Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 12
föstudagur 20. mars 200912 Fréttir
FLEKKLAUS Í SKUGGA N1
Fátt getur komið í veg fyrir að Bjarni
Benediktsson þingmaður verði
kosinn næsti formaður Sjálfstæð-
isflokksins á komand landsfundi
flokksins. Bjarni er tiltölulega óum-
deildur maður og vel liðinn af póli-
tískum samherjum sínum og and-
stæðingum þó svo að aðkoma hans
að olíufyrirtækinu N1 hafi varpað
nokkrum skugga þar á. Þessi skuggi
þykir þó ekki standa í veginum fyrir
pólitískri framtíð Bjarna sem er hælt
sérstaklega fyrir að hafa verið mál-
efnalegur og góður í samskiptum í
störfum sínum á Alþingi í gegnum
tíðina.
Frami Bjarna innan Sjálfstæð-
isflokksins þykir hafa verið nokkuð
skjótur en honum var stillt upp á lista
flokksins í Suðvesturkjördæmi þegar
hann var kjörinn á þing í fyrsta sinn
árið 2003. Ætterni Bjarna þykir þar
hafa nokkuð að segja en fjölskylda
hans hefur í gegnum tíðina verið
beintengd Sjálfstæðisflokknum og
nokkrum stærstu fyrirtækjum lands-
ins, meðal annars Sjóvá og Glitni auk
N1.
En Bjarni hefur ekki bara haslað
sér völl í stjórnmálum og viðskipta-
lífi hér á landi. Á sínum yngri árum
þótti hann afar góður fótboltamað-
ur og ef harkaleg tækling hefði ekki
bundið enda á feril hans er mögu-
legt að hann hefði staðið fastur fyrir
í vörninni hjá Stjörnunni í Garðabæ
í miklu fleiri ár. Bjarni á sér auk þess
mörg áhugamál sem hann sinnir
samhliða stjórnmálastarfinu og fjöl-
skyldulífinu en hann þykir manískur
maður sem stöðugt þarf að hafa eitt-
hvað fyrir stafni svo hann verði ekki
eirðarlaus. Dugnaður Bjarna mun
án efa koma sér vel fyrir hann þeg-
ar hann reynir að binda Sjálfstæðis-
flokkinn saman fyrir komandi alþing-
iskosningar en staða flokksins hefur
sjaldan verið eins erfið og nú í kjölfar
efnahagshrunsins. Ljóst er að mik-
ið mun mæða á Bjarna í þessu upp-
byggingarstarfi flokksins á erfiðum
tímum og á það eftir að koma í ljós
hvort Bjarni hefur það sem til þarf til
að leiða þennan stærsta stjórnmála-
flokk landsins upp úr öldudalnum
og inn í framtíðina.
Bjarni Engeyingur
Bjarni fæddist árið 1970 og er sonur
Benedikts Sveinssonar, hæstaréttar-
lögmanns og fyrrverandi formanns
bæjarráðs Hafnarfjarðar, og Guðríð-
ar Jónsdóttur húsmóður. Hann er
af Engeyjarættinni margfrægu og er
meðal annars frændi þingmannanna
og fyrrverandi ráðherranna Bjarna
Benediktssonar, sonar hans Björns
Bjarnasonar og Halldórs Blöndal
auk þess sem Einar Sveinsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Sjóvár og
Glitnis, er föðurbróðir hans. Ætterni
Bjarna þykir ekki hafa spillt fyrir póli-
tískum frama hans innan Sjálfstæð-
isflokksins.
