Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 2
 Skilanefnd landSbankanS (gamla): n láruS finnbogaSon formaður - Landsbankinn n lárentSínuS kriStjánSSon hrl. – Landsbankinn einar jónSSon hdl. – Fjármálaeftirlitið frá 2006 til 2008 Sigurjón geirSSon endursk. – Landsbankinn n árSæll HafSteinSSon hdl. – Landsbankinn Skilanefnd glitniS (gamla) n árni tómaSSon formaður – Glitnir Heimir HaraldSSon endursk. – Glitnir ÞórdíS bjarnadóttir hrl. – Glitnir erla S. árnadóttir hrl. – Glitnir n kriStján óSkarSSon rekstrarhagfr. – Glitnir Skilanefnd kaupÞingS (gamla) n Steinar Þór guðgeirSSon hrl. – formaður – Kaupþing n n guðni aðalSteinSSon rekstrarhagfr. – Kaupþing knútur ÞórHallSSon endursk. – Kaupþing n n jóHanneS rúnar jóHannSSon hrl. – Kaupþing tHeodór SigurbergSSon endursk. – Kaupþing n ólafur garðarSSon hrl. – greiðslustöðvun Kaupþings kriStinn bjarnaSon hrl. – greiðslustöðvun Landsbankans Steinunn guðbjartSdóttir hrl. – greiðslustöðvun Glitnis Lögfræðistofa Reykjavíkur gamlir Við- SkiptafÉlagar SKILANEFNDIR BANKANNA Skilanefnd Landsbankans (gamla): Skilanefnd Kaupþings (gamla) Skilanefnd Glitnis (gamla) n FRAMSÓKNARFLOKKURINN n SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN n FYRRVERANDI YFIRMENN Í GÖMLU BÖNKUNUM n jónaS fr. jónSSon – forstjóri FME MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRúAR 20092 Fréttir Skilanefndir gömlu bankanna, Kaup- þings, Landsbanka og Glitnis, voru all- ar skipaðar af Fjármálaeftirlitinu strax í kjölfar setningar neyðarlaganna í byrj- un október síðastliðins. Stjórn Fjár- málaeftirlitsins þótti eðlilegt að skipa í skilanefndirnar menn sem voru hnút- um kunnugir í bönkunum. Fyrir valinu urðu nokkrir valdamiklir millistjórn- endur gömlu bankanna sem enn sitja í skilanefndunum. rekst á við ákvæði í samningum við agS Í samningi stjórnvalda við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn frá 3. nóvember segir um endurskipulagningu og mat á gömlu og nýju bönkunum að virt endurskoðunarfyrirtæki verði ráð- in til að hafa yfirumsjón með fram- kvæmdinni. „Hluti af framkvæmdinni er einnig mat á því hvort stjórnendur og helstu hluthafar hafi gerst sekir um afglöp í rekstri og misnotkun á bönk- unum,“ segir orðrétt í sjöttu grein. Í tí- undu grein samningsins er einnig gert ráð fyrir að fyrrverandi yfirstjórnendur og helstu hluthafar í yfirteknu bönk- unum, sem gerst hafa sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum, eigi ekki að gegna sambærilegum störfum næstu þrjú árin. Í öllum skilanefndunum eru yfir- stjórnendur gömlu bankanna. Ársæll Hafsteinsson var yfirmaður lögfræði- sviðs Landsbankans gamla og var ráð- inn þangað þegar árið 2003, hann er nú í skilanefnd bankans. Kristján Ósk- arsson rekstrarhagfræðingur var fram- kvæmdastjóri hjá Glitni, en hann á sæti í skilanefnd Glitnis. Jóhannes Rúnar Jóhannsson var yfirmaður lögfræði- sviðs Kaupþings, en situr nú í skila- nefnd Kaupþings. Knútur Þórhallsson endurskoðandi starfaði hjá Kaupþingi og situr í skilanefnd bankans nú. Hann var endurskoðandi Exista og vann að samruna Kaupþings og Búnaðarbank- ans á sínum tíma. Hann er einn helsti eigandi Deloitte-endurskoðunarfyrir- tækisins á Íslandi, hefur setið í stjórn þess. Hann hefur jafnframt rekið skrif- stofu með Árna Tómassyni. Guðni Að- alsteinsson rekstrarhagfræðingur var áður stjórnandi hjá fjárstýringu Kaup- þings, en situr nú í skilanefnd bank- ans. Spurðu nefndarmenn hvort þær væru hæfir! Augljóst má vera að meinbugir kunna að vera á setu fyrrverandi yfirmanna gömlu bankanna í skilanefndunum í ljósi samningsins við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn. Þar sem