Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Qupperneq 15
miðvikudagur 11. febrúar 2009 15Umræða
Hver er maðurinn?
„Sigurbjörn bernharðsson, sonur
bernharðs guðmundssonar og
rannveigar Sigurbjörnsdóttur.“
Hvar ert þú uppalinn?
„Í kópavogi. Ég flutti svo til
bandaríkjanna í tónlistarnám þegar
ég var nítján ára, árið 1991, og hef
búið þar síðan.“
Hvað drífur þig áfram?
„Tónlistin. Ég hef spilað á fiðlu
síðan ég var fimm ára og kann lítið
annað. Þetta er eina lífið sem ég
get ímyndað mér og er heppinn að
geta fengið að starfa við að spila alla
þessa góðu tónlist.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Það er eþíópískur matur.
bæði er þetta ótrúlega góður
matur og svo er þetta kannski pínu
tilfinningalegt því ég bjó í eþíópíu
fyrstu fjögur ár lífs míns. Íslenska
lambalærið fylgir fast á eftir.“
Hvaða bók/bækur ertu með á
náttborðinu þínu? „Ég er að lesa
bók sem heitir The echo maker eftir
richard Powers og var rétt í þessu að
klára Ofsa, bók einars kárasonar.“
Hvert er uppáhaldshúsverkið
þitt? „að elda. Stundum finnst mér
gaman að vaska upp því maður sér
svo fljótt árangurinn eftir sig.“
Hvernig tilfinning er það að
vinna Grammy-verðlaun? „Þetta
er frábær tilfinning. bæði rosalega
skemmtilegt og mikill heiður.“
Var ekki svekkjandi að geta ekki
verið viðstaddur afhendinguna?
„Jú, en ég vissi fyrir löngu að ég og
kvartettinn gætum ekki verið við
athöfnina og því sendum við fulltrúa
í okkar stað. en það er svo sem margt
verra sem hefði getað gerst.“
Eru þessi verðlaun eitthvað
sem þig hefur dreymt um lengi?
„maður veit alltaf af þeim því þau eru
svo fræg. fékk hálfgert sjokk fyrst
þegar kvartettinn var tilnefndur. Þá
voru þetta orðnar tuttugu prósent
líkur og maður því svo sem þannig
séð vongóður. en eins og með öll
verðlaun þarf maður ofboðslega
heppni líka.“
Hvað finnst þér um samskipti forsetaHjónanna í blaðaviðtali portfolio?
„mér fannst þetta svolítið asnalegt.
fólk verður að passa hvað það segir
þegar það er í svona stöðu.“
ElísabEt Gísladóttir
34 ára húSmóðir
„mér fannst þetta allt í lagi. hún er
einungis að lýsa yfir sjálfstæði sínu.“
róbErt rósmann
52 ára veiðimaður
„Þetta hljómaði eins og að vera á góðu
þorrablóti. Þorrinn er nú enn þá.“
inGunn raGnarsdóttir
64 ára aTvinnulauS
„mér finnst eðlilegt að vera ekki sam-
mála, en það er afleitt að blaðamaður
skyldi heyra þetta.“
Þórunn nanna raGnardóttir
68 ára ellilÍfeyriSÞegi
Dómstóll götunnar
siGurbjörn bErnHarðsson
fiðluleikari vann grammy-verðlaunin
fyrir besta kammermúsíkleikinn.
hálfgert
sjokk
„Ég held að það sé verið að blása þetta
upp. mér finnst verið að gera allt of
mikið mál úr þessu.“
alfrEd Kristinsson
24 ára nemandi
maður Dagsins
Til eru þeir sem verja séreignarétt
sjávarauðlinda við Íslandsstrend-
ur og líkja við séreignarétt húsnæð-
is og jarða. Áður sóttu þeir miðin
sem vildu og olli litlum vandkvæð-
um fyrst í stað. Með stórtækari fiski-
skipum gekk þó hratt á auðlindina
og mönnum ljóst að hún var tak-
mörkuð. Hömlur voru settar á veið-
arnar með sjálfbærni í huga. Þessi
takmörkun á hvorki við íbúðarhús-
næði né jarðnæði og slíkt ekki fyr-
irséð. Hinsvegar er spurning hvort
menn ættu að geta keypt „landar-
eign“ í hafi, merkt sér útviðina og
fóðrað fiskinn, ekki ósvipað bænd-
um. Segja má að fiskeldi sé for-
smekkur þessa.
