Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Síða 6
Yfirtaka stórra
fyrirtækja
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
þrjú atriði sem meðal annars
lúta að endurreisn fjármálakerf-
isins og atriðum til aðstoðar fyr-
irtækjunum í landinu. Ákveðið
var að stofna eignaumsýslufélög
sem munu taka yfir 15 til 20 stór
fyrirtæki sem komin eru í fjár-
hagsvandræði. Með þessu á að
koma í veg fyrir að verðmæti fari
til spillis. Þá var samþykkt að al-
þjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki komi
skilanefndum gömlu bankanna
til aðstoðar og ráðgjafar í samn-
ingum við kröfuhafa erlendis.
Einnig var samþykkt starfsáætl-
un samræmingarnefndar um
endurreisn fjármálakerfisins.
Stúlkur kveiktu
eld í skúr
Lögreglunni í Vestmanna-
eyjum var tilkynnt um eld
í rusli í skúr á Vesturvegi í
bænum. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og skemmd-
ir voru litlar. Lögreglan fékk
fljótlega upplýsingar um að
tvær stúlkur á fimmtánda ári
hefðu kveikt eldinn. Þá hand-
tók lögreglan karlmann undir
morgun á laugardag en lög-
reglumenn urðu vitni að því
þegar maðurinn braut rúðu í
húsnæði Glitnis með sparki.
Maðurinn viðurkenndi brot
sitt við yfirheyrslu.
Einar hættir
hjá Árvakri
Einar Sigurðsson, forstjóri Ár-
vakurs útgáfufélags Morgun-
blaðsins, hættir sem forstjóri
fyrirtækisins en hann hefur ver-
ið ráðinn forstjóri Mjólkursam-
sölunnar. Þar hefur hann störf 1.
apríl. Honum er ætlað að klára
sölu félagsins áður en hann læt-
ur af störfum en stefnt er að því
að ný hlutabréf í félaginu verði
gefin út síðar í þessum mánuði.
Framsóknar-
menn þinga
Framsóknarmenn ákveða á
fundum sínum um næstu helgi
hvernig þeir muni standa að vali
á framboðslista vegna þingkosn-
inganna 25. apríl. Aukakjör-
dæmisþing hafa verið boðuð í
öllum kjördæmum. Fyrsta kjör-
dæmisþingið, í Reykjavík, hefst
klukkan tíu að morgni og það
síðasta, í Suðurkjördæmi, klukk-
an eitt, þannig að gera má ráð
fyrir að síðdegis á laugardag liggi
fyrir hvernig efstu frambjóðend-
ur verða valdir á lista.
miðvikudagur 11. febrúar 20096 Fréttir
Davíð Oddsson var mættur í bankann á undan mótmælendum í gærmorgun:
davíð sá við mótmælendum
Milli 30 og 40 mótmælendur voru
mættir fyrir utan Seðlabankann í
gærmorgun til að freista þess að
varna Davíð Oddssyni og Eiríki
Guðnasyni seðlabankastjórum inn-
göngu. Davíð virðist hafa séð við
mótmælendum, því hann tók dag-
inn snemma og var mættur áður en
mótmælendurnir tóku sér stöðu fyr-
ir utan bankann klukkan átta. Jepp-
anum hans Davíðs hafði verið lagt
á sínum stað inni í bílastæðahúsi
Seðlabankans þegar mótmælendur
mættu.
Sturla Jónsson, atvinnubílstjóri
og nýr liðsmaður Frjálslynda flokks-
ins, var mættur fyrir utan Seðla-
bankann með flautu af bíl sínum
sem hann knúði áfram með há-
þrýstihólkum. Hljómsveitin Egó
spilaði í rúmar tuttugu mínútur fyr-
ir utan bankann og beindi Bubbi
Morthens þeim orðum til starfsfólks
bankans að það skyldi ganga í lið
með mótmælendum og bera Davíð
rólega út, án þess að meiða hann.
Hann vildi ekki persónugera mót-
mælin og sagði að Davíð væri ein-
faldlega vanhæfur.
Lögreglan var með viðbúnað,
bæði í bílastæðahúsi Seðlabankans
og svo við aðalinngang. Mótmæl-
in fóru þó friðsamlega fram og ekki
þurfti að grípa til neinna aðgerða
að sögn lögreglunnar í Reykjavík.
Hörður Torfason sagði í samtali við
DV í gær að Davíð Oddsson yrði að
víkja úr bankanum. „Þetta er mógð-
un. Við munum halda þessum að-
gerðum áfram þangað til hann fer,“
sagði Hörður.
bodi@dv.is
Sá við mótmælendum Jeppinn hans davíðs var kominn í bílastæðahús Seðlabank-
ans þegar mótmælendur tóku sér stöðu þar í gærmorgun.
