Morgunblaðið - 25.06.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Gerðardómur verður að öllum líkindum kallaður
til, felli hjúkrunarfræðingar nýundirritaðan kjara-
samning þeirra við íslenska ríkið, enda sé kveðið á
um skipun dómsins í lögum um bann við verkfalli
hjúkrunarfræðinga. Þá mun verkfallsbann lag-
anna taka gildi, verði samningurinn felldur. Þetta
segir Lára V. Júlíusdóttir, lektor við lagadeild Há-
skóla Íslands og sérfræðingur í vinnurétti.
Henni þykir líklegt að löggjafinn muni grípa í
taumana, vakni ágreiningur um túlkun laganna.
„Mér þætti mjög einkennilegt ef Alþingi lætur það
yfir sig ganga að verkfall hjúkrunarfræðinga
skelli aftur á þann 15. júlí vegna ófullkominnar
lagasetningar. Það kæmi mér verulega á óvart.“
Hún bendir á að formenn stéttarfélaga undirriti
kjarasamninga með fyrirvara um að félagsmenn
samþykki samningana. „Það eru alltaf félagsmenn
sem ákveða á endanum hvort kjarasamningurinn
er samþykktur.“ Vísar Lára þannig til ákvæðis
laga um stéttarfélög og vinnudeilur þess efnis að
kjarasamningur gildi frá undirskriftardegi nema
hann sé felldur af meirihluta félagsmanna í leyni-
legri atkvæðagreiðslu.
Ólafur G. Skúlason, formaður Félags
hjúkrunarfræðinga, sagði í samtali við mbl.is í gær
að skilyrði fyrir skipun gerðardóms hefði brostið
þegar FÍH og ríkið undirrituðu kjarasamning,
enda væri ekki gerð krafa í lögunum um að samn-
ingurinn væri samþykktur af félagsmönnum FÍH.
Sagðist hann líta svo á að ekki væri hægt að skipa
gerðardóm þó svo að félagsmenn felldu samning-
inn. Þá gætu hjúkrunarfræðingar einfaldlega sest
aftur að samningaborðinu með samninganefnd
ríkisins. Hann vildi þó ekkert fullyrða um annað
verkfall.
Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar
ríkisins, vill ekki tjá sig um hvað ríkið myndi gera,
yrði samningurinn felldur af hjúkrunarfræðing-
um. „Við tökum ákvörðun þegar að því kemur.
Næstu skref fara eftir niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar.“ Erfitt sé að spá fyrir um hana og vanga-
veltur skili litlu á þessu stigi. „Auðvitað skoðum
við möguleg úrræði þegar að því kemur. Úrræðin
fara líka eftir því hvaða skref stjórn FÍH stígur.“
Þá bendir hann á orðalag í greinargerð með
verkfallslögunum á þá leið að samningsaðilar geti
samið sín á milli þó svo að gerðardómur sé að
störfum og alveg þar til hann kemst að niðurstöðu.
„Samningsrétturinn verður ekki tekinn af samn-
ingsaðilum fyrr en niðurstaða gerðardómsins er
birt,“ segir Gunnar. »14
Gerðardómur enn mögulegur
Verkfallslög taka gildi verði samningur felldur, segir lögmaður Formaður FÍH telur forsendur
gerðardóms brostnar Getum samið á meðan gerðardómur starfar, segir Gunnar Björnsson
Kjarasamningur í
atkvæðagreiðslu
» Hjúkrunarfræðingar geta
kosið um samning til 15. júlí.
» Lög um bann við verkfalli
þeirra kveða á um skipun
gerðardóms, verði samningur
ekki undirritaður fyrir 1. júlí.
» Áhöld eru um túlkun ákvæð-
isins og afleiðingar þess að
samningurinn yrði felldur.
» Kjarasamningur gildir frá
undirskriftardegi nema hann
sé felldur í leynilegri atkvæða-
greiðslu félagsmanna.
„Mér þætti mjög ein-
kennilegt ef Alþingi lætur
það yfir sig ganga að verk-
fall hjúkrunarfræðinga
skelli aftur á 15. júlí.“
Lára V. Júlíusdóttir
Meirihluti atvinnuveganefndar Al-
þingis leggur til að 9,6 milljarða
króna veiðigjöld verði lögð á útgerð-
ina á næsta fiskveiðiári. Er það
hækkun um rúman milljarð frá því
sem nú er en 1,2 milljörðum lægri
tala en gert var ráð fyrir í veiði-
gjaldafrumvarpi sjávarútvegsráð-
herra. Hækkunin svarar til rúmlega
12% hækkunar gjalda frá fyrra ári.
Koma þessi áform fram í nefndar-
áliti og breytingartillögu meirihlut-
ans við veiðigjaldafrumvarpið sem
er til umfjöllunar á Alþingi.
Jón Gunnarsson, formaður at-
vinnuveganefndar, segir að sam-
kvæmt talnagögnum sem nefndin
hafi fengið sé talið að almennur af-
komubati útgerðarinnar sé um 12%,
frá fyrra ári og þar með núgildandi
forsendum veiðigjalda. „Við teljum
að hækkun úr 8,5 í 9,6 milljarða á
næsta fiskveiðiári sé í samræmi við
almennan afkomubata,“ segir Jón.
Hann tekur fram að hækkunin komi
aðeins mismunandi niður eftir fiski-
tegundum enda breytist afkoma
veiðanna ekki öll í takt. Humar-
veiðar eru dæmi um grein sem fær
mikla hækkun veiðigjalda. Jón vísaði
að öðru leyti í nefndarálitið sem
dreift yrði á þinginu einhvern næstu
daga.
Samkomulag við ráðuneyti
Í veiðigjaldafrumvarpi sjávar-
útvegsráðherra var gert ráð fyrir að
veiðigjöld myndu skila 10,8 millj-
örðum króna á næsta fiskveiðiári.
