Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 19
föstudagur 3. apríl 2009 19Fókus
Tvær óperur í uppfærslu Tónlistar-
skólans í Reykjavík í samvinnu við
Íslensku óperuna verða frumfluttar
í Óperunni í kvöld, föstudagskvöld.
Annars vegar er um að ræða frum-
flutning á nýrri íslenskri óperu,
Gilitrutt, og hins vegar frumflutn-
ing á Íslandi á fyrstu óperu Ross-
inis, La cambiale di matrimonio.
Leikstjórnin er í höndum Þórunn-
ar Guðmundsdóttur sem jafnframt
er höfundur Gilitruttar og hljóm-
sveitarstjóri er Kjartan Óskarsson.
Hljómsveitin er skipuð tæplega tut-
tugu nemendum úr Tónlistarskól-
anum í Reykjavík.
La cambiale di matrimonio
(Hjónabandssamningurinn) var
samin af Gioachino Rossini á örfá-
um dögum árið 1810, þegar hann
var aðeins átján ára gamall. Hjóna-
bandssamningurinn er gamanóp-
era í einum þætti og gengur sögu-
þráðurinn út á græðgi herra Mills,
ensks aðalsmanns, sem stundar
viðskipti við Kanada. Hann er bú-
inn að útbúa samning um hjóna-
band dóttur sinnar og kanadísks
kaupsýslumanns sem er kominn
til Englands til að leita sér að konu.
Vandamálið er að dóttir Mills er
ástfangin af ungum og fátækari
manni.
Gilitrutt er einnig gamanópera
í einum þætti, samin á þessu ári,
gagngert til að vera félagi Hjóna-
bandssamningsins í þessari upp-
færslu. Þetta er önnur óperan sem
Þórunn Guðmundsdóttir sem-
ur fyrir Tónlistarskólann í Reykja-
vík. Hin var Mærþöll sem sett var
upp árið 2006. Gilitrutt er byggð á
hinu vel þekkta íslenska ævintýri
um húsfreyjuna lötu sem freistast
til þess að ganga til samninga við
ókunna konu.
Sýningar verða aðeins tvær, auk
sýningarinnar í kvöld verður önn-
ur annað kvöld, og hefjast báðar
klukkan 20. Almennt verð er 1.500
krónur en verð fyrir nemendur og
eldri borgara er 1.000 kr.
Ný íslensk ópera
m
æ
li
r
m
eð
...
Madworld
Eins blóðugur og þeir gerast.
skemmti-
legur
leikur með
frábærri
grafík.
rock Band 2
frábær partíleik-
ur. Það eina sem
háir er hversu
dýr pakkinn er.
arn
- TeMpel-
riddaren
Myndin
sækir á og
nær fínni
lendingu.
elegy
Hreinskilin
mynd um
mann sem er
ástfanginn
á skjön við
kynslóðabil.
killshoT
Mickey rourke
í toppformi en
myndin er hins
vegar drasl.
paul BlarT: Mall cop
skelfileg kvikmynd.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n sálin á players
Ein ástsælasta sveit íslendinga fyrr
og síðar mun koma fram á player´s
í kvöld. sálin klikkar ekki frekar en
fyrri daginn enda eru þessr drengir
búnir að vera lengi í bransanum.
stúlkurnar í Elektra munu einnig
troða upp á player´s en gera svo
þegar sálarmenn taka sér vatnspásu.
n noka on ice-hátíðin í listasafni
reykjavíkur og sódóma
Hver hefur ekki gaman af því að
hlusta á aragrúