Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Síða 28
föstudagur 20. mars 2009xx Sakamál SyStrablóð Lennart Persson yggldi sig þegar hann staulaðist fram úr rúminu. Hann heyrði raddirnar enn og aftur. flesta daga um leið og hann vakn- aði upphófu raddirnar sín eilífu tilmæli. „dreptu, dreptu,“ sögðu þær honum. „svalaðu drápsþorsta þínum.“Lennart var 29 ára og hafði átt erfitt líf. Hann hafði alist upp á upplausnarheimili og foreldrar hans gáfu hann frá sér til ættleiðingar þegar hann var á unglingsaldri. framtíðarforeldrar hans áttu fyrir tvær dætur, önnu og Camillu, og innan örfárra mánaða höfðu þær viðurkennt hann sem bróður og hann þær sem systur sínar. En Lennart heyrði raddir. Lesið um Lennart Persson og raddirnar í næsta helgarblaði dV. „brenglaður og illur“ Englendingurinn Jeremy Bamber var sakfelldur árið 1986 fyrir að hafa myrt nokkra fjölskyldumeðlimi sína. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og hann hefur ávallt síðan lýst yfir sakleysi sínu. Áfrýjunar- beiðnum hans hefur hingað til verið hafnað og hann bíður nú eftir úrskurði vegna einnar slíkrar. Margt virðist vera á huldu um málið. Jeremy Bamber var tuttugu og fimm ára þegar hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi 28. október 1986 fyrir að hafa skotið foreldra sína, systur sína og frændur sína, sex ára tvíbura. Morðin voru framin á býli fjölskyldunnar í Essex snemma morguns 7. ágúst, 1985. Þann örlagaríka morgun sagðist Jeremy svo frá að hann hafi vakn- að á heimili sínu við símhringingu klukkan hálf fjögur um nóttina. Þegar hann svaraði heyrði hann föður sinn segja: „Sheila er með byssuna, hún er orðin óð, komdu fljótt.“ Nefnd Sheila var systir Jer- emys, einnig ættleidd og móðir tvíburanna. Að sögn Jeremys rofn- aði sambandið áður en fleira var sagt og á tali þegar hann reyndi að hringja til baka. Jeremy hringdi ekki í neyðar- línuna af ótta við að hann myndi gera úlfalda úr mýflugu, því Sheila átti að hans sögn til að fá æðisköst. Þess í stað hringdi hann á næstu lögreglustöð og bað lögregluna að hitta sig við býlið. Byssan í höndum Sheilu Þegar lögreglan hafði brotist inn í húsið í morgunsárið mætti henni ófögur sjón. Lík Ralphs Bamber, föður Jeremys, lá í eldhúsinu. June, móðir Jeremys, var látin í svefn- herbergi hjónanna og ljóst að hún hafði verið skotin nokkrum sinn- um þegar hún hafði reynt að kom- ast úr herberginu. Tvíburarnir höfðu verið skotn- ir nokkrum sinnum þar sem þeir lágu í rúmi sínu, og Sheila, fyrrver- andi fyrirsæta þekkt sem Bambi, lá á gólfinu við hlið rúms foreldra sinna. Hún hafði verið skotin í hálsinn og hálfsjálfvirkur riffill lá í höndum hennar. Þegar Jeremy heyrði tíðindin fékk hann áfall og virtist með engu skilja hvað hefði gerst og í vitna viðurvist kastaði hann upp á hlað- inu fyrir fram býlið. Geðheilsa Sheilu Áður en lengra er haldið er vert að huga aðeins að Sheilu og þá sér- staklega geðheilsu hennar. Hún átti að baki óhamingjuríkt hjóna- band, en þegar því lauk sótti á hana þunglyndi sem síðar þróaðist í geðklofa með einkenni vænisýki. Í tvígang hafði hún verið lögð inn á sjúkrahús og hafði reyndar verið útskrifuð af sjúkrahúsi að- eins örfáum dögum fyrir morðin. Í læknaskýrslum var til þess tekið að sjúkdómur hennar einkenndist af undarlegum viðhorfum gagnvart tvíburasonum hennar sem hún talaði um sem „börn djöfulsins“. Einnig kom fram að Sheila hafði talað um að svipta sig lífi. Dagana fyrir morðin hafði Sheila ekki tek- ið lyf sem henni voru nauðsynleg til að hafa hemil á geðsveiflum sín- um. Að sögn jeremys hafði kvöldið áður en morðin voru framin verið rætt hvort koma ætti tvíburunum í fóstur tímabundið vegna veikinda Sheilu og ekki loku fyrir það