Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 30
Framleiðsla eykst í JapanSjávarútvegur Iðnaðarframleiðsla jókst um 1,4 prósent í Japan í október frá mánuðinum á undan. Það er í annað sinn sem iðnaðarframleiðsla eykst. Mest var framleiðsla farartækja, raftækja og annarra tækja. Myndin, sem var tekin á mánudag, sýnir framleiðslu í Mitsubishi Fuso trukkaverksmiðjunni í Kawasaki, nærri Tókýó, í Japan. Fréttablaðið/epa Spennan á milli Rússlands og Tyrk- lands hefur aukist hratt eftir að Tyrkir skutu niður rússneska orr- ustuþotu sem sögð var hafa flogið inn í tyrkneska lofthelgi, og það er nú þegar ljóst að versnandi samskipti þjóðanna munu hafa neikvæðar efnahagslegar afleiðingar í för með sér fyrir báðar þjóðirnar. Frá hagfræðilegu sjónarhorni hefur svipuð þróun átt sér stað í báðum löndunum á síðustu 15 árum – þróun sem hefur átt sér samsvörun í uppgangi forseta landanna tveggja, Vladimírs Pútín og Receps Tayyip Erdogan. Litið var á báða forsetana sem efnahagslega umbótamenn, og efna- hagsstefnan bæði í Tyrklandi og Rússlandi upp úr 2000 var greinilega umbótasinnuð. Bæði í Tyrklandi og Rússlandi voru fyrstu ár 21. aldar tímabil opnunar í hagkerfinu, einka- væðingar og minnkunar á ríkisút- gjöldum. Það má segja að bæði Pútín og Erdogan hafi verið skínandi dæmi um hið svokallaða Washington-sam- komulag á þessum tíma og árangur- inn var jákvæður. Rússland náði sér eftir greiðslufallið 1998 og í Tyrk- landi varð sterkur hagvöxtur þegar hagkerfið, undir forystu þáverandi forsætisráðherra, Erdogans, vann sig út úr banka- og gjaldmiðilskrepp- unni 2001-2. Það eru engar ýkjur að segja að 2005 hafi bæði Erdogan og Pútín verið eftirlæti fjármálamarkaðanna, og á þeim tíma var erfitt að finna nokkurn mann á alþjóðlegum fjár- málamörkuðum sem hafði eitthvað slæmt að segja um efnahagsstjórn þeirra. Tíu árum síðar er sagan allt önnur – báðir forsetarnir hafa sýnt aukna einræðistilburði, þeim er vantreyst á alþjóðavettvangi og bæði Rússland og Tyrkland hafa glatað ljómanum á fjármálamörkuðum um allan heim. Að miklu leyti stafar það af efna- hagskreppunni um allan heim og veikleikanum í kínverska hagkerfinu, en að mörgu leyti er það líka vegna greinilegs viðsnúnings á efnahags- umbótum í báðum löndunum. Um leið og báðir forsetarnir hafa orðið ráðríkari hefur efnahagsstefna þeirra færst í auknum mæli í átt til ríkis- afskipta, mismununar og verndar- stefnu. Það er sannarlega ekki hjálp- legt fyrir langtímahagvöxt og líklegt að bæði hagkerfin muni halda áfram að hægja á sér næsta áratuginn. tvenns konar meginleitni: lýðfræði og olíuverð Framtíðin virðist vissulega bjartari fyrir Tyrkland en Rússland og þótt rússneska hagkerfið sé núna meira en tvöfalt stærra en það tyrkneska er líklegt að það breytist verulega á komandi áratugum þar sem Tyrkland mun sennilega vaxa mun hraðar en Rússland. Ástæðan fyrir þessu sést í tvenns konar meginleitni. Í fyrsta lagi eru það horfur hvað varðar olíuverð. Þar sem hagvöxtur í Kína mun fyrirsjáan- lega minnka enn meira næsta áratug- inn og tæknibreytingar gera olíuleit ódýrari gæti olíuverð orðið lágt lengi enn. Fyrir olíuútflytjandann Rúss- land eru þetta augljóslega slæmar