Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 29
föstudagur 13. febrúar 2009 29Sakamál Rithönd moRðingja Í ársbyrjun 1929 fundu tveir menn illa far- ið lík, falið á bak við kassa í læstum bílskúr í southampton á englandi. bílskúrinn var notaður af umboðsmanni Wolf‘s Head-olíufélagsins, Vivian Messiter, og í ljós kom að líkið var af honum en hann hafði ekki sést um nokkurt skeið. Málið fékk nafnið Podmore-málið og markaði þáttaskil í morðrannsóknum í bret- landi. sakfelling morðingjans byggðist á ítarlegri rannsóknarvinnu og nákvæmu mati á réttarfræðilegum vísbendingum, þar á meðal rithönd morðingjans. moRðinginn með möRgu nöfnin George Joseph Smith var kaldrifjaður raðmorðingi sem kvæntist mörgum konum með það fyrir augum að komast yfir fé þeirra. Sumar sluppu lifandi úr hjónabandinu, en aðrar enduðu ævi sína í baði. Smith, sem varð þekktur sem „Brúðirnar í baðinu“-morðinginn, gekk undir mörgum nöfnum. George Joseph Smith gekk und- ir mörgum nöfnum; Oliver George Love, Charles Oliver James, Henry Williams og John Loyd. Árið 1914 varð hann þekktur sem „Brúðirnar í baðinu“-morðinginn. Smith var kaldrifjaður raðmorðingi og myrti konur sem hann hafði narrað í hjónaband vikum og jafnvel dögum eftir brúðkaupið. Fyrir hafði hann tryggt að hann væri eini erfinginn og til að bæta um betur hafði hann einnig líftryggt eiginkonurnar. Smith taldi sig hafa fundið óbrigðula leið til að auðgast, og auðgast hratt. Bessie Williams, fædd Mundy, fannst látin í baðkari á heimili sínu við High Street númer 80 í Herne Bay í Kent á Englandi, þann 13. júlí 1912. En það var ekki fyrr en 1915 sem lögreglan komst á sporið, en lítið vissi lögreglan á hvaða slóðir rannsóknin myndi leiða hana. Það var viku fyrir jól Það var frétt í News of the World um hörmulegt fráfall Margrétar Lloyd, brúðar sem hafði drukknað í eig- in baðkari í Highgate viku fyrir jól 1914, sem varð til þess að Charles Burnham og frú Crossley sneru sér til lögreglunnar. Heimsókn þeirra varð til þess að lögreglan hóf rann- sókn sérstaks máls þar sem tví- kvæni og morð komu við sögu. Þannig var mál með vexti að dóttir Charles Burnham, Alice, hafði kvænst George nokkrum Smith í Portsmouth í nóvember 1913, í óþökk foreldra sinna. Hvað frú Crossley varðaði vakti fréttin forvitni hennar því hin nýgiftu hjón höfðu farið til Blackpool og dvalið á gistiheimili hennar. Til að gera langa sögu stutta hafði Alice drukknað í baði 12. desember, örfáum vikum eftir að hún giftist George Smith. Lloyd, Smith, Williams En aftur að dauða Margrétar Lloyd. Þegar John Lloyd, eiginmaður Mar- grétar, kom á skrifstofu lögfræðings síns til að sækja það fé sem honum bar vegna dauða konu sinnar, tók lögreglan á móti honum. John Lloyd viðurkenndi fljótlega að hann væri George Smith sem kvæntist Alice Burnham. En fleira átti eftir að koma upp úr kafinu, því 13. júlí 1912, hafði Bessie Mundy látið lífið í baði í Herne Bay, eins og fyrr er getið. Bessie hafði verið í Herne Bay ásamt eiginmanni sín- um Henry Williams, sem hún hafði gifst í ágúst 1910. Læknir úrskurð- aði á þeim tíma að Bessie hefði fengið flogakast sem hefði leitt til drukknunar og var sú skýring hans tekin góð og gild. Við dauða Bessie fékk Smith í hendurnar 2.579 pund, 13 skildinga og 7 pens. Í raun voru Henry Williams og George Smith einn og sami maðurinn og leiddi rannsókn lögreglunnar í ljós að Smith hafði stundað tvíkvæni sjö sinnum frá 1908 til 1914. George Love gengur í hjónaband