Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Síða 13
föstudagur 13. febrúar 2009 13Fréttir
Evrópubúar myndu sennilega ekki
liggja andvaka ef þeim bærust til
eyrna tíðindi þess efnis að klám-
myndaleikkona hygði á frama í
stjórnmálum. Í það minnsta ekki á
Ítalíu. En í Bandaríkjunum myndi
slík frétt án efa halda vöku fyrir
mörgum manninum, enda hefur
starfi leikara í svonefndum fullorð-
inskvikmyndum ekki verið talinn
samnefnari ríkjandi gilda í samfé-
lagslegum málum.
Því kann að fara um marga
vegna fregna um að klámmynda-
leikkonan Stormy Daniels hyggist
hasla sér völl í stjórnmálum, en að-
dáendur hennar leggjast nú á eitt
við að fá hana til að bjóða sig fram
til sætis í öldungadeild Bandaríkj-
anna. Ef sú yrði raunin myndi hún
taka sæti repúblikanans Davids
Vitter sem fulltrúi Louisiana-fylk-
is.
Stormy best í starfið
Ekki vantar stóru orðin á vefsíðu
fylgismanna Stormy Daniels. Þar
segir meðal annars að: „árið 2010
gefist Pelíkana-fylkinu tækifæri til
að byrja með hreint borð – að kjósa
fulltrúa sem við getum verið stolt
af, sem mun vinna þindarlaust,
og sem muni bjóða stöðnun birg-
inn. Við í herbúðum Stormy erum
þeirrar skoðunar að Stormy Dani-
els frá Baton Rouge sé best til þess
fallin að uppfylla þessar skyldur.“
Ef svo vildi til að Stormy Dani-
els byði sig fram og næði árangri
væri það ekki í fyrsta skipti sem
sæti Louisiana-fylkis í öldunga-
deildinni yrði tengt vafasömum
gildum. David Vitter er frægur, eða
alræmdur, fyrir tengsl sín við fræga
hórumömmu í höfuðborg Banda-
ríkjanna, Deborah Jeane Palfrey,
sem rak fylgdar- og vændisþjón-
ustu í Washington D.C.
Vitter var kjörinn í öldunga-
deildina 2004 og 2007 viðurkenndi
hann „alvarlega synd í fortíð“ sinni
eftir að símanúmer hans fannst í
skrám fylgdarþjónustu Palfrey.
Áheyrnartúr
Stormy Daniels, sem er tuttugu
og níu ára, er ekki flokksbundin
og er ekki fráhverf hugmyndinni
um framboð. Upphaf framboðs-
hugmyndarinnar má rekja til íbúa
New Orleans og fullyrða aðdáend-
ur Daniels að um fúlustu alvöru sé
að ræða.
Stormy Daniels hyggur á
„áheyrnartúr“ vítt og breitt um
Louisiana-fylki til að ræða fjölda
málefna og á vefsíðu hennar er að
finna þrjú málefni sem hún hyggst
leggja áherslu á; fjármál, konur í
viðskiptum og vernd barna. Dani-
els var hvergi bangin þegar henni
var tjáð að Vitter gæti orðið erfiður
andstæðingur og sagði að hún sjálf
hefði „ekkert á móti góðum slag“.
„Ég tel að öllum sem þekkja mig...
sé meira en vel kunnugt um það,“
sagði Stormy.
„Stjórnmál geta ekki verið
skítlegra starf en það sem ég nú
stunda,“ sagði Stormy Daniels.
Talsmaður öruggs kynlífs
Samkvæmt ævisöguágripi Stormy,
sem er að finna á vefsíðu hennar,
hefur hún „rutt úr vegi hindrunum
og hrist upp í hlutunum allt sitt líf“.
Hún ku hafa verið ritstjóri frétta-
blaðs og forseti æskulýðsklúbbs
framhaldsskóla síns og að lokum
fært „staðfestu og hæfileika sína
upp á stig atvinnumennsku, orðið
aðalleikkona í skemmtiiðnaði fyrir
fullorðna“.