fréttir, en Tyrkland er orkuinnflytj- andi og mun hagnast á lágu olíuverði. Tyrkland mun jafnframt hagnast á annars konar leitni – hinni lýðfræði- legu. Tyrkneska þjóðin er mjög ung og fólksfjölgun er mikil. Þetta þýðir að vinnuafl í Tyrklandi mun vaxa mikið á komandi áratug. Hins vegar eru lýðfræðilegar horfur í Rússlandi hræðilegar. Mjög lág fæðingartíðni eftir hrun Sovétríkjanna þýðir að Rússar sjá nú fram á áframhaldandi mikla minnkun á vinnuafli. Í raun gæti vinnuafl Rússa dregist saman um þriðjung á komandi áratugum. Þetta hefur nú þegar slæm áhrif á rússneskan hagvöxt og svo mun verða áfram á komandi áratugum. Þótt ríkisafskiptastefna bæði Erdogans og Pútíns séu slæmar fréttir – sér Erdogan þó fram á verulegan efnahagslegan meðbyr, en Pútín stendur frammi fyrir mjög erfiðum kerfislegum áskorunum. Því miður lítur út fyrir að Pútín reyni að takast á við þessi verkefni með því að verða sífellt ágengari í utanríkisstefnu sinni í stað þess að sækjast eftir nauðsyn- legum efnahagsumbótum. Fyrrum umbótasinnar í vígahug Lars Christensen alþjóðahagfræðingur Framtíðin virðist vissulega bjartari fyrir Tyrkland en Rússland og þótt rússneska hagkerfið sé núna meira en tvöfalt stærra en það tyrkneska er líklegt að það breytist verulega á komandi ára- tugum. Erum við í ofurveruleika? Ég sat jafnréttisþing í liðinni viku þar sem tölur sýndu enn og aftur fram á mjög skökk hlutföll kynjanna í fréttatengdu efni ljósvakamiðla. Var ég hissa? Nei. Í fjögur ár benti FKA markvisst á skökk hlutföll í stjórnum og nú hefur félagið bent á það í tvö ár að konur eru aldrei meira en 20-30% viðmælenda í fréttatengdu efni ljós- vakamiðlanna. Ég vonaðist þó til að útkoman hefði skánað örlítið. Í fram- haldinu las ég stöðuuppfærslur og greinar eftir fólk úr ólíkum geirum og varð hugsi eina ferðina enn. Stöldrum við Þegar ég heyri setningar á borð við þær að miðlarnir „endurspegli bara raunveruleikann“, þá staldra ég við. Sjálf hef ég verið í fjölmiðlum frá ung- lingsárum og því fylgst með þróuninni og reglulega hef ég viðrað skoðanir mínar og rætt áhyggjur af þróuninni, eða stöðnuninni, við kollega og yfir- menn. Ég gef ekki lengur mikið fyrir yfirlýsingar um að það sé erfitt að fá konur í viðtöl. Af hverju? Jú, því ég veit betur, reyndi það á eigin skinni og held utan um viðmælendalista tæp- lega 500 kvenna úr atvinnulífinu sem gefa kost á sér í viðtöl eða sem fyrirles- arar á ráðstefnur ef eftir því er leitað. Aldrei stendur á þeim hópi kvenna. Hins vegar get ég fallist á þau rök að hlutfall karla sem eru við völd skapi skekkju að einhverju leyti. Viljaleysi eða skortur á stefnu En það hljóta að þurfa að koma til fjölbreyttari viðmælendur og nýjar nálganir. Mögulega þarf annars konar nálgun á konurnar, en það er þá einn- ig umhverfisins að læra og þróast í takt við þær mannverur sem byggja land. Og að eingöngu tuttugu prósent kvenna komist í fréttatengda umræðu? Er það viljaleysi eða skortur á stefnu? Það er í það minnsta ekki ásættanlegt. Það er víst til hugtak sem heitir ofur- veruleiki (hyperreality) en þar ein- kennist nútíminn af ógreinilegum mörkum milli raunveruleika og blekkingar. Eftirmyndir raunveru- leikans, svo sem