Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Blaðsíða 26
föstudagur 13. febrúar 200826 Helgarblað Með annan fótinn í útlöndum Á þessum árum var Jóhanna með annan fótinn í útlöndum að taka upp, fara á fundi og æfa sig fyrir framtíðina. „ Frá því að ég var 11 ára og þangað til ég var svona 14, 15 ára var ég mikið úti. Ég var mikið í New York og líka í Los Angeles.“ Á þessum tíma gafst Jóhönnu tækifæri til þess að vinna með fjöldanum öllum af hæfileikaríku fólki og þekktum lista- mönnum. „Það var auðvitað frábær reynsla og nokkuð sem mun reynast manni vel í framtíðinni.“ Þrátt fyrir að hafa unnið með öllu þessu fagfólki ytra segir hún íslenskst tónlistarfólk alls ekki síðra. „Það eru svo margir tónlistarmenn hérna miðað við höfðatölu að við erum mjög pró og eigum mikið af frábæru fagfólki. Hins vegar er þetta allt að- eins stærra úti og bransinn harðari. Þú kemst ekki áfram nema að vera í A-klassa því að framboðið af tónlist- arfólki er bara svo mikið.“ Þó svo að það hafi verið gam- an að vinna mikið í útlöndum seg- ir Jóhanna það líka hafa verið mjög erfitt. „Það halda margir að þessi bransi sé bara eintóm hamingja en það er ekki þannig. Þetta er mjög mikið hark og maður þarf virkilega að sanna sig til þess að komast eitt- hvað áfram í þessum heimi. Ég tala nú ekki um ef maður er á fundum erlendis hjá stórfyrirtækjum. Þessir menn halda að þeir hafi rétt til þess að segja hvað sem er við mann. Það sorglega er að þessir menn eru oftar en ekki viðskiptafræðingar sem hafa ekki hundsvit á tónlist. Það er líka að mínu mati ein af aðalástæðun- um fyrir því að markaður fyrir tón- list er orðinn eins veikur og hann er. Margir frábærir tónlistarmenn verða undir í markaðsgræðginni og það er sorglegt.“ Einmana í veikindum Einmanaleiki getur fylgt heims- hornaflakkinu og stöðugum æfing- um. Jóhanna segist hafa fundið fyr- ir því á köflum. „Það hefur oft reynst mér mjög erfitt að vera svona mikið að heiman. Sérstaklega þar sem ég er í eðli mínu mjög heimakær mann- eskja. Frá því að ég var lítil hef ég líka mjög mikið unnið með fullorðnu fólki og maður saknaði oft vinanna.“ Erfiðasta raunin segir Jóhanna þó hafa verið þegar hún var stödd í Kaupmannahöfn í fyrravetur þar sem hún var í söngnámi. „Ég bjó ein í Kaupmannahöfn þegar ég veiktist af sjálfsofnæmissjúkdómi. Mér fannst ég vera mjög ein og hjálparlaus,“ seg- ir Jóhanna þegar hún lýsir þeim erf- iðu tilfinningum að hafa engan til að leita til. „Það endaði svo með því að ég flaug heim og var lögð inn á spít- ala hér heima.“ Jóhanna glímir enn við sjálfs- ofnæmið en það hefur gengið vel að halda því niðri. „Það fylgir mér þó ennþá og það birtist hjá mér í lið- verkjum og lithimnubólgu.“ Hver er Yohanna? Eftir margra ára undirbúning og mikla vinnu snéri Jóhanna svo til baka í fyrra með sinni fyrstu „full- orðins“ plötu sem heitir Butterflies And Elvis. Það vakti athygli margra hér heima að Jóhanna notaði lista- manna nafnið „Yohanna“ á plötunni en söngkonan unga segir einfaldar skýringar á því. „Ég þoldi ekki þegar Bandaríkja- menn báru nafnið mitt fram „djó- hana“. Þannig að ég vildi frekar hafa það með y svo að það væri borið fram eins og það er gert á íslensku. Við vorum líka svo mikið að vinna þessa plötu úti. Tókum hana meðal annars upp í Los Angeles. Yohanna-nafnið var meira hugsað fyrir útlönd heldur en hérna heima. Mér finnst eng- in ástæða til að nota það neitt hérna enda geta Íslendingar sagt „Jóhanna“ eins og það á að vera.