Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 34
föstudagur 13. febrúar 200934 Helgarblað HIN HLIÐIN Langar að hitta Julie Andrews Nafn og aldur? „Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, 24 ára.“ Atvinna? „Dansari hjá Íslenska dansflokkn- um.“ Hjúskaparstaða? „Í sambúð með yndislegum manni og kisu“ Fjöldi barna? „Engin.“ Hefur þú átt gæludýr? „Fékk mér voða sætan kettling síð- asta haust sem er fyrsta gæludýrið mitt. Hún heitir Mía.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Minningartónleika Vilhjálms Vil- hjálmssonar.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Nei.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Það er nú alltaf að breytast, en í augnablikinu eru það ótrúlega þægilegar dansjoggingbuxur sem ég fékk í jólagjöf frá kærastanum.“ Hefur þú farið í megrun? „Ég er ekki hrifin af því að fara í megrun. Ég reyni frekar að tileinka mér heilbrigðan lífsstíl að stað- aldri.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? „Nei.“ Trúir þú á framhaldslíf? „ Já.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ég skammast mín ekki fyrir að hafa haldið upp á neitt lag. “ Hvaða lag kveikir í þér? „Það er bara svo rosalega misjafnt eftir því í hvernig skapi maður er í. En Jungle Drum með Emilíönu Torrini fær mig alltaf til að dilla mér.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Sumarsins. Það er uppáhaldsárs- tíminn minn.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „The Sound of Music er mynd sem ég get alltaf horft á, mér finnst hún bara eitt- hvað svo æðisleg.“ Afrek vikunnar? „Frumsýningin á Velkomin heim um síðustu helgi, sem gekk vel þrátt fyrir óvænta atburði.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, er samt ekki svo viss um að neitt af því hafi ræst, en það er samt alltaf eitt- hvað spennandi við það.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Já, ég spila á píanó.“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusamband- ið? „Þarf að skoða það dæmi allt betur áður en ég gef svar við þessari spurningu.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Að njóta þess.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Æ, ég veit það ekki.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Myndi gjarnan vilja hitta Julie Andrews, bara af því mér finnst hún svo æðisleg.“ Hefur þú ort ljóð? „Þegar ég var í grunnskóla, já, en það voru nú engin meistaraverk.“ Nýlegt prakkarastrik? „ Greinilega er ég ekki mikill prakkari í mér þar sem ég man ekki eftir neinu.“ Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest? „Mér hefur verið sagt að ég líkist Scarlett Johansson, en ég er ekki alveg að sjá það sjálf.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Hver veit.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Sviðið.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Athuga hvort vekjaraklukkan sé stillt.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Hef ekki hugmynd og ætla ekki að reyna að þykjast hafa hugmynd um það.“ Hjördís LiLja örnóLfsdóttir, dansari Hjá ísLenska dansfLokknum, eLskar tHe sound of music og HLakkar tiL sumarsins Kaldur á Krana Geri tilboð í hópa og fyrirtæki Faxafeni 12 l S: 551 3540 Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI LAND-ROVER EIGENDUR ÞAÐ ER ENGINN SKORTUR Á VARAHLUTUM Í LAND-ROVER HJÁ OKKUR Seljum Brakeworld hemlaklossa í margar gerðir bifreiða Varahlutir ehf Smiðjuvegi 4 A Kópavogi Símar: 587-1280 849-5740

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.