Almennt krefjast seljendur og
kaupendur staðfestinga á viðskipt-
um sínum. Í þeim kemur fram
hverjir standa að, hvað sé verið
að kaupa, selja, verð, skilmálar og
lánakjör. Ekkert af þessu liggur fyrir
varðandi fiskimiðin. Veiðiheimild-
ir ganga kaupum og sölum en sjáv-
arauðlindin telst enn þjóðareign
samkvæmt stjórnarskrá og hvergi
að finna endanlegt afsal hennar til
einkaaðila. Mjög svo umdeilanleg
lög um kvótaframsal gerðu útgerð-
um kleift að framselja veiðirétt sinn
í hagræðingarskyni og skapaðist þá
eftirspurn sem bankarnir notfærðu
sér. Niðurstöðu þeirrar helfarar
þekkja allir.
Séreignaréttur íbúða og jarða
hefur reynst ágætlega. Séreigna-
réttur fiskimiðanna hinsvegar ekki.
Hann bjó til þá blekkingarskriðu
sem kaffærir nú heila þjóð. Fimm
hundruð milljarða króna skuld
sjávarútvegsfyrirtækja vegna end-
urtekinna uppkaupa veiðiheimilda
hefur skilað þeim sem hættu í tíma
ævintýralegum fúlgum en veikt at-
vinnugreinina, sjávarbyggðirnar og
samfélagið í heild sem þessu nem-
ur ásamt því að skila okkur tveim-
ur fiskum á land í stað fimm áður.
Þetta fyrirkomulag fiskveiða við Ís-
landsstrendur hefur gengið sér til
húðar og uppstokkun ekki aðeins
brýn heldur óumflúin.
Breytum véfengjanlegum sér-
eignarétti í óvéfengjanlegan nýt-
ingarrétt til ákveðins tíma, tengjum
þennan rétt byggðunum og seljum
hæstbjóðanda. Þetta mætti reyna í
fimm ár og endurskoða svo.
Eignaréttur
kjallari
lÝður Árnason
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
„Séreignaréttur íbúða
og jarða hefur reynst
ágætlega. Séreigna-
réttur fiskimiðanna
hinsvegar ekki.“
svona er íslanD
1 davíð laumaðist í bankann
milli 30 og 40 mótmælendur eru nú fyrir
utan Seðlabankann og er þetta annan
daginn í röð sem mótmælendur taka sér
stöðu við Seðlabankann.
2 Vændi við hliðina á lögreglu-
stöðinni
Catalina mikue ncogo gerir út fjórar
erlendar vændiskonur í íbúð á
hverfisgötu, samkvæmt heimildum dv.
3 segir davíð hafa lekið
upplýsingum til agnesar
Sigurður einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður kaupþings, segist ekki
hafa getað treyst davíð Oddssyni
seðlabankastjóra vegna þess að
trúnaðarsamtöl við hann rötuðu gjarnan
inn á síður morgunblaðsins.
4 u-beygja kostaði fjórar milljónir
anna bára reinaldsdóttir lenti í
alvarlegum árekstri við rútu í maí í fyrra.
5 „burtu með þig“
„davíð Oddsson ef þú ert inn í
bankanum, komdu þá út og vertu með
okkur, burtu með þig.“
6 Hótanir og agavald davíðs
Stjórnunarstíll davíðs Oddssonar var
umdeildur í tíð hans sem borgarstjóra og
síðar forsætisráðherra.
7 Ástareyjan uppgötvuð með
Google Earth
eigandi lítillar eyjar í adríahafi hefur vart
undan að svara fyrirspurnum frá
áhugasömum elskendum eftir að í ljós
kom, með hjálp google earth, að eyjan er
fullkomlega hjartalaga.
mest lesið á dv.is