Fréttablaðið - 16.07.2015, Side 24

Fréttablaðið - 16.07.2015, Side 24
FÓLK|TÍSKA Ágústa Bárðardóttir segist hafa verið eins og barn í sælgætisverslun þegar hún kom inn í föndurbúð í Aþenu á dögunum. Þar náði hún sér í fullt af fallegu efni sem hún hyggst nota í skartgripagerð sína en hún hannar undir merk- inu Bjallar handverk. Hún kynnt- ist skartgripagerðinni í gegnum iðjuþjálfun á Reykjalundi. „Þar notuðum við tilbúnar perlur og þegar ég kom heim prófaði ég mig áfram með þær. Þegar leið á fannst mér það einhvern veginn ekki vera mitt þannig að ég fór að búa til mínar eigin perlur eða kubba úr tré. Auk þess fór ég á námskeið í silfurgerð hjá Tækni- skólanum og komst þá yfir þann hjalla að vera hrædd við að sýna það sem ég er að gera,“ útskýrir Ágústa. HVERT HÁLSMEN ER EINSTAKT Enn sem komið er hefur Ágústa eingöngu gert hálsmen en hún hyggst bæta úr því og gera líka armbönd. Mikil vinna er á bak við hvert men því hvert og eitt er unnið algjörlega frá grunni. „Þegar ég byrjaði að gera skart- ið átti ég nokkrar trjágreinar sem ég ákvað að prófa að nota. Ég vinn mest með greinar sem eru einn til þrír sentimetrar í þvermál. Greinarnar saga ég í litla kubba, bora í hvern fyrir sig og pússa svo í höndunum, þann- ig fæ ég það lag sem ég vil. Ég vil hafa þetta svolítið gróft svo það sjáist að það sé handgert. Perlurnar mála ég svo og lakka og síðan geri ég hálsmenið. Ég nota alls kyns tilbúnar perlur á milli trékubbanna. Ég áætla að á bak við hvert hálsmen sé um fimm tíma vinna. Hvert háls- men er einstakt og ég veit ekki hvernig það verður þegar ég byrja á því.“ Ágústa hefur töluvert prjónað og saumað í gegnum tíðina en hún segir skartgripagerðina hafa heillað sig gjörsamlega. „Mér finnst þetta rosalega gaman og það sannfærði mig um að ég væri á réttri leið að stjórnendur Kisans (kisinn.is) höfðu sam- band við mig og báðu mig um að hafa vörurnar mínar þar til sölu. Á vefsíðunni er íslensk hönnun og handverk til sölu, mér finnst þetta flott framtak og var þess vegna til í að taka þátt,“ segir hún. Ágústa bætir við að hún hafi ákveðið það þegar hún byrjaði á skartgripagerðinni að binda sig ekki við eitthvað eitt heldur geri hún það sem hana langar. „Mottóið mitt er að hætta ekki við grip fyrr en ég er það ánægð með hann og ég myndi ganga með hann sjálf.“ NAFNIÐ SÓTT Í MÝRDAL Spurð hvaðan hið óvenjulega nafn á skartið kemur segir hún að það sé tenging austur í Mýrdal. „Eigin- maður minn er fæddur og uppal- inn þar og við bjuggum þar um tíma. Þar er fjall fyrir ofan bæinn og ganga tvö klettanef út úr því, nokkurs konar snjóflóðagildrur frá náttúrunnar hendi. Klettanefin eru kölluð Bjallar, mér þykir ofsalega vænt um Mýrdalinn og nafnið kemur þaðan.“ FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir SKARTGRIPAHÖNNUÐUR Ágústa heillaðist af skartgripagerð þegar hún prófaði hana. Hún gerir falleg og litrík hálsmen. MYND/ANDRI MARINÓ PÚSSAR HVERJA PERLU ÍSLENSK HÖNNUN Ágústa Bárðardóttir hefur gaman af handavinnu og sér- staklega skartgripagerð. Hún gerir falleg hálsmen frá grunni og hættir ekki við grip fyrr en hann er fullkominn og hún tilbúin ganga með hann sjálf. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 ÚTSALAN er hafin 30-50% afsláttur Flott föt, fyrir flottar konur NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022 8 rétta hlaðborð í hádeginu TILBOÐ KR. 1.590.- OPIÐ KL. 11:00-14:00 Hlaðborðið er alla virka daga. ekki um helgar. kinahofid.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 6 -1 2 3 C 1 7 5 6 -1 1 0 0 1 7 5 6 -0 F C 4 1 7 5 6 -0 E 8 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.