Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Side 23
föstudagur 20. mars 2009 23Fókus
góð kellingamynd fyrir kalla
Listahátíðin 700IS Hreindýraland
er nú haldin í fjórða sinn. Hátíð-
in fer fram víða á Austurlandi. Svo
sem í Sláturhúsinu á Egilsstöðum,
Skaftfelli á Seyðisfirði, Skriðu-
klaustri í Fljótsdal, Eiðum á Eið-
um. Hátíðin verður sett á laugar-
dag en hún stendur frá 21. mars til
28. mars.
Hátíðin er með breyttu sniði
en áður. Framvegis verður um-
fang hennar tvískipt. Það er að
segja stór hátíð annað hvert ár og
svo minni og lágstemmdari hátíð
þess á milli. Það er minni útgáf-
an í ár og einblínt á innsetning-
ar. Átta listamenn munu setja upp
sjö vídeóinnsetningar í Sláturhús-
inu á Egilstöðum. Þeir eru Andr-
eas Templin og Johanna Reich frá
Þýskalandi, Julie Sparsö Damkajer
frá Danmörku og Lana Vogestad
frá Bandaríkjunum. Fyrir Íslands
hönd eru svo Hrafnkell Sigurðs-
son, Soffía Guðrún Kr. Jóhanns-
dóttir og Sigrún Lýðsdóttir ásamt
Tom Goulden. Þá er fjórum gesta-
sýningastjórum frá svipuðum há-
tíðum boðið að sýna prógrömm
sín víða um Austurland.
Formleg opnun hátíðarinnar
er í Sláturhúsinu klukkan 20.00 en
það er Áslaug Thorlacius, formað-
ur SÍM, sem opnar hana. Eftir það
verður gleðskapur í Valaskjálf þar
sem koma fram þeir Maggi Noem,
Danni Deluxxx og Gísli Galdur.
asgeir@dv.is
m
æ
li
r
m
eð
...
Killzone 2
frábær tölvuleikur í alla staði.
elegy
Hreinskilin mynd
um mann sem
er ástfanginn
á skjön við
kynslóðabil.
50 Cent:
Blood on
the Sand
fullt af hasar
en lítið um
söguþráð.
Marley & Me
Ljúfsárt fjöl-
skyldudrama.
reSident evil 5
frábær grafík en
óþolandi stjórnkerfi.
WatChMen
allt of stór saga
til að troða í eina
mynd.m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n gísli galdur á Kaffibarnum
gilli galli töfrar fram fallega tóna á
Kaffibarnum í kvöld eins og honum
einum er lagið. fjörið byrjar á mið-
nætti. Ekki gleyma dansskónum því í
kvöld verður dansað til að gleyma.
n Franz og Kristó og danni
deluxxx á Prikinu
tónlistin byrjar að óma upp úr klukkan
21 á Prikinu í kvöld með franz og
Kristó. um miðnætti tekur þó danni
deluxxx við og skemmtir lýðnum fram
eftir nóttu.
n dj Áki Pain á Sólon
Það verður heldur stuð á sólon í kvöld.
Áki Pain mun passa vel upp á það. Þeir
sem vilja svitna og púla á dansgólfinu
ættu ekki að láta þetta framhjá sér
fara.
n Brynjar Már á Café oliver
Brynjar már, betur þekktur sem BmV,
mun gera allt vitlaust á á Oliver í kvöld
og er aldrei að vita nema hann taki
nokkur lög. fjörið hefst á miðnætti.
n dr. Spock á dillon Sportbar
Hressasta hljómsveit landsins, dr.
spock, treður upp á dillon sportbar í
kvöld við mikinn fögnuð aðdáenda,
enda er sveitin í miklu uppáhaldi hjá
þjóðinni. Einnig koma fram sveitirnar
Nevolution og Bárujárn. Það kostar
1.000 kr. inn og hefst ballið klukkan 20.
