Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 48
n Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, skipulagshagfræðingur og for- maður Framsóknarflokksins, hefur ekki lokið doktorsnámi sínu við Ox- ford-háskóla. Hann segist hafa skilað doktorsritgerð sinni árið 2007 og eigi einungis eftir að fara út til Oxford til að verja hana. „Það er spurning um að ég finni mér tíma til þess. En það kemur alltaf eitthvað upp á, nú síðast var ég kjörinn formaður Framsóknarflokksins þannig að það dregst eitthvað aðeins fyrir vikið,“ segir Sigmundur Davíð sem lauk BS-námi í við- skiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Hann segir að umfjöllunar- efni doktorsritgerð- arinnar sé hagþróun borga í Austur-Evr- ópu en nám hans var þverfagleg blanda af Austur- Evrópu- fræðum og hag- fræði. Sleppur hann ekki með B+? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Það er ekkert sameiginlegt með þess- ari lagasmíð. Ef lögin eru borin saman heyrist að það eina sem er sameigin- legt með þeim er að það er notuð túba og ukulele í báðum lögum,“ segir Hall- grímur Óskarsson, höfundur lagsins Undir regnbogann sem keppir í und- ankeppni Eurovision á laugardaginn. Nokkrir glöggir tónlistarspekúlant- ar hafa haft orð á því að Undir regn- bogann þyki svipa ansi mikið til lagsins Scared of Heights eftir norska tónlist- armanninn Espen Lind. Í lagi Hall- gríms, sem sungið er af Ingó kennd- um við Veðurguðina og Idol, koma tvær föngulegar hvítklæddar stelpur fram í atriðinu sem slá á stóra trommu og blása í túbu. Þegar Espen Lind flyt- ur lag sitt á tónleikum má einmitt líka sjá lúðrasveit í hvítum búningum arka um sviðið. „Þetta er algjör tilviljun. Ég fékk hugmyndina að lúðrasveitarstelpun- um þegar ég sá lúðrasveit spila í Bost- on og hvítklædda stelpu í sveitinni en ég veit ekkert hvaðan hann fékk sína hugmynd,“ segir Hallgrímur. Aðspurður hvort hann hafi hvorki séð né heyrt lagið hans Espens Lind áður en hann samdi Undir Regnbog- ann svarar hann neitandi. „Nei, ég heyrði það löngu eftir að ég samdi mitt lag. Ef einhverjir eru að reyna að finna tengingar við önnur lög væri það þá helst að tengja þetta við James Blunt. Ég var undir svolitlum áhrifum frá honum og lagið er samið í hans stemn- ingu.“ krista@ dv.is óvarinn doktor FLUG OG GISTING Í EINA NÓTT FRÁ AÐEINS 17.150 KR.* FLUGFELAG.IS SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS Eurovision-lagið Undir regnbogann þykir líkjast norsku popplagi: keimlíkir poppslagarar n Forysta Framsóknarflokksins í Reykjavík hefur boðið Agli Helga- syni, þáttastjórnanda á RÚV, öruggt sæti á lista flokksins í þingkosning- unum sem fram fara 25. apríl. Egill viðurkennir í samtali við DV að haft hafi verið samband við hann. „En ég tek þessu ekki. Ég er ekki á leið í pólitík.“ Samkvæmt heimild- um DV eru uppi áform um að stilla upp lista fyrir norður- og suður- kjördæmi Reykjavíkur í stað þess að efna til prófkjörs. Þannig væri unnt að setja Sigmund Davíð Gunn- laugsson átakalítið í fyrsta sætið, Egil Helgason í það næsta og svo koll af kolli. Þannig yrði Sigmundur í efsta sæti norðurkjördæmisins en Egill í því syðra. Málið hefur ekki ver- ið leitt til lykta eftir því sem næst verður komist og enginn Egill Helgason verður á list- anum. Framsókn vildi sjónvarpsstjörnu n Séð og heyrt fjallar um leynilegt hjónaband poppstjörnunnar Páls Óskars í nýjasta tölublaði sínu. Þar segir að Palli hafi verið giftur manni af erlendu bergi brotnum fyrir ein- um tíu árum. Palli hefur náð að halda skammlífu hjónabandinu utan fjölmiðla til þessa en hann játar að frétt Séð og heyrt sé rétt. Palli hefur verið vinsæll í áraraðir en senni- lega aldrei eins vinsæll og und- anfarin misseri. Það er óhætt að segja að hann sé vinsælasti tónlistarmaður landsins enda bókaður út árið. Hallgrímur Óskarsson fékk hugmyndina að lúðrasveit- arstelpunum í boston. leyndarmál palla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.