Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Blaðsíða 10
Sigurður Pétur höfðaði málið á hend- ur Sophiu vegna vangoldinna lána en hún hafði áður kært Sigurð Pétur fyrir að hafa haft af sér fé með því að falsa undirskrift hennar. Sænsk rit- handarrannsókn benti aftur á móti til þess að Sophia hefði skrifað und- ir veð í íbúð sinni með eigin hendi. Sigurði Pétri þykir sárt að hafa setið uppi með hnífinn í bakinu eftir ára- langan stuðning við Sophu en segist fagna því að niðurstaða sé nú komin í þetta mál. „Í raun er ég ferlega feginn að vera laus út úr þessu og að þetta sé búið. Það er sorglegt þegar fólk reynir að koma aftan að þeim sem hefur aldrei viljað því nema allt hið besta eins og hefur gerst í þessu máli,“ segir Sig- urður Pétur í samtali við DV. Sophia og Sigurður hafa eldað grátt silfur um árabil en þau voru áður mjög náin og Sigurður barðist af kappi með henni í baráttunni fyrir að fá dæturnar heim. Á þeim árum, allt frá 1990 til 2005, lagði Sigurður Pétur henni til fé sem héraðsdómur hefur nú gert henni að endurgreiða að hluta. Eyðilagði fríið Forsaga málsins er sú að Sophia Hansen lagði árið 2007 fram kæru á hendur Sigurði eftir að hann krafðist þess að hún borgaði tryggingabréf, skuldarviðurkenningu og skulda- bréf sem faðir hans hafði lagt út fyr- ir hana. Sophia sagðist aldrei hafa skrifað undir veð í íbúð sinni og kannaðist ekki við að hún eða dótt- ir hennar hefðu skrifað undir skjölin. Undirskriftin var send til rithandar- rannsóknar hjá Statens kriminaltekn- iska laboratorium í Svíþjóð og bentu niðurstöður þeirrar rannsóknar ein- dregið til þess að umrædd undirskrift væri ekki gerð af Sigurði Pétri heldur Sophiu sjálfri. Mál Sophiu á hendur Sigurði Pétri var því látið niður falla. Sigurður sagði í samtali við DV árið 2008 að honum sárnaði kæran mjög. Hann hafi verið staddur í fríi erlend- is þegar hann frétti af kærunni. „Frí- ið var ónýtt. Ég grét þegar ég heyrði að hún hefði lagt fram þessa kæru,“ sagði hann. Sigurður Pétur höfðaði í kjölfarið mál gegn Sophiu vegna peningaláns að upphæð 20 milljónir króna. Pen- ingana hafði hann lánað Sophiu á löngum tíma, allt frá árinu 1990. Við aðalmeðferð málsins sagði Sophia að hún skuldaði Sigurði Pétri ekki 20 milljónir og hún þekkti hvorki bókar- ann sem gerði skattframtöl hennar, rannsóknarlögreglumanninn sem átti að hafa verið vitni að því þeg- ar hún skrifaði undir né heldur lög- mann sem hún á að hafa hringt í frá Tyrklandi til þess að tryggja að Sig- urður Pétur fengi veð í íbúð henn- ar á Íslandi. Allir þessir menn voru kallaðir til sem vitni í málinu og lýstu samskiptum sínum við Sophiu á einn eða annan hátt. Alltaf haft samúð með Sophiu „Það er nú einu sinni svo að í öllum málum er það réttlætið sem sigrar að lokum þótt maður sé ósáttur við hvernig málalok eru í einu og öðru. Þetta er búið að vera löng og ströng barátta og hefur tekið sinn toll af þeim sem að henni hafa komið bæði andlega og líkamlega. Ég er ánægð- ur að það sé komin lausn í þetta mál. Lausnin er kannski ekki endilega sú sem ég stefndi að í upphafi, en það er komin lausn og það er alltaf gott að fá lausn í hverju máli fyrir sig,“ seg- ir Sigurður um samskiptin við sína áður góðu vinkonu. „Auðvitað átti þetta aldrei að enda svona en það var hennar val.“ Hefði Sophia ekki kært hann vegna fölsunar á undirskrift- unum hefði hann líklega aldrei far- ið í mál við hana. „Ég stórlega efast um það, hún hefur ævinlega átt mína samúð.“ Með hnífinn í bakinu Sigurður segist leiður yfir því að hafa verið svikinn af Sophiu sem hafi reynt að bera á hann rangar sakar- giftir. Hann segist þó ekki sjá eftir að hafa stutt hana í baráttunni á sínum tíma. „Ég sé svo sem ekki eftir því að hafa farið út í það að hjálpa henni en það er skelfilegt að hafa stutt við bakið á manneskjunni í 15 ár í þess- ari miklu baráttu og fá svo hnífinn í bakið,“ segir hann. Sigurður seg- ir að hann hafi verið í sambandi við Sophiu þegar hún dvaldi í Tyrklandi í kringum aldamótin. „Við töluðum oft saman í síma og stundum, þegar hún átti ekki peninga hjálpaði ég henni,“ segir Sigurður og kveðst þrátt fyrir dóminn ekki sjá fram á að fá allt það fé sem hann lagði Sophiu til endur- greitt. „Það eru einhverjar milljónir í viðbót,“ segir hann. Ofboðsleg heift Sigurður segir að á síðustu 20 árum hafi hann öðlast mikla reynslu. „Það