Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 48

Fréttablaðið - 02.12.2015, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Kolbeins Tuma Daðasonar Bakþankar HÓ HÓ HÓ! FLUG TIL EVRÓPU f rá 9.999 kr.* * FLUG TIL AMERÍKU f rá 16.999 kr. SJÁ NÁNAR Á WOW.IS JÓLAGJAFABRÉFIN ERU KOMIN Í SÖLU KATRÍNARTÚN 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum, bókunargjald (999 kr.) og töskugjald ekki innifalið. GEFÐU GJÖF SEM FLÝGUR LENGRA , FYRIR MINNA! Þú velur upphæðina, sem gildir sem greiðsla inn á flug á alla áfangastaði okkar. Kíktu á úrvalið og gerðu verðsamanburð! Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, apr.–jún. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 54,0% 19,3% FB L M BL Allt sem þú þarft ... Stóran hluta skólagöngu minnar átti ég við mikið vandamál að stríða. Skipti þá ekki máli hvort um var að ræða jarðfræðitíma í dimmum sal hjá Guðbjarti pabba hans Lækna-Tómasar í MR eða í vega- og flugvallagerð í verkfræð- inni. Alltaf sótti svefninn að mér. Á menntaskólaárunum átti ég það til að leggja mig hreinlega fram á borðið og sofna. Fæstir kennarar gerðu mál úr því enda átti ég í góðum samskiptum við þá þær stundir sem augun voru opin. Arnbjörn íslenskukennari var þó ekki par sáttur í einum tímanum þegar Óli lokbrá kíkti í heimsókn. Ætli mér hafi nokkurn tímann brugðið jafnmikið og þegar hann sló með krepptum hnefa í borðið og öskraði: „Svona gerir þú ekki hér.“ Tæknin þróaðist og seinni hluta MR náði ég meira að segja stundum að hlusta á kennarann, sem er þó ekki það sama og að skilja eða meðtaka mikilvægar upplýsingar, og þegar athuga- semdin barst: „Tumi, vertu með okkur!“ opnaði ég augun um leið, brosti og hélt baráttunni við svefninn áfram. Eitt skiptið í verkfræðinni fór ég hins vegar bara heim í hléi, svo þreyttur var ég. Meistari Þorsteinn Þorsteins- son kveikti svo vel í bekknum eftir hlé þegar hann hóf tímann á setningunni: „Ég sé að Tumi er farinn á fætur!“ Undanfarin ár hef ég þó þróað með mér aðferðir til að halda mér vakandi þessar örfáu mínútur þar sem svefninn sækir hvað harðast að. Þegar íslenskur lögfræðipró- fessor dottaði undir fyrirlestri í fámennum sal í Finnlandi brosti ég í kampinn enda kann ég öll brögðin í bókinni. Hafði ég þegar klætt mig úr skóm og peysu, sat uppréttur í sætinu og japlaði á nautsterkum brjóstsykri. Reynsla, eftir margra ára dott. Svefninn mikli 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -1 D 7 8 1 7 4 9 -1 C 3 C 1 7 4 9 -1 B 0 0 1 7 4 9 -1 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.