Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Spá 22 stiga hita
2. Banaslys við Seyðisfjörð
3. Skúli fékk rembingskoss frá Rikku
4. Svona líta venjulegar konur út …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Richard Wagner-félagið á Íslandi
hefur frá árinu 1998 árlega styrkt ung-
an íslenskan listamann til að fara á
Wagner-hátíðina í Bayreuth. Í ár hlýtur
Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri
styrkinn og er hann sá 19. í röðinni.
Meðan á dvöl sinni í Bayreuth stendur
nær Þorleifur að sjá þrjár óperusýn-
ingar auk þess að njóta fræðslu og
fyrirlestra. Þorleifur er ekki ókunnug-
ur Wagner, því hann setti upp Lo-
hengrin í Augsburg árið 2014 og mun
setja upp Siegfried í Karlsruhe vorið
2017. Hann vinnur nú að uppsetningu
óperu eftir Önnu Þorvaldsdóttur, sem
frumsýnd verður í Þýskalandi í haust.
Meðal fyrri styrkþega má nefna Bjarna
Thor Kristinsson, Þóru Einarsdóttur,
Daníel Bjarnason, Herdísi Önnu Jónas-
dóttur og Víking Heiðar Ólafsson.
Morgunblaðið/Golli
Þorleifur Örn styrk-
þegi Wagner-félagsins
Leikfélag Selfoss tekur þátt í leik-
listarhátíðinni NoBa sem haldin verð-
ur 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi, há-
tíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í
Norður-Evrópu, og mun á henni sýna
verkið Kjánar og kynlegir kvistir.
Verkinu er lýst sem skemmtilegri
blöndu þjóðsagna og þjóðsagnaper-
sóna úr hinum íslenska menningar-
arfi. Leikfélagið heldur þrjár fjáröfl-
unarsýningar á verkinu í Litla
leikhúsinu við Sigtún á Selfossi til að
safna í ferðasjóð fyrir utanlandsferð-
inni, 26. og 27. júní og
2. júlí, og verða einn-
ig haldnir tvennir
fjáröflunartón-
leikar, 27. júní í
Litla leikhúsinu
og á Café Rosen-
berg 30. júní.
Safnað fyrir ferð
á NoBa á Jótlandi
Á föstudag, laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag
Austlæg átt, 3-13 m/s. Yfirleitt bjartviðri nyrðra og vestra og hiti
14 til 22 stig, annars skýjað en úrkomulítið og hiti 8 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg austlæg eða breytileg átt en 8-13 m/s
allra syðst. Bjart með köflum norðan- og vestanlands en annars
skýjað að mestu. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
VEÐUR
„Hún er búin að vera í
sjúkrameðferð og lítur mjög
vel út. Ég reikna með að hún
taki 100% æfingu sem síð-
ustu æfingu áður en við för-
um til Þýskalands,“ sagði
Gunnar Páll Jóakimsson,
þjálfari Anítu Hinriks-
dóttur. Aníta hefur glímt
við meiðsli í fyrsta skipti
á ferlinum en hún er öll að
koma til og keppir í 800
metra hlaupi í Þýskalandi
á sunnudaginn. »1
Aníta meidd í
fyrsta skipti
Knattspyrnumaðurinn Eggert Gunn-
þór Jónsson er að leita sér að liði
þessa dagana þar
sem samningur
hans við danska
liðið FC Vestsjæll-
and rennur út í
sumar. Vestsjæll-
and er reyndar
með þriggja ára
samningstilboð á
borðinu fyrir Egg-
ert en þar sem lið-
ið féll úr dönsku
úrvalsdeildinni í
vor er áhuginn
fyrir því ekki mik-
ill hjá Eggerti. »3
Eggert ekki spenntur
fyrir dönsku B-deildinni
Nýliðavalið í NBA-deildinni í
körfuknattleik fer fram í nótt og
það er Minnesota Timberwolves
sem fær fyrsta valið í ár. Næst
koma Los Angeles Lakers og
Philadelphia 76ers með annað og
þriðja val. Fastlega er búist við því
að miðherjinn Karl-Anthony
Towns úr Kentucky-háskólanum
verði valinn manna fyrstur. »2
Spennandi nýliðaval í
NBA-deildinni í nótt
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Tryggvi Þór Skarphéðinsson heldur
á laugardagsmorgun í hjólför þess
stóra hóps sem fer nú hringinn í
kringum landið í nafni WOW flug-
félagsins. Einmanalegra verður hjá
Tryggva en liðunum sem þeysa nú
um landið; þeir hjólhesturinn verða
tveir saman á hringveginum en
hann hlakkar engu að síður mikið til
og tilgangur hjólatúrsins er göfug-
ur: Tryggvi hyggst safna fé til
styrktar Einhverfusamtökunum.