eru margir sigrar en samt eru töp eftir þennan tíma. Þegar á heildina er litið er þetta ofboðslega mikil reynsla sem ég hef öðlast á öllum þessum tíma. Ef ég hefði aldrei komið að þessu máli myndi ég ekki skilja stakt orð í tyrknesku og ekki öðlast jafnmikinn skilning á trú múslíma og hve heift mannsins getur verið ofboðsleg,“ seg- ir Sigurður sem hefur eignast mikið af góðum vinum í Tyrklandi. Stefán Karl Kristjánsson, lögmað- ur Sophiu, segir í samtali við DV að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort dómnum verði áfrýjað, það sé í skoðun. Sigurður Pétur segir að það sé ekki hans mál hvort hún áfrýi dómnum. Stormasamt samband Segja má að dómurinn í gær marki viss kaflaskil í stormasömum samskipt- um þeirra Sophiu og Sigurðar. Sam- band þeirra teygir anga sína allt aftur til fyrstu ára þeirrar löngu baráttu sem Sophia háði til þess að fá dætur sínar Dabgjörtu og Rúnu aftur heim. Sú bar- föstudagur 13. febrúar 200910 Fréttir BALDUR GUÐMUNDSSON OG BOÐi LOGASON blaðamenn skrifa: baldur@dv.is og bodi@dv.is Átti aldrei að enda svona Sophia Hansen var á fimmtudag dæmd til að greiða Sigurði Pétri Harðarsyni tæpar 20 milljónir króna. Sigurð- ur Pétur og Sophia eiga sér langa sögu en hann var áður nánasti bandamaður hennar. Líf Sophiu hefur ekki verið neinn dans á rósum frá því leiðir hennar og Sigurðar Péturs skildu. Hún missti aleigu sína nýlega þegar heimili hennar brann ofan af henni þannig að segja má að enn rjúki úr rústum heimilis hennar þegar henni er gert að greiða sínum gamla félaga tæpar 20 milljónir. Barnsfaðir hennar, Halim Al, vandar hvorki Sigurði né Sophiu kveðjurnar, segir þau bæði sek og að gert verði upp við þau í öðru lífi. tí m al ín a 25. júNí 1981frumburður sophiu Hansen og Halims al, dagbjört Vesile, fæðist. 3. OktóBER 1982 rúna ayisegül fæðist. 13. APRíL 1984 sophia Hansen og Halim al ganga í hjónaband hjá fógeta. APRíL 1987 Halim al verður íslenskur ríkisborgari. SUMARiÐ 1990 sophia Hansen vísar Halim al á dyr. 15. júNí 1991 Halim al kemur með dæturnar tvær til Istanbúl. 15. áGúSt 1991 Halim tilkynnir að dæturnar muni ekki snúa aftur til Íslands. 10. APRíL 1992 sophiu Hansen úrskurðuð forsjá dætra sinna á Íslandi. 2. NóvEMBER 1992 Landssöfnun til styrktar málarekstri sophiu Hansen í tyrklandi hleypt af stokkunum á Íslandi. börnin heim er slagorðið. útvarps- maðurinn sigurður Pétur Harðarson er talsmaður söfnunarinnar. 12. NóvEMBER 1992 undirréttur í Istanbúl úrskurðar lögskilnað sophiu og Halims og veitir Halim forræði yfir dætrunum. sophiu er veittur umgengn- isréttur í júlí, ár hvert. Þingmaður heittrú- aðra múslima var vopnaður í dómssalnum. 4. fEBRúAR 1993 Hæstiréttur í tyrklandi ómerkir dóm undirréttar um forræði Halims, vegna galla á málsmeðferð. 28. júNí 1993 undirréttur í Istanbúl rýmkar umgengnis- rétt sophiu. 7. OktóBER 1993 Héraðsdómari í Istanbúl gengur gegn hæstarétti og staðfestir fyrri úrskurð um forræði Halims yfir stúlkunum. 30. MARS 1994 Hæstiréttur ómerkir enn héraðsdóminn. dómari telur að áður en forsjá verði ákveðin þurfi að fást úr því skorið hver sé hjúskapar- staða og ríkisfang þeirra sem deila. 17. SEPtEMBER 1994 sophia brýst inn á heimili Halims með aðstoð lásasmiðs. Þar hittir hún fyrir dóttur sína dagbjörtu. 13. júNí 1996 undirréttur í Istanbúl ákvarðar að sophia megi umgangast dætur sínar frá 1. júlí til 31. ágúst, ár hvert. 1. DESEMBER 1996 sophia hittir dætur sínar á lögreglustöð í Is- tanbúl eftir tveggja ára aðskilnað. dagbjört er fimmtán ára og rúna 14 ára. 18. MARS 1997 sophia Hansen og Halim al sitja fyrir svör- um um forræðisdeiluna í sjónvarpsþætti í tyrklandi. 3. júLí 1998 Halim al fer með dagbjörtu og rúnu til divigri sem er afskekkt fjallaþorp. 9. júLí 1998 sophia hittir dætur sínar undir eftirliti í divigri. 2. júNí 2003 rúna ayisegül, tvítug, gengur í hjónaband í Istanbúl. eiginmaðurinn er ahmet erkol, 25 ára ökukennari af efnaðri fjölskyldu. 23. SEPtEMBER 2003 Mannréttindadómstóll evrópu úrskurðar að mannréttindi hafi verið brotin á sophiu Hansen. tyrknesk stjórnvöld hafi ekki gripið til ráðstafana til þess að tryggja að hún fengi að hitta dætur sínar. sophia fær 75 þúsund evrur í bætur. stúlkurnar eru nú 20 og 21 árs. Halim og dæturnar Halim al ásamt dagbjörtu og rúnu. Þær eru nú á 27. og 28. aldursári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.