Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2009, Qupperneq 8
miðvikudagur 1. apríl 20098 Fréttir
Stjórnvöld herða gjaldeyrishöft til þess að verjast gengissigi krónunnar. Gjaldeyris-
kreppan þjakar þjóðina langt umfram það sem aðrar þjóðir þurfa að þola í heimskrepp-
unni. Stjórnarflokkarnir takast á um framtíðarlausn á gjaldeyrisvanda þjóðarinnar.
Króna með þjóð
í sjálfheldu
Krónan er sem heit kartafla sem
stjórnarflokkarnir kasta á milli sín.
Vinstrigræn telja að krónan verði
hér næstu árin og vilja miða aðgerð-
ir stjórnvalda að því að skapa stöðug-
leika með henni. Óþol Samfylkingar-
innar vex, en hún telur eitt brýnasta
efnahagsúrræðið vera að sækja sem
fyrst um aðild að Evrópusamband-
inu og miða aðgerðir í átt að stöðug-
leika við að evra verði tekin upp hér á
landi eins fljótt og auðið er.
Króna á útsölu erlendis
Þrátt fyrir háa stýrivexti og gjaldeyr-
ishöft hefur gengi krónunnar lækkað
að undanförnu og slök skil á gjald-
eyri fyrir útflutning á vöru og þjón-
ustu hafa nú orðið til þess að gripið
hefur verið til hertra gjaldeyrishafta
með lögum.
Ástæðan er sú að brögð eru að því
að útflytjendur kaupi íslenska krónu
á niðursettu verði í viðskiptalöndum
fyrir gjaldeyristekjur sínar af fiski eða
öðrum afurðum. Selji fyrirtæki fiska-
furðir fyrir 100 þúsund evrur get-
ur fyrirtækið keypt um 25 milljón-
ir íslenskra króna fyrir þær erlendis.
Komi sama fyrirtæki með evrurn-
ar 100 þúsund til landsins og skipti
þeim í íslenskar krónur á seðlabanka-
genginu hefði það í gær
feng- ið liðlega 16
milljón-
ir króna.
Jafnvel
þótt ís-
lenska
fyrir-
tækið
semdi
við er-
lendan
kaupanda
um að
fá
greitt í íslenskum krónum gegn þókn-
un væri hagur íslenska fyrirtækisins
eftir sem áður mikill af því að kaupa
ekki krónur á seðlabankagenginu og
skila ekki gjaldeyrinum milliliðalaust
til landsins.
Spennitreyja haftanna
Það er þó lögbundið og í gær var í
skyndingu lagt fram frumvarp um að
allan útflutning skuli skrá í erlendri
mynt.
Í greinargerð með frumvarpinu seg-
ir að sterkar vísbendingar séu um að
því markmiði með skilaskyldunni
að byggja upp gjaldeyrisforða vegna
útflutningstekna verði ekki náð þar
sem útflytjendur séu ekki skuld-
bundnir til að selja útflutningsafurð-
ir í erlendum gjaldmiðli. „Samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu Íslands og
tollyfirvöldum eru vísbendingar um
að verðmæti útfluttra vara sem greitt
er fyrir með íslenskum krónum á
tímabilinu janúar til mars á þessu ári
sé nærri 2 milljörðum króna hærri en
á sama tíma árið 2008. Innflutningur
til landsins hefur einnig dregist sam-
an sem ætti að gefa frekari grundvöll
fyrir styrkingu krónunnar. Veiking
gengis gefur því vísbendingar um að
einhverjir útflytjendur fái greitt fyr-
ir vörur sínar innan lands með ís-
lenskum krónum en að kaupandinn
greiði, annaðhvort beint eða í gegn-
um millilið, í erlendum gjaldmiðli til
aðila utan landsteinanna. Þannig er
dregið mjög úr áhrifamætti gjaldeyr-
isreglna Seðlabankans.“
Ágreiningur stjórnar-
flokkanna um krónuna
Steingrímur segir að vaxtalækkun sé
forgangsmál en einnig verði að reyna
að tappa þrýstingnum af kerfinu.
