynlega svarta spariskó
og á endanum varð ég að senda
mömmu út í búð því ég kom alltaf
heim með eitthvað doppótt.“
Sigríður Ásta segist reka tvöfalda
stefnu í fatakaupamálum. „Annars
vegar kaupi ég mikið af notuðum
fötum í Rauðakrossbúðinni eða
Hjálpræðishernum en á hinn bóg-
inn vil ég fjárfesta í vönduðum fatn-
aði. Mér finnst gaman að vera í ein-
hverju sem ég hef ekki verið í áður
og gaman að raða saman fötum
og fæ útrás fyrir það með því að
versla í búðum með notuð föt. Mér
hugnast lítið að fara í H&M, ég vil
annaðhvort eiga vandað eða notað.
Ég hef líka litað flíkur og sauma
stundum sjálf, helst pils og eitthvað
einfalt. En ég er aðallega liðtæk í að
aðlaga flíkur sem ég kaupi, breyta
þeim og þess háttar.“ Sigríður Ásta
er stundum stoppuð á götu af fólki
sem finnur þörf hjá sér að ræða
fötin hennar og litavalið. „Ég hjóla
líka um á appelsínugulu hjóli og
fólk segir: Mikið ert þú hressandi
og skemmtilega klædd og gaman
að sjá svona á Íslandi. Sem mér
finnst mjög gaman að heyra því ég
var með það markmið í mörg ár
að hressa upp á fatastíl Íslendinga
og fannst ég vera í herferð gegn
leiðinlegum fötum.“ Sigríður Ásta
segist ekki klæða sig í litrík föt
til að fá athygli heldur líði henni
best í lit. Og hún skiptir litum eftir
líðan. „Ég hef tekið eftir því að
ég sæki í bláan lit þegar ég þarf
á öryggi að halda. Og svo er mér
óhætt að segja að rauða tímabilið
mitt hafi verið á tímabili þegar ég
var í mikilli sköpunarorku. Þannig
að þegar þú ferð að rukka mig um
þetta held ég að ég sjái eitthvert
munstur.“ Eða doppur.
brynhildur@365.is
HIÐ DOPPÓTTA MAN
SKRAUTLEG Sigríður Ásta Árnadóttir, hamóníkuleikari og nýútskrifaður rit-
stjóri, lifir doppóttu lífi og á sjaldan dökkan dag enda gera litir lífið betra.
SIGRÍÐUR ÁSTA ÁRNADÓTTIR Sækir í doppurnar í lífinu.
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
10% afsláttur
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
6
-1
7
2
C
1
7
5
6
-1
5
F
0
1
7
5
6
-1
4
B
4
1
7
5
6
-1
3
7
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K