Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 9
miðvikudagur 11. febrúar 2009 9Fréttir
Gæðabakstur ehf.
Álfabakka 12 | 109 Reykjavík | S: 545 7000
Veljum
íslenskt
Gæða
kleinur
Orku-
kubbur
gott í dagsins önn...
CATALINA RAK ANNAÐ
HÓRUHÚS Í HAFNARFIRÐI
íbúð Catalinu daginn áður höfðu ver-
ið tilkynnt til lögreglu. Nágrannar Ca-
talinu höfðu talað sig saman um það
á mánudeginum að reyna að koma
henni út úr húsinu með því að kvarta
við Húseigendafélagið út af henni.
„Catalina hótaði mér öllu illu. Hún
sagðist ætla að fara og kaupa bensín
og kveikja í stigaganginum. Ég sagði
henni þá að hún væri að hóta því að
drepa fólkið í blokkinni en þá sagði
hún mér að hún ætlaði bara að kveikja
í stigaganginum,“ segir nágranninn
en samskiptin áttu sér stað á meðan
Catalina var að ryksuga stigaganginn.
„Ég fékk ekki að svara henni því
Catalina hélt áfram að ryksuga svo
ég gæti það ekki. Þá tók ég ryksuguna
úr sambandi og sagði við hana að ég
gæti ekki heyrt í henni. Þá vafði hún
ryksugusnúrunni utan um hnúann
á sér og sló mig í andlitið. Hún reif í
hárið á mér og lamdi og lamdi aftur í
hausinn á mér. Svo ætlaði hún að slá
mig aftur en þá var gengið á milli og
komið í veg fyrir það,“ segir nágrann-
inn. Hún segir að Catalina hafi í kjöl-
farið hótað að drepa hana.
Nágranninn segist hafa kært árás
Catalinu til lögreglunnar eftir að hafa
leitað sér aðstoðar á sjúkrahúsi vegna
mars á andliti sem hann varð fyrir í
árásinni.
Nágranninn segist ekki hafa
heyrt neitt frá lögreglunni út af
rannsókn málsins. Hann segir
lögregluna hafa komið aftur og
aftur í húsið en hafa enn ekkert
gert. „Ég er ekki sátt við að lög-
reglan komi hingað hvað eftir
annað og geri bara ekki rass-
gat,“ segir íbúinn sem sett hefur
íbúð sína á sölu vegna ástands-
ins í húsinu.
Ekki gefið upp hvort lög-
reglan rannsaki Akurvelli
Svanhvít Eygló vill ekki gefa upp
hvort lögreglan rannsaki einnig
vændisstarfsemina í íbúðinni á
Akurvöllum. Friðrik Björgvins-
son, yfirlögregluþjónn hjá rann-
sóknardeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, getur heldur
ekki gefið upp hvort lögreglan
rannsaki íbúðina á Akurvöllum.
Hann segist heldur ekki geta rætt um
kæruna á hendur Catalinu vegna lík-
amsárásarinnar því hann þekki ekki
málið.
Svanhvít segir stutt síðan byrjað
hafi að sjást til Catalinu Mikue Ncogo
í húsinu á Hverfisgötunni. Það leið-
ir líkum að því að vændisstarfsemin
hafi áður verið í Hafnarfirði. „Þetta er
nýtilkomið varðandi hana Catalinu,
að hún sé að koma niður á Hverfis-
götuna,“ segir Svanhvít. Aðspurð seg-
ir Svanhvít að „það virðist ekki vera“
að Catalina hafi farið að venja komur
sínar mikið í húsið fyrstu vikur leigu-
tímans.
