Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 46

Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Íslensku þýðinga- verðlaunin T i l n e f n i n g 2 0 1 5 53 ævintýri Grimmsbræðra í líflegri endursögn Philps Pullman og frábærri þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Húrr a fyrir silju! Ég er ekki í þessum hópi, hópi þessara tískustráka. Þegar maður býr á Íslandi lætur maður sér vaxa skegg ef Guð leyfir,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um skeggtískuna sem tröllríður nú öllu. Blaðamaður sló á þráðinn til Kára, til þess að fá úr því skorið hvers vegna sumir karl- menn, sem kannski eru dökkhærðir, eru með rautt skegg. Að sjálfsögðu var Kári með svör á reiðum hönd- um. Stökkbreyting erfðavísis Þegar Kári útskýrir hárlit fer hann strax í fagmál. „Þetta er stökkbreyt- ing í afkvæmum erfðavísis sem býr til viðtæki fyrir melanocortin. Þessi stökkbreyting leiðir til þess að sumir fá rautt hár og verða við- kvæmir fyrir sólarljósi. Tjáningar- myndin á þessari stökkbreytingu getur verið mismunandi,“ segir Kári og heldur áfram: „Sumir verða algjörlega rauð- hærðir á meðan aðrir fá kannski bara rauðan lokk í skeggið, eins og til dæmis ég. Þrátt fyrir að ég hafi verið með tiltölulega dökkt hár.“ Kári segir stökkbreytinguna vera misjafnlega sterka. „Tjáningar- myndin er ekki eins fullkomin, sumt fólk verður algjörlega rauðhært og þá viðkvæmara fyrir sólarljósi.“ Eykur líkur á sortuæxlum Einn fylgifiskur þessarar stökkbreyt- ingar er víðsjárverður. „Þegar þessi stökkbreyting finnst í fólki suður frá, eins og á Spáni, eykur hún mjög mikið líkurnar á sortuæxlum. En til þess að sortuæxlin eigi sér stað verða menn að verða fyrir miklu sólarljósi,“ segir Kári. Hann segir stökkbreytinguna finnast í sex prósentum Spánverja, sautján prósentum Svía en tuttugu og sex prósentum Íslendinga. „Á Íslandi hefur þessi stökkbreyting engin áhrif á tíðni sortuæxla. Hún þre- faldar tíðnina á Spáni og tvöfaldar hana í Svíþjóð. Þannig að hversu mikil áhrif hún hefur á hættuna á sortuæxlum, markast af því hvað menn verða fyrir miklu sólarljósi. Eins og þú veist kæri samlandi,“ segir Kári í góðlátlegum tóni við blaðamann og heldur áfram: „Þá getur maður flúið sólarljósið hér á landi, ef maður er viðkvæmur fyrir því.“ Skeggtískan og Kári Kári gefur lítið fyrir þá sem safna skeggi í tískuskyni og segist alls ekki elta nýjustu strauma í tískunni. „Þessi skeggtíska er bara afturhvarf til hins gamla tíma. Það voru allir með skegg hér þegar land byggðist og þeir sem voru ekki með skegg voru hæddir fyrir það. Ég hef verið með skegg síðan ég var í vöggu. Ég hef bara alltaf verið með skegg.“ Þegar hann er spurður hvort hann noti hluti eins og skeggolíu, sem er vinsæl hjá skeggjuðum karlmönn- um, hnussar í Kára. „Ég veit ekki einu sinni hvað skeggolía er.“ Af hverju fá sumir dökkhærðir rautt skegg? Kári Stefánsson segist ekki elta tískustrauma og segist hafa verið með skegg frá því í vöggu. Hann útskýrir fyrir lesendum Frétta- blaðsins hvers vegna sumir fá rautt skegg og fer yfir tengda tölfræði. Kári StefánS Þessi skeggtískA er bArA AfturhvArf til hins gAmlA tímA. ÞAð voru Allir með skegg hér ÞegAr lAnd byggðist og Þeir sem voru ekki með skegg voru hæddir fyrir ÞAð. ég hef verið með skegg síðAn ég vAr í vöggu. ég hef bArA AlltAf verið með skegg. 2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r30 w Lands- eða heimsþekkt skegg 6% Spánverja, 17% Svía og 26% Íslendinga eru með stökkbreytingu í erfðavísi sem tengist hárlit. 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -3 1 3 8 1 7 4 9 -2 F F C 1 7 4 9 -2 E C 0 1 7 4 9 -2 D 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.