Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 4
föstudagur 13. febrúar 20094 Fréttir Sandkorn n Í suðurkjördæmi hefur verið lagt að Guðna Ágústssyni, fyrr- verandi formanni Framsókn- arflokksins, að endurskoða þá ákvörðun sína að hætta. Guðni nýtur yfirburðafylgis í kjördæm- inu en hann mun þver- taka fyrir að leggja aftur út á hinn pólit- íska vígvöll. Guðni verð- ur sextug- ur í apríl og öðlast þá rétt til eftirlauna. Ör- uggt er talið að hann muni finna sér eitthvað annað að gera en að vasast í pólitík. Eftir stend- ur spurningin um nýjan leið- toga. Einhverjir staðnæmast við Hjálmar Árnason, fyrrverandi alþingismann. n Sjálfstæðismenn í suðurkjör- dæmi hafa lagt að Elliða Vignis- syni, bæjarstjóra í Vestmanna- eyjum, að taka slaginn um efsta sætið í kjör- dæminu. Þeir sem gerst þekkja telja að Elliði hafa um ára- bil gengið með þing- manninn í magan- um og sé líklegur til að stökkva fremur en hrökkva. Framboð Elliða gæti orðið Árna Johnsen þungbært en þeir sækja á sömu mið. Flestir eru sammála um að núverandi leiðtogi, Árni Mathie- sen, sé dæmdur til útlegðar og muni falla í prófkjöri. n Dr. Gunni er orðinn dauð- þreyttur á Íslandi. Á bloggsíðu sinni segist hann á leið til Lond- on um helgina til að sjá tónleika hinnar endurvöktu nýbylgju- hljómsveitar Magazine og kveðst varla geta beðið eftir að komast af þessu „skrípa- landi“ eins og Doktor- inn kallar Ísland. „Bara að vera laus við þetta kjaftæði og spóka sig um í stórborg og hugsa um eitthvað annað en skýrslur hag- fræðinga og væl og rugl og dellu er hrikalega spennandi tilhugs- un.“ Gunna finnst líka broslegt hvernig forseti vor bregst við ummælunum sem höfð voru eftir honum í þýska Financial Times í vikunni og líkir honum við Georg Bjarnfreðarson úr Nætur- og Dagvaktinni sem set- ur ósjaldan upp skjöld merkt- an „misskilningi“ þegar hann kemst í klandur. www.takk. is Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að flokkur- inn þurfi að axla sína ábyrgð á efna- hagshruninu á Íslandi. „Flokkur- inn þarf að viðurkenna að hann beri ábyrgð að hluta til á þeirri stöðu sem upp er komin hér á landi. Sjálfstæðis- flokkurinn þarf að axla sína ábyrgð á efnahagshruninu. Það finnst mér al- veg sjálfsagt mál,“ segir Bjarni. Hann segir að þegar fjármálakerfið á Íslandi hrynur sé augljóst að mönnum hafi mistekist einhvers staðar. „Menn eiga ekki að reyna að skorast undan þess- ari ábyrgð,“ segir hann. Bjarni ræddi um þessa ábyrgð Sjálfstæðisflokksins á fundi með stuðningsmönnum flokksins í Garða- bæ nýlega. Samkvæmt heimildum DV orðaði hann þessa hugsun sína á fundinum á þá leið að Sjálfstæðis- flokkurinn ætti að biðjast afsökunar á efnahagshruninu. Bjarni kannast hins vegar ekki við að hafa notað slíkt orðalag á fundinum en segist hafa sagt að flokkurinn beri ábyrgð á efna- hagshruninu að hluta. Aðspurður í hverju ábyrgð Sjálf- stæðisflokksins á efnahagshruninu liggi segir Bjarni meðal annars að fara þurfi aftur til einkavæðingar ríkis- bankanna árið 2002 til að svara þeirri spurningu. Eignarhald bankanna hefði átt að vera dreifðara Bjarni segir að einkavæðingu ríkis- bankanna hefði þurft að fylgja stífara regluverk, meðal annars um eign- arhaldið á bönkunum. Hann seg- ir að ríkisstjórnin hefði átt að tryggja dreifðara eignarhald á þeim. „Menn ofmátu þörfina fyrir stóra, leiðandi kjölfestufjárfesta í bönkunum þegar þeir voru einkavæddir. Eignarhlutur þessara fjárfesta hefði ekki þurft að vera eins stór og raun bar vitni,“ seg- ir Bjarni. Þegar ríkisbankarnir voru einka- væddir keyptu einstök eignarhaldsfé- lög stóra hluti í ríkisbönkunum þrátt fyrir að stefna ríkisstjórnarinnar hefði upphaflega verið sú að eignarhald bankanna ætti að vera dreift. Horf- ið var frá þessari stefnu þegar kom að því að ríkið seldi bankana. Til að mynda keypti Samson, eignarhalds- félag í eigu Björgólfs Guðmunds- sonar og sonar hans Björgólfs Thors, tæplega 46 prósent hlut í Landsbank- anum fyrir rúma tólf milljarða króna. Á sama tíma keypti S-hópur Finns Ingólfssonar og Ólafs Ólafssonar tæp- lega 46 prósent hlut í Búnaðarbank- anum fyrir tæpa tólf milljarða. Dreifðara eignarhald á bönkunum mikilvægt Bjarni er gagnrýninn á þessa stefnu við einkavæðingu bankanna því hann segist telja að ef ríkisbankarnir verða einkavæddir í framtíðinni þurfi að standa að þessu á annan hátt en á sínum tíma. „Ég held að við eigum að setja