“ Jóhanna segist hafa fundið fyrir því að sumum hér á Ís- landi þætti nafnið einkennilegt en hún lætur það lítið á sig fá. „Ég skil það svo sem alveg en þetta nafn var fyrst og fremst hugsað fyrir útlönd.“ Ögrandi á Broadway Eins og áður kom fram hefur Jóhanna leikið aðalhlutverkið í söngleiknum Madonna sem sýndur var á Broad- way fyrir jól. Hlutverkið er eins og Madonna sjálf ögrandi og kynþokka- fullt en Jóhanna gefur stórstjörnunni lítið eftir. „Þetta var ótrúlega gaman og gekk alveg frábærlega. Mér fannst þetta mjög skemmtileg tilbreyting og ég vona svo sannarlega að ég taki þátt í fleiri svona sýningum. Þetta hentar mér mjög vel.“ Það voru mikil viðbrigði fyrir Jó- hönnu að vinna með svo stórum hópi fólks. „Þarna er ég bara ein af teym- inu. Það eru bakraddasöngvarar, dansarar, hljómsveit og allur pakk- inn. Þetta var skemmtileg tilbreyting frá því að vera ein að syngja.“ Jóhanna hreifst strax af því að taka að sér svo ögrandi hlutverk. „Ég fílaði það strax og fannst það alveg tilvalið fyrir mig.“ Jóhanna viðurkennir fús- lega að hlutverkið hafi verið partur af því að hrista af sér barnastjörnu- stimpil- inn. „Já, mað- ur vill sýna fólki að mað- ur sé orðinn eldri og skilja gömlu ímynd- ina eftir í leiðinni.“ Aðspurð hvort Jóhanna sé þeg- ar farin að leita að nýju hlutverki seg- ir hún ekkert niðurneglt. „Ég er alveg opin fyrir því og er að skoða ýmislegt.“ Draumur í Rússlandi Jóhanna komst fyrst allra í úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins sem hófst í byrjun janúar þegar hún söng lagið Is It True eftir Óskar Pál Sveins- son. Jóhanna segir velgengnina hafa komið skemmtilega á óvart en hún heldur báðum fótum á jörðinni þrátt fyrir að vera komin í úrslit. „Fyrst pældi ég ekkert mikið í því að þetta væri Eurovision. Ég heyrði þetta lag hjá Óskari og fannst það flott. Síðan fór ég og söng þetta og það fékk bara svona góð viðbrögð. Ég var ekkert að pæla í því að vinna en núna er þetta bara orðið mjög spennandi.“ Jóhanna segist samt halda öllum væntingum um að sigra í lágmarki. „Ef maður gerir sér of miklar vonir verða vonbrigðin svo sár. Það er líka svo mikið af hæfileikaríku fólki þarna í keppninni.“ Jóhanna segir það þó vissulega draum að komast til Rússlands og fá að syngja fyrir eyrum Evrópu. „Auð- vitað vonar maður það besta. Við skulum bara bíða og sjá hvað gerist.“ Kennir stjörnum framtíðarinnar Jóhanna er með nóg á sinni könnu fyrir utan sönginn en hún er, eins og áður kom fram, farin að kenna ung- um söngvurum. Auk þess eru hún að mennta sig enn frekar söng. „Ég er að kenna börnum svona í kringum 12 ára aldur og það er bara mjög skemmti- legt. Síðan er ég á fullu í skólanum þar sem ég er að læra söngstigin.