Eigandi íbúðarinnar á Hverfis-
götu segist ekkert vita
Íbúðin á Hverfisgötu hefur verið í út-
leigu til eins mánaðar síðan 15. jan-
úar, að sögn Gísla Hermannsson-
ar, eiganda hennar. Gísli segist hafa
leigt íbúðina út með smáauglýsingu
í dagblaði til konu sem heitir Kristín
Erlendsdóttir. Hann segist ekki hafa
vitað að íbúðin væri notuð sem hóru-
hús. Gísli segist aðspurður ekki kann-
ast við Catalinu Mikue Ncogo og að
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi
ekki haft samband við sig út af mál-
inu.
Íbúð Gísla í húsinu á Hverfisgötu
105, þar sem vændið fer fram, var
seld á nauðungaruppboði í gær, sam-
kvæmt íbúa í húsinu.
Catalina kærð í dag
Catalina verður kærð til lögreglunnar
í dag eftir að hún hótaði blaðamanni
DV vegna umfjöllunar blaðsins um
hóruhúsið á Hverfisgötu. Hún hringdi
í blaðamann í gær eftir að fréttin um
málið hafði birst í blaði gærdagsins.
Catalina sagði blaðamanni að hún
ætlaði í mál við DV vegna umfjöllun-
arinnar um hóruhúsið. „Ef þú skrifar
eitthvað meira kjaftæði um mig aftur,
þá skaltu eiga mig á fæti og þú kemst
í vandræði. Ég er mjög reið og mun
elta þig,“ sagði Catalina.
Aðspurð hvort hún væri að hóta
blaðamanni sagði Catalina: „Þú getur
sagt lögreglunni það að ég sé að hóta
þér. Hún þekkir mig. Ég er að hóta
þér og ég ætla að stöðva þig á slæm-
an hátt.“
Miðvikudagur 24. SepteMber 20084
Fréttir
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Örn Árnason
Vilja stæðin frá svefnherbergisglugganum
„Ég var beðinn um álit hvort mér
fyndist gott að láta fækka stæðum,
mér fannst það ekki,“ segir Örn Árna-
son leikari. Anna Dóra Helgadóttir,
sem á íbúð við Bröndukvísl í Reykja-
vík, hefur óskað eftir því við borg-
ina að færa fjögur bílastæði sem eru
undir svefnherbergisglugga henn-
ar. Þetta vill hún að verði gert vegna
þess að bílaumferð um stæðin truflar
nætursvefn í svefnherberginu.
Örn segir götuna þrönga og erfitt
sé að skera niður í bílastæðamálum.
„Þegar það eru afmæli er lagt uppi á
götuhornum og úti um allt, þá eru
engin stæði við húsin. Ég er ekkert
að leggjast gegn því að fólkið fái næt-
urfrið, ég hlýt að hugsa um heildar-
myndina,“ segir Örn. Hann bend-
ir einnig á að fólk noti stæðin undir
fellihýsi, hjólhýsi og ýmislegt fleira.
Skipulagsráð Reykjavíkur hef-
ur sent íbúum í nágrenninu bréf
svo þeir geti lýst skoðunum sínum
á hvort færa eigi bílastæðin sem eru
undir glugganum á annan stað í göt-
unni. „Ef þau verða færð á svæð-
ið hér fyrir neðan fara þau bara fyr-
ir framan stofugluggann hjá næsta
nágranna, þetta er svolítið þrútið að
finna stæði fyrir bílana. Það gæti orð-
ið fjandi erfitt að komast út úr göt-
unni,“ segir Örn.
Allir aðilar sem gerðu athuga-
semdir við grenndarkynningu mót-
mæltu fækkun bílastæða og færðu
fyrir því ýmiss konar rök. Fundað
var um málið á fundi skipulagsráðs
16. september og er lagt til að fyrir-
komulagi bílastæða verði breytt og
gerð verði miðeyja (tvö stæði) milli
bílastæða til að koma til móts við
óskir íbúa Bröndukvíslar 18. Einnig
er gerð tillaga að því að tvö ný stæði
verði við enda þessara almennu
bílastæða. Þannig mun heildar-
fjöldi almennra bílastæða við botn-
langa Bröndukvíslar verða óbreytt-
ur frá því sem var eða tíu almenn
bílastæði.