Rannsókn lögreglunnar átti eft- ir að leiða í ljós að líf Smiths hafði verið allt annað en viðburðasnautt. Í janúar 1898, þegar hann var 26 ára, kvæntist Smith, undir nafninu George Love, í fyrsta sinn og löglega, hinni átján ára Caroline Thornhill í Leicester. Þau fluttu til Lundúna og Caroline vann sem þerna á nokkr- um heimilum, þar sem hún stal öllu steini léttara undir leiðsögn eigin- manns síns. Caroline Love var handtekin þegar hún reyndi að veðsetja illa fengnar silfurskeiðar og var dæmd til árs fangelsisvistar. Þegar fang- elsisvistinni lauk uppljóstraði hún um aðild eiginmanns síns og var Smith/Love dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar í janúar 1901. Þegar hann losnaði úr fangelsi sá Caroline sitt óvænna og flýði til Kanada, og segir ekki meira af hennar högum að sinni. Hjónaband númer tvö og þrjú og... George Joseph Smith var þó langt frá því af baki dottinn. Í júní 1908 hitti hann ekkju frá Worthing, Flor- ence Wilson. Tilhugalífið varð ekki langt og gengu þau í hnappheld- una þremur vikum síðar. Þess var skammt að bíða að Smith léti sig hverfa og 3. júlí yfirgaf hann Flor- ence eftir að hafa selt öll húsgögn hennar og tekið þrjátíu sterlings- pund sem hún hafði tekið út af sparireikningi sínum. Smith lét ekki deigan síga og í lok júlímánaðar gekk hann í hjónaband með Edith Pegler í Bristol, en hún hafði svarað auglýsingu hans eftir ráðskonu. Í október 1909 kvæntist hann fröken Söru Freeman, en not- aði þá nafnið George Rose. Undir nafninu Charles Oliver James gekk hann svo að eiga Alice Reid í sept- ember 1914. En þá fór að halla und- an fæti hjá manninum með mörgu nöfnin. Hafði dáleiðslukennd áhrif á konur Það virtist nokkuð ljóst að Smith bjó yfir sterkum dáleiðslukennd- um áhrifum sem hann gat beitt gegn konum, eiginleika sem þó féll í skuggann af miskunnarleysi hans til að komast yfir fé. Þegar hann kom fyrir dómara í Old Baily-réttarsalnum í Lund- únum, ákærður fyrir morð á Alice Burnham, Bessie Mundy og Mar- gréti Lloyd, sýndi rannsóknarlög- reglumaðurinn Neil, sem farið hafði fyrir rannsókn málsins, hvern- ig Smith hafði drekkt fórnarlömb- um sínum með því að lyfta undir hné þeirra þegar þau voru í baði. Sér til aðstoðar hafði Neil hjúkr- unarkonu í baðfatnaði og hún var svo hætt komin við sýningu Neils að það þurfti að beita „munn við munn“-aðferðinni til að lífga hana við. George Joseph Smith var sak- felldur af kviðdómnum án hiks eftir 22 mínútna rökræður. Þegar hér var komið sögu hvíldi yfir skuggi fyrri heimsstyrjaldarinnar og hafði Scrutton, dómari í málinu, á orði að það væri kaldhæðnislegt að „...á sama tíma og mannlíf eru eyði- lögð í stórum stíl hefur allt réttarkerfi Englands velt fyrir sér hvort einn maður eigi að lifa eða deyja“. Smith var tekinn af lífi föstudag- inn 13. ágúst 1915 í Maidstone-fang- elsinu. Eina konan sem hann kvæntist löglega, Caroline Thornhill, var þar með orðin ekkja og giftist löglega kanadískum hermanni daginn eftir aftökuna. uMsjón: kolbeinn þorsteinsson, kolbeinn@dv.is Það viRtist nokk- uð ljóst að smith bjó yfiR steRkum dáleiðslukenndum áhRifum sem hann gat beitt gegn kon- um, eiginleika sem Þó féll í skuggann af miskunnaRleysi hans til að komast yfiR fé. Beatrice „Bessie“ Mundy og George Joseph Smith bessie var fyrsta fórnarlamb smiths, sem þá gekk undir nafninu Henry Williams. Baðkarstappi þrjár brúða smiths enduðu ævina í baði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.