Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Síða 19
föstudagur 13. febrúar 2009 19Helgarblað
Rættist úR bRostnum dRaumi
björgvin Halldórsson tók þátt í söngvakeppni
sjónvarpsins árið 1986 með lagið Ég lifi í
draumi. Það var hins vegar Icy-hópurinn sem
sigraði eftirminnilega með laginu gleðibankinn
en eurovision-kempan eiríkur Hauksson var í
öðru sæti með lagið Þetta gengur ekki lengur
og svo bó í því þriðja með Ég lifi í draumi.
Þó svo að draumur björgvins um að verða fyrsti
keppandi Íslands í eurovision hafi ekki ræst
voru vinsældir lagsins í kjölfarið algjör draumur.
Lagið hefur lifað góðu lífi alla tíð síðan.
skagfiRsk sveifla og Rapp
Óhætt er að kalla það eftirminnilegt, lagið sem
stúlka að nafni rúna g. stefánsdóttir og útvarps-
og tónlistarmaðurinn, brynjar Már Valdimarsson,
eða bMV, fluttu í eurovision árið 2006. en því
miður fellur það í flokkinn „frægt að endem-
um“. Lagið heitir 100% og var versið eins
konar skagfirsk sveifla sem rúna söng
en svo kom rappkafli sem brynjar Már
sá um eftir að hafa setið allgúmmí-
töffaralega á sviðinu þar til kom að
honum. Vont, vont, vont.
blaktandi „eitíseipkött“
eyjólfur Kristjánsson er allra reyndasti eurovision-keppandi okkar Íslendinga. Hann hefur bæði farið út í aðalkeppnina með eigið lagið, hið sívinsæla lag Nínu, og margsinnis farið sem bakraddasöngvari. eitt af þeim lögum eyfa sem hins vegar komust ekki upp úr undankeppninni hér heima er lagið Ástaræv-intýri sem tók þátt árið 1988. til liðs við sig í söngnum fékk hann Inga gunnar Jóhannsson og féll lagið í góðan jarðveg hjá þjóðinni, fékk næstflest stig allra laganna. einungis sókrates sverris stormskers varð hlutskarpara. Það sem er einna eftirminnilegast við flutning lagsins var hvernig „eitíseipkött“ eyfa blakti undurfallega í golunni sem vindvél ríkisjónvarpsins skapaði.
feðgin syngja sólaRsamba
Magnús Kjartansson og dóttir hans, Margr
ét gauja, tóku
saman þátt í íslensku forkeppninni fyrir 11
árum og sungu
lagið sólarsamba. Lagið sló heldur betur í
gegn þrátt fyrir
að sigra ekki í íslensku forkeppninni. sverr
ir stormsker
og stefán Hilmarsson unnu með laginu só
krates þetta
árið. sólarsamba er löngu orðið klassískt. M
aggi Kjartans
og Margrét gauja komu saman í fyrra á tón
leikastaðnum
Organ og tóku lagið við góðar undirtektir.
beljuRokk af bestu geRð
Það eru margir sem gráta það enn að lagið
eurovísa með hafnfirsku rokksveitinni botnleðju
hafi ekki unnið söngvakeppni sjónvarpsins
2003. Þremenningarnir slógu í gegn með kraft-
miklu rokklagi sem var á skjön við flest annað
sem áður hafði verið í keppninni. ekki nóg með
það heldur voru þeir íklæddir beljubúningum.
Það var hins vegar óskabarn þjóðarinnar á þeim
tíma, birgitta Haukdal, sem sigraði í keppninni
með laginu Open Your Heart. birgittu gekk þó
mjög vel og endaði í áttunda sæti keppninnar
og tryggði Jónsa þátttökurétt árið eftir.
mynd billi
laut í lægRa haldi fyRiR
stjóRninni
Árið 1992 tók söngvarinn og útvarps-
maðurinn vinsæli, bjarni arason, þátt
í undankeppni eurovision með lag
Jóhanns Helgasonar, Karen, við texta
eftir björn björnsson. Lagið sem enn
er talið meðal þeirra bestu
og langlífustu sem komið hafa fram í
undankeppni eurovision varð að lúta
í lægra haldi fyrir lagi siggu beinteins
og stjórnarinnar sem mættu með
lagið Nei eða já (time after time) og
keppti síðan fyrir okkar hönd þar sem
það hafnaði í 7. sæti keppninnar.
Rafstilling ehf.
Startarar alternatorar
581 4991
663 4942
Gæðabakstur ehf.
Álfabakka 12 | 109 Reykjavík | S: 545 7000
Veljum
íslenskt
Gæða
kleinur
Orku-
kubbur
gott í dagsins önn...
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
ekki áfram