Hann neitar því að krónan sé óhæf-
ur gjaldmiðill. „Krónan er ekki ónýt.
Það er bara búið að stjórna svo illa
hér að hún er grátt leikin. Við höfum
alveg forsendur til að hafa hér stöð-
ugan gjaldmiðil og skráðan á rétt-
um forsendum ef við stjórnum okkar
málum almennilega. Augljósasta
sönnun þess er náttúrlega já-
kvæður jöfnuður í viðskipt-
um Íslands við önnur
lönd. Það mun styrkja
gjaldmiðilinn hvað sem
hann heitir.“
Steingrímur tel-
ur að ef vel sé stjórn-
að verði í lagi með
krónuna. „Ef menn
stjórna illa endar
það illa. Ef menn
eyða meiru en þeir
afla árum saman
skiptir engu máli
hvort þeir eyða of
miklu í dollurum,
pundum, evrum
eða krónum. Það
kemur alltaf að
skuldadögum.“
Jóhanna Sig-
urðardóttir, forsæt-
isráðherra er ekki
sammála því að góð
efnahagsstjórn dugi.
„Ég tel krónuna allt of veika
og sé hana ekki til frambúð-
ar sem okkar gjaldmiðil. Ég
vil sem fyrst taka upp evru.
Það hefur alltaf legið ljóst
fyrir hjá mér og mínum
flokki.“
Krónan gjaldmiðillinn
næstu árin
„Krónan er og verður okkar gjald-
miðill næstu árin, algerlega óháð því
hvað menn vilja gera í framhaldinu,“
segir Seingrímur ennfremur. Þess
vegna er það mikilvægt að við töl-
um um hana þannig og við vinnum
þannig að hún gagnist okkur sem
best á meðan. Ég mun ekki sem ráð-
herra tala íslensku krónuna niður
á meðan hún er okkar gjaldmiðill
næstu árin. Ég mun vinna að því að
styrkja hana. Við vitum öll við hvaða
erfiðleika er að glíma og álagið sem
miklar skuldir valda krónunni. Við
erum föst í klemmu hárra vaxta og
ójafnvægis í hagkerfinu og úr út því
þurfum við að vinna okkur og þess
vegna er þróunin undanfarnar vikur
okkur áhyggjuefni. En það þýðir ekki
að það sé ekki hægt að koma þessu á
réttan kúrs.“
Fyrirtæki í sjálfheldu
Útflutningsgreinarnar eru í afleitri
stöðu líkt og önnur fyrirtæki. Háir
vextir til verndar krónunni eru þeim
afar mótdrægir og nú eru blikur á
lofti um að veiking krónunnar kunni
að tefja hraða lækkun stýrivaxta.
Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins, segir málin öfugsnúin. Verst
fari gengissveiflurnar, gjaldeyrishöft
og ógnarvextir með fyrirtækin. „Allt
er þetta til bölvunar fyrir iðnaðinn
og allt atvinnulíf. Þetta virðist vera í
sjálfheldu. Menn mættu skoða það
betur hvers vegna gjaldeyrir skilar
sér ekki til landsins. Við erum með
ónýtt kerfi sem er grundvallarvandi.
Stjórnvöld skulda atvinnulífinu
útskýringar á því hvað þau ætlast fyr-
ir ef ekki verður tekin ákvörðun um
aðildarumsókn að Evrópusamband-
inu og upptöku evru. Okkur hefur
ekki verið bent á aðra kosti.“
Jón Steindór segir að borin von
sé að unnt sé að halda krónunni.
Með því að reyna að skapa fjármála-
stöðugleika með krónunni sé verið
að velja framtíð. „Við getum aldrei
stjórnað vel með krónunni í frjálsum
og alþjóðlegum viðskiptum. Okkur
tókst það og með því að gæla áfram
við þann kost værum við að reyna að
leika list hins ómögulega.“
Jón Seindór segist telja sam-
þykkt Sjálfstæðisflokksins um tvö-
falda þjóðaratkvæðagreiðslu um
ESB og evru vera dæmigerða aðferð
til að tefja mál og vinna tíma. Menn
verði að hafa samningsdrög við ESB
í höndunum til þess að taka afstöðu
til. Ekki ætti að tefja lausnir á bráða-
vanda þjóðarinnar.