Örn Árnason
einn margra íbúa sem eru ósáttir
við breytingu á deiluskipulagi þar
sem fækka á bílastæðum í götunni.
„Við erum dauðhræddar allan
sólarhringinn og þorum varla
að fara að sofa. Við verðum að fá
hjálp,“ segir Cristina Asangono
Mba, stúlka frá Miðbaugs-Gíneu í
Afríku, sem er búsett hér á landi.
Hún segir að í byrjun septemb-
er hafi þrír karlmenn ruðst inn á
heimili hennar og ráðist á hana
og þrjár sambýliskonur hennar.
„Þeir hótuðu okkur með hníf-
um og rústuðu íbúðinni. Síð-
an stálu þeir tölvu, peningum,
öllum skilríkjunum okkar og
vegabréfunum líka.“
Fá morðhótanir
Cristina og sambýliskon-
ur hennar leituðu til lög-
reglunnar í framhaldinu en
henni finnst rannsókn máls-
ins ganga hægt. „Lögreglan
gerir ekkert til að hjálpa okk-
ur. Við erum varnarlausar.“
Að sögn Cristinu telur
hún mennina hafa verið á
vegum afrískrar konu sem
hún þekkir lítillega. „Hún
vill að við förum aftur heim
til okkar. Við höfum samt
ekkert gert henni.
Ég held að henni sé
bara illa við að hérna
séu aðrar svartar kon-
ur. Hún heldur að hún sé
einhver prinsessa.“
Eftir árásina hafa þær
fengið símtöl og sms frá
konunni þar sem hún
krefst þess að þær borgi
hundrað þúsund krónur
fyrir hvert vegabréf. Crist-
ina vinnur á Landspítal-
anum og launin eru ekki
há. „Við eigum ekki svona
mikla peninga. Hún seg-
ist ætla að láta drepa okk-
ur ef við borgum ekki eða
förum burt.“
Án sjúkratryggingar
Marcelina Felicid-
ad Obono er ein sam-
býliskvenna Cristinu.
Hún segist hafa verið með
barni en misst fóstur eft-
ir árásina og telur henni
um að kenna. Marcelina er
ekki íslenskur ríkisborgari
og hefur enga sjúkratrygg-
ingu. Hún segist þurfa á
læknishjálp að halda en
hafa ekki efni á að borga
fyrir hana hér. Því þurfi hún
vegabréfið sitt til að kom-
ast til Spánar þar sem hún
hefur verið búsett,
og leita læknis þar.
Marcelina lá mest
fyrir þegar blaðamann bar að garði
og virtist heldur lasleg. Eftir árásina
neyddist hún til að fara á spítala og
þarf að greiða tugi þúsunda fyrir
heimsóknina.
Neitar sök
Dóttir Franciscu Isabel Angue
var búsett með þeim stúlkum en
hún er nú farin aftur til Spánar. Hún
var þó eitt fórnarlamb árásarinnar
að sögn móður hennar en þar sem
vegabréfinu hennar var ekki stolið
ákvað hún að fara af landi brott.
Cristina hefur hins vegar engan
áhuga á að flytja burt. Henni þyk-
ir gott að búa á Íslandi en finnst
óásættanlegt að þurfa að lifa í stöð-
ugum ótta.
DV ræddi einnig við íslenskan
vin Cristinu sem hefur aðstoðað
þær við að vekja athygli lögreglu á
málinu þar sem hann þekkir kerfið
hér betur en stúlkurnar. Lengi vel
fannst honum lögreglan skella við
skollaeyrum en segir hana nú vera
farna að taka við sér.
Í samtali við DV neitar konan,
sem stúlkurnar bera þessum sök-
um, að tengjast árásinni á nokk-
urn hátt en svo virðist sem illindi
hafi verið þeirra á milli í einhvern
tíma.
Hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu fæst staðfest að stúlkurnar
hafi leitað til lögreglu vegna máls-
ins en ekkert fæst uppgefið um efn-
isatriði þess.
Cristina Asangono Mba
MISSTI FÓSTUR
EFTIR HNÍFAÁRÁS
ErlA HlyNsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
óttaslegnar Francisca isabel angue,
Cristina Nfono Mba, Marcelina Felicidad
Obono og Cristina asangono Mba. Þær
segjast búa við stöðugan ótta eftir að
ráðist var inn á heimili þeirra en
lögreglan bregðist seint og illa við.
ógnað konurnar segja
að þeim hafi verið ógnað
með hnífum við árásina.
Hnífakastari enn
til rannsóknar
„Við reiknum með að ljúka
rannsókn í þessari viku,“ seg-
ir Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, um mál manns sem
grunaður er um að hafa beitt
þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi
og notað hníf á eitt þeirra.
Í samtali við DV í vikunni
sagði Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu, að
hann hefði aldrei áður heyrt
um mál þar sem eggvopnum
væri beitt á börn. Þetta væri því
einstakt í sögu barnaverndar á
Íslandi ef rétt reynist.
Alcan vill
skaðabætur
Fyrirtaka í skaðabótamáli
Alcan á Íslandi gegn olíufélög-
unum Olís, Keri og Skeljungi
fór fram í gær. Samkvæmt
matsgerð sem lög var fyrir í
málinu í upphafi mánaðarins
nam tjón Alcan vegna sam-
ráðs stóru olíufélaganna um
251 milljón króna á verðlagi
áranna 1993-2001. Málið er
höfðað gegn olíufélögunum á
grundvelli þess að Alcan var
eitt þeirra félaga sem nefnd
voru í skýrslu Samkeppnis-
stofnunar um samráð olíu-
félaganna. Hæstiréttur hefur
áður dæmt olíufélögin til að
greiða Reykjavíkurborg og
Strætó samanlagt tæpar 80
milljónir króna í bætur.
Ingibjörg Sólrún
fékk aðsvif
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra fékk aðsvif og
var flutt til skoðunar á spítala í
New York í gær. Hún fékk að fara
aftur heim á hótel að lokinni
læknisskoðun. Ingibjörg Sólrún
er stödd í New York ásamt Geir
H. Haarde forsætisráðherra þar
sem þau taka þátt í svokallaðri
ráðherraviku allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna dagana
22. – 27. september. Þar munu
ráðherrarnir hitta þjóðarleiðtoga
og aðra ráðamenn sem sækja
þingið, ræða samskipti ríkja og
tala fyrir framboði Íslands til
setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna.
Stúlka beit
lögregluþjón
Héraðsdómur Reykjaness
hefur dæmt stúlku í tveggja
mánaða fangelsi fyrir árás á
lögregluþjón. Stúlkan, sem
var sextán ára þegar árásin var
gerð, var ákærð fyrir að bíta
lögregluþjóninn í handlegg í
nóvember í fyrra. Lögreglu-
þjónninn hlaut mar á hand-
legginn fyrir vikið. Stúlkan
játaði brotið en hún hefur ekki
áður gerst sek um refsiverða
háttsemi. Þótti dómara hæfi-
leg refsing tveggja mánaða
fangelsi og er dómurinn bund-
inn skilorði til tveggja ára.
þriðjudagur 10. febrúar 20098
Fréttir
Fjórar erlendar konur á þrítugs-
aldri stunda vændi í íbúð 401 í hús-
inu á Hverfisgötu 105, við hliðina
á höfuðstöðvum lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt
heimildum DV eru konurnar frá
Kúbu og öðrum löndum í Suður-
Ameríku.