Ársæll, Kristján, Jóhannes Rúnar, Knútur og Guðni eru meðal fyrrverandi stjórnenda gömlu bankanna kunna hagsmunaárekstrar að koma upp en einnig getur verið um að ræða vanhæfi til setu í skilanefnd- unum. Þann 15. desember síðastliðinn sá FME ástæðu til þess að senda frá sér tilkynningu vegna umræðu um skila- nefndirnar. Þar kemur fram að FME beitti ákvæðum neyðarlaganna aðeins nokkrum klukkustundum eftir setn- ingu þeirra til þess að skipa skilanefnd yfir gamla Landsbankann og síðar Glitni og Kaupþing. Í lok tilkynningarinnar segir orð- rétt: „Við skipun manna í skilanefndir var kannað og nefndarmenn sérstak- lega spurðir hvort þeir uppfylltu kröf- ur um almennt hæfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.“ Þess má geta að í skilanefnd Landsbankans situr Einar Jónsson héraðsdómslögmaður, en hann var starfsfélagi Jónasar Fr. Jónssonar í Fjár- málaeftirlitinu 2006 til 2008. lögmannsstofa eða...? Skilanefndirnar voru skipaðar með hraði eftir að neyðarlögin svonefndu höfðu verið samþykkt á Alþingi í byrj- un október síðastliðins. Valinu réðu einkum þrír menn samkvæmt heim- ildum DV; Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, Baldur Guðlaugsson, ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Jón Sigurðsson, stjórnarformaður FME. Augljóslega voru yfirmenn á förum úr gömlu bönkunum sem settir voru í greiðslustöðvun. Samkvæmt gögnum sem DV hefur í höndunum stofnaði Ársæll Hafsteins- son einkahlutafélagið ÁH lögmenn ehf 8. október, daginn eftir að hann hafði verið skipaður í skilanefnd bankans. Tilgangur félagsins er auk lögfræði- þjónustu viðskiptaráðgjöf og hags- munagæsla. Aðsetur ÁH lögmanna ehf er í Þrándarseli 2 í Reykjavík sem er heimili Ársæls. Í lögmannalögum segir hins vegar að lögmanni sé skylt að hafa skrifstofu opna almenningi, sérstak- an vörslufjárreikning í viðurkenndri bankastofnun og gilda starfsábyrgðar- tryggingu og fleira. Sama virðist eiga við um Jóhannes Rúnar Jóhannsson, lögfræðing og fyrr- verandi yfirmann lögfræðisviðs Kaup- þings. Hann á og rekur JRJ fjárráð ehf, til heimilis að Traðarbergi 17 í Hafnar- firði, en það er heimili Jóhannesar. Ekki er vitað til þess að Lögmanna- félag Íslands hafi gert athugasemdir við rekstur ÁH lögmanna ehf og JRJ fjár- ráða ehf í heimahúsum eigendanna. Athygli vekur að Lárentsínus Kristj- ánsson, formaður Lögmannafélags- ins, situr í skilanefnd Landsbankans með Ársæli, eiganda ÁH lögmanna, en Lögmannafélagið hefur meðal annars tilsjón með því að lögmenn fylgi fag- legum reglum. Sem skilanefndarmaður hefur Jó- hannes Rúnar nú afskipti af skuldum bresk-íranska kaupsýslumannsins Roberts Tchenguiz við gamla Kaup- þing. Bankinn hefur tekið yfir félag- ið Oscatello Investments, sem skráð er á Bresku Jómfrúaeyjum og kann- ast Tchenguiz ekki við að eiga það fé- lag lengur. Skuldir hans og eða félaga í hans eigu við Kaupþing nema 643 milljónum sterlingspunda eða um 105 milljörðum króna. lögfræðistofa reykjavíkur Athygli vekur hversu vel eigendur Lög- fræðistofu Reykjavíkur hafa hreiðrað um sig í skilanefndum gömlu bank- anna. Lárentsínus Kristjánsson, lög- fræðingur og formaður Lögmanna- félagsins, situr í skilanefnd gamla Landsbankans. Hann er einn af eig- endum Lögfræðistofu Reykjavíkur. Ólafur Garðarsson lögfræðingur er umsjónarmaður vegna greiðslustöðv- unar Kaupþings gamla og starfar náið með skilanefnd bankans. Hann er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavík- ur. Steinar Þór Guðgeirsson lögfræð- ingur er formaður skilanefndar Kaup- þings banka. Hann er einn af eigend- um Lögfræðistofu Reykjavíkur. Tómas Jónsson lögfræðingur hef- ur einnig komið við sögu skilanefnd- anna, en