Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 12

Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 12
SHAPE DELUXE heilsurúm m/classic botni Shape deluxe heilsurúm: • Lagar sig fullkom lega að líkama þínum • 26 cm þykk heilsudýna • 2 cm latexlag bólstrað í áklæði • 4 cm gel memoryfoam • 4 cm shape memoryfoam • Non-slip efni á botni dýnunnar • Engir rykmaurar • 5 ára ábyrgð! • Ofnæmisprófuð • Burstaðir stálfætur Stærð cm. Fullt verð Jólatilboð 100x200 129.900 103.920 120x200 164.900 131.920 140x200 184.900 147.920 160x200 209.900 167.920 180x200 234.900 187.920 Jólatilboð 20% afsláttur NATURE’S DIAMOND heilsurúm 25% AFSLÁTTUR Nature’s Diamond heilsudýna með Classic botni og löppum nú á jólatilboði í Dorma. Verðdæmi: Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 204.900 kr. Aðeins 153.675 kr. Jólatilboð 180 x 200 cm Aukahlutur á mynd: rúmgafl. Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 MEIRA Á dorma.is Aðeins 19.900 kr. TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. Hafðu það notalegt um jólin Komdu í Dorma Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. SHAPE B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G 20% AFSLÁTTUR JÓLA- TILBOÐ Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár! Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk þess að vera mjög falleg og líkjast þannig raunverulegum trjám. Einföld samsetning. • Ekkert barr að ryksuga • Ekki ofnæmisvaldandi • 12 stærðir (60-500 cm) • Íslenskar leiðbeiningar • Eldtraust • Engin vökvun • 10 ára ábyrgð • Stálfótur fylgir Opnunartímar: Virkir dagar kl. 09-18 Laugardagar kl. 11-18 Sunnudagar kl. 12-18 Falleg jólatré Þýskaland Þýska stjórnin samþykkti í gær taka þátt í hernaði Frakka gegn „Íslamska ríkinu“ í Sýrlandi. Stjórnin vonast til þess að fá samþykki þings­ ins á föstudaginn. Angela Merkel kanslari hefur heitið því að útvega að minnsta kosti þúsund hermenn ásamt herþotum og freigátu. Frakkar hófu lofthernað gegn Ísl­ amska ríkinu í Sýrlandi strax í kjölfar voðaverkanna í París í síðasta mánuði. Sjálfsvígsárárásir kostuðu þar 130 manns lífið. Ursula von Leyen varnarmálaráð­ herra tók fram að ekkert hernaðar­ samstarf við stjórn Bashars al Assad forseta komi til greina. Hún sagði hins vegar mikilvægt að koma í veg fyrir að ríkisvaldið í Sýrlandi hrynji. Ekki megi endurtaka mistökin frá Írak þegar stuðningsmönnum Sadd­ ams Hussein var öllum bolað burt, með þeim afleiðingum meðal annars að margir þeirra eru nú gengnir til liðs við Íslamska ríkið. Frank­Walter Steinmeier utanríkis­ ráðherra segir síðan óhjákvæmilegt að reikna með því að þessi hernaður muni dragast verulega á langinn. André Wüstner, sem er formaður Bandalags þýskra hermanna, tekur í sama streng: „Ég reikna með að þessi hernaður, ef við sinnum honum af alvöru, muni vara töluvert lengur en tíu ár,“ sagði hann í sjónvarpsviðtali í gærmorgun. Breska stjórnin hefur sömuleiðis ákveðið að halda í hernað gegn Ísl­ amska ríkinu. Reiknað er með því að breska þingið samþykki loftárásir með miklum meirihluta. Málið verður rætt á breska þinginu í dag og eru tíu klukkustundir ætlaðar til umræðn­ anna. Miklu skiptir fyrir úrslitin að Jeremy Corbyn, formaður Verka­ mannaflokksins, ákvað að þingmenn flokksins hefðu frjálsar hendur um atkvæðagreiðslu í staðinn fyrir að skylda þá til þess að greiða atkvæði gegn árásunum, eins og hann hefði getað gert í krafti leiðtogavalds síns. Þar með þykir ljóst að heimildin verði samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta, þótt vitað sé að hluti Verkamannaflokksins og einhver hluti Íhaldsflokksins muni greiða atkvæði gegn henni. Þá hefur arabíska fréttastöðin Al Jazeera skýrt frá því að Sýrlenska þjóðarbandalagið