Samkvæmt vændiskonunum
sjálfum og heimildarmönnum DV
eru stúlkurnar fjórar gerðar út af
rúmlega þrítugri konu, Catalina
Mikue Ncogo, sem ættuð er frá
Miðbaugs-Gíneu. Catalina hlaut
íslenskan ríkisborgararétt árið
2004.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
og er einnig verið að skoða hvort
fíkniefnamisferli tengist starfsemi
vændishússins að sögn lögreglu-
fulltrúa.
Hórumamma í spilinu
Konurnar fjórar hafa stundað
vændi í húsinu frá því um miðjan
janúar. Þær búa fjórar í íbúðinni
sem er tveggja herbergja og um
sjötíu fermetrar að stærð. Þær selja
blíðu sína á uppblásnum færan-
legum beddum, samkvæmt sjón-
arvotti sem komið hefur inn í íbúð-
ina.
Íbúar í húsinu hafa margsinn-
is haft samband við lögregluna á
síðustu vikum og sagt henni frá því
að konurnar selji sig í íbúðinni og
að líklega sé um ólöglegt athæfi að
ræða því Catalina Ncogo geri þær
út og græði á vændi þeirra. Vændi
er ólöglegt á Íslandi ef einhver ann-
ar en sá sem selur sig græðir á því.
„Í þessu tilfelli er hórumamma
með í spilinu og virðist hún vera að
græða á þessu sem þriðji aðili,“ seg-
ir íbúi í húsinu að Hverfisgötu 105.
Verslunarrekandi í húsinu segist
telja að um mansal sé að ræða í til-
felli stúlknanna fjögurra.
Ekki náðist í Catalinu Ncogo við
vinnslu fréttarinnar.
Samkvæmt heimildum DV
munu stúlkurnar búa í íbúðinni
þar til um miðjan mánuðinn þegar
samning rinn við eiganda íbúðar-
innar, Gísla Hermannsson, renn-
ur út. Ekki liggur ljóst fyrir hver er
skráður fyrir leigusamningi íbúð-
arinnar núna, samkvæmt heimild-
um DV.
Íbúi pirraður á
aðgerðarleysi lögreglunnar
Íbúinn segist hafa orðið fyrir tölu-
verðu ónæði af starfsemi hóru-
hússins. „Ég hef orðið fyrir miklu
ónæði af þessu síðastliðnar þrjár
vikur. Það mætti halda að stelp-
urnar væru að reyna að ríða niður
veggina. Ég heyri svo mikinn há-
vaða frá íbúðinni þeirra. Það eru
allir að verða brjálaðir hérna,“ segir
íbúinn. Hann segir að það sé frek-
ar mikið að gera hjá stúlkunum því
hann hafi séð fullt af karlmönnum
á þrítugsaldri og allt upp í sjötíu ára
fara inn í íbúðina á liðnum vikum.
Íbúinn segist hafa talað fjórum
sinnum við lögregluna en að hún
hafi hingað til ekkert gert í málinu.
Aðspurður segir íbúinn að hann
hafi sagt lögreglunni að verið væri
að gera stúlkurnar út og græða á
þeim. „Lögreglan sagði hins veg-
ar að hún þyrfti að standa mellu-
mömmuna að verki til að geta gert
eitthvað í málinu,“ segir íbúinn.
Íbúarnir smeykir
og hneykslaðir
Íbúarnir í húsinu eru mjög óhressir
með starfsemi hóruhússins og vilja
að lögreglan geri eitthvað í málinu.
„Mig langar ekkert að fara fram
á gang hér á nóttunni því ég gæti
mætt einhverjum ógeðslegum
karli sem gæti haldið að ég væri
einhver hóra. Þetta er ógeðslegt,“
segir íbúinn.
Verslunarrekandi í húsinu seg-
ir að hóruhús sé rekið þar. „Það
fer ekkert á milli mála því traffík-
in hérna er mikil. Við erum alveg
brjáluð hérna í húsinu. Þetta er öm-
urlegt,“ segir verslunarrekandinn.
