Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 16

Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 16
Í dag 19.10 Stjarnan - Grindavík Sport 3 19.40 S’ton - Liverpool Sport & 2 Domino’s-deild kvenna 19.15 Stjarnan - Grindavík Ásg. 19.15 Hamar - Valur Hveragerði 19.15 Haukar - Keflavík Ásvellir Nýjast M’brough 0 – 2 Everton Stoke 2 – 0 Sheff. Wed. Man. City 4 – 1 Hull City Everton, Stoke og Manchester City eru öll komin áfram í undanúrslit keppninnar. Fjórðungsúrslitunum lýkur í kvöld með viðureign South­ ampton og Liverpool. Enski deildabikarinn Fótbolti Svekkjandi tap á móti Liverpool um helgina þýðir að upp­ skeran úr síðustu fjórum leikjum hjá Swansea City er aðeins eitt stig. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru því á leiðinni í harða fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni ef svo heldur fram sem horfir. Svanirnir frá Wales unnu 2­1 sigur á Man chester United í lok ágúst og voru þá með átta stig í fjórða sæti deildarinnar. Síðan þá hefur liðið aðeins unnið einu sinni í síðustu tíu deildarleikjum sínum og er það aðeins fjórum stigum frá fallsæti. Gylfi raðaði inn stoðsendingum Staðan var allt önnur fyrir ári þegar Swansea sat í sjöunda sæti deildar­ innar og Gylfi Þór Sigurðsson var í toppbaráttu við Chelsea­manninn Cesc Fabregas á stoðsendingalist­ anum. Það eru bara tvö lið sem hafa „hrunið“ meira í töflunni frá því á sama tíma í fyrra, Englandsmeist­ arar Chelsea og Newcastle United. Swansea og Southampton eru bæði sjö sætum neðar en þeir voru 1. desember í fyrra. Munur á gengi liðsins kristall­ ast í tölfræði Gylfa sem var búinn að leggja upp átta mörk á þessum tíma í fyrra en hefur aðeins gefið eina stoðsendingu í fyrstu þrettán leikjum liðsins í ár. Eina stoðsending Gylfa kom á móti Manchester United í síðasta leik fyrir sögulegt landsleikjahlé þar sem hann hjálpaði íslenska karlalandsliðinu að komast inn á sitt fyrsta stórmót. Gylfi kom að marki á 110 mín­ útna fresti á fyrstu sextán vikum tímabilsins í fyrra en hefur aðeins komið að marki á 350 mínútna fresti á þessari leiktíð. Jafnmörg spjöld og mörk Það að Gylfi sé með jafnmörg gul spjöld (3) og sköpuð mörk (3) á þessu tímabili er tölfræði sem knatt­ spyrnuáhugafólk á Íslandi hefur ekki séð mikið af á síðustu árum. Auðvitað hefur þetta mikil áhrif á markaskor Swansea­liðsins enda kom Gylfi að 10 af fyrstu 17 mörk­ um Swansea á síðasta tímabili eða 59 prósent markanna. Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea, hrósaði sínum mönnum eftir Liverpool­leikinn og talaði um Vonandi ekki svanasöngur Swansea City er sjö sætum neðar í töflunni í ensku úrvalsdeildinni heldur en á sama tíma í fyrra. Gylfi Þór Sigurðsson hefur átt þátt í mun færri mörkum í ár en í fyrstu fjórum mánuðunum á síðasta tímabili. leikir Swansea frá ágúst til 1. desember 2014 Sigur á Man. United Sigur á burnley Sigur á WbA Tap fyrir Chelsea Tap fyrir Southampton Jafntefli við Sunderland Jafntefli við Newcastle Tap fyrir Stoke Sigur á leicester Jafntefli við Everton Sigur á Arsenal Tap fyrir Man. City Jafntefli við C. Palace leikir Swansea frá ágúst til 1. desember 2015 Jafntefli við Chelsea Sigur á Newcastle Jafntefli við Sunderland Sigur á Man. United Tap fyrir Watford Jafntefli við Everton Tap fyrir Southampton Jafntefli við tottenham Tap fyrir Stoke Sigur á Aston Villa Tap fyrir Arsenal Tap fyrir Norwich Jafntefli við bournemouth Tap fyrir liverpool tölfræði Gylfa 13 leikir 1096 mínútur tölfræði Gylfa 14 leikir 1052 mínútur tölfræði Swansea tölfræði Swansea Á upp- eða niðurleið Hér fyrir neðan má sjá saman­ burð á stöðu liðanna sautján sem hafa spilað í ensku úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil. Þetta er mismunur á sæti liðsins í ár miðað við á sama tíma í fyrra. Það kemur ekki á óvart að hrunið sé mest hjá Chelsea en Swansea­liðið er einn­ ig mjög neðarlega. Leicester City +18 Crystal Palace +7 Liverpool FC +5 Arsenal FC +2 Tottenham Hotspur +2 