Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 16
föstudagur 13. febrúar 200916 Fókus
u m h e l g i n a
Söguleg yfirlitssýning um gömlu
leikhúsin í Kvosinni í Reykjavík
verður opnuð í Aðalstræti 10, gamla
fógetahúsinu, í kvöld. Sýningin ber
yfirskriftina Kvosin – vagga leiklist-
ar og er hluti af dagskrá Vetrarhátíð-
ar í Reykjavík en mun síðan standa
áfram næstu mánuði. Það er Leik-
minjasafn Íslands sem hefur veg og
vanda af sýningunni en Reykjavík-
urborg styrkir gerð hennar. Áætlað
er að halda sögugöngur um gamlar
leiklistarslóðir í Reykjavík í tengsl-
um við sýninguna og verða þær aug-
lýstar síðar.
Á Vetrarhátíð verður einnig
sýning á leikbrúðum Jóns E. Guð-
mundssonar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Í
tilefni af því verða brúðulistamenn-
irnir Helga Steffensen og Helga Arn-
alds með sýningar fyrir börn á öllum
aldri í Tjarnarsal Ráðhússins. Leik-
brúður Jóns eru meðal mestu dýr-
gripa Leikminjasafnsins, en Jón var
frumherji íslenskrar leikbrúðulist-
ar á síðustu öld. Hann stofnaði Ís-
lenska brúðuleikhúsið árið 1954 og
hélt því úti í meira en hálfa öld. Eiga
flestir Íslendingar sem eru komnir
um og yfir miðjan aldur einhverjar
minningar af brúðum Jóns og þeim
ævintýraheimi sem þær byggðu.
Þess má geta að sýningar Helgu og
Helga verða klukkan 13.30, 14.30 og
15.30 og er aðgangur ókeypis.
Í elstu húsum Reykjavíkur
og Akureyrar
Jón Viðar Jónsson, forstöðumað-
ur Leikminjasafnsins, segir mjög
gaman að fá tækifæri til að sýna
í Aðalstræti 10. „Reyndar vill svo
skemmtilega til að Leikminjasafnið
er um þessar mundir með sýningar-
aðstöðu í Laxdalshúsi, elsta húsi Ak-
ureyrar. Laxdalshús hafði lengi verið
lokað almenningi þegar bæjarstjór-
inn á Akureyri bauð okkur að setja
þar upp sýningu síðastliðið sumar.
Hún fékk mjög góðar viðtökur og í
vetur höfum við haft þar opið hús á
sunnudögum. Leikminjasafnið hef-
ur enn ekki fast sýningarhúsnæði en
nú erum við sem sagt komin með
sýningar í elstu húsum beggja höf-
uðstaðanna, Akureyrar og Reykja-
víkur.“
Spurður hvort engar horfur séu
á því að safnið fari að komast í eig-
ið húsnæði segir Jón það mjög undir
velvild opinberra aðila komið. „Og
nóg er víst framboð á rúmgóðu hús-
næði um þessar mundir – og ætli
margt af því sé ekki komið óbeint í
opinbera eigu í gegnum bankana.
Þannig að maður ætti að geta ver-
ið sæmilega bjartsýnn. Yfirleitt hafa
stjórnvöld tekið þessari viðleitni
okkar vel, það er helst að Reykja-
víkurborg þurfi að standa sig betur,“
segir Jón. Hann bætir við að borgar-
yfirvöldum ætti að vera málið skylt
því það sé hér sem leiklistin hafi
þróast frá viðleitni áhugamanna yfir
í alvöru list, eins og lítillega sé verið
að minna á með þessari yfirlitssýn-
ingu í Aðalstræti.
„Annars skiptir okkur ekki síður
máli að reksturinn verði styrktur, við
fáum betri vinnuaðstöðu og auk-
inn mannafla. Ég er enn þá eini fasti
starfsmaðurinn, öll önnur vinna er
aðkeypt. Það segir sig sjálft að einn
maður kemur ekki miklu í verk á
Flökkukindur á laugavegi
Hópur myndlistarmanna setur upp sýningu í auðu verslunar-
rými á Laugavegi 40 milli klukkan 13 og 18 á morgun,
laugardag. Opnunin er hluti af stærra verkefni þar sem eins
dags sýningar eru settar upp í rými sem stendur tímabundið
autt. allir listamenn sem taka þátt í sýningunni útskrifuðust úr
ListaháskóLa ÍsLands í myndlist á árunum 2006 og 2007.
The House of the Dead: Over-
kill er einn skemmtilegasti leikur
sem ég hef spilað í langan tíma
en hann kemur í búðir í dag. Ég
man ekki hvenær ég hló síðast að
myndbrotum úr tölvuleik en Ov-
erkill fékk mann til þess að brosa
breitt margoft. Eins og nafnið
gefur til kynna er maður að kljást
við uppvakninga og það í massa-
vís.
