Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 12
Á flótta með dæturnar
Eftir mikil málaferli fyrir tyrknesk�
um dómstólum ákvað Hæstiréttur
að Halim Al skyldi afhenda Sophiu
dætur sínar eða fara í fangelsi. Það
gat Halim ekki hugsað sér svo hann
lagði á flótta með stúlkurnar. Eftir
nokkurn eltingarleik féllst Halim á
að Sophia fengi að hitta dætur þeirra
í fjallaþorpi í Tyrklandi. Hann segist
hafa samþykkt að þær mættu fara
með móður sinni ef þær kysu svo.
Það hafi þær hins vegar ekki viljað
og þess vegna hafi þær dvalið áfram
í Tyrklandi.
Málaferlin fyrir íslenskum og
tyrkneskum dómstólum eru ekki þau
einu sem Sophia Hansen hefur stað�
ið í. Mannréttindadómstóll Evrópu
úrskurðaði árið 2003 að mannrétt�
indi hefðu verið brotin á henni þeg�
ar tyrknesk stjórnvöld gripu ekki til
ráðstafana til þess að tryggja að hún
fengi að hitta dætur sínar. Sophiu
voru dæmdar 75 þúsund evrur í bæt�
ur en þá voru stúlkurnar 20 og 21
árs.
Segist hafa hreina samvisku
Halim viðurkenndi í viðtalinu við
Mannlíf að hugsanlega hefði hann
beitt Sophiu ranglæti þegar hann
neitaði að skila stúlkunum og
braut gegn umgengnisrétti henn�
ar. „Það má vera að ég hafi breytt
ranglega gegn henni. En þess ber
að geta að ég er aðeins mann�
legur og breyskur sem slíkur. En
hafi ég gert rangt er það einungis
vegna dætra minna og mér tókst
að bjarga þeim úr aðstæðum sem
hefðu skaðað þær. Það er mikil�
vægara en það hvort ég sé með
fullkomlega hreina samvisku. Og
Sophia veit að dætur okkar eru vel
heppnaðar og hamingjusamar. Ég
hef fyrir löngu fyrirgefið Sophiu
svikin og alla þá þjáningu sem hún
olli mér. En ég mun engu gleyma
þótt grasið á gröf minni verði metri
að hæð. Og ég vona aðeins að So�
phia eigi eftir að kynnast góðum
manni og finna lífshamingju eins
og ég. En hún finnur hana ekki í
Tyrklandi,“ sagði hann.
Fann ástina aftur
Í júlí í fyrra greindi DV frá þeim
málaferlum sem fram undan voru
á milli Sophiu og Sigurðar Pét�
urs. Í kjölfar umfjöllunarinnar var
blaðamanni DV hótað lífláti af Eg�
yptanum Mohamed Attia sem steig
seinna fram og kvaðst vera eigin�
maður Sophiu. „Sophia Hansen er
konan mín. Við höfum verið gift í
sex mánuði og það hefur ýmislegt
hent okkur á þessum tíma,“ sagði
Mohamed Attia í samtali við DV. Í
viðtalinu sagðist hann einnig gera
ráð fyrir að barátta Sophiu fyrir
dætrum hennar hefði valdið henni
miklu hugarangri. Hann hafi veitt
henni stuðning en sagði að við
þeim blöstu mörg og stór vanda�
mál sem væru þess eðlis að þau
ættu fullt erindi við þjóðina. Hann
sagðist þá ætla að greina frá þeim
atburðum „bráðlega“.
„Ég gæti kastað upp“
Halim Al hafði ekki heyrt af dómn�
um þegar blaðamaður DV náði tali
af honum í gær. „Ég er bara að heyra
þetta núna,“ segir hann. Halim held�
ur engu sambandi við Sophiu og hef�
ur lítið álit á henni og Sigurði Pétri.
„Þau komu illa fram við mig fyrir átj�
án árum,“ segir hann en þá fór Halim
með stúlkurnar til Tyrklands.
Að mati Halims komu Sophia og
Sigurður Pétur illa fram við Íslend�
inga á sínum tíma. „Þau lugu að ís�
lensku þjóðinni til að fá peninga. Þau
lugu til að reyna að fá stelpurnar frá
Tyrklandi. Þau eru bæði sek og þau
koma til með að borga mér í öðru
lífi,“ segir hann og bætir við: „Þau
þurfa að biðja íslensku þjóðina af�
sökunar.“
Halim getur engan veginn tek�
ið Sophiu og Sigurð Pétur í sátt. „Ég
vil ekkert tala meira um þau. Ég gæti
kastað upp,“ segir hann.
