Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 147. tölublað 103. árgangur
MEÐFERÐ SEM
VIRKJAR SKÖP-
UNARKRAFTINN
15 FJÁRMÁLA-
FYRIRTÆKI
HAFA FALLIÐ
BÖRNIN
SYNGJA
STEINALÖG
VIÐSKIPTAMOGGINN TÓNLISTARHÁTÍÐ Á KLAUSTRI 30ATHÖFN ÚR DJÚPI SÁLAR 10
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
„Eins og staðan lítur út núna mun
kostnaður fara 14% fram úr áætlun
og þá þarf aukið fé til að klára fram-
kvæmdina. Stjórn fyrirtækisins á þó
eftir að fara betur yfir málin og mun
skila endurbættri rekstraráætlun í
haust og þá mun staðan skýrast bet-
ur,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson,
varaformaður fjárlaganefndar, en í
svari stjórnar Vaðlaheiðarganga við
fyrirspurn fjárlaganefndar kemur
fram að kostnaður vegna fram-
kvæmdarinnar er talinn fara 1.500
milljónir fram úr áætlun. Guðlaugur
segir þó að taka þurfi fram að svör
stjórnarinnar séu til eftirbreytni fyrir
aðrar stofnanir. Hins vegar segir
hann einnig alveg ljóst að ekki hafi
verið vandað til verka við undirbún-
ing af hálfu stjórnvalda; að gagnrýni
hafi komið fram en á hana hafi ekki
verið hlustað. Nú sé þó komið á dag-
inn að sú gagnrýni hafi átt rétt á sér
og úr þeirri stöðu verði að vinna.
Ríkið lánaði Vaðlaheiðargöngum
8.700 milljónir, á 3,7% verðtryggðum
vöxtum, sem duga áttu fyrir stofn-
kostnaði. Umframkostnaður er þó 900
milljónum hærri en allt eigið fé Vaðla-
heiðarganga og ef fer sem horfir mun
lánið ekki duga fyrir stofnkostnaði.
Lánið mun ekki duga
Vaðlaheiðargöng talin fara 1,5 milljarða fram úr áætlun Umframkostnaður er
hærri en eigið fé fyrirtækisins Þingmaður telur ekki hafa verið vandað til verka
M 1,5 milljarða fram úr »4
Skoða tvær sviðsmyndir
» Lausn verði fundin á leka-
og hitavandamálum Fnjóska-
dalsmegin á næstu fjórum
mánuðum en eftir það verði
borað beggja megin
» Borað verði alla leið í gegn
Eyjafjarðarmegin
Dánartíðni af völdum hjarta- og
æðasjúkdóma hefur minnkað um
60% síðustu 50 ár á meðal landa inn-
an OECD. Hins vegar greinast fleiri
með sykursýki og offitu, einkum
yngra fólk, sem leiðir aftur til þess
að dánartíðni úr hjarta- og æða-
sjúkdómum mun hækka á nýjan
leik, sem ógnar þeim árangri sem
hefur þegar náðst. Ástæðan er sú að
þessir fyrrgreindu sjúkdómar eru
oft fylgifiskar sykursýki og offitu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
OECD um sykursýki, hjarta- og
æðasjúkdóma og stefnu um bætt
heilbrigði og heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt skýrslunni eru um 85
milljón manns með sykursýki í
OECD, eða 7% fólks á aldrinum 20-
79 ára. Talið er að fjöldinn nálgist
1.080 milljónir árið 2030, sem er
aukning um 27%.
„Það eru mikil vonbrigði að árang-
urinn sem við höfum náð sé smám
saman að þurrkast út. Offita er
áhættuþáttur framtíðarinnar númer
eitt og svo virðist sem við höfum
sofnað á verðinum,“ segir Karl
Andersen, yfirlæknir hjartagáttar á
Landspítalanum. »18
Offita
ógnar
árangri
Morgunblaðið/Eggert
Kransæðar Sjúkdómar í æðakerfi
munu ógna heilsu á nýjan leik.
Sofnað á verðinum,
segir hjartalæknir
Um 1.200 fótboltastrákar eru nú í Eyjum til að
taka þátt í Orkumóti sem hefst í dag, m.a. þessir
úr Aftureldingu og Þrótti. 104 lið eru skráð til
leiks frá 34 félögum. Að sögn Björgvins Eyjólfs-
sonar mótsstjóra er „fánaveður“, mátulegt til að
fánar blakti. Mótinu lýkur á laugardag.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Fánaveður
á Orkumóti
í Eyjum
Landsmenn hafa ekki farið var-
hluta af fjölgun ferðamanna til Ís-
lands á undanförnum árum og eru
fjölmargar minjagripaverslanir í
miðbæ Reykjavíkur til marks um
það.
Starfsmenn og ferðamenn eru
sammála um að lopapeysur, vett-
lingar, húfur og treflar séu vinsæl-
ustu vörurnar sem seldar eru í
minjagripaverslunum borgarinnar.
„Lopapeysurnar eru fallegar og
einstakar,“ sagði hin bandaríska
Alice og ætlaði hún að verða sér úti
um peysu áður en heim væri haldið.
Flestir ferðamannanna sögðust
einnig ætla að kaupa sér lopapeys-
ur ásamt öðrum lopavörum.
Í verslununum eru þó ekki allar
ullarvörurnar framleiddar á Íslandi
og úr íslenskri ull, því einnig er
boðið upp á ódýrari kosti þar sem
ullarvörurnar eru framleiddar er-
lendis. „Það er þá eitthvað fyrir
alla,“ segir starfsmaður minja-
gripaverslunar á Laugaveginum.
Lundabangsar, seglar, stutt-
ermabolir, bollar og annað smálegt
á þó einnig upp á pallborðið hjá
mörgum þótt lopinn beri sigur úr
býtum. »6
Enn heillast ferðamenn af lopapeysunni
Morgunblaðið/Ómar
Lopi Þessir ferðalangar klæddust lopa-
peysum í íslenska sumarveðrinu.
Í ræðu sinni yfir leikmönnum og
þjálfurum í vor talaði Geir Þor-
steinsson, formaður KSÍ, um mikil-
vægi þess að koma í veg fyrir óeðli-
leg áhrif á úrslit leikja. Þessi vandi
teygir anga sína um allan heim.
Engin staðfest dæmi eru þó um það
hér á landi að úrslitum hafi verið
hagrætt, en grunur um slíkt hefur
nokkrum sinnum vaknað. Háum
fjárhæðum er veðjað á íslenska
knattspyrnuleiki, bæði af íslenskum
og erlendum áhugamönnum, og því
fylgir hættan á að leikmenn verði
uppvísir að óheiðarlegu athæfi,
gegn launum frá þeim sem veðja.
Hægt er að veðja á leiki í öllum
deildum meistaraflokks karla og
kvenna á erlendum veðmálasíðum,
en einnig á leiki í 2. flokki karla og
kvenna, jafnvel í vor- og haust-
mótum. Menn geta sem sagt veðjað
á leiki 16 og 17 ára krakka á Ís-
landi, eða leik Stokkseyrar og Ár-
borgar í 4. deild karla. Leikmenn
og þjálfarar, sérstaklega í neðri
deildum meistaraflokka, virðast
margir hverjir verða fyrir tals-
verðu áreiti þeirra sem hyggjast
veðja á leiki þeirra. » Íþróttir
Háum fjárhæðum veðjað á íslenska leiki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Veðmál Knattspyrnan hér á landi er farin
að freista þeirra er taka þátt í veðmálum.