Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 30

Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 30
FÓLK|TÍSKA Ég er mikið kímonófrík og á fimm stykki. Þessi rauði er í sérstöku uppáhaldi en hann er sá fyrsti sem ég eignað- ist, keypti hann á markaði í New York fyrir tíu árum. Hann er mjög vel með farinn og fallegur. Ég var um tíma með verslun með notuð föt og þessi kímonó- kaup urðu hreinlega til þess að ég fór að flytja inn kímonóa frá Japan. Þessi tegund heitir Haori og er meira í ætt við jakka,“ segir Elva Dögg Árnadóttir textílhönnuður þegar hún er spurð út í uppáhaldsflíkina í fataskápnum. Hún segir kímonósniðið ein- staklega klæðilegt og nánast hægt að vera í hverju sem er undir einum slíkum, það verði allt sparilegt. „Ég get verið í svörtum hlíra- bol og velúrbuxum og skellt mér svo í þennan og er orðin fín. Hann er klassískur og alltaf í tísku,“ segir Elva en jakkinn er úr þykku silki sem búið er að pressa svo sérstök áferð er á efninu. Þegar Elva er beðin um að lýsa fatastílnum segist hún blanda saman gömlu og nýju en hún er dugleg að þræða mark- aði með notuð föt. „Ég verð sjúk þegar ég kemst á svona markaði og enn meira hér áður fyrr. Mér þykir alltaf vænt um að finna eitthvað spes á mörkuðum eða í second hand-búðum, þar finnast svo skemmtilegar flíkur. Ég á mikið af notuðum klassískum fötum en ég versla líka mikið í H&M. Ég kaupi langmest af fötum er- lendis á ferðalögum.“ Hvað ertu annars að fást við þessa dagana? „Ég er að vinna að sýningu en ég útskrifaðist úr textílhönnun frá Myndlistaskóla Reykjavíkur síðasta vor. Mig langar að sýna myndir sem ég vann í tengslum við lokaverkefnið mitt. Loka- verkefnið var prjón og ég tók þessar ljósmyndir í þeirri vinnu. Ég á bara eftir að finna gott sýn- ingarpláss,“ segir Elva. Nánar má forvitnast um verk hennar á elvadogg.com. ÞRÆÐIR MARKAÐI NÝTT OG GAMALT Elva Dögg Árnadóttir textílhönnuður þræðir fatamarkaði á ferðalögum í útlöndum og blandar gjarnan saman gömlum og nýjum flíkum. Hún er veik fyrir japönskum kímonóum sem hún segir gera allt sparilegra. SPARILEGT Elva Dögg Árnadóttir keypti sinn fyrsta kímonó á markaði í New York og síðan hefur bæst í safnið. Hún segir kímonó gera allt sparilegra. MYND/ERNIR NÁTTÚRA Innblásturinn á bak við myndir Elvu kemur úr íslenskri náttúru og tónlist frá áttunda áratugnum. SÝNING Í HAUST Elva vinnur nú að fleiri verkum fyrir sýningu í haust. Mörg þekkt nöfn sýna á tísku- vikunni og flestir eru sammála um að herrafötin séu óvenju frjálsleg að þessu sinni. Sumt er hippalegt, annað er rokkaralegt, og röndótt verður örugglega vinsælt á næsta ári. Þá vekur athygli að buxur eru víðar og stuttar. Karlar þurfa ekki að óttast liti næsta vor og ættu endilega að láta hugmyndaflugið ráða í klæðaburði. FRJÁLSLEG HERRATÍSKA VORIÐ 2016 Það kennir margra grasa í herratískunni á tískuvikunni fyrir vor/sumar 2016 sem fram fer í New York þessa dagana. Sjaldan hefur karlmannafatnaður verið jafn fjölbreyttur og allt virðist leyfilegt. Erum á STRANDGÖTU 24 Haf. Nýkomið mikið úrval af sófasettum Tungusófar með og án svefnsófa - margar gerðir STRANDGÖTU 24 - 220 Hafnarfirði sími 565 4100 Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heldur kynningarnámskeið og fyrirlestur 24. - 27. júlí 5 helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”. 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega. Skráning í síma 553 8282 DREKINN WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR Alþjóða heilsu Qigong samband Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -7 9 2 C 1 7 5 5 -7 7 F 0 1 7 5 5 -7 6 B 4 1 7 5 5 -7 5 7 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.