hann var fundarstjóri á fundi skilanefndar Kaupþings með erlend- um kröfuhöfum í síðustu viku. Hann hefur einnig unnið fyrir Fjármálaeft- irlitið og starfað í þágu Icebank, síðar Sparisjóðabankinn, um og eftir banka- hrunið. Hann er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur. Eigendurnir eru fleiri, þekktast- ur þeirra er væntanlega Sveinn Andri Sveinsson, lögfræðingur og fyrrver- andi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins. Allir eiga þessir menn það sameig- inlegt að vera sjálfstæðismenn. Sumir þeirra hafa gegnt trúnaðarstörfum fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn, meðal annars setið í stjórn SUS –Sambands ungra sjálfstæðismanna, rétt eins og Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins gerði árin 1991 til 1993. Guðni Aðalsteinsson rekstrarhag- fræðingur, áður framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings og núver- andi skilanefndarmaður gamla Kaup- þings, er einnig sjálfstæðismaður. Það er Jóhannes Rúnar Jóhannsson einn- ig, en hann starfaði áður á lögmanns- stofu með lögfræðingunum Sigurbirni Magnússyni og Gunnari J. Birgissyni sem báðir eru flokksbundnir sjálf- stæðismenn. Þáttur framsóknar Lárus Finnbogason, formaður skila- nefndar Landsbankans, er jafnframt einn af eigendum endurskoðun- arfyrirtækisins Deloitte á Íslandi. Finnur Ingólfsson, þáverandi við- skiptaráðherra, skipaði Lárus í stjórn Fjármálaeftirlitsins þegar það tók til starfa í núverandi mynd árið 1999. Lár- us varð stjórnarformaður Fjármálaeft- irlitsins í ársbyrjun 2007 og hélt þeirri stöðu til ársloka þegar Jón Sigurðsson varð formaður þess. Lárus er skráður félagi í Fram- sóknarflokknum. Hann er gamall fé- lagi Finns Ingólfssonar og talinn hafa tengst S-hópnum. Árni Tómasson endurskoðandi er formaður skilanefndar Glitnis. Hann er framsóknarmaður eins og Lárus. Árni er vinur Ólafs Ólafssonar í Sam- skip og hefur setið í stjórn Alfesca, sem er að mestu í eigu Ólafs. Ársæll Haf- steinsson í skilanefnd Landsbankans og Árni Tómasson voru áður yfirmenn Búnaðarbankans. Þeir voru taldir hafa rofið bankaleynd árið 2003 sem varð til þess að Fjármálaeftirlitið úrskurð- aði að Búnaðarbankinn hefði brotið lög um bankaleynd. Með Árna í skilanefnd Glitnis situr Heimir Haraldsson, löggiltur endur- skoðandi. Hann situr meðal annars í stjórn Össurar og er sagður góðvinur Árna. gamla helmingaskiptareglan? Ljóst er að þræðir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru gildir inni í skila- nefndum gamla Kaupþings, Lands- bankans og Glitnis og bera keim af helmingaskiptareglu þessara tveggja flokka frá gamalli tíð. Margt bendir til þess að valið á mönnum í skilanefnd- irnar hafi ekki verið nein tilviljun en hafi byggst á flokkslegum hagsmuna- og kunningjatengslum. Ráðandi öfl í skila- nefndunum eru augljóslega tengd Sjálfstæðis- flokknum gild- um böndum en einnig Fram- sóknarflokkn- um. jóHann HaukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Kunningjatengsl og helmingaskiptaregla Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks einkennir skipan í skilanefndir gömlu bankanna. Hætta á vanhæfi og óeðlileg- um hagsmunatengslum er mikil. Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru auk þess tengdir vinnu við skil og uppgjör gömlu bankanna næstu misserin og ljóst að kostnaður verður mikill. Fjórir lögfræð- ingar af sömu lögfræðiskrifstofunni koma við sögu skilanefndanna. kunningi ólafs ólafssonar Árni Tómasson er formaður skilanefndar Glitnis. Hann hefur meðal annars setið í stjórn Alfes�a�� fyrirtæki í eigu Ólafs. vinir í skilanefndunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.