Jón segir forsendurnar hafa verið
endurskoðaðar og sátt sé á milli
meirihluta atvinnuveganefndar og
sjávarútvegsráðuneytisins um þessa
breytingu. helgi@mbl.is
Veiðigjöld
hækka
um 12%
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þorski landað Afkoma er nokkuð
breytileg eftir útgerðarflokkum.
Mismunandi breyt-
ingar eftir tegundum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Nú fer næsti fasi í gang, að undirbúa komu fleira fólks
hingað til Húsavíkur. Ýmsir koma að því. Við hlökkum til
þeirra verka,“ sagði Kristján Þór Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings, eftir opinn íbúafund með stjórn
dótturfélags PCC, Bakka Silicon hf., um fyrirhugaða
uppbyggingu kísilvers á iðnaðarsvæðinu á Bakka.
Forsvarsmenn bæjarfélagsins og stjórnendur
Bakka Silicon kynntu stöðu mála og næstu skref. Ljóst
var eftir að PCC aflétti fyrirvörum á öllum samningum
við Landsvirkjun, sveitarfélagið, lánveitendur og fleiri
aðila að félagið hefði loks tekið endanlega ákvörðun um
að ráðast í byggingu kísilvers.
Vinnuvélar fluttar á svæðið
Fram kom að jarðvegsframkvæmdir á lóð fyrir-
tækisins myndu hefjast á allra næstu dögum, væntan-
lega í næstu viku. Nú þegar hefur verið ráðist í vissar
undirbúningsframkvæmdir, svo sem við vegtengingu og
veitur. Árni Helgason, verktaki frá Ólafsfirði, átti lægsta
tilboð í jarðvegsvinnuna þegar hún var boðin út á sínum
tíma. Hann hefur verið að flytja vélar á svæðið og er nú
að koma upp vinnubúðum. Árni hefur verið að funda með
fulltrúum verkkaupa um framkvæmdina en tekur fram
að ekki hafi verið gengið frá verksamningi. Þýskt verk-
takafyrirtæki byggir húsið og sér fyrirtækinu fyrir öllum
tæknibúnaði. Miðað er við að hægt verði að byrja að
steypa sökkla í nóvember eða desember. 15 starfsmenn
verða við jarðvegsvinnuna í upphafi.
Snæbjörn Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Norður-
þingi, segir að fólk hafi verið jákvætt á fundinum. Margir
hafi boðið fyrirtækið velkomið og tekið fram að þeir
hlökkuðu til samstarfs við það.
Framkvæmdir hefjast
á lóðinni í næstu viku
Bæjaryfirvöld og fulltrúar PCC kynntu stöðu mála
og næstu skref á almennum íbúafundi á Húsavík í gær
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Um 70 íbúar mættu á kynningarfund bæjaryfirvalda og PCC, þrátt fyrir sumarfrí og veðurblíðu.
Seyðfirðingar
syrgja konu á þrí-
tugsaldri sem lést
aðfaranótt mið-
vikudags í bíl-
slysi. Hún var
farþegi í bíl með
annarri konu frá
Seyðisfirði þegar
bíllinn valt út af
Vestdalseyrar-
vegi og rann rúma 40 metra niður
hliðina. Hin konan slasaðist töluvert
og lá sofandi í öndunarvél á Land-
spítalanum þegar Morgunblaðið
ræddi við lækni í gærkvöldi.
Minningar- og bænastund var
haldin í Seyðisfjarðarkirkju í gær-
kvöldi. Ásamt prestum voru fulltrú-
ar Rauða krossins á staðnum en at-
höfnin var opin öllum. Sigríður Rún
Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði,
sagði í samtali við mbl.is að slysið
hefði mikil áhrif á bæjarsamfélagið,
enda væri það lítið og allir þekktu
alla.
Bænastund
haldin eftir
banaslys
Seyðisfjarðarkirkja
„Við eigum von á að fyrstu kepp-
endur komi í mark á milli klukkan
sjö og átta,“ segir Jón Ragnar Jóns-
son, verkefnastjóri á samskipta-
sviði WOW air, um WOW hjólreiða-
keppnina. Þegar Morgunblaðið
ræddi við hann á ellefta tímanum í
gærkvöldi höfðu safnast hátt í ell-
efu milljónir króna. Matthias Ebert
var þá kominn að Djúpavogi og
fremstur í einstaklingsflokki. Tveir
þátttakendur þurftu að draga sig
úr einstaklingskeppni. Í A-flokki
liða var ERGO fremst og var að
nálgast Jökulsárlón. HFR ungliðar
voru fremstir í B-flokki og voru
einnig að nálgast lónið. Þá var
hópur Hjólakrafts á Kirkjubæjar-
klaustri.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Hringferð Hjólreiðagarpar á ferð-
inni í Eyjafirði í gær.
Þeir fyrstu í
mark í dag
Íbúar spurðu meðal annars um störf og launakjör í
kisilverinu. Fulltrúar PCC sögðu að farið yrði að huga
að ráðningum um mitt næsta ár. Fólk yrði ráðið á
fyrri hluta árs 2017 til þess að hægt yrði að hefja
þjálfun, en verið á að taka til starfa um haustið. Þeg-
ar hefur verið auglýst eftir staðarstjóra og þá hefur
stjórnendum, sérfræðingum og almennum starfs-
mönnum verið boðið að láta vita af sér upp á ráðn-
ingu þegar nær dragi. Fulltrúarnir lögðu áherslu á að
þeir vildu vera samkeppnisfærir um starfsfólk.
Byrjað að huga að
ráðningu starfsfólks
VILJA VERA SAMKEPPNISFÆRIR UM FÓLK