Hann segist iðulega mæta vænd-
iskonunum á gangi hússins þeg-
ar þær koma niður til að opna fyr-
ir viðskiptavinum sínum á daginn
því dyrabjallan í íbúðinni sé biluð.
„Maður er að mæta þeim hérna fá-
klæddum í einhverjum dulum og í
óeðlilegu ástandi eins og þær séu
á fíkniefnum. Ég vil tengja þessa
starfsemi við eitthvað annað en
bara vændi,“ segir íbúinn.
Fíkniefnamisferli
einnig rannsakað
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni, segir Svanhvít Eygló
Harðardóttir, lögreglufulltrúi í
kynferðisafbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hún segir að meðal annars sé ver-
ið að rannsaka hvort einhver sé að
græða á vændi stúlknanna fjög-
urra. „Út á það gengur málið. Við
rannsökum ekki svona mál nema
grunur leiki á að þriðji aðili sé að
græða á vændinu,“ segir Svanhvít.
Hún vill hvorki staðfesta né neita
að Catalina Ncogo liggi undir
grun í málinu.
Aðspurð hvort einhver grun-
ur leiki á að fíkniefnamisferli hafi
einnig átt sér stað í tengslum við
starfsemi hóruhússins segir Svan-
hvít að hún geti ekki rætt það vegna
rannsóknarhagsmuna í málinu.
Hún segir hins vegar að stundum
haldist „það í hendur“ í slíkum
málum. „Það er allt skoðað,“ segir
Svanhvít.
Samkvæmt heimildum DV var
hóruhúsið áður til húsa á Vestur-
götunni í Reykjavík. Svanhvít segir
aðspurð að einnig sé verið að rann-
saka starfemi hóruhússins lengra
aftur í tímann.
Aðspurð hvort Catalina Ncogo
hafi komið við sögu lögreglunn-
ar áður segist Svanhvít ekki getað
svarað því að svo stöddu.
„Ég hef orðið fyrir
miklu ónæði af þessu
síðastliðnar þrjár vik-
ur. Það mætti halda
að stelpurnar væru
að reyna að ríða nið-
ur veggina. Ég heyri
svo mikinn hávaða
frá íbúðinni þeirra.
Það eru allir að verða
brjálaðir hérna.“
SELJA SIG VIÐ HLIÐINA
Á LÖGREGLUSTÖÐINNI
Catalina Mikue Ncogo
INgI F. VIlHjálMssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Hóruhús við lögreglustöðina
Í íbúð 401, í miðíbúðinni á fjórðu hæð búa vændiskonurnar fjórar sem samkvæmt heimildum dV eru gerðar út af konu frá Miðbaugs-gíneu.
Miði um „hóruhúsið“ á Hverfisgötu þessimiði hékk uppi í anddyri hússins að Hverfis-götu 105 um skamman tíma. Á miðanum stendur: „Hóruhúsið 4. hæð til hægri.“
„Ég þori ekki að vera
með börnin mín hérna
lengur.“
Frétt DV 24. september 2008
ráðist var á fjórar erlendar stúlkur í íbúð
þeirra á Laugavegi um í september
síða tliðnum. Stúlkurnar sögðu að
Cat lina mikue Ncog hefði staðið fyrir
árásinni á þær. up lýsi gar um stöðu
rannsóknarinnar í málinu h fa ekki
fen ist frá lög glun i.
Frétt DV 10. f brúar 2009
frétti fj llaði um hóruhúsið
á Hverfisgötu við hliðina á
höfuðstöðvum lögreglunnar.
vændisko urnar hafa sagt að
Catalin st ndi fyrir vændinu.
Bifreið Catalinu við húsið á Hverfisgötu
benz-bifreið Catalinu sést hér fyrir framan
húsið á Hverfisgötu 105 laust fyrir hádegi í
gær. Catalina hringdi í blaðamann dv í gær
og hótaði honum. Hótun Catalinu verður
kærð til lögreglunnar í dag.