hafi, ásamt fleiri samtökum sýrlenskra stjórnarand­ stæðinga, samþykkt að taka þátt í friðarviðræðum síðar í mánuðinum í Ríad, höfuðborg Sádi­Arabíu. gudsteinn@frettabladid.is Stjórnir Þýskalands og Bretlands vilja hernað Ákvarðanir beggja stjórna bornar undir þjóðþing landanna í vikunni. Þýskir hermenn telja þurfa meira en áratug til að ráða niðurlögum Íslamska ríkisins. loftslagsmál Stofnaður hefur verið alþjóðlegur samstöðuhópur um nýtingu jarðhita (Global Geo­ thermal Alliance), en tilkynnt var um stofnun hópsins á fundi í tengslum við Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í gær. Á meðal stofnenda með Íslandi eru Frakkland, Bandaríkin, Ítalía og Nýja­Sjáland, fjölmörg þróunarríki og fjölþjóðlegar stofnanir og aðilar á borð við Alþjóðabankann, Afríku­ sambandið og svæðabundna þró­ unarbanka. Orkustofnun, Íslenskar orkurannsóknir – ÍSOR og Jarðhita­ skóli háskóla SÞ eru ennfremur stofnaðilar. Gunnar Bragi Sveinsson utan­ ríkisráðherra flutti opnunarávarp fundarins. Ísland hefur verið í farar­ broddi ríkja um stofnun samstöðu­ hópsins en alþjóðleg samtök um endurnýjanlega orkugjafa, IRENA, hafa leitt vinnuna og munu vista samstarfsvettvanginn, sem verður í Abú Dabí. Í ræðu sinni sagði utanríkisráð­ herra að alþjóðasamfélagið yrði að ná saman um metnaðarfull mark­ mið í loftlagsmálum. – shá Byggt undir nýtingu jarðhitans Ísland hefur verið í fararbroddi ríkja um stofnun samstöðuhópsins. fréttablaðið/valli frakkland Barack Obama Banda­ ríkjaforseti hvetur Rússa og Tyrki til þess að halda friðinn og draga úr þeirri spennu sem verið hefur milli ríkjanna eftir að Tyrkir skutu niður rússneska herþotu. „Við eigum okkur sameiginlegan óvin,“ sagði Obama í ávarpi, sem hann flutti  á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í gær, og átti þar við „Íslamska ríkið“, sam­ tök vígamanna sem hreiðrað hafa um sig í Sýrlandi, Írak og víðar.  „Ég vil tryggja að við einbeitum okkur að þeirri hættu,“ sagði Obama. Vladimír Pútín notaði sama vett­ vang á mánudaginn til að saka Tyrki um að hafa skotið niður rússnesku herþotuna til að verja eigin hags­ muni af olíuviðskiptum við víga­ sveitir Íslamska ríkisins. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, mótmælir harðlega full­ yrðingum Vladimírs Pútín Rúss­ landsforseta um að tilgangur Tyrkja með því að skjóta niður rússneska herþotu hafi verið að verja olíuvið­ skipti sín við Íslamska ríkið. Segir hann að Rússar geti ekki slengt þessu fram án þess að leggja fram sannanir: „Við erum ekki svo óheiðar­ legir að kaupa olíu frá hryðjuverka­ mönnum,“ sagði Erdogan. „Ef það sannast að við höfum í raun gert það, þá mun ég segja af mér.“ Erdogan ítrekar hins vegar gagnrýni sína á loftárásir Rússa á uppreisnarsveitir Túrkmena í norðvestur hluta Sýrlands. Túrk­ menar eru skyldir Tyrkjum og njóta óskoraðs stuðnings Tyrklands­ stjórnar. Þeir Obama, Pútín og Erdogan hafa allir tekið þátt í ráðstefnunni í París ásamt flestum öðrum þjóðar­ leiðtogum heims. – gb Hvetur Pútín og Erdogan til að halda friðinn og horfa á sameiginlegan óvin barack Obama á lotfslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París. fréttablaðið/EPa angela Merkel Þýskalandskanslari, David Cameron, forsætisráðherra bretlands, og franÇois Hollande frakklandsforseti á leiðtogafundi í brussel í október. fréttablaðið/EPa Ég reikna með að þessi hernaður, ef við sinnum honum af alvöru, muni vara töluvert lengur en tíu ár. André Wüstner, formaður Bandalags þýskra hermanna 2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I k U d a g U r12 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -1 D 7 8 1 7 4 9 -1 C 3 C 1 7 4 9 -1 B 0 0 1 7 4 9 -1 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.