skot- ið að sú umræða hefði valdið æðis- kasti hjá Sheilu. Vitneskjan um geðheilsu Sheilu og aðkoman á vettvangi morðanna varð til þess að lögreglan dró þá ályktun að Sheila hefði myrt börn- in, foreldra sína og síðan svipt sig lífi. Framburður fyrr- verandi kærustu Rúmlega mánuði eftir morðin snerist lögreglunni hugur. Eftir að hafa túlkað vísbendingar á ann- an hátt komst hún að þeirri nið- urstöðu að Jeremy Bamber hefði framið morðin og sviðsett vett- vanginn. Reyndar var „Taff“ Jones, sem fór fyrir rannsókninni, þeirr- ar skoðunar að Sheila hefði fram- ið morðin, en Jones var tekinn úr rannsókninni og lést af slysförum áður en réttarhöld vegna morð- anna hófust. Grunur lögreglunnar beindist að Jeremy eftir að fingraför hans fundust á morðvopninu, en engu minna vægi hafði framburður kær- ustu Jeremys, Julie Mugford. Mug- ford bar vitni um að Jeremy hefði viðrað löngun sína til að drepa for- eldra sína. Saksóknarinn fullyrti að Jeremy hefði myrt fjölskyldu sína til að koma höndum yfir arf upp á tæp 500.000 sterlingspund og tíu kviðdómarar af tólf voru sama sinnis og saksóknarinn. Auk umrædds arfs átti Bamb- er-fjölskyldan viðamiklar eignir; fimm býli, pökkunarverksmiðju að hluta til, og hjólhýsastæði sem velti 1.000.000 sterlingspundum á ári. Saksóknari hélt því fram að Jeremy hefði ekki staðist þá freistingu að myrða fjölskyldu sína til að komast yfir þessar verðmætu eignir. Reið kærasta Sem fyrr segir grundvallaðist sak- felling Jeremys að hluta til á vitnis- burði Julie Mugford, kærustu hans, en þess má geta að kvöldið fyrir morðin sagði vinkona hennar, Liz Rimmington, að hún sjálf hefði átt í kynferðislegu sambandi við Jer- emy, og ekki útilokað að henni hafi verið hefnd í huga þegar hún setti sig í samband við lögregluna næsta morgun. Lögreglan komst að því að Mug- ford hafði framið glæpi; hún hafði framið innbrot á Osea-hjólhýsa- stæðinu, verslað með kannabis og komist yfir fé með fölsuðum ávís- unum. Lögreglan bauð Julie Mug- ford friðhelgi gegn því að hún bæri vitni við réttarhöldin yfir Jeremy Bamber. Að sögn áðurnefnds Scotts Lomax greiddi dagblaðið News of the World Julie 25.000 sterlings- pund fyrir að segja sögu sína. Að mati verjenda Jeremys hafði Julie verulegan hagnað af því að bera vitni gegn Jeremy; hún náði fram hefnd, komst í álnir og var áfram frjáls kona, þökk sé samningnum við lögregluna. „Brenglaður og illur“ Drake, dómarinn við réttarhöldin, sagði við Jeremy að Jeremy væri „brenglaður og illur“ og mæltist til þess að hann ekki yrði íhugað að veita honum frelsi fyrr en hann hefði að minnsta kosti verið tut- tugu og fimm ár á bak við lás og slá, þannig að hann yrði í fangelsi til 2010 að minnsta kosti. Jeremy Bamber bíður nú eftir úr- skurði um hvort hann fær að áfrýja málinu, en á meðal þeirra sem tala máli hans eru Bob Woffinden, fyrr- verandi blaðamaður, þingmað- urinn George Galloway, Andrew Hunter, fyrrverandi þingmaður og Scott Lomax sem hefur sérhæft sig í skrifum um sönn sakamál og gaf út bók um málið. Nú þegar hefur tveimur áfrýjunarbeiðnum Jerem- ys verið hafnað. Nefnd sem fer yfir gömul sakamál þar sem grunur leikur á að menn hafi veriðranglega dæmdir er nú að fara yfir ný sönn- unargögn. Jeremy Bamber tók lyga- mælispróf, sem er þáttur meðferðar nefndarinnar, og stóðst prófið. Jeremy hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og hefur gefið í skyn að um samsæri sé að ræða af hálfu annarra fjölskyldumeðlima. umsjón: koLbEinn þorstEinsson, kolbeinn@dv.is Sheila Caffell „Bambi“ fannst látin með morðvopnið í höndunum. Jeremy Bamber Hefur alla tíð lýst yfir sakleysi sínu og barist fyrir endurupptöku málsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.