Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Side 14
Hælbítar og hýenur keppast nú við að níða skóinn af okk-ar forkunnarfögru
og indælu forsetafrú. Menn
hneykslast á henni við hvert
tækifæri og láta í það skína
að Dorrit Moussaieff gangi
ekki í takt við íslenskt þjóð-
félag, sé jafnvel Marie
Antoinette okkar tíma.
Hjartað sekkur í Svart-
höfða í hvert skipti sem
þessar raddir heyrast,
því sjaldan eða nokkurn
tíma hefur jafn glæsileg og
jafn alþýðleg kona prýtt
íslenskt þjóðlíf.
Svarthöfði verður nefnilega að gera smá játningu í þessum skrifum
sínum. Svarthöfði er
bálskotinn í forsetafrúnni.
Svo hefur hún heillað
hann með líflegri og föl-
skvalausri framkomu
sinni. Í gamla daga réð
alvarleikinn ríkjum á Bessa-
stöðum, í dag ríkir þar líf og
fjör. Og engum er meira að
þakka þessi umskipti en
Dorrit Moussaieff sem hef-
ur svo sannarlega verið lyfti-
stöng fyrir land og þjóð. Auð-
vitað verða einhverjir til að kvarta
undan því að ríkidæmi hennar sé
ekki í neinum takt við þær þreng-
ingar sem Íslendingar ganga nú í
gegnum. Og vissulega er ekki
algengt að sagt sé frá því í
viðtölum við fyrirmenni
þjóðarinnar að þau hafi
verið tekin við borð
sem svignuðu und-
an kræsingunum,
léttu víni og dýrum
kavíar. Óneitanlega
eru þeir til sem sjá
aldrei lengra en
þetta, sjá rautt eins
og dulu væri veifað
frammi fyrir nauti.
En fólk verður
nú stundum að
sætta sig við að
öllu því góða
fylgir oftast
eitthvað sem
rís ekki jafn
hátt. Og auð-
vitað er það líka
þannig með okkar
frábæru forsetafrú.
Dorrit hefur verið hvers manns hugljúfi árum saman. Þeir sem fylgst hafa með lífinu á Bessa-
stöðum hafa séð hversu mjög hefur
birt yfir forsetaembættinu síðan
þessi gleðigjafi kom til sögunn-
ar. Hvar sem hún hefur birst hef-
ur mátt treysta því að fólk verður
brosmildara en ella. Hún bregður
á leik og skemmtir fólki. Um hana
má óneitanlega segja að hún geti
náttmyrkri í birtu breytt. Þess
vegna er svo mikilvægt að fólk
hreki hana Dorrit okkar ekki
úr landi. Þrátt fyrir að illa
gangi í efnahagsmálum og
einhverjum sárni ummæli
hennar verðum við að
gera okkur grein fyrir
því að íslenskt samfé-
lag væri fátækara án
Dorritar.
miðvikudagur 11. febrúar 200914 Umræða
Don’t go Dorrit!
svarthöfði
spurningin
„Mér finnst bara fínt og krúttlegt hjá
þeim að koma
fram eins og þau
eru.“
Séra Þórhallur
Heimisson hefur
sérhæft sig í
styrkingu
hjónabanda og
sér enga ástæðu
til að hafa
áhyggjur af
forsetahjónunum þótt þau hafi orðið
ósammála í tímaritsviðtali.
Þarf Þjóðin að
hafa áhyggjur
af hjónabanDi
forsetans?
sandkorn
n Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Kaup-
þings, var ómyrkur í máli um
Davíð Oddsson í blaðagrein í
gær. Vísaði Sigurður til leka-
tækni úr Kaupþingi sem rekja
mætti til
aðila sem
tengjast
Davíð. Í því
samhengi
má benda á
að Styrmir
Gunnars-
son, fyrrver-
andi Mogg-
aritstjóri, hefur verið sem grár
skógarköttur í Seðlabankanum.
Agnes Bragadóttir, blaðamað-
ur Moggans, hefur komist í
lánabók Glitnis auk þess sem
blað hennar hefur skúbbað inn-
anhússmálum úr Kaupþingi.
n Bjarni Benediktsson, al-
þingismaður og formannsefni
Sjálfstæðisflokksins, er kominn
á fulla ferð í kosningabaráttu
sinni. Í síð-
ustu viku
brá hann
undir sig
betri fæt-
inum og
skellti sér til
Vestfjarða
þar sem
hann og
Illugi Gunnarsson, alþingis-
maður og fóstbróðir hans, hittu
lykilmenn og tryggðu stuðning í
formannskosningunum. Bjarni
hélt síðan heim fyrir helgina en
Illugi var hrókur alls fagnaðar
á Stútungi, þorrablóti Flateyr-
inga.
n Björn Ingi Hrafnsson, fyrr-
verandi viðskiptaritstjóri Frétta-
blaðsins, leggur nú nótt við dag
við að koma á fót nýjum frétta-
vef sínum.