West Bromwich Albion +2 Everton FC +1 Manchester City +1 Manchester United +1 Stoke City Sama sæti West Ham United -3 Aston Villa -4 Sunderland AFC -4 Southampton FC -7 Swansea City -7 Newcastle United -10 Chelsea FC -13 ✿ Mjög ólík tímabil hjá Gylfa Sigurðssyni og Swansea StoðsendingMark 5 sigrar 4 jafntefli 4 töp +3 í markatölu (17-14) 49% stiga í húsi 8. sæti -5 í markatölu (14-19) 33% stiga í húsi 15. sæti 3 sigrar 5 jafntefli 6 töp 2 mörk 8 stoðsendingar 2 mörk 1 stoðsending Skapað mark á 110 mínútna fresti Skapað mark á 350 mínútna fresti GrAFíK/GArðAr ósanngjörn úrslit eftir leikinn. Það má deila um hversu vel liðið spilaði en niðurstaðan var á svipuðum nótum og í leikjunum á undan. Gylfi, sem byrjaði á bekknum í leiknum á undan, kláraði nú allar 90 mínúturnar en tókst ekki frekar en félögum hans að búa til mark. Gylfi hefur nú ekki lagt upp mark í tíu leikjum í röð og mörkin tvö sem hann hefur skorað á þeim tíma hafa komið úr vítaspyrnu og beint úr aukaspyrnu. Skoraði í eina sigurleiknum Markið sem hann skoraði á móti Aston Villa var glæsilegt og kom í eina sigurleik liðsins í september, október og nóvembermánuði. Það reynir heldur betur á Gylfa Þór og félaga í næstu tveimur leikjum sem eru á móti tveimur efstu liðum deildarinnar, Leicester City og Manchester City. Næsti leikur á móti liði sem er núna neðar í töflunni er ekki fyrr en á nýju ári (Sunder land, 12. janúar). Monk hefur ekki áhyggjur af fall­ baráttu en óbreytt ástand þýðir bara vandræði og mögulegan svanasöng í deildinni. ooj@frettabladid.is hvað gerir eygló í ísrael? Evrópumeistaramótið í sundi í 25 m laug hefst í Ísrael í dag en Ísland á þrjá keppendur á mótinu. Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur fyrst keppni í 100 m baksundi en hún bætti Íslandsmet sitt í greininni á Íslandsmeistara­ mótinu í síðasta mánuði er hún synti á 58,40 sekúndum. Er það tíundi besti tími Evrópubúa á árinu. Eygló keppir í alls fjórum greinum á mótinu en auk hennar eru á meðal keppenda Aron Örn Stefáns­ son skriðsundskappi og Inga Elín Cryer sem keppir í bæði skriðsundi og flugsundi. Hrafnhildur Lúthers­ dóttir og Anton Sveinn McKee eru ekki í keppnisliði Íslands að þessu sinni þar sem þau eru við æfingar í Bandaríkjunum. Jón guðni til sænsku meistaranna Varnarmaðurinn Jón Guðni Fjóluson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Svíþjóðarmeistara IFK Norrköping en hann kemur frá GIF Sundsvall, þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú ár. Jón Guðni er 26 ára og fyrrverandi leikmaður Fram en hann hóf atvinnumannsferil sinn með Germinal Beerschot í Belgíu árið 2012. „Það voru fleiri möguleikar í stöðunni en það var farsælast fyrir fjölskylduna að halda okkur innan Svíþjóðar, ekki síst þar sem við eigum von á barni í lok janúar,“ sagði Jón Guðni við Fréttablaðið í gær. „Mér fannst tími til kominn að taka næsta skref á mínum ferli – komast í stærra og betra lið sem vill berjast um titla,“ bætti hann við en Jón Guðni stefnir eins og svo margir aðrir að því að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu fyrir EM næsta sumar. sif áfram í kristianstad Sif Atladóttir hefur framlengt samning sinn við sænska félagsliðið Kristianstads DFF og leikur því með liðinu á næsta tímabili sem verður hennar sjötta í röð í Svíþjóð. Þjálfari liðsins er Elísabet Gunnarsdóttir sem hefur þegar misst Margréti Láru Viðarsdóttur til Vals á Íslandi en hún segist í samtali við Kristanstadsbladet í Svíþjóð vonast til að halda Elísu, systur Margrétar Láru, sem er nú að skoða tilboð frá bæði liðum á Íslandi sem og víðar. Kristianstad hafnaði í sjöunda sæti sænsku úr­ valsdeildarinnar en tímabilinu lauk í haust. 2 . d E S E M b E r 2 0 1 5 M i Ð V i K U d A G U r16 S P o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð sport 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -4 0 0 8 1 7 4 9 -3 E C C 1 7 4 9 -3 D 9 0 1 7 4 9 -3 C 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.