í fjölmiðlum, beinum útsendingum og auglýsingum, verða raunverulegri en veruleikinn sjálfur. Legg til að við förum að koma okkur í raunverulegri veruleika. Að taka ákveðna stefnu í ákveðnum málum, breyta og standa við ákvörðunina er eina leiðin. Ef vilji er til staðar, þá er leiðin fær. Hin hliðin Hulda Bjarnadóttir framkvæmdastýra félags kvenna í atvinnurekstri Nýsköpun hefur verið mikil í sjávar útvegi sem og víðar í íslensku samfélagi. Margt jákvætt kom fram í nýrri skýrslu Íslands- banka á dögunum um íslenskan sjávarútveg þar sem skýrsluhöf- undar veita lesendum innsýn í núverandi stöðu sjávarútvegsins sem og þróunina síðastliðin ár. Meðal þess sem kom fram í skýrslunni er að framleiðni í íslenskum sjávarútvegi hefur verið að aukast og hefur tvöfaldast á hvert starf ef horft er aftur til alda- móta. Það er sérstaklega ánægju- legt að þessa framleiðniaukningu má að miklu leyti þakka íslenskri tækniframþróun og verðmæta- sköpun. Aðilar innan sem utan sjávarútvegsins hafa unnið mikið og gott starf á síðustu árum í bætt- um aðferðum til veiða, vinnslu og nýtingar sjávarfangsins. Önnur birtingarmynd þess góða árangurs sem hefur áunnist í auk- inni verðmætasköpun er þróun útflutnings ferskra sjávarafurða. Ef aftur er horft til aldamóta þá hefur útflutningur á ferskum sjávarafurðum minnkað um 47 prósent. Þetta er umtalsverður samdráttur í magni og gæti komið á óvart í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið á aukna áherslu á útflutning ferskra afurða. Þegar verðmæti þessara fersku afurða er aftur á móti borið saman þá hefur það aukist um 94% yfir sama tímabil. Verðmætaaukning ferskra sjávarafurða frá áramótum hefur því verið 268% á hvert útflutt tonn sem er eftirtektarverður árangur. Þessa aukningu má að hluta til rekja til hagstæðrar þró- unar á gengi íslensku krónunnar og verðlags sjávarafurða. Stærsta framlagið liggur hins vegar í betri nýtingu og aukinni verðmæta- sköpun. Um aldamótin þekktist það að heill fiskur væri fluttur út til frekari vinnslu erlendis en nú er það algjör undantekning. Í dag keppast sjávarútvegsfélögin við að skila ferskum fiski til landvinnsl- unnar þar sem hann er m.a. flak- aður eða skorinn í bita. Þessi flök og bitar eru svo flutt út og fyrir þá afurð er greitt umtalsvert meira á hvert kíló eins og tölurnar hér að ofan bera svo glögglega með sér. Nýsköpun og tækniþróun íslenskra fyrirtækja í nánu sam- starfi við útgerðir og fiskvinnslur hafa því skilað íslensku efnahags- lífi miklum verðmætum og hefur þessi árangur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Aukning í framleiðni sem og útflutningsverðmæti ferskra afurða eru aðeins tvö af mörgum jákvæðum atriðum sem fram koma í skýrslu Íslandsbanka um íslenskan sjávarútveg. 268% aukning í verðmæti Runólfur Geir Benediktsson forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Íslandsbanka 2 . d e s e m B e R 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U R10 maRkaðuRinn 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K _ n y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -5 3 C 8 1 7 4 9 -5 2 8 C 1 7 4 9 -5 1 5 0 1 7 4 9 -5 0 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.