Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 F A S T U S _ H _ 3 2 .0 5 .1 5 Fastus ehf., - Velkomin í verslun okkar. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 Resorb Sport Þegar þú stundar úthaldsíþróttir eins og hjólreiðar, fjallgöngur, hlaup o.fl. • Bætir upp vökvatap • Minnkar líkur á vöðvakrömpum • Flýtir endurheimt (recovery) • Bragðgóður og handhægur • Inniheldur m.a. magnesium Fæst í fjölmörgum apótekum Helga Sjöfn Helgadóttir er kúabóndi í Hátúni á Langholti íSkagafirði sem er milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Sjálf erhún frá Laugarbökkum í Lýtingsstaðahreppi. Hún og eig- inmaður hennar, Gunnlaugur Hrafn Jónsson sem er frá Stóru-Gröf ytri, eru með 70 mjólkandi kýr, geldneyti og nokkur hross. „Gulli er aðeins að temja og við förum alltaf í hestaferðir á sumrin og leikum okkur í kringum hrossin. Við erum búin að plana fimm daga ferð með góðum hópi á Löngufjörur á Snæfellsnesi í júlí. Þetta eru nokkrir Skagfirðingar sem fara alltaf saman í hestaferðir á sumrin.“ Helga ætlar ekki að gera neitt sérstakt á afmælisdaginn. „Ég ætla að sinna bústörfum og dunda mér í garðinum ef veður leyfir. Það hef- ur verið ansi kalt og öll sveitastörf eru hálfum mánuði á eftir miðað við í fyrra, heyskapur og slíkt. En þetta kemur allt saman. Ég er með matjurtagarð og svo var hérna gamall fallegur garður á bænum sem ég hef verið að halda við.“ Helga og Gunnlaugur keyptu jörðina af föðurbróður Gunnlaugs og hófu búskap veturinn 2006-2007. Helga er gjaldkeri Kvenfélags Seyluhrepps og formaður Foreldra- félags Varmahlíðarskóla. „Ég er ekki í neinum af þessum fjölmörgum kórum sem eru hérna í Skagafirði en fer reglulega á tónleika með þeim. Svo er ég í stórskemmtilegum saumaklúbbi sem hittist reglulega.“ Börn Helgu og Gunnlaugs eru Jón Dagur 21 árs, Dagmar Ólína 15 ára og Hrafn Helgi 10 ára. Helga og börnin Stödd á Mælifellshnjúki, Skagafjörður í baksýn. Sveitastörfin hálf- um mánuði á eftir Helga Sjöfn Helgadóttir er fertug í dag Þ að var sólskin þegar Gunnar fæddist föstu- daginn 25.6. 1965 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann ólst upp í Þorpinu sem sumir kalla Gler- árhverfi á Akureyri: „Á þeim tíma var veðrið mun einfaldara, í minn- ingunni a.m.k.: sól og logn allt sum- arið og kafaldssnjór allan veturinn. Akureyri var að vísu afleitur flug- drekabær enda ekki hægt að halda dreka á lofti nema með hlaupum eða hjóla með hann. Annars var frábært að alast upp í Þorpinu á Akureyri. Á sumrin var leiksvæðið frá Glerárgili að smábátahöfninni í Sandgerðisbót. Það var nóg af brekkum í Þorpinu fyrir skíði og snjóþotur á veturna. Ég fylgdi svo ungur í fótspor Steina bróður míns, fór í skátana og stundaði útivist af kappi, langar gönguskíðaferðir um hálendið á Dr. Gunnar Þór Gunnarsson, hjartalæknir á Akureyri – 50 ára Á Svíþjóðarárunum Fjölskyldan á hjólreiðaferðalagi. Gunnar Þór og Birna María með Valgerði og Oddnýju. Læknar, matreiðir og hjólar af hjartans lyst Og árin líða Birna María, Oddný með stúdentshúfuna, Gunnar Þór og Sóley. Reykjanesbær Bjarki Rafn fæddist 29. ágúst 2014 á LSH í Reykjavík. Hann vó 4.500 g og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru Steinar Rún- arsson og Ásgerður Bjarklind Bjarkadóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.