„Stjórnvöld
skulda atvinnulíf-
inu útskýringar á
hvað þau ætlast
fyrir.“
Jóhann hauKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Forsætisráðherra „Ég tel
krónuna allt of veika og sé hana
ekki til frambúðar sem okkar
gjaldmiðil. Ég vil sem fyrst taka
upp evru. Það hefur alltaf legið
ljóst fyrir hjá mér og mínum
flokki,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Fjármálaráðherra „krónan
er og verður okkar gjald-
miðill næstu árin, algerlega
óháð því hvað menn vilja
gera í framhaldinu,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon.
Öfugsnúið „ við erum með ónýtt
kerfi sem er grundvallarvandi,“ segir
Jón Steindór valdimarsson.
Guðlaugur til
varnar davíð
Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra,
bendir á bloggsíðu sinni á að
nettó skuldir þjóðarbúsins hafi
hækkað um 422 milljarða króna
síðan Davíð Oddsson hætti í
Seðlabankanum. Hann segir að
krónan hafi verið í frjálsu falli
síðan Davíð fór úr bankanum og
sundurliðar skuldaaukninguna.
„Það hlýtur að vera skoðunar
virði þegar fyrrverandi seðla-
bankastjóri heldur því fram að
nýr seðlabankastóri og Fjár-
málaeftirlitið hafi gert mikil
mistök í tengslum við Straum,
SPRON og Sparisjóðabankann.
Hvað sem því líður hefur krónan
verið í frjálsu falli síðan Davíð
fór úr bankanum og hér er í töflu
þróunin frá því að hann yfirgaf
bankann.“
Næstum keyrt
á einn félagann
Mikil hálka var í Kömbun-
um á Hellisheiði í gærkvöldi.
Héraðsfréttavefurinn Sunn-
lendingur.is hafði þó eftir
björgunarsveitarmanni í
Hveragerði í gær að litlu hefði
mátt muna að einn félaga
hans hefði verið ekinn niður.
Björgunarsveitarmenn
voru á Hellisheiði til að að-
stoða vegfarendur sem lent
höfðu í hremmingum. „Einn
úr björgunarsveitinni var
næstum ekinn niður og í
raun mjög heppinn að verða
ekki fyrir bílnum. Ef hann
hefði verið búinn að stíga
skrefið til fulls sem hann var
byrjaður að taka hefði bíllinn
lent á honum,“ sagði björgun-
arsveitarmaðurinn í samtali
við Sunnlending.
skoða kaup
eigna Baugs
Gaumur, félag Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og fjölskyldu,
keypti fjórar verðmætar fast-
eignir Baugs Group síðastlið-
ið haust. Skiptastjóri þrotabús
Baugs skoðar nú hvort verð-
mætum hafi verið skotið undan.
Þetta kom fram í kvöldfréttum
Sjónvarpsins í gær.
Skoðunin snýr að fjórum fast-
eignum, tveimur í London, einni
í Kaupmannahöfn og skíðasetri
í Frakklandi. Verðmæti þessara
eigna er talið hlaupa á hundruð-
um milljóna.
Jón Ásgeir Jóhannesson sagði
í samtali við RÚV að viðskiptin
hafi farið fram eftir mat þriðja
aðila og hann telji þau með öllu
eðlileg.
sluppu eftir
bílveltu
Fjórir menn sluppu án teljandi
meiðsla þegar fólksbíll þeirra
fór út af veginum við Biskups-
tungnabraut í Árborg og valt.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var bíllinn fluttur með
kranabíl af slysstað. Það sem
varð mönnunum til happs er
hversu mjúkur snjórinn var í
kringum veginn en svo virt-
ist sem bíllinn hafi sloppið að
mestu við skemmdir vegna þess.
Mjög slæmt skyggni var á slys-
staðnum í gær og bað lögregla
fólk um að fara varlega.