Annað stórt skref hjá Stormy,
samkvæmt vefsíðunni, var að skrifa
undir „bindandi samning við kvik-
myndaframleiðandann Wicked
Pictures, fyrirtæki sem er skuld-
bundið stefnu sem setur heilbrigði
og öryggi sem forgangsatriði hvað
varðar kvikmyndatökur. Ákvörðun
Stormy um að semja við Wicked
undirstrikar skuldbindingu henn-
ar um að senda jákvæð skilaboð
til ungs fólks um mikilvægi þess að
stunda öruggt kynlíf“ segir í ævi-
ágripi Stormy.
Á brattann að sækja
Stormy Daniels hefur ekki aðeins
leikið í klámmyndum, hún hefur
einnig leikstýrt fyrir Wicked Pict-
ures, og hefur unnið til verðlauna
fyrir handritaskrif, leikstjórn og
leik. Auk þess hefur hún birst í
kvikmyndum sem ekki teljast til
klámiðnaðarins, til dæmis „The
40-Year-Old Virgin“.
„Upphaflega var ekki einblínt
á að ég færi í framboð. Ég tel að
ætlunin hafi verið að vekja al-
menna athygli á slagnum um öld-
ungadeildarsæti. Síðan urðu við-
brögðin yfirþyrmandi jákvæð. Og
ég held að allir séu þessu hlynnt-
ir,“ sagði Stormy.
Vel kann að vera að pólitískur
metnaður Stormy sé léttvæg til-
breyting fyrir kjósendur í Louisi-
ana, en það mun breytast ef hún
tekur slaginn gegn Vitters.
Clancy DuBois, stjórnmála-
ritstjóri dagblaðsins Gambit í
New Orleans, sagði að Vitters
væri snjall stjórnmálamaður sem
byggi að kosningasjóði að upp-
hæð tvær milljónir bandaríkja-
dala.
DuBois sagði að ef kosninga-
maskína Stormy hygðist minna
kjósendur á tengsl Vitters við áð-
urnefnda hórumömmu í höfuð-
borginni gæti slíkt komið þeim
sjálfum í koll.
„Þú þarft einhvern annan og
betri en klámstjörnu, eða kjöltu-
dansara, eða [annars konar]starfs-
mann í kynlífsiðnaðinum til að
negla David Vitter á þessu. Þú þarft
alvöru andstæðing, einhverja eða
einhvern sem ekki hefur neitt að
fela til að geta sagt „Eigum við að
ræða fjölskyldugildi?““ sagði Du-
Bois.
Hafna flokkshollustu
Stuðningsmenn Stormy Daniels
velkjast greinilega ekki í vafa um
reynslu hennar til að takast á við
verkefnið og sögðu að „reynsla
hennar af raunveruleikanum og
sérstakur skilningur á efnahags-
þrengingunum sem Louisiana-
búar og Bandaríkjamenn standa
frammi fyrir gera hana einstaklega
hæfa til að takast á við þá miklu
erfiðleika sem við horfumst í augu
við“.
„Grasrótarhreyfing okkar er
þverskurður hins pólitíska litrófs
og hampar heimspeki Stormy með
tilliti til persónulegrar ábyrgðar og
stuðnings við einstaklingsframtak-
ið. Við höfnum flokkshollustu og
stimplum, en dæmum þess í stað
leiðtoga okkar á forsendum heið-
arleika, persónuleika og virkni.“
Sem fyrr segir hefur Stormy
Daniels ekki tekið lokaákvörðun
um hvort hún býður sig fram en ef
sú verður raunin fetar hún í fótspor
klámmyndaleikkvennanna Ilonu
Staller, sem kjörin var á þing Ítalíu,
og Milli D’Abbraccio sem hugði á
pólitískan frama innan borgarráðs
Rómar.
Kolbeinn þorSTeinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Klámmyndaleikkonan Stormy Daniels íhugar alvarlega að bjóða sig fram til sætis í öldungadeild Banda-
ríkjanna. Ef hún hefur erindi sem erfiði mun hún taka sæti Davids Vitter sem fulltrúi Louisiana-fylkis.