„Það er mjög óviðeigandi að nota
þetta tækifæri til að ná viðtali,“ sagði
Örnólfur Thorsson forsetaritari þeg-
ar blaðamaður DV ætlaði að ræða
við Dorrit Moussaieff forsetafrú um
hvort erfiðleikar væru komnir í sam-
band hennar og Ólafs Ragnars. Dorrit
afhenti Eyrarrósina á Bessastöðum í
gær. Voru flestir fjölmiðlar landsins
boðaðir þangað af því tilefni. Áður
en Örnólfur neitaði blaðamanni um
viðtal hafði Dorrit sagst hafa næg-
an tíma til að ræða við blaðamann.
„Ég get talað við þig í tvo klukku-
tíma,“ sagði Dorrit þegar blaðamað-
ur spurði hvort hún ætti mínútu af-
lögu. Þegar Örnólfi varð ljóst erindi
blaðamanns var honum nánast vís-
að á dyr.
Eins og eiginkona araba
„Mig langaði að fara á mótmælin
en eiginmaður minn leyfði mér það
ekki. Ég er eins og eiginkona araba,“
segir Dorrit í viðtali við marshefti
tímaritsins Condé Nast Portfolio.
Viðtal blaðsins við Dorrit og Ólaf hef-
ur vakið mikla athygli hér á landi og
hefur meðal annars verið talið bera
þess merki að einhverjir brestir séu
komnir í samband þeirra. Viðbrögð
forsetaritara í gær gefa líka til kynna
að embættið hafi lítinn áhuga á því
að Dorrit tjái sig um einkamál þeirra
hjóna við fjölmiðla.
Efnahagsleg togstreita
Ekki er nóg með að ágreiningur for-
setahjónanna um efnahagshrunið í
erlendum fjölmiðli hafi sýnt forset-
ann í vandræðalegu ljósi heldur hafa
orð hans um afleiðingar efnahags-
hrunsins komið íslenskum stjórn-
völdum og bönkum í bobba. Í gær
hafði þýska útgáfa Financial Times
eftir Ólafi Ragnari að ekki væri hægt
að ætlast til þess af Íslendingum að
þeir endurgreiddu þýskum spari-
fjáreigendum innistæður þeirra hjá
Kaupþingi í Þýskalandi.
Ummælin vöktu blendin viðbrögð
innan lands sem utan og forsetinn sá
ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu
með athugasemd við fréttina með
ummælunum sem hann sagði vera
villandi. Forsetinn ítrekaði í yfirlýs-
ingunni að hann hefði gert blaða-
manni Financial Times grein fyrir því
að skýr vilji væri fyrir því að standa
við skuldbindingar íslenskra fjár-
málafyrirtækja á erlendri grundu.
Samband Ólafs og Dorritar hefur
nú staðið í átta ár. Á þeim tíma hafa
þau ferðast mikið um heiminn, oft
í föruneyti íslensku „útrásarvíking-
anna“. Eftir bankahrunið hefur for-
setanum verið legið á hálsi fyrir að
hafa verið í klappstýruhópi útrásar-
innar og viðbrögð Dorritar í viðtalinu
við Condé Nast Portfolio benda til að
efnahagsþrengingar undanfarinna
mánaða hér á landi hafi skapað tog-
streitu í sambandi hennar og forset-
ans.
Deilur Dorritar Moussaieff og Ólafs Ragnars í tímaritinu Condé Nast Portfolio hafa
vakið mikla athygli. Örnólfur Thorsson forsetaritari kom í veg fyrir að Dorrit gæti
tjáð sig við blaðamann DV í gær þrátt fyrir að hún segðist hafa nægan tíma. Viðbrögð
Örnólfs benda til að forsetaembættið hafi lítinn áhuga á því að Dorrit tjái sig við fjöl-
miðla um samband þeirra hjóna.
bannað að tala
Nýir tímar
vel fór á með dorrit moussai-
eff og nýjum menntamálaráð-
herra á bessastöðum í gær.
MYND HEiða HElgaDÓTTiR
Brestir í sambandinu
Ólafur ragnar og dorrit trúlofuðu sig árið 2000
og giftu sig árið 2003. Nú þegar útrásarævin-
týrið er búið og kreppa skollin á fer ljóminn
óneitanlega af embættinu. Þetta er talið hafa
slæm áhrif á samband þeirra hjóna.
aNNaS SigMuNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is