Þingmaðurinn tjáði sig um þessi
ættartengsl í viðtali við DV fyrr á ár-
inu. „Ég er mjög stoltur af minni fjöl-
skyldu og mínum ættartengslum. Og
ég á ekki bara marga góða frændur
heldur eru margir þeirra líka góð-
ir vinir mínir þannig að hvort sem
það er mér til framdráttar eða trafala
í pólitík er það mér alveg örugglega
til framdráttar í lífinu að eiga góðan
frændgarð.“
Prúður fyrirmyndarpiltur
Bjarni ólst upp í Garðabænum og
segir æskuvinur hans Lúðvík Örn
Steinarsson að Bjarni hafi verið áber-
andi og afgerandi frá fyrsta degi í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur, bæði
í íþrótta- og skólastarfi. „Hann nýt-
ur þess að láta athyglina vera á sér og
hefur alltaf gert.“
Bjarni á ekki langt að sækja áhug-
ann á stjórnmálum, líkt og upptaln-
ingin á skyldmennum hans hér að
framan ber með sér, því Benedikt fað-
ir hans var lengi í bæjarstjórn Garða-
bæjar. „Hann var þungavigtarmaður í
sveitarfélaginu um mjög langan tíma,
mjög farsæll pólitíkus og óumdeildur
sem stjórnmálamaður,“ segir Lúðvík
um Benedikt.
Bjarni var ári á undan í skóla og
segir Lúðvík aðalástæðuna fyrir því
vera þá að Bjarni hafi alltaf verið góður
námsmaður. Lúðvík segir Bjarna hafa
verið prúðan dreng og ungling sem
hlotið hafi gott uppeldi á góðu heim-
ili. Aðspurður hvort Lúðvík kunni ekki
einhverjar prakkara- eða hrakfarasög-
ur af Bjarna frá því hann var drengur
grípur blaðamaður í tómt.
Festi ráð sitt ungur
Bjarni og eiginkona hans, Þóra Margrét
Baldvinsdóttir, byrjuðu saman þegar
þau voru mjög ung. „Ætli þau hafi ekki
bara verið saman þegar Þóra fermdist.
Þau eru búin að vera saman afar, afar
lengi. Hún er æskuástin hans,“ segir
Lúðvík en Þóra, sem starfar sem flug-
freyja, er árinu yngri en Bjarni. Þau
eiga saman þrjú börn.
Vegna þess að Bjarni byrjaði ungur
á föstu eyddi hann ekki miklum tíma á
„galeiðunni“ að leita hófanna, að sögn
Lúðvíks, og var hann snemma orðinn
afar ráðsettur og ábyrgur. Hann nam
lögfræði við Háskóla Íslands en bland-
aði sér ekki mikið í stúdenta- eða ung-
liðapólitíkina í Sjálfstæðisflokknum á
sínum yngri árum. Bjarni hefur rætt
NÆRMYND
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Nánast öruggt er að Bjarni Benedikts-
son verður kosinn næsti formaður Sjálf-
stæðisflokksins á komandi landsfundi
því staða hans innan flokksins þykir afar
sterk. Samherjar og andstæðingar Bjarna
úr pólitíkinni bera honum yfirleitt vel sög-
una og er hann sagður prúður og kurteis
maður. Hann hefur þó verið gagnrýndur
fyrir tengsl sín við viðskiptalífið. Bjarni
var stjórnarformaður í olíufyrirtækinu
N1 og eiganda þess BNT þar til í lok síð-
asta árs. Bjarni átti auk þess 1 prósent hlut
í BNT þar til fyrir um ári síðan en mun
ekki hafa átt nein hlutabréf í fyrirtækj-
um síðan. Stjórnmálafræðingur segir þó
að þessi tengsl Bjarna muni líklega ekki
verða honum fótakefli.
Tengslin við atvinnulífið þykja vafasöm
Bjarni Benediktsson er helst gagnrýndur
fyrir tengsl sín við viðskiptalífið af viðmæl-
endum dV en hann var stjórnarformaður
í olíufyrirtækinu N1 þar til í desember á
síðasta ári. stjórnmálafræðingur segir þó að
þessi tengsl virðist ekki hafa skemmt fyrir
vinsældum hans. mynd hEIða hElgadóTTIr