Klámstjarna
í stjórnmál
Samkvæmt ævisöguágripi Stormy, sem er að
finna á vefsíðu hennar, hefur hún „rutt úr vegi
hindrunum og hrist upp í hlutunum allt sitt líf“.
Stormy Daniels „stjórnmál geta ekki verið
skítlegra starf en það sem ég nú stunda.“
CiCCiolina
ilona staller braut blað í sögu bæði stjórnmála
og klámiðnaðar þegar hún var kjörin á ítalska
þingið 1987. fyrir hafði ilona staller, sem er
af ungversku bergi brotin, getið sér orð sem
klámmyndastjarna og söngkona og var betur
þekkt undir listamannsnafni sínu, Cicciolina.
Árið 1979 var ilona staller kynnt til sögunnar
sem frambjóðandi til ítalska þingsins fyrir lista
del sola, fyrsta græna flokk ítalskra stjórnmála.
Árið 1985 söðlaði hún um og gekk í Partito rad-
icale, flokk róttækra, og barðist gegn kjarnorku
og aðild Ítalíu að norður-atlantshafsbandalag-
inu. sem fyrr segir var hún kjörin á ítalska þingið
1987, með 20.000 atkvæðum, og varð fulltrúi
lazio-hverfisins í róm. Í þeim kosningum
fékk staller næstflest atkvæða frambjóðenda
róttæka flokksins og vakti heimsathygli fyrir að
bera brjóst sín við hvert tækifæri sem gafst.
ilona staller náði ekki endurkjöri og 1991
stofnaði hún Partito dell’amore, Ástarflokkinn,
ásamt stallsystur sinni úr klámiðnaðinum,
Moana Pozzi.
Árið 2002 reyndi ilona staller fyrir sér í stjórn-
málum ungverjalands, en náði ekki nægjan-
legum fjölda undirskrifta. síðast heyrðist af
afskiptum ilonu staller af stjórnmálum þegar
hún tilkynnti 2004 að hún hygðist bjóða sig
fram til embættis borgarstjóra Mílanó.
Milly d’abbraCCio
fyrir einhverra hluta sakir virðast ítalskar klám-
myndaleikkonur vera veikar fyrir stjórnmálum
og í apríl á síðasta ári boðaði ein þeirra, Milly
d’abbraccio, innkomu sína í stjórnmál landsins.
Hún fór ekki í grafgötur með að hún hygðist
nýta sér vinsældir sínar á meðal aðdáenda
kláms, en sagði að það hefði verið einfaldara
fyrir Cicciolinu. „opinber nekt er ekki sú örugga
leið til að fá athygli og var á árum áður,“ sagði
d’abbraccio.
Milly d’abbraccio er þekkt fyrir ýmislegt annað
en afskipti af stjórnmálum því hún er þekkt
klámmyndaleikkona. Hún lét einskis ófreistað
til að tryggja sér atkvæði karlmanna og
hengdi upp öðruvísi auglýsingaspjöld um alla
rómaborg.
Milly lýsti því yfir að ef hún hefði náð kjöri
hefði verið sett á laggirnar „rautt hverfi“ í höf-
uðborginni, með fatafelluklúbbum, erótískum
diskótekum og verslunum með varning sem
lýtur að kynlífi. Hverfið átti að heita „Ástarborg“,
en að sögn klámmyndaleikkonunnar hefði
vændi verið bannað í „Ástarborginni“ sem hefði
verið aðeins örfáa kílómetra frá Vatíkaninu.
silvio berlusconi, sem leiddi í könnunum vegna
kosninganna, sætti mikilli gagnrýni og var
kallaður karlremba fyrir að fullyrða að innan
flokks hans væru fallegustu konurnar í pólitík.
Milly d’abbraccio mótmælti einnig ummælum
hans, en af öðrum ástæðum.
ilona Staller Klámmyndastjarna sem náði
kjöri á ítalska þingið.