Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Qupperneq 17
„Hefnd ... ég vil ekki nota það orð en
auðvitað förum við í alla leiki til að
vinna þá,“ sagði Ólafur Jóhannesson
við DV í gær um vináttulandsleik Ís-
lands og Liechtenstein sem fram fer
á La Manga í kvöld. Svarið kom við
spurningu blaðamanns um hvort
ekki ætti að hefna ófaranna þegar Ís-
land gerði sig að athlægi með 3-0 tapi
fyrir Liechtenstein í síðustu undan-
keppni undir stjórn Eyjólfs Sverr-
issonar. „Við töpuðum síðast fyrir
þeim og gerðum jafntefli á undan
því þannig vonandi vinnum við
núna,“ sagði Ólafur en aðstæður á
La Manga eru eins og bestar verða
á kosið. „Hér er milt og gott veður,
vellirnir frábærir og aðstaðan öll til
fyrirmyndar.“
Aðrir fá tækifæri
Dagurinn á morgun er al-
þjóðlegur leikdagur og
gat Ólafur því valið úr
öllum þeim mönn-
um sem hann vildi.
Þetta er jafnframt
síðasti alþjóðlegi
leikdagurinn þar
til Ísland sæk-
ir Skota heim í
undankeppni
Heimsmeist-
aramótsins 1.
apríl og það
er ekkert grín.
„Það er fínt
ástand á mönn-
um og ég get
valið úr öll-
um þeim
sem ferðuð-
ust hingað.
Það eru allir
heilir. Kristján Örn [Sigurðsson]
og Heiðar Helguson duttu þó út
vegna meiðsla. Þeirra fjarvera
er bara kærkomið tækifæri fyrir
aðra að fá leik þó að það sé auð-
vitað slæmt að missa þá,“ sagði
Ólafur við DV um hópinn.
Enginn
sérfræðingur
Gunnleifur Gunnleifsson, mark-
vörður landsliðsins, er nýgenginn í
raðir FC Vaduz frá Liechtenstein og
horfði á 1-1 jafnteflisleik liðsins um
helgina. Aðspurður hvort hann væri
ekki orðinn sérfræðingur um knatt-
spyrnu í Liechtenstein svaraði Gunn-
leifur hlæj-
andi: „Nei,
ég segi það
nú ekki.“ Lít-
ið var rætt um
leikinn á morg-
un hjá Vad-
uz um helg-
ina. „Það eru
bara tveir eða
þrír landsliðs-
menn Liecht-
einstein í Vaduz og allavega tveir eru
meiddir. Það var því ósköp lítið verið
að spá í þetta,“ sagði Gunnleifur við
DV í gær.
Hálfgerð niðurlæging
Landsliðið æfði í fyrrakvöld með
öllum hópnum og aftur í gærmorg-
un og sagði Gunnleifur góðan anda
í hópnum. Sjálfur hefur hann ekki
leikið mikið að undanförnu. „Ég hef
verið að spila einhverja æfingaleiki
með HK. En ég er í fínu formi og hef
haldið mér vel við sjálfur. Ég er al-
gjörlega klár í þennan leik,“ sagði
Gunnleifur sem vill hefna tapsins í
Liectenstein. „Það þýðir ekkert ann-
að. Þetta er á bakinu á fólki heima
þannig að við verðum að gera betur
og vinna leikinn. Ég man alveg eft-
ir þessum leik og þetta var hálfgerð
niðurlæging. Við ætlum að gera bet-
ur núna,“ sagði Gunnleifur Gunn-
leifsson.
miðvikudagur 11. febrúar 2009 17Sport
Ræð ekki hvað fólk segiR um mig Nýstirnið í formúlu 1, Þjóðverjinn Sebastian vett-
el, lætur stóru orðin sem hafa fallið um hann undanfarið lítið á sig fá. vettel skaust upp á stjörnuhim-
ininn á síðasta tímabili með frábærum sigri á monza-brautinni og hefur bernie eccelstone sagt
hann manninn sem fólk eigi að fylgjast með. Þá hefur samlandi hans og sjöfaldur heims-
meistari í greininni, michael Schumacher, sagt hann eiga eftir að vinna heimsmeistaratit-
il. „Ég get ekki ráðið hvað öðru fólki finnst eða segir um mig en ég reyni alltaf að ná sem
bestum úrslitum. aðalatriðið hjá mér er að einbeita mér að því að halda áfram að læra
á nýja bílinn og mig sjálfan sem ökumann. ef það breytir áliti fólks verður bara svo að
vera,“ segir vettel sem nú þegar er kallaður Schumi 2 í þýskum miðlum.
ToRRes lengi
í liveRpool
barcelona er sagt vera að undirbúa
risatilboð í spænska framherjann
fernando Torres hjá Liverpool en
hann segist hafa engar áætlanir um
að yfirgefa félagið. „Ég sé ekki fyrir
mér að spila með real madrid,
barcelona, Chelsea eða nokkru öðru
liði. Ég er með langan samning við
Liverpool og sé fyrir mér að spila
áfram með því,“ sagði Torres á
blaðamannafundi í gær. Torres er í
spænska landsliðinu sem mætir
englandi í æfingaleik í kvöld.
hughes ósáTTuR
mark Hughes, knattspyrnustjóri
manchester City, er ósáttur við
bannið sem Shaun Wright-Phillips
var dæmdur í samkvæmt mynd-
bandi eftir leik liðsins gegn Stoke.
rory delap sparkaði þar Wright-
Phillips niður og fékk réttilega rautt
spjald. Sá stutti brást illa við,
sparkaði frá sér, en dómari leiksins sá
ekki atvikið. Hann hefur núna verið
réttilega dæmdur í þriggja leikja
bann. „við erum að missa Shaun í
jafnlangan tíma og Stoke missir
delap. Það finnst mér ekki rétt ef
maður ber saman brotin. Shaun er
að fá mjög harða meðferð miðað við
það sem hann gerði af sér,“ segir
Hughes.
umSjóN: TómaS Þór ÞórðarSoN, tomas@dv.is / SveiNN Waage, swaage@dv.is
4.500 kRónuR á
hampden paRk
miðasala er hafin á leik Skotlands og
Íslands sem fram fer 1. apríl á
Hampden Park-leikvanginum í
glasgow. Þeir Íslendingar sem hafa
áhuga á að fylgja landsliðinu til
Skotlands geta keypt sér miða í
gegnum heimasíðu knattspyrnu-
sambands Íslands, ksi.is, en miðinn
kostar 4.500 krónur. Skoskir
áhorfendur mynda ávallt mikla
stemningu og sungu tvö þúsund
þeirra og trölluðu stanslaust á
Laugardalsvellinum í haust. má
margfalda það tuttugu og fimm
sinnum til að finna út stemninguna
sem myndast alltaf á Hampden Park
en sá magnaði þjóðarleikvangur
Skota tekur yfir 50.000 manns.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu fær tækifæri til að hefna stórslyssins í Liechtenstein
þar sem liðið tapaði í síðustu undankeppni fyrir heimamönnum, 3–0. Liðin mætast í
æfingaleik á La Manga á Spáni í kvöld.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
viðRaR vel
Til hefndaR
Gunnleifur Gunnleifsson
er klár í leikinn og vill hefna fyrir tapið.
MyNd KRiSTiNN MAGNúSSON
Tekið á því fyrirliðinn
Hermann Hreiðarsson stýrir
slagsmálum á æfingu.
MyNd KRiSTiNN MAGNúSSON