Fréttablaðið - 16.07.2015, Síða 38

Fréttablaðið - 16.07.2015, Síða 38
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 26 „Ég er, skal ég segja þér, á leið- inni inn í Hljóðakletta. Var í Skagafirði um helgina og hélt svo áfram norður í Þingeyjar- sýslu. Blönduhlíð í Skagafirði er sveitin mín, ég er frá bænum Uppsölum í Blönduhlíð,“ segir Eyþór Árnason sviðsstjóri glað- lega. Eru allir Skagfirðing- ar skáld? spyr ég því Eyþór er nýbúinn að gefa út þriðju ljóða- bókina sína, Norður. „Já, eigum við ekki að segja það. Þeir eru nú kannski ekki alveg allir hrifnir af ljóðunum mínum, því þau eru órímuð,“ svarar hann hlæjandi. Nýju bókina tileinkar Eyþór foreldrum sínum. „Titillinn Norður vísar til þess að ég átti nokkur sjoppuljóð um gamla og nýja áfangastaði á leiðinni norð- ur í land. Þá fór ég að sjá fyrir mér rútuferð. Olíustöðin og Fer- stikla í Hvalfirði fá sitt ljóð- ið hvor, líka Hreðavatnsskáli, Brú og bæði gamli og nýi Stað- arskáli. Meira að segja sjoppan hans Linde manns í Varmahlíð. En inn á milli lendir maður í ljóðum sem tengjast ekkert norð- urleiðinni og gleymir sér þar til maður er allt í einu staddur í Víðihlíð! Bókin byrjar í Reykja- vík og átti að enda í Skagafirði en ég lauma líka smá inn um Þingeyjarsýslur, enda var móðir mín þaðan.“ Eyþór er titlaður leikari í símaskránni. „Ég útskrifaðist sem leikari 1983, setti titilinn í símaskrána og beið eftir frægð og frama, svo hef ég bara ekki nennt að breyta þessu,“ útskýr- ir Eyþór, sem átti langan feril að baki sem sviðsstjóri hjá Stöð 2 þegar hann réð sig í Hörpu við opnun hennar. Fyrri bækur Eyþórs eru Hundgá úr annarri sveit, sem kom út 2009 og hann hlaut Bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar fyrir og Svo kom ég aftur úr ágústmyrkrinu, en hún kom út 2011. Spurður hvort hann vilji velja ljóð úr nýju bókinni til birting- ar afbiður Eyþór sér það. „Ég er alveg búinn að sleppa tökum á þessu efni. Sonur minn segir að Næturljóð sé best – ég hef ekkert vit á þessu.“ Þar með leyfum við skáld- inu að halda áfram för og skoða Hljóðakletta. gun@frettabladid.is Sá fyrir mér rútuferð Norður nefnist nýlega útkomin ljóðabók eft ir Eyþór Árnason, sviðsstjóra í Hörpu. Þegar hringt er í hann til að spjalla um bókina er hann auðvitað kominn norður. TÓNLIST ★★★★ ★ Sumartónleikar í Skálholti Elfa Rún Kristinsdóttir og Elina Albach fluttu blandaða dagskrá á Sumartón- leikum í Skálholti. LAUGARDAGINN 11. JÚLÍ. Sagt er að tónskáldið G. A. Pandolfi Mealli hafi drepið gelding. Gelding- ar voru fyrirferðarmiklir í tónlist- arlífinu á sautjándu öldinni. Þá þótti fínt að vera góður söngvari með engin eistu. Til fróðleiks má geta að örlítil prósenta karlmanna verður aldrei kynþroska. Þeir eru kallaðir náttúrulegir geldingar. Einn slíkur er söngvari sem heitir Radu Mari- an. Frábært sýnishorn með söng hans má finna á YouTube undir heit- inu „Radu Marian, Händel, Lascia Ch’io Pianga“. Röddin er furðuleg, hún er sópran, en samt allt öðruvísi en konu- eða barnarödd. Hún gefur manni hugmynd um hvernig geld- ingar fyrri alda hljómuðu. Aftur að Mealli. Hann stakk af frá ódæðinu og flúði til Frakklands og svo til Spánar, þar sem hann fékk fína stöðu. Eiginlega ekkert eftir hann hefur varðveist, nema sónötur fyrir fiðlu og sembal. Það er mikil synd, því ef marka má það sem Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Elina Albach semballeikari fluttu í Skálholti á laugardaginn, þá var Mealli frábært tónskáld. Tónlist- in hans er fallega dreymandi, það er frelsi yfir henni, frumleiki sem maður á ekki að venjast frá þessu