„Ég er aftur orðinn afi“
Dagbjört og Rúna eru nú á 27. og 28.
aldursári. Þegar Halim er spurður
um líðan þeirra segir hann:
„Þeim líður vel hér í Tyrklandi.
Þær eru báðar hamingjusamar.“
Rúna á fimm ára dreng með eig�
inmanni sínum og deilir Halim þeim
gleðifregnum með blaðamanni að
hún hafi eignast annan son 2. febrú�
ar. „Ég er aftur orðinn afi,“ segir Hal�
im. Þó viðtalið fari fram á ensku not�
ar hann íslenska orðið „afi“ þegar
hann ræðir um nýfætt barnabarnið.
„Hún eignaðist annan strák fyrir tíu
dögum. Ég er mjög ánægður,“ segir
hann.
Dagbjört er hins vegar enn ein�
hleyp og barnlaus. „Hún er mjög
vandfýsin,“ segir Halim sem að�
spurður tekur fyrir að hann velji
eiginmann fyrir dætur sínar.
Halim segist ekki vita hvort
Sophia viti að Rúna hafi eignast
annan dreng. „Þú verður að spyrja
hana,“ segir hann.
Þegar blaðamaður hringdi í
Sophiu svaraði karlmaður sem tal�
aði ensku. Hann vildi vita hvert er�
indi blaðamanns væri sem spurði
hvort Sophia vissi af nýfæddu
barnabarni sínu. Þá sagði maður�
inn: „Hlustaðu á mig. Það er þér
fyrir bestu að hringja aldrei aft�
ur,“ og lagði á. Gera má ráð fyr�
ir að þetta hafi verið Mohamed
Attia sem hefur slegið skjaldborg
um eiginkonu sína og reynt eftir
fremsta megni að halda fjölmiðl�
um frá henni.
föstudagur 13. febrúar 200912 Fréttir
Senn líður að hinni árlegu veitingu Menningarverðlauna DV. Gert er ráð fyrir allt að 5
tilnefningum í hverjum flokki og verður gefið út sérstakt aukablað, þann 25. febrúar, þar
sem tilnefnd verk í öllum flokkum verða kynnt. Verðlaunaafhendingin fer fram þann
4. mars.
Hér með er óskað eftir ábendingum um tilnefningar í byggingarlist.
Byggingarlistaverðlaun verða veitt fyrir mannvirki sem tekin voru í notkun árið 2008.
Sem fyrr er um að ræða opinberar byggingar eða byggingar í þágu almennings.
Byggingar í einkaeign og til einkanota, t.d. einbýlishús, eru ekki teknar til skoðunar.
Vinsamlegast sendið inn þær upplýsingar sem þið teljið að gefi dómnefnd innsýn í
viðkomandi verk t.d.:
l staðsetning verks, bær/hérað, götuheiti
l stutt lýsing að mati höfunda, forsendur, starfsemi,
tæknileg uppbygging o.fl.
l nöfn höfunda, aðalhönnuður, tengiliður
l teikningar, grunnmyndir, snið, útlit, módelmyndir, 3d myndir og
ljósmyndir sem höfundar telja nauðsynleg til að skýra verkið.
Dómnefnd að þessu sinni skipa:
Margrét Harðardóttir, arkitekt FAÍ, margret@studiogranda.is
Palmar Kristmundsson, arkitekt, pk@pk.is
Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt FAÍ, sigridur@vaarkitektar.is
Vinsamlegast sendið tillögur á ofangreind netföng
dómnefndarmanna eigi síðar en10. febrúar n.k.
F.h. dómnefndar,
Sigríður Sigþórsdóttir
Frekari upplýsingar eru veittar í síma : 863 3296 og 530 6990.
Menningarverðlaun DV
2009
Málaferlin fyrir íslensk-
um og tyrkneskum
dómstólum eru ekki
þau einu sem Sophia
Hansen hefur staðið
í. Mannréttindadóm-
stóll Evrópu úrskurðaði
árið 2003 að mannrétt-
indi hafi verið brotin á
Sophiu Hansen.
Í dómsölum sophia Hansen og Muhamed attia í héraðsdómi í gær.
Mynd RóbeRt ReyniSSon