Fréttablaðið - 13.07.2015, Page 14

Fréttablaðið - 13.07.2015, Page 14
13. júlí 2015 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT George Zimmerman, sem sakaður var um að hafa skotið hinn sautján ára gamla blökkumann Trayvon Martin í Flórída árinu áður með þeim afleiðingum að hann lést, var sýknaður af öllum ákæru- liðum þennan dag árið 2013. Talið hafði verið að um hatursglæp væri að ræða og vakti málið mikla athygli. Zimmerman sagðist alla tíð hafa skotið Martin í sjálfsvörn og féllst kviðdómurinn í málinu á útskýringu hans þótt Martin hefði verið óvopnaður. Zimmerman sagð- ist hafa haldið að Martin væri innbrots- þjófur því Martin var í hettupeysu en þeir bjuggu í sama hverfi. Zimmerman tók virkan þátt í nágrannavörslu hverfisins. Málið vakti mikið umtal um byssueign og hatursglæpi í Bandaríkjunum og meira að segja Barack Obama Bandaríkjaforseti tjáði sig um málið. Hann sagði að ef hann ætti son myndi hann trúlega líta út eins og Martin. Bandaríska dómsmálaráðuneytið kann- aði í kjölfar sýknunar hvort hægt væri að ákæra Zimmerman fyrir hatursglæp en ákvað að gera það ekki sökum skorts á sönnunargögnum. - þea ÞETTA GERÐIST: 13. JÚLÍ 2013 George Zimmerman sýknaður af ákæru Norðursigling á Húsavík tók fyrsta rafknúna hvalaskoðunar- bátinn á Íslandi í notkun í gær. Báturinn er ekki einungis sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi heldur er hann fyrsti báturinn í heiminum sem hleður rafgeyma sína þegar siglt er undir seglum og notar síðan rafmagnið til að sigla áfram. Báturinn er því laus við notkun olíu. „Okkur finnst algjör tímamót í náttúruskoðun að geta skoðað náttúruna og ferðast án þess að menga og án þess að áreita nátt- úruna. Svo eykur þetta upp lifun farþeganna, sem eru vanir að ferðast undir vélardrunum stórra skipa,“ segir Árni Sigurbjarnar- son, eigandi Norðursiglingar. Öll skip Norðursiglingar eru eikarskip, átta talsins. Fjögur þeirra eru seglskip. Norðursigl- ing er stofnuð utan um endur- byggingu gamalla íslenskra eikar skipa og miðar fyrirtækið að verndun umhverfisins. Auk skipanna er allur bílafloti fyrir- tækisins rafrænn. Nýi búnaðurinn í skipinu nýtir bremsuafl í skrúfunni til að framleiða rafmagn með rafal inn á rafgeyma skipsins. Í skipinu eru fjórir rafgeymar sem hver vegur yfir sex hundruð kíló- grömm. Öll tæknin er sérsmíðuð og sérhönnuð fyrir verkefnið í samstarfi við fyrirtæki á Norður- löndunum og víðar í Evrópu. „Þetta verkefni hófst árið 2012. Á lokasprettinum höfum við verið að vinna með geysilega öflugum hópi. Nú þegar við erum byrjuð að prófa búnaðinn virðist hann uppfylla allar okkar væntingar og kannski gott betur en það,“ segir Árni. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra tók búnað- inn formlega í notkun í gær. thorgnyr@frettabladid.is Tímamót að geta ferðast án mengunar Norðursigling á Húsavík tók fyrsta rafknúna hvalaskoðunarbátinn í notkun í gær. Báturinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Eigandinn segir mikil tímamót að geta ferðast án mengunar og segir skipið bæta upplifun farþega til muna. Skipið er gert úr eik. RAFMAGNSKNÚIÐ Seglskipið Ópal að hlaða rafmagni inn á rafhlöður skipsins með bremsukrafti skrúfunnar. MYND/NORÐURSIGLING Okkur finnst algjör tímamót í náttúru- skoðun að geta skoðað náttúruna og ferðast án þess að menga og án þess að áreita náttúruna. Árni Sigurbjarnarson, eigandi Norðursiglingar. MERKISATBURÐIR 100 f.Kr. Gaius Júlíus Sesar fæðist. 574 Jóhannes þriðji segir af sér sem páfi. 1573 Sjö mánaða umsátri um Haarlem lýkur en það var hluti af Áttatíu ára stríðinu. 1772 James Cook hefur leit sína að Terra Australis, heimsálfu í Suður- höfum. 1793 Charlotte Corday myrðir franska byltingarmanninn Jean-Paul Marat í baði hans. 1837 Viktoría Bretadrottning flytur í Buckinghamhöll, fyrst breskra þjóð- höfðingja. 1878 Serbía, Svartfjallaland og Rúmenía fá sjálfstæði frá Tyrkjaveldi með Berlínarsáttmálanum. 1973 Forsætisráðherra Bretlands, Harold Macmillan, rekur sjö ráð- herra í ríkisstjórn sinni. 1973 Eldfjallið í Heimaey hlýtur nafnið Eldfell að tillögu örnefna- nefndar. 1985 Live Aid-tónleikarnir fara fram í London, Fíladelfíu og víðar. 2014 Þjóðverjar sigra Argentínu- menn 1-0 í úrslitaleik HM í knattspyrnu. FAGNAÐ Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra ávarpar gesti. MYND/NORÐURSIGLING 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 1 -7 6 2 C 1 7 5 1 -7 4 F 0 1 7 5 1 -7 3 B 4 1 7 5 1 -7 2 7 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.