Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 17
fórnarlamba mansals sem hún hefði hitt og áætlaði þau lengi vel um átta talsins. Á síðasta ári komu hingað norskir lögreglumenn sem kynntu vinnu sína gegn mansali. „Þegar ég sagð þeim frá þessum dæmum sögðu þeir einfaldlega: „Þetta er mansal,““ segir Margrét. Hún telur því að hún hafi í starfi sínu hitt milli 20 og 30 fórnarlömb mansals. Catalina er grunuð DV greindi fyrst fjölmiða frá því 9. febrúar að fjórar erlendar konur á þrí- tugsaldri stunduðu vændi í íbúð við Hverfisgötu í Reykjavík, við hliðina á lögreglustöðinni. Konurnar eru tald- ar vera frá Kúbu og öðrum löndum í Suður-Ameríku. Þær sögðust sjálf- ar vera gerðar út af rúmlega þrítugri konu, Catalina Mikue Ncogo, sem ættuð er frá Miðbaugs-Gíneu. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2004. Samkvæmt sjónarvotti sem kom- ið hefur inn í íbúðina seldu konurnar þar blíðu sína á uppblásnum færan- legum beddum. Hvorki er refsivert að kaupa né selja vændi samkvæmt gildandi lög- um hér á landi. Hins vegar er óheimilt að græða á vændi annarra. Fyrir Alþingi liggur frumvarp sem miðar að því að gera kaup á vændi refsiverð og er sú stefna í takt við að- gerðaáætlunina. Í september á síðasta ári fjallaði DV um fjórar konur frá Miðbaugs- Gíneu sem sögðu Catalinu hafa staðið fyrir því að brotist var inn til þeirra og vegabréfum þeirra stolið auk þess sem þeim var hótað með hnífum. Cristina Asangono Mba, ein stúlknanna, sagði Catalinu hafa viljað að þær yfirgæfu landið fyrst að þær vildu ekki stunda vændi fyrir hana. Catalina hefur neit- að þessum ásökunum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rökstuddan grun um að Ca- talina hafi lífsviðurværi sitt af vændi annarra og stundi mansal ungra kvenna til Íslands í því skyni að gera þær út sem vændiskonur. Skömmu eftir umfjöllun DV fór Catalina til Hollands og var hún handtekin í Leifsstöð við komuna aft- ur til landsins 19. febrúar. Þá var hún úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um mansal og að hafa milligöngu um vændi, auk gruns um innflutning fíkniefna. Catalina kærði úrskurðinn til Hæstaréttar sem vís- aði málinu frá og sat hún því vikuna í varðhaldi. Catalina er nú frjáls ferða sinna og ekki í farbanni. Hjá lögreglunni fást þær upplýsingar einar að mál hennar sé enn í rannsókn. Tekur vegabréfin Guðríður Arnardóttir, formaður starfshóps um aðgerðaáætlun gegn mansali, segir staðreynd að man- sal eigi sér stað hér á landi. „Mansal þrífst hér eins og alls staðar annars staðar í heiminum.“ Hún bendir á að erlendis hafi ver- ið sýnt fram á tengsl milli nektar- staða og mansals og rifjar upp viðtal sem birtist í tímaritinu Ísafold í júní 2007: „Það var viðtal við nektardans- ara á Goldfinger. Í framhaldi af því var svolítil umræða um nektardans og Ásgeir Davíðsson, eigandi staðar- ins, hann segir í viðtali að hann hefti ferðafrelsi stúlknanna í einhverja klukkutíma eftir að þeirra vakt lýkur og hann viðurkennir það jafnframt að hann taki vegabréfin þeirra,“ seg- ir Guðríður og vísar til viðtals Sölva Tryggvasonar við Ásgeir á Stöð 2. „Það eru tekin af þeim vegabréf- in og þær fá ekki vegabréfin sín aftur fyrr en þær hafa unnið fyrir einhverj- um lágmarkskostnaði sem kostar að koma þeim til landsins, hvort það er ferðakostnaður og uppihald eða eitt- hvað, ég veit ekki hvað það er, en að minnsta kosti, ef þetta er ekki man- sal þá veit ég ekki hvað það er,“ segir Guðríður. Blaðamenn Ísafoldar voru síð- ar dæmdir til að greiða Ásgeiri eina milljón króna vegna meiðyrða. Dóm- ari studdist þar við skilgreiningu á mansali úr Íslenskri orðabók frá 2005 þar sem mansal merkir „þrælasala“. Í greininni tóku blaðamenn þó fram að við vinnslu greinarinnar notuðu þeir alþjóðlega skilgreiningu á man- sali og birtu hana með greininni. Málið bíður meðferðar hjá Hæsta- rétti. Engin laun Guðríður undrast umræðu sem upp hefur komið eftir að aðgerðaáætlun- in var lögð fram þar sem ýmsir furða sig á því að ríkisstjórnin sé að eyða tíma í að banna nektardans og kaup á vændi þegar efnahagurinn er í rúst. Hún bendir hins vegar á að þessi at- riði eru aðeins tvær af þeim 25 að- gerðum sem lagðar eru fram í áætl- uninni. Hún bendir ennfremur á að starfshópurinn hafi verið skipaður í janúar 2008, löngu fyrir kreppuna, og að enginn meðlimur starfshópsins hafi fengið greitt fyrir þá vinnu sem að baki liggur, utan eins starfsmanns nefndarinnar sem hefur samhliða sinnt öðrum verkefnum fyrir félags- málaráðuneytið. „Engu hefur verið kostað til þess- arar nefndar hvorki fyrir eða eftir kreppu,“ segir hún en meðlimir voru tilnefndir af hinum ýmsu samtökum og félögum, svo sem Rauða krossin- um og Stígamótum. Aðgerðaáætlunin gildir til ársloka 2012 en miðað er við að hún verði endurskoðuð tveimur árum eftir samþykkt hennar að undangengnu mati á árangri. föstudagur 20. mars 2009 17Fréttir NÝTA SÉR NEYÐINA Hvað er mansal? „mansal er verslun með fólk með ábata að markmiði til að svara eftirspurn eftir konum, körlum og börnum til starfa á kynlífsmarkaði, í nauðungarvinnu, við glæpastarfsemi og hernað og einnig í þeim tilgangi að nema úr því lífffæri sem seld eru á ólöglegum markaði.“ SkilgrEining úr grEinargErð aðgErðaáæTlunar gEgn manSali aldrei ákært aldrei hafa verið gefnar út ákærur vegna mansals á Íslandi en lögreglan hefur minnst eitt mál undir höndum þar sem grunur leikur á mansali. mynd PhoToS.Com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.