„Mig hefur lengi langað rosalega til
þess að hjóla hringinn og nú fannst
mér rétti tíminn,“ segir Tryggvi,
sem er 24 ára. „Til þess að gera
þetta enn skemmtilegra vildi ég
finna eitthvert mjög gott málefni til
að styrkja í leiðinni. Vissi reyndar
innst inni að ég þyrfti einhverja
pressu til að endast í þessu. Að ég
yrði að taka ábyrgð. Annars hefði
ég kannski bara snúið við í Mos-
fellsbænum ef ég nennti ekki lengra
...“
Allur peningurinn sem safnast fer
til styrktar starfi sem Einhverfu-
samtökin eru með bæði í Reykjavík
og á Akureyri, fyrir 12-20 ára. „Það
er frábært starf og mér fannst kjör-
ið að styrkja það. Þetta höfðaði
mjög til mín, ekki síst vegna þess að
bróðir minn er einhverfur.“
Móðir þeirra benti hjólreiðakapp-
anum á Einhverfusamtökin. „Ég fór
á fund með formanninum, sem
lýsti starfinu vel fyrir mér, og
eftir það fannst mér liggja í
augum uppi að styrkja þau.“
Tryggvi segir hafa verið ótrú-
lega skemmtilegt að skipuleggja
ævintýrið síðustu vikur
„en það skemmtilegasta
er auðvitað eftir; að hjóla
hringinn“.
Tryggvi ólst upp á Akur-
eyri en býr nú í höfuð-
borginni. „Ég hjólaði
mikið þegar ég bjó á Akureyri en
þegar ég flutti suður kynntist ég
strák sem átti rosalega flott hjól.
Fékk þá bakteríuna en lenti svo í
slysi; bremsaði snöggt, datt fram
fyrir mig og braut fjórar fram-
tennur. Eins furðulega og það kann
að hljóma fékk ég miklu meiri
áhuga eftir slysið! Hef æft með
Hjólreiðafélagi Reykjavíkur í tvö ár
og hjóla alltaf í vinnuna. Ég bý í
miðborginni en vinn á leikskóla í
Garðabæ og hjóla 16-20 kílómetra á
dag, í og úr vinnu, og fer svo lengri
túra inni á milli; stundum 40-50 km
æfingatúra með félaginu.“
Hægt verður að fylgjast með ferð
Tryggva á Facebook-síðunni Ein-
hverfuhringur, á Instagram og á
Twitter.
Hjólar hringinn fyrir einhverfa
Fall var sannar-
lega fararheill í
tilfelli Tryggva
Ljósmyndir/Hugi Hlynsson
Tilbúinn í slaginn Tryggvi Þór hjólar í vinnuna á hverjum degi, alls 16-20 kílómetra fram og til baka.
Tryggvi leggur af stað á laugar-
dagsmorgun klukkan 10 frá Olís-
stöðinni í Norðlingaholti. „Þeir
sem vilja styrkja málefnið geta
sent SMS í númer sem verð-
ur gefið upp í vikunni. Þá
renna 1.900 krónur til
samtakanna en líka
verður hægt að leggja
beint inn á reikning
þeirra,“ segir Tryggvi.
Reikningsnúmer
Einhverfusamtakanna er 334-26-
2204 og kennitalan 700179-0289.
„Nokkrir félagar mínir ætla að
hjóla af stað með mér, nokkra kíló-
metra, en eftir það verð ég einn á
ferð.“
Upphaflega hugsaði Tryggvi sér
að geysast hringinn á einni viku
„en af því ég veit ekki almennilega
hvað ég er að fara út í ákvað ég að
gefa mér meiri tíma. Ég ætla að
vera um það bil tvær vikur“.
Tek tvær vikur í túrinn
STYRKIR GOTT MÁLEFNI