“ Jóhanna vildi ekki byrja á því námi fyrr enda ung að árum. „Ég var svo ung að ég hefði ekki enst í einhverju stífu tónfræðinámi fyrr en núna. Ég hef samt verið í söngtímum alveg frá því ég var ung og svo þegar ég var í Kaup- mannahöfn fór ég í hálfs árs söngtækninám sem skilaði miklum árangri.“ Jóhönnu finnst nauðsyn- legt að mennta sig í tónfræði þar sem hún ætli að leggja tónlistina fyrir sig í lífinu og starfa við hana. Þó svo að söngurinn eigi hug hennar allan reynir Jóhanna að sinna öðru áhugamáli sínu eftir bestu getu. „Ég hef verið í hestum frá níu ára aldri og stór hluti af fjölskyld- unni hefur verið í hestum lengi.“ Jó- hanna eignaðist sinn fyrsta hest þeg- ar hún var níu ára gömul. „Ég keypti hann fyrir peninginn sem ég fékk fyrir fyrstu plötuna mína.“ Fjölskylda Jóhönnu er með hest- hús í Hafnafirði og fara þau reglulega á bak. „Uppáhaldið er samt að fara á bak uppi í Borgarfirði þar sem við erum með hestana á beit á sumrin.“ Sorglegir tímar Ástandið í þjóðfélaginu hefur ekki farið framhjá Jóhönnu frekar en öðr- um landsmönnum og hún verður reið þegar hún hugsar til þess órétt- lætis sem hefur átt sér stað. „Þetta eru sorglegir tímar og það er hræði- legt að heyra af fólki sem er með börn og bæði hjónin misst vinnuna. Og að heyra af gömlu fólki sem hef- ur misst ævisparnaðinn út af ein- hverjum svikamyllum í bönkunum. Það gerir mig bara reiða að hugsa út í það.“ Jóhanna telur að mótmælin sem hafa staðið yfir undanfarið hafi ver- ið nauðsynlegur liður í því að rétta stöðuna í landinu. „Fólkið í landinu þurfti að láta heyra í sér. Enda sprakk ríkisstjórnin í kjölfarið á mótmælun- um.“ Jóhanna segist ekki hafa mótað sér fastar pólitískar skoðanir enn- þá. „Ég er það ung ennþá. En það er heldur ekkert hlaupið að því á þess- um tímum.“ En kreppan kemur víðar við en á Íslandi og það þekkir Jóhanna líka. „Tónlistarbransinn er í sárum eins og annað og því ekki jafnmikið í gangi úti eins og annars væri. Það er hins vegar fullt af spennandi verkefnum í gangi hérna heima og því engin ástæða til þess að örvænta.“ Ung og ástfangin Það eru eflaust margir aðdáendur Jóhönnu sem hafa velt því fyrir sér hvort söngkonan sé á lausu en svo er ekki. „Ég er með strák og við erum búin að vera saman í tvö ár.“ Aðspurð hvort Jóhanna hafi átt erfitt með að finna sér kærasta segir hún að svo hafi ekki verið. „Við erum búin að þekkjast lengi og og þetta er nú bara litla Ísland. Þetta er ekki Hollywood þar sem allir eru að reyna að nota mann.“ Jóhanna segir þó best að vera með fólki sem maður þekki vel. „Því mið- ur getur maður ekki treyst öllum.“ asgeir@dv.is „Ég þoldi ekki þegar Bandaríkjamenn Báru nafnið mitt fram „djóhana“. þannig að Ég vildi frekar hafa það með y svo að það væri Borið fram eins og það er gert á íslensku.“ „þetta er mjög mikið hark og mað- ur þarf virkilega að sanna sig til þess að komast eitthvað áfram í þessum heimi. Ég tala nú ekki um ef maður er á fundum erlendis hjá stórfyrirtækjum. þessir menn halda að þeir hafi rÉtt til þess að segja hvað sem er við mann.“ Í hlutverki Madonnu Jóhanna fann sig vel í sýningunni. MYnD EggERt JóHannESSon Komin í úrslit Jóhanna guðrún varð fyrst keppenda til að komast áfram. MYnD EggERt JóHannESSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.