Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 30
föstudagur 20. mars 200930 Sport
Sýnd veiði en ekki gefin Ísland leikur gegn Eistlandi í fjórða leik sínum
í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla á Ásvöllum á laugardaginn
klukkan 16.00. strákarnir okkar unnu frábæran sigur á makedóníu á miðvikudaginn
en verða nú að halda haus og klára þetta verkefni. með sigri færi liðið taplaust inn í
fríið fram að næstu leikjum, búið að ná í þrjú af fjórum stigum á erfiðustu útivöllun-
um. Eistar er svo sannarlega sýnd veiði en ekki gefin. Það sannaðist í fyrsta leik þeirra
þegar þeir komu öllum að óvörum og nældu í stig gegn makedóníumönnum. Úrslit
sem hjálpa íslensku strákunum alveg gífurlega en til þess að nýta sér þau verður Ís-
land að hafa sigur á laugardaginn. miðasala er í fullum gangi á midi.is.
umsjón: tómas Þór Þórðarson, tomas@dv.is
Liverpool-menn hafa fengið næg-
an tíma til að fagna mögnuðum sigri
sínum, 4-1, á Manchester United um
síðustu helgi. Þann stærsta á Old
Trafford síðan 1992 þegar QPR kjöl-
dró Man. United. Nú verður Liver-
pool að koma sér niður á jörðina því
þess bíður erfiður heimaleikur gegn
Aston Villa á sunnudaginn. Þó Aston
Villa hafi gefið eftir að undanförnu
hefur Liverpool ekkert efni á því að
hugsa um neitt nema sjálft sig. Topp-
baráttan er opin á ný og verður Liver-
pool að halda sínu formi áfram til að
núlla ekki út sigurinn magnaða um
síðustu helgi.
Chelsea vill oft gleymast í titilbar-
áttunni þótt það sitji í öðru sæti. Lið-
ið hefur farið vel af stað undir stjórn
hollenska snillingsins Guus Hiddink
og stendur jafnfætis Liverpool í elt-
ingarleiknum við Man. United. Það á
í vændum Lundúnaslag gegn Totten-
ham um helgina sem hafa síðustu ár
verið skemmtilegir leikir. Englands-
meistararnir sjálfir halda til Fulham
í annað skiptið á stuttum tíma og vita
að sigur þar færir þá ekkert nema
einu skrefi nær titilinum. Hann er
auðvitað í þeirra höndum.
Fallið blasir nú við Newcastle
meira en oft áður. Það getur hæglega
með óhagstæðum úrslitum fundið
sig í fallsæti eftir helgina þegar að-
eins átta leikir verða eftir af ensku úr-
valsdeildinni.
Enginn tími fyrir jafntefli
Liverpool hefur gengið afar vel með
stóru liðin í deildinni í ár. Unnið
Manchester United og Chelsea með-
al annars tvisvar. Jafntefli og óhag-
stæð úrslit gegn minni liðunum
halda Liverpool á eftir Manchest-
er United í baráttunni í staðinn fyrir
að vera jafnfætis þeim eða jafnvel að
leiða kapphlaupið. Þegar Liverpool
mætti Aston Villa fyrr á tímabilinu
skildu liðin jöfn, 0-0, í daufum leik.
Eitt af tíu jafnteflum Liverpool á leik-
tíðinni.
Það spá auðvitað allir Liverpool
sigri í þessum leik en síðustu tveir
sigrar á Real Madrid og Man. United
hafa sent varúðarmerki til Englands-
meistaranna að Liverpool sé hvergi
nærri hætt. En það verður þá líka að
vinna leikinn á sunnudaginn. Tap eða
jafntefli á heimavelli og sigur United
á fulham núllar einfaldlega sigurinn
magnaða á Old Trafford út. Vissu-
lega geta Liverpool-menn glottað
og glaðst yfir tvennunni á United en
haldi Liverpool ekki áfram að sigra
verður það United sem hlær alla leið
að Englansdmeistaratitilinum.
Tveir leikir, markatalan 7-0.
Manchester United heldur til höf-
uðborgarinnar um helgina og mætir
þar Fulham í annað skiptið á tveim-
ur vikum. Í síðustu ferð fór United
áfram í bikarnum með léttum og löð-
urmannlegum 4-0 sigri. Sigur sem
kom ekki svo löngu eftir annan 3-0
sigur á heimavelli í deildinni. Í hvor-
ugum leiknum reyndi Fulham varla
að spila fótbolta og leyfði United að
stjórna umferðinni allan leikinn.
Eitthvað sem Man. United þakkaði
kærlega fyrir.
Fulham hefur þó verið United erf-
itt og þá sérstaklega á sínum heima-
velli. Liverpool og Chelsea verða að
vona að Fulham verði farið að girða
sig í brók og reyna allvega að mæta
United af hörku og sýna þann varn-
arleik sem það hefur gert annars á
tímabilinu. Annað er bara út í hött.
Man. United þarf ekkert gefins í þess-
ari deild en tekur því fegins hendi ef
býðst enda leikjaálagið mikið. United
kemur niðurbrotið til leiks eftir vont
tap gegn Liverpool. Hvernig svarar
það áfalli síðustu helgar? Fróðlegt
verður að sjá.
Lundúnaslagur
sem lofar mörkum
Nágrannar Chelsea í Tottenham
hafa verið þeim bláu þrándur í
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Stórsigur Liverpool á Manchester United um síðustu helgi hefur
blásið aftur lífi í toppbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni. Liver-
pool fær þó ekki auðveldan andstæðing til að halda sínu frábæra
formi gangandi. Aston Villa heimsækir Anfield um helgina á
meðan Manchester United heimsækir Fulham í annað skiptið
á stuttum tíma. Liðið sem margir vilja gleyma í toppbaráttunni,
Chelsea, á Lundúnaslag gegn Tottenham á heimavelli.
Spenna hlaupin
í toppbaráttuna
Tveggja leikja bann
nemanja Vidic sá rautt
gegn Liverpool og hvílir
næstu tvo deildarleiki.