Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 48
n Sprengjuhöllin gerir það gott vest-
anhafs, en sveitin er nú á ferðalagi
um Bandaríkin og Kanada að kynna
átta laga EP-plötu sína. Sprengju-
hallarmeðlimir eru nú þegar að
gera það gott en samkvæmt vef-
síðunni ChartAttack komust þeir
á lista yfir sveitir sem stóðu sig vel
á sviði. Sprengjuhöllin fékk ein-
kunnina 91 af hundrað fyrir eitt af
sjóvum sínum og gerði jafntefli við
The Black Diamond Enemies, The
Golden Dogs, Hot Panda og Quest
For Fire.
Ekki sótti ég um!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Ég er alsaklaus af þessu,“ segir Sig-
urður Helgi Guðjónsson, lögmaður
og framkvæmdastjóri Húseigendafé-
lagsins. Hann hefur undanfarið legið
undir grun um að sækjast eftir starfi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins. „Ég hélt
kannski að einhver hefði tekið af mér
skarið og sótt um,“ segir hann glettinn.
Nítján manns sóttu um stöðuna og
eftir að umsóknarfrestur rann út 11.
mars var gert opinbert hverjir sóttu um.
Þar á meðal var gefið upp nafn og titill
Sigurðar Guðjónssonar lögmanns.
Í fyrstu töldu margir að þarna væri
á ferðinni Sigurður G. Guðjónsson
hæstaréttarlögmaður. Þegar áhuga-
samir fjölmiðlamenn höfðu samband
við hann bar Sigurður G. þó af sér að
hafa sótt um starfið.
„Eftir að Sigurður G. hafði neitað
þessu fóru spjótin að beinast að mér,“
segir Sigurður. Lögmenn eru meðal
þeirra sem hafa gengið á hann vegna
málsins.
Í símaskrá eru aðeins þeir tveir
skráðir undir þessu nafni með starfs-
heitinu lögmaður. Sigurður segir enn-
fremur að samkvæmt lögmannatali
Lögmannafélagsins séu þeir aðeins
tveir nafnarnir. „Enginn veit hvaða Sig-
urður Guðjónsson er á ferðinni,“ segir
Sigurður Helgi.
DV leitaði nánari upplýsinga hjá
Fjármálaeftirlitinu og var þar vísað á
ráðningarþjónustu Capacent sem hef-
ur umsjón með ráðningarferlinu. Ekki
náðist tal af þeim full-
trúum sem sjá um
ráðninguna.
erla@dv.is
Heitir vestanHafs
Sigurður Helgi Guðjónsson segist ekki hafa sótt um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins:
enginn veit Hver er þarna á ferð
n Sölvi Tryggvason, sjónvarps-
maður á Skjá einum, gerir ýmislegt
til að halda líkama og hug í topp-
formi. Það má sjá í nýjasta tölublaði
tímaritsins Séð og heyrt þar sem
er fylgst með honum í svokölluðu
heitu jóga, þá er jóga stundað í
heitu herbergi sem hefur helst verið
hitað upp að 37 gráðum. Sölvi er
nýbyrjaður í jóganu en
Jóhanna Karlsdótt-
ir jógakennari er
augljóslega ánægð
með nýja nemand-
ann því hún segir í
viðtali við tímaritið að
Sölvi hafi staðið
sig betur í erf-
iðum jafnvæg-
isæfingum en
hún hafi séð til
byrjanda áður.
Sölvi er líka að
prófa sig áfram
með hugleiðslu í
tuttugu mínútur á
dag til að halda
sér góðum.
sjóðHeitur í
Heitu jóga
n Eva Hauksdóttir, norn og mót-
mælandi, er allt annað en sátt við
nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar
sem mun banna rekstur nektar-
staða með öllu hér á landi. Eva spyr
áleitinna spurninga á Moggabloggi
sínu. „Hversu margt fólk sem er
virkt í kynlífsþjónustu í dag, var haft
með í ráðum við gerð þessa laga-
frumvarps?“ spyr Eva
og bætir við: „Hversu
margir sem hafa
jákvæða reynslu
af þessum bransa,
eiga sér ekki sögu
um fíkniefnaneyslu og
hafa ekki verið
undir ægivaldi
ofbeldis-
manns eða
kúgara
voru
spurðir
álits?“
norn gegn
vændisfrumvarpi
Sótti ekki um hefur
ekki hugmynd um hver
sótti um starfið.