Reiknað er
með að vef-
urinn fari í
loftið í byrj-
un næsta
mánaðar.
Víst er að
samkeppn-
in eykst
með tilkomu hans en Björn Ingi
þykir naskur á að ná upp frétt-
um sem aðrir finna ekki. Vef-
urinn á að vera hlutlaus en þó
í samkeppni við amx.is, hægri
vef sem leggur mest upp úr
að hampa málstað öfgasinna.
Gárungar hafa lagt til að vefur
Björns Inga heiti bmx.is en það
mun ekki verða.
n Uppákoma forsetahjónanna,
Ólafs Ragnars Grímssonar og
Dorritar Moussaieff, í tímarita-
viðtali á dögunum hefur vakið
gríðarlega
athygli. For-
setafrúin
virðist vera
um það bil
að fá nóg
af dvölinni
á kreppu-
kvaldri eyju
í norður-
höfum. Bjartsýnustu aðdáend-
ur Dorritar telja þó að deilur
hennar og Ólafs séu einung-
is stormur í vatnsglasi og þau
muni ná fullum sáttum.
LyngháLs 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: útgáfufélagið birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Fífl á heimsvísu
Leiðari
Alþingismenn Íslands eru óðum að sanna sig sem vitleysingar sem láta einkasjónarmið ganga fyrir þjóðarhagsmunum. Á með-
an efnahagur landsins stendur í
ljósum logum gerir þingheim-
ur fátt annað en karpa um mál
sem þjóðina skipta engu. Um-
ræðan á Alþingi er með yfir-
bragð málfunda í grunn-
skóla. Átakalínur standa
um vegtyllur í þinginu
og að leyfa afleitum
embættismönnum
að sitja í embætt-
um. Sjálfstæðis-
menn eyða dýr-
mætum tíma, sem
ætti að fara í björg-
unaraðgerðir, til að
verja alræmdan
seðlabankastjóra
sem gerir Íslend-
inga að fíflum á
heimsvísu. Skoðanakannanir sýna ótvírætt
að mikill meirihluti þjóðarinnar vill að stjórn
Seðlabankans víki. Samt eru flokksbræð-
ur formanns bankastjórnar lagstir í vörn
gegn því að þjóðarvilja verði framfylgt.
Þetta gera þeir þrátt fyrir að hafa
sjálfir reynt án árangurs
að fá seðla-
bankastjórann til að víkja sjálfviljugan. Það
má til sanns vegar færa að minnihlutastjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra
hafi staðið illa að samskiptum við þríeykið í
Seðlabankanum. Bréfaskipti með ósk um að
þeir hætti sjálfir störfum bera þess einkenni
að vera vanhugsuð. Tveir af þremur óþurft-
armönnum í Seðlabankanum neita að fara.
Þeir eru sem hústökumenn í Svörtuloftum
Seðlabankans þar sem þeir sitja gegn vilja
meirihluta þjóðarinnar. Það er lágmarks-
krafa til Alþingis að brottnám bankastjór-
anna gangi sem fljótast fyrir sig svo
þingið geti farið að sinna nauð-
synlegum störfum. Leik-
hús fáránleikans á ekki við á
þessum viðsjárverðu tímum
þegar Ísland þarf á öllu sínu
að halda til að verja megi
þjóðarhag frekari áföllum.
Framganga pólitískra af-
glapa skaðar alla þjóðina.
Mál er að ruglinu linni.
reynir traustason ritstjóri skrifar: Þeir eru sem hústökumenn í Svörtuloftum.
„Síðan brá mér nokkuð
þegar ég leit upp og sá
bílinn sem þá var kominn
inn í anddyrið.“
n Lilju Bjarnadóttur, starfsstúlku í
Sveinsbakaríi við Engihjalla, brá heldur í brún í
gærmorgun þegar jeppi kom keyrandi inn í
anddyri bakarísins. – visir.is
„Það mætti halda að
stelpurnar væru að reyna
að ríða niður veggina.“
n Íbúi á Hverfisgötu sem hefur orðið fyrir miklu
ónæði vegna starfsemi fjögurra erlendra
vændiskvenna. - DV
„Við eigum ekkert
sameiginlegt.“
n Dorrit Moussaieff í viðtalinu
fræga um að hún og Ólafur eigi
ekki samleið í neinu nema því að tala ensku og
renna sér á skíðum. - DV
„Hún var ekki hugsuð
til að takast á við
kreppuhrun.“
n Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri
Búseta á Norðurlandi, um verðtrygginguna. - DV
„Settlegar en
sexí myndir.
Engin brjóst
eða neitt
þannig.“
n Ásdís Rán aðspurð
hvort myndirnar í
Maxim-tímaritinu
komi til með að
vera nektarmyndir
eður ei. - DV
bókstafLega