tímabili tónlistarsögunnar. Elfa Rún og Albach léku þrjár sónötur eftir tónskáldið. Sembal- leikurinn var frábær, tær og skýr, jafn og yfirvegaður. Fiðluleikur- inn var líka magnaður, en þó mátti finna að nokkuð sárum tón. Ef til vill var hljóðfærinu sjálfu þar um að kenna. En öll hlaup voru nákvæm og andrúmsloftið í túlkuninni var sannfærandi, fullt af innlifun og andakt, en líka fjöri þegar við átti. Fleira en tónlist morðingjans var á dagskránni á tónleikunum. Örstutt einleiksverk fyrir fiðlu eftir Salva- tore Sciarrino (f. 1947) var fallega spilað. Traumverk nr. 2 og 5 úr bók II eftir James Dillon (f. 1950) voru jafnframt grípandi. Leikurinn var einbeittur og þráhyggjukenndur, kraftmikill og lifandi. Tvær sónötur eftir Bach (BWV 1015 og 1023) voru einnig flottar, og Continuum fyrir orgel eftir Ligeti var skemmtilegur inngangur að þeirri síðari. Tónleikarnir voru sniðuglega samsettir. Samtímatónsmíðarnar og gömlu verkin eftir Mealli og Bach mynduðu áhrifamiklar and- stæður. Hástemmd fegurð barokk- tímabilsins var enn meira hrífandi við hliðina á hrjúfri nútímatónlist- inni. Myrkrið þar var sömuleið- is enn þá kröftugra við hliðina á ljósinu úr fortíðinni. Meira svona, takk. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Glæsilegur flutningur Tónskáld og morðingi geldings SKÁLDIÐ „Inn á milli lendir maður í ljóðum sem tengjast ekkert norðurleiðinni og gleymir sér,“ segir Eyþór. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR GUÐJÓNSSON Bílstjórinn ryður út pökkum með hjöruliðskrossum og hlaupastelpum Álengdar á planinu bíður skjálfandi veiðimaður eftir manndrápsspúnaboxinu því hér duga engin vettlingatök við tröllin Síðan mætir sjálfur Skugga-Sveinn í flekkóttu gærunni, hristir nýhvesstan atgeirinn og selur lúnum rútuferðalöngum ilmandi birkihnífa smjörklípuhnífana góðu sem allir verða að eiga en Ásta í Dal brýnir ástríðurnar meðan Haraldur nálgast á ólöglegum hraða Blönduós 1 SKÁLHOLT Sumar- tónleikar í Skálholti fara fram í einstöku umhverfi og eru skemmtilegur hluti af íslenska tónlistar- árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Titillinn Norður vísar til þess að ég átti nokkur sjoppuljóð um gamla og nýja áfanga- staði á leiðinni norður í land. Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. „Þetta er blandað prógramm, frönsk, þýsk og íslensk tón- list frá ýmsum tímum, allt frá 17. öld og fram á okkar daga,“ segir Guðný Einarsdóttir org- anisti um verkin sem hún leik- ur á hádegis tónleikunum í Hall- grímskirkju í dag, 16. júlí. Þar á hún við  Magni ficat eftir Matth- ias Weckmann, Prélude, fugue et variation eftir César Franck og Tokkötu eftir Jón Nordal. Hún segir ekkert erfitt að æfa stór orgelverk þótt sólin skíni úti. „Ég reyni að blanda saman úti- vist og æfingunum,“ segir hún glaðlega. „Hjólaði til dæmis í morgun úr Mosfellsbænum niður í Hallgrímskirkju til að njóta sólar og fylla lungun af lofti.“ Tónleikarnir eru hluti af Alþjóðlegu orgelsumri í Hall- grímskirkju 2015. Þeir hefjast klukkan 12 á hádegi og miðaverð er 2.000 krónur. - gun ORGANISTINN Guðný hefur starfað við Fella- og Hólakirkju í nokkur ár en færir sig yfir í Hjallakirkju 1. september. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Franskt, þýskt og íslenskt efni Guðný Einarsdóttir heldur orgeltónleika í Hallgrímskirkju í hádeginu í dag. Þar hljóma verk þriggja meistara sem fæddir voru hver á sinni öld. MENNING 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -E 0 D C 1 7 5 5 -D F A 0 1 7 5 5 -D E 6 4 1 7 5 5 -D D 2 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.