laugardagur
n grímuball á Kaffibarnum
grímuböllin á Kaffibarnum eru löngu
orðin klassík í skemmtanalífi
miðbæjarins. Í boði verða skemmtileg-
ar veigar fyrir þá sem mæta í
búningum einnig verða valdir
skemmtilegustu búningarnir af
dómnefnd sem skipuð er heimsþekkt-
um dómurum á þessu sviði. dj Kári og
alfons X sjá um tónlistina. stuðið
byrjar á miðnætti.
n Benni B ruff Á Prikinu
Benni B ruff hressir, bætir og kætir í
hvert einasta skipti sem hann spilar á
Prikinu. Óhætt er að segja að það verði
góð stemning á Prikinu í nótt.
n dj Margeir og Sinfó á Jakobsen
tónverkasett samið og útsett fyrir
plötuspilara, söng og stengjasveit. Það
verður mikið um dýrðir á Jakobsen í
kvöld þegar dj margeir, urður
Hákonardóttir söngkona og
strengjasveit undir stjórn samúels
samúelssonar koma saman. Þetta
hefur verið gert nokkrum sinnum áður
og alltaf heppnast mjög vel. Þeir sem
eru vinir Jóns Jónssonar og Jakobsens
á facebook fá frítt inn með því að ýta á
mæta.
n Spaðar á naSa
spaðaböllin valda ekki vonbrigðum
og aðdáendur sveitarinnar ættu ekki
að láta þetta tækifæri framhjá sér fara.
Það verður sko dansað þetta kvöldið í
hverju einasta horni á Nasa. Ballið
byrjar klukkan 23 og kostar 1.000
krónur inn.
n dj Jónas á vegamótum
dj Jónas veit hvað hann syngur þegar
það kemur að r&b-tónlistinni. stúlkur,
mætið snemma ef þið ætlið að hrista
rassana í kvöld. Jónas sér til þess að þið
skemmtið ykkur vel.
Hvað er að
GERAST?
inna trúarbragða heldur meira trú á
orku, flæði alheimsins og spíritisma.
Til dæmis hvernig einhver getur trú-
að því að hægt sé að upplifa svokall-
að sálnaflakk. Þar sem maður svífur
út úr líkamanum, horfir í raun yfir
sjálfan sig og heiminn á meðan ein-
hver annar segir þetta bara vera súr-
efnisskort til heilans. Sem leiði til
spennufalls í heilanum sem orsaki
þessar sýnir.“
Þórir segist dansa eftir þeirri ótrú-
lega fallegu línu sem sé milli stærð-
fræði og vísinda annars vegar og
trúarbragða hins vegar. Trúarinnar
á sálina og orkunnar í alheiminum.
„Þegar maður fer að rýna í allar þess-
ar tölur og stærðina þá verður maður
eiginlega hálfklikkaður. Þá má segja
að þetta verk sé í raun hátækniárás á
stóru spurningarnar.“
leikhús augnabliksins
Eins og áður kom fram er engin sýn-
ing á Eternum eins. Þar er ekki ver-
ið að fylgja neinu handriti eða fyrir
fram ákveðnu ferli. „Það er enginn
leikstjóri og ekkert handrit. Þetta eru
nú tveir mjög stórir þættir sem skil-
greina nútímaleikhús.“ Verkið hef-
ur tvívegis verið forsýnt nú þegar og
Þórir segir þær sýningar hafa ver-
ið gerólíkar. „Þar náði ég mjög mis-
munandi tengslum við áhorfendur
og því þróaðist sýningin á mismun-
andi hátt. Ef það kemur upp einhver
áhugaverður punktur þá skoða ég
hann eins náið og ég vil. Það er ekk-
ert handrit sem segir að nú þurfi að
halda áfram í næsta atriði.“
Þórir er orðinn leiður á því að fara
í leikhús þar sem alltaf er verið sýna
honum fyrir fram ákveðna ferla. „Það
er alltaf verið að sýna manni hvern-
ig hlutverkunum á sviðinu líður. Það
er alltaf rosalega áberandi í hvaða
ástandi karakterinn er. Hann er ofsa-
lega ástfanginn eða afskaplega reið-
ur.“ Þórir segist þreyttur á þessu ferli.
