Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Qupperneq 8
miðvikudagur 11. febrúar 20098 Fréttir
CATALINA RAK ANNAÐ
HÓRUHÚS Í HAFNARFIRÐI
Vændi hefur verið stundað í íbúð
Catalinu Mikue Ncogo að Akurvöll-
um í Hafnarfirði, samkvæmt íbúum
í blokkinni. Hópur erlendra kvenna
hefur búið í húsinu og segja íbúarn-
ir að umgangur ókunnra karlmanna
hafi verið töluverður í húsinu. Íbú-
ar hússins hafa oft haft samband við
lögregluna út af vændinu og hávaða
og láta úr íbúð Catalinu. Þeir segja að
lögreglan hafi ekkert aðhafst í málinu
og eru ósáttir við framgöngu hennar.
Nágrannakona Catalinu kærði
hana til lögreglunnar í lok síðasta árs
eftir að Catalina barði hana í andlit-
ið með ryksugusnúru sem hún hafði
vafið utan um hnúann á sér. Catalina
hótaði í kjölfarið að drepa konuna og
kveikja í blokkinni. Íbúinn hefur sett
íbúð sína á sölu út af Catalinu. „Ég
þori ekki að vera með börnin mín
hérna lengur.“
Einn íbúinn segist halda að vænd-
iskonurnar sem bjuggu í íbúð Catal-
inu hafi nú verið fluttar úr henni og
niður á Hverfisgötu 105 því hann hafi
ekki séð þær í nokkurn tíma.
DV greindi frá því í gær að Catal-
ina ræki hóruhús í íbúð 401 í húsinu
á Hverfisgötu 105. Fjórar konur á þrí-
tugsaldri frá löndum í Suður-Ameríku
hafa búið í íbúðinni síðan um miðjan
janúar og selt sig fjölda karlmanna
á öllum aldri á uppblásnum, færan-
legum beddum. Íbúarnir í húsinu á
Hverfisgötu hafa margsinnis kvartað
til lögreglunnar vegna vændisins.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
vegna gruns um að verið sé að græða
á vændi kvennanna, að sögn Svan-
hvítar Eyglóar Ingvarsdóttur, lög-
reglufulltrúa í kynferðisafbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki hefur fengist uppgefið hjá lög-
reglu hvort hún rannsaki einnig íbúð
Catalinu á Akurvöllum.
Samkvæmt íslenskum lögum er
ólöglegt að þriðji aðili græði á vændi.
Einn íbúi í húsinu á Hverfisgötu
bankaði upp á hjá vændiskonunum
í íbúðinni í desember síðastliðnum
og ræddi við þær. Ein þeirra sagði
við íbúann að Catalina tæki alla pen-
ingana sem þær fengju greidda fyrir
vændið. Í kjölfarið hafði íbúinn sam-
band við lögregluna.
Svo virðist sem hóruhúsið hafi
fyrst verið rekið í íbúð Catalinu á Ak-
urvöllum en hafi síðan verið fært nið-
ur á Hverfisgötu.
Vændishúsið á Akurvöllum
Íbúi í blokkinni á Akurvöllum seg-
ir aðspurður að á síðustu mánuð-
um hafi verið töluverður umgangur
ókunnugra karlmanna um stiga-
gangana í húsinu og til íbúðar Ca-
talinu. „Það er bara vændi stundað í
íbúðinni. Það er alveg greinilegt. Ég
hef oft gómað menn sem eru að fara
þarna og um leið og þeir eru að fara
inn opnar einhver kona fyrir þeim.
Catalina er greinilega að gera konur
út í íbúðinni,“ segir íbúinn og bætir
því við að yfirleitt hafi nokkrar konur
búið í íbúðinni á sama tíma. Íbúinn
segir kúnna vændiskvennanna hafa
komið í húsið að Akurvöllum á öllum
tímum dagsins.
Annar íbúi segir augljóst að vændi
hafi verið stundað í húsinu. „Þetta er
hrikalegt. Karlmannaumferðin sem
verið hefur hérna í húsinu. Við töl-
uðum um að setja öryggismyndavél-
ar í stigaganginn svo vændið myndi
hætta,“ segir íbúinn.
Catalina kærð fyrir líkamsárás
Deilur Catalinu og nágranna hennar
náðu hápunkti í lok desember þegar
hún gekk í skrokk á nágrannakonu
sinni í stigaganginum á Akurvöll-
um. Lögreglan hafði komið í húsið
þann 28. desember vegna hávaða frá
íbúð Catalinu. Þegar lögreglan kom
á svæðið hafði Catalina verið í slags-
málum við fyrrverandi kærasta sinn.
Nágranni Catalinu segir að hún
hafi ráðist á sig mánudaginn 29.
desember vegna þess að ólætin í
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Í stigaganginum á Akurvöllum
Catalina sést hér í stigaganginum í
blokkinni að akurvöllum í Hafnar-
firði. Í lok desember barði hún ná-
granna sinn í andlitið með ryksugu-
snúru á stigaganginum. Nágranninn
kærði málið til lögreglunnar.
hótaði að kveikja í stigaganginum
Nágranni Catalinu í blokkinni á akur-
völlum 1 segir að Catalina hafi hótað að
kveikja í stigaganginum í húsinu ef hún
yrði ekki látin í friði.
Hóruhúsið á Hverfisgötu 105 var að
öllum líkindum áður í íbúð Catalinu
mikue ncogo í blokkinni að Akurvöll-
um 1 í Hafnarfirði. Catalina var kærð
fyrir líkamsárás gegn nágranna sínum
í lok desember. Nágrannar Catalinu
á Akurvöllum hafa oftsinnis kvartað
til lögreglu út af vændinu. Catalina
hótaði að kveikja í blokkinni og drepa
nágrannakonu sína. Eigandi íbúðarinn-
ar á Hverfisgötu segist ekki hafa vitað
af vændinu. Catalina verður kærð til
lögreglunnar í dag fyrir að hóta blaða-
manni DV.