Leikurinn er eins konar Grind-
house þeirra Quentins Tarantino
og Roberts Rodriguez í tölvu-
leikjaformi. Þó leikurinn hallist
heldur meira til Planet Terror eru
samtölin oft á tíðum nokkuð Tar-
antino-leg.
Overkill fjallar um hinn dul-
arfulla Agent-G og bitra blökku-
manninn Washington. Þeir hata
hvor annan en neyðast til að
berjast saman gegn hinum illa
Papa Caesar og hersveit hans
af uppvakningum. Milli þess
sem maður slátrar uppvakning-
um er saga leiksins sögð í þræl-
skemmtilegum myndbrotum.
Samspil G og Washingtons er hin
mesta skemmtun en tónlistin,
sögumaðurinn og grafíkin er öll
í anda splatterhrollvekja frá ní-
unda áratugnum.
Overkill er skotleikur af gamla
skólanum þar sem maður líð-
ur áfram á fyrirfram ákveðinni
braut og skýtur það sem verður á
vegi manns. Ef þú notast svo við
Wii-zapperinn fær maður spila-
kassafílinginn beint í æð. Mark-
miðið er sem sagt að drepa sem
flesta uppvakninga og helst með
því að skjóta af þeim hausinn.
Leikurinn er heldur stutt-
ur en það er hægt að spila hann
aftur og aftur með mismunandi
áherslum. Vopnaúrvalið er fínt
en mætti þó alveg vera örlítið
betra. Ég var bara einn að spila
hann og gat því miður ekki nýtt
mér multiplayer-möguleikann.
Niðurstaðan er að The House
of the Dead: Overkill er bannað-
ur innan 18 af góðum ástæðum.
Hann er grófur, blóðugur, kjaft-
for og jafnvel klámfenginn. Um-
fram allt er hann þó fyndinn og
skemmtilegur.
Ásgeir Jónsson
gróf og blóðug snilld
Kristín svava
velur
Ljóðskáldið Kristín Svava Tómas-
dóttir opnar sýningu á listaverkum
sem hún valdi úr Artóteki Borgar-
bókasafns í Grófarhúsi í dag. Verkin
eru eftir ólíka myndlistarmenn og
unnin á mismunandi hátt en þó
má greina sameiginlegan þráð í
þeim þar sem maðurinn og viðvera
hans kemur við sögu. Við opnunina
stjórnar Kristín Svava ljóðagjörn-
ingi sem felur í sér flutning á nýjasta
verki Orðkestru íslenska lýðveldis-
ins. Kristín gaf út ljóðabókina Blót-
gælur hjá Bjarti haustið 2007 og var
hún valin besta ljóðabókin af bók-
sölum það ár. Sýningin er hluti af
dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík og
stendur til 15. mars.
KlúbbaKvöld
stórsveitar-
innar
Klúbbakvöld Stórsveitar Reykja-
víkur verður næstkomandi sunnu-
dagskvöld á Café Rósenberg þar
sem flutt verða verk úr nótnabók
Thads Jones, eins mikilvægasta
tónskálds stórsveitasögunnar.
Klúbbakvöldið er hluti af tón-
leikaröð og eru þessir fyrstu tón-
leikarnir af fjórum. Stjórnandi er
Sigurður Flosason. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21 og kostar 1000
krónur inn en 500 fyrir námsmenn
og eldri borgara.
sKylmist við
málverKin
Hulda Vilhjálmsdóttir opnar
málverkasýningu í Reykjavík Art
Gallery á Skúlagötu 30 á morgun,
laugardag, klukkan 14. Hulda
stundaði nám í málaradeild
Listaháskóla Íslands 1994-2000 og
hefur haldið fjölda sýninga hér
heima og erlendis. Um myndlist sína
segir Hulda að galdur sinn sé að
stundum sé hún ekki manneskja.
„Ég er einhvers staðar annars staðar
að skylmast við málverkið. Ein með
æðri mætti. Málunin brýst áfram í
einhverri blindni sem ég get varla
höndlað.“
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga klukkan 14 til 17 og
stendur til 1. mars.
einstæðir gripir
Leikminjasafn Íslands opnar í dag tvær sýningar í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík.
Annars vegar er um að ræða sögulega yfirlitssýningu um gömlu leikhúsin í Kvosinni sem
opnuð verður í gamla fógetahúsinu við Aðalstræti. Á meðal sýningargripa þar eru ein-
stæðar myndir af leiktjöldum í Bóndanum á Hrauni eftir Jóhann Sigurjónsson. Hins veg-
ar verða leikbrúður í aðalhlutverki á sýningu sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur.
í leiklistarsögunni
Leikbrúður í Ráðhúsinu
Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður
Leikminjasafns Íslands, ásamt Ólafi J.
engilbertssyni, sem hannar sýningarnar,
og Jóni Þórissyni leikmyndateiknara.
MYND HeiðA HeLgADóttiR
tölvuleikir
The house of The
DeaD: overkill
tegund: skotleikur
Spilast á: Nintendo Wii
grindehouse
tölvuleikjanna
samtöl Washingtons
og agent g eru snilld.