„Leikhúsið á að vera og hefur alltaf
verið, þangað til kannski síðustu 150
árin, leikhús augnabliksins. Þar sem
má alveg fara út fyrir rammana.“
Að mati Þóris er of mikið um end-
urtekningar í leikhúsi almennt. „Það
er verið að endurtaka rosalega mikið
það sem virðist virka. Ef áhorfendur
hlæja til dæmis þá er mikilvægt að
fá þann hlátur aftur daginn eftir. Ég
er ekki að segja að þetta sé slæmt en
mig langar mjög mikið að prófa hitt.
Þar sem það er ekkert ákveðið fyrir
fram.“
Í noregi í 11 ár
Þórir er fæddur árið 1980 og ólst
upp í Hafnarfirði og í Grímsey. Eftir
að hafa lokið grunnskólanámi flutt-
ist Þórir til Noregs ásamt fjölskyldu
sinni. „Þar fór ég í menntaskóla og
kláraði hann. Ég komst síðan beint
inn í norska leiklistarskólann og
kláraði hann árið 2002.“
Eftir útskrift var nóg að gera hjá
Þóri. Í kvikmyndum, sjónvarpi og
leikritum. Leiklistin gekk vel að hans
sögn en einhver óróleiki leitaði á Þóri
sem hann þekkti ekki áður.
„Síðasta árið mitt úti í Noregi, sem
var 11. árið mitt þar, fór ég að finna
fyrir miklum óróleika. Ég var rosa-
lega órólegur en ég skildi ekki al-
mennilega af hverju. Ég var bara ekki
að átta mig á þessu. Því ég hef alltaf
verið glaðlyndur. Allt í einu var ég
bara orðinn mjög þungur.“
„djöfulinn er ég að gera í
noregi?“
Í kjölfarið á þeim óróleika sem var
farinn að sækja að Þóri úti í Noregi
ákvað hann að fara í langt sumarfrí
til Íslands árið 2007. Hann dvaldi hér
heima í tvo mánuði og kynntist land-
inu upp á nýtt. „Það að lifa á íslensku
aftur fyllti mig mikilli bjartsýni. Að
lifa þar sem allt er á íslensku, allir
fjölmiðlar, öll samtöl og samskipti.“
Þórir segist í leiðinni hafa áttað sig
á því hvað þyrfti að gerast. „Í kjölfar-
ið spurði ég sjálfan mig bara: Hvurn
djöfulinn er ég að gera í Noregi? Af
hverju í ósköpunum er ég í Noregi?“
segir Þórir sem ákvað á þeirru stundu
að flytja aftur heim.
Kokhraustur leikari
Þórir kláraði samninginn sem hann
var á úti í Noregi áður en hann kom
til Íslands. „Ég var á flottum samn-
ingi úti í Osló. Ég var að leika Makka
hníf í Túskildingsóperunni sem er
mjög flott hlutverk. Ég er sáttur við
að hafa endað feril minn þar í bili á
svo góðum nótum en ég þurfti bara
að koma heim aftur.“
Þórir hafði haft samband við leik-
hússtjórana hér heima í millitíðinni
og bauð þeim starfskrafta sína. „Ég
mætti bara nokkuð kokhraustur og
sagðist vera fínn leikari með góða
menntun og ágætis reynslu. Og að
þeim væri bara best að ráða mig í
vinnu og Tinna (Gunnlaugsdóttir)
féll fyrir því sem betur fer.“
Þórir segist hafa fundið fjölina
sína hér heima á Íslandi og er sáttur
við lífið. „Mér líður frábærlega og það
er meiriháttar að fá að starfa í þessu
magnaða húsi sem Þjóðleikhúsið er,“
segir Þórir að lokum.
asgeir@dv.is
eterinn „Hátækniárás á stóru spurningarnar.“
Mynd KriStinn
Lágstemmt Hreindýraland
Maggi noem og danni
deluxxx Koma fram í
sláturhúsinu á Egilsstöðum.