lægri mörk á ráðandi eignarhlut í bönkunum þannig að einstök félög fari til dæmis ekki með hærri hlut en 20 til 25 prósent,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann hyggist beita sér fyrir þessu ef hann verður kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins seg- ir hann að það sé augljóst að ef rík- isbankarnir verða einkavæddir aftur þurfi að fara að nýju yfir regluverk- ið sem snýr að eignarhaldi og eftirliti með bankastarfsemi í landinu. Glannaskapur eigenda bankanna Bjarni telur að setja þurfi slíkar regl- ur um eignarhaldið á bönkunum því efnhagshrunið sé fyrst og fremst „glannaskap eigenda og stjórnenda bankanna sjálfra“ að kenna. „En stjórnvöld bera auðvitað sína ábyrgð á því að þeir hafi geta farið svo geyst, meðal annars vegna þess hvernig staðið var að einkavæðingu bank- anna,“ segir Bjarni. Hann telur að ef menn vilji fara með svo stóran hlut í bönkunum, 20 til 25 prósent, eigi rík- isvaldið að setja þeim mjög „þröng- ar skorður“ um hversu mikil umsvif þeir megi vera með á öðrum sviðum atvinnulífsins. „Virk þátttaka eigenda gömlu bankanna á markaði var að mörgu leyti skaðleg,“ segir hann. Bjarni telur að þetta sé nauðsyn- legt því ef þeir sem eiga stóra eign- arhluta í bönkunum eru einnig mjög umsvifamiklir á öðrum sviðum mark- aðarins geti það leitt til þess að aðrir þættir en hreinir viðskiptalegir hags- munir fari að ráða stjórn bankanna. „Þá er ég að tala um hagsmuni sem tengjast valdauppbyggingu og við- skiptablokkum í atvinnulífinu,“ segir Bjarni. Bjarni Benediktsson telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að axla sína ábyrgð á efnahags- hruninu í haust. Samkvæmt heimildum DV sagði Bjarni að flokkurinn ætti að biðjast afsökunar á efnahagshruninu á nýlegum fundi með sjálfstæðismönnum í Garðabæ. Þingmaðurinn segir að ríkisstjórnin hefði átt að tryggja dreifðara eignarhald á bönk- unum þegar þeir voru einkavæddir. Hann vill að það verði gert verði ríkisbankarnir einkavæddir aftur. Segir FLOKKinn BerA ÁBYrgÐ Á HrUninU „Ég held að við eigum að setja lægri mörk á ráð- andi eignarhlut í bönkunum þannig að einstök fé- lög fari ekki með hærri hlut en 20 til 25 prósent.“ InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Flokkurinn axli ábyrgð bjarni benediktsson, þingmaður og formannsefni sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn beri sína ábyrgð á efnahagshruninu í haust sem hann þurfi að axla. Jón Axel Ólafsson laug að blaða- manni DV þegar hann var spurður að því á miðvikudaginn hvort hann hefði keypt Eddu útgáfu af eignar- haldsfélagi í eigu Björgólfs Guð- mundssonar. Aðspurður hvort hann hefði keypt Eddu sagði Jón að hann hefði ekki gert það. Eignarhaldsfélag Jóns Axels, Fjár- bakki, keypti Eddu af eignarhaldsfé- lagi Björgólfs, Ólafsfelli, í desember síðastliðnum. Edda útgáfa sérhæfir sig í ýmsum bóka- og áskriftarklúbb- um, til að mynda Andrésar Andar- og Ugluklúbbnum. Blaðamaður skrifaði síðan frétt- ina á þeim forsendum að Jón hefði upp á síðkastið fundað með kröfu- höfum Eddu til að fá felld niður 70 til 80 prósent af 400 milljóna króna skuldum fyrirtækis í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Þegar blaðamaður hafði sam- band við Jón til að lesa fréttina yfir fyrir hann viðurkenndi Jón að hann hefði keypt útgáfuna af Björgólfi í desember síðastliðnum. Jón baðst afsökunar á því að hafa ekki sagt satt og sagði að staða Eddu væri á viðkvæmu stigi. „Fyrirgefðu,“ sagði Jón Axel. Hann sagðist hafa verið að verja hagsmuni sína og Eddu því hann ætti allt undir því að viðræður við kröfuhafa fyrirtækisins gengju vel eftir. Jón vildi aðspurður ekki gefa upp kaupverðið á félaginu og svaraði því neitandi þegar hann var inntur eft- ir því hvort hann væri að leppa ein- hvern sem í raun og veru ætti fyrir- tækið. Hann neitaði því jafnframt að Björgólfur Guðmundsson ætti ein- hvern hlut í Eddu. Athygli vekur að samkvæmt upplýsingum frá Lánstrausti um hluthafana í Eddu frá 15. janúar síðastliðnum er Ólafsfell en ekki eignarhaldsfélag Jóns Axels skráð sem 100 prósent eigandi að Eddu. ingi@dv.is Jón axel laug til um kaupin á eddu Vildi ekki gangast við viðskiptum við Björgólf Guðmundsson í desember: Vildi halda kaupun- um leyndum Jón axel Ólafsson laug að blaðamanni dV þegar hann var inntur eftir því hvort hann hefði keypt útgáfuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.