Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 13
Múmíur finnast í Sakkara
Egypskir fornleifafræðingar hafa
fundið þrjátíu múmíur í 2.600 ára
gamalli gröf í Sakkara, suður af Kaíró
höfuðborg Egyptalands.
Fundurinn hefur verið eignaður Zahi
Hawas, mikilsmetnum fornleifafræð-
ingi. Grafhýsið fannst þegar fornleifa-
fræðingar unnu við að grafa upp ann-
að grafhýsi sem er 4.300 ára gamalt.
Múmíurnar eru í sérlega góðu ástandi
og er hver um sig í eigin steinkistu.
Sakkara gegndi hlutverki grafreits
fyrir Memfis, höfuðborg Egyptalands
til forna.
miðvikudagur 11. febrúar 2009 13Fréttir
Richard Williamson sýpur seyðið af ummælum um helförina:
Rekinn úr starfi í Argentínu
Samfélag heilags Píusar X í Argentínu
hefur sett Richard Williamson af sem
yfirmann rómversk-kaþólsks skóla þar
í landi. Richard Williamson hefur ver-
ið mikið í sviðsljósinu vegna ummæla
sinna um helför gyðinga á dögum
Þriðja ríkis Adolfs Hitlers og vakti upp
mikla reiði þegar hann hafnaði tilvist
gasklefa í Þýskalandi nasismans og
sagði að sögulegar staðreyndir drægju
verulega úr trúverðugleika þess að sex
milljónum gyðinga hefði verið fyrir-
komið í gasklefum, samkvæmt bein-
um fyrirmælum Adolfs Hitler.
Í yfirlýsingu frá samfélaginu sagði
að viðhorf Williamsons drægju „á
engan hátt“ dám af afstöðu samfélags
heilags Píusar X.
Suður-Ameríkudeild Samfélags
heilags Píusar X rekur skóla í La Reja
í Argentínu og sagði yfirmaður henn-
ar, Christian Bouchacourt, meðal
annars í yfirlýsingunni: „Það er ljóst
að kaþólskur biskup getur ekki talað í
kirkjulegu umboði nema um málefni
sem snúa að trú og siðferði.“
Í reiðina vegna ummæla William-
sons blandaðist ákvörðun Benedikts
XVI páfa um að aflétta útskúfun Willi-
amsons úr kirkjulegu samfélagi, en sú
útskúfun var tilkomin vegna annarra
mála. Þótti bæði lærðum og leikum
áhöld um réttmæti ákvörðunar páfa
í ljósi viðhorfa Williamsons og var
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
ein þeirra sem fordæmdi ákvörðun
hans.
Benedikt páfi hefur hvatt Richard
Williamson til að draga til baka um-
mæli sín, en á Williamson er engan
bilbug að finna og engin teikn á lofti
um að hann hyggist verða við beiðni
páfa. Í viðtali við þýska tímaritið Spie-
gel að hann myndi endurskoða skoð-
un sína ef sögulegar sannanir gæfu til-
efni til, en „það gæti tekið tíma“.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Nuestra Senora Corredentora -
skólinn Skóli Samfélags heilags Píusar X í
La reja í argentínu.
Mál átta ára stúlku sem lést árið 2005
er nú til rannsóknar á Englandi. Stúlk-
an, Sophie Waller, þjáðist af ofsa-
hræðslu við tannlækna og svalt í hel
því hún vildi ekki opna munninn eft-
ir að tannlæknir hafði dregið úr henni
átta barnatennur.
Sophie Waller neitaði að borða,
neyta drykkjar eða tala eftir að tenn-
urnar voru dregnar úr henni og dó á
heimili sínu vegna nýrnabilunar af
völdum ofþornunar tuttugu og þremur
dögum eftir aðgerðina.
Háttsettur læknir við konunglega
Cornwall-sjúkrahúsið í Truro hefur
viðurkennt að Sophie hafi orðið fórn-
arlamb umönnunar sem ekki stand-
ist kröfur. Læknirinn, John Ellis, sagði
við réttarrannsóknina að dauði Sophie
hefði haft víðtæk áhrif á öllum trún-
aðarstigum innan veggja sjúkrahúss-
ins. „Ég hef innleitt breytingar sjálfur,“
sagði Ellis.
Fékk skurð á tungu
Að sögn móður stúlkunnar, Janet Wall-
er, varð Sophie sjúklega hrædd við
tannlækna eftir að hún var óvart skor-
in í tunguna við tannskoðun þegar hún
var fjögurra ára. Þegar ein barnatönn
losnaði þegar Sophie borðaði sælgæti
kaus hún frekar að hætta að borða en
að láta tannlækni líta á það. En að lok-
um fóru foreldrar hennar með hana á
sjúkrahús, þar sem Tamsin Hearle, sér-
fræðingur í tannlækningum barna, dró
allar barnatennur úr Sophie og sagði
að undirskrifuð hefði verið beiðni þar
að lútandi. „Vegna þess að Sophie vildi
ekki opna munninn til skoðunar vildi
ég útiloka frekari vandamál vegna
tannvandamála,“ sagði Hearle.
Janet Waller, sem er barnahjúkrun-
arfræðingur, sagði að dóttir sín hefði
orðið eyðilögð þegar hún komst að því
að tennurnar höfðu verið dregnar úr
henni. „Ég hafði skrifað undir skjal til
samþykktar því að ein tönn yrði fjar-
lægð, ekki átta. Hún var ekki hrifin af
tannlæknum fyrir og var því í miklu
uppnámi. Blóð rann niður andlit henn-
ar. Þetta var hræðilegt fyrir hana. Fljót-
lega þurfti hún næringarslöngu því
hún hætti að borða og drekka,“ sagði
Janet Waller.
Fullvissuð um að allt yrði í lagi
Shopie var á sjúkrahúsinu um ellefu
daga skeið og fékk næringu í gegnum
slöngu, en var síðan útskrifuð og send
heim. Heim komin neitaði Sophie enn
að opna munninn og þegar foreldrar
hennar reyndu að mata hana neitaði
hún að kyngja.
Janet Waller sagði við réttarrann-
sóknina að hún hefði reynt að fá So-
phie lagða inn á sjúkrahúsið aftur, en
hefði þá verið sett í samband við Kerry
Davidson barnasálfræðing. Kerry Dav-
idson fullvissaði Janet um að Sophie
myndi jafna sig og sagðist myndu líta
til hennar í næstu viku.
Richard Waller, faðir Sophie, sagði
að þau hefðu árangurslaust reynt að
útvega Sophie þá hjálp sem hún þurfti
eftir því sem ástandi hennar hrakaði.
„Ég hringdi í Kerry Davidson daglega,
stundum tvisvar á dag, til að láta hana
vita hve illa hún [Sophie] liti út. Ég bað
hana ítrekað um að koma en hún sagði
að hún myndi gera það í næstu viku og
að það væri engin ástæða til að hafa
áhyggjur,“ sagði Richard.
Ekkert aðhafst
„Ég var svo áhyggjufullur að ég ákvað
að fara með hana á sjúkrahúsið. Við
vorum á leið út um dyrnar þegar við
fengum skilaboð um að koma ekki,“
sagði faðir Sophie. Foreldrar Sophie
sögðu við réttarrannsóknina að þau
hefðu hringt á sjúkrahúsið, en þeim
hefði verið sagt að Sophie væri nú á
könnu Kerry Davidson. Janet Waller
sagði að hún hefði skilið það á þann
hátt að Kerry Davidson bæri nú ábyrgð
á aðhlynningu Sophie.
„Ég sagði Kerry að hún [Sophie] sygi
watnsmelónu; hún sagði mér að það
nægði til að halda henni á lífi,“ sagði
Janet.
„Auðveldlega hefði verið hægt að
komast hjá dauða Sophie ef við hefð-
um farið á sjúkrahúsið í stað þess að
fara að ráðum þessarar konu, ef ég
hefði sagt: Nei, við förum samt,“ sagði
Richard Waller.
Þegar Sophie lést var hún orðin
svo magnvana að hún gat ekki gengið,
hún var farin að missa hárið og húðin
flagnaði af henni. Við réttarrannsókn-
ina kom fram að hún hafði tapað ellefu
kílóum, nánast einum þriðja hluta eig-
in þyngdar.
Sophie lést í rúmi sínu á heimili fjöl-
skyldunnar í St. Dennis í Cornwall, 2.
desember 2005.
Barnameinafræðingurinn Marie
Ann Brundler sagði að banamein So-
phie hefði verið nýrnabilun vegna
sveltis og ofþornunar.
Réttarrannsókn vegna Sophie Wall-
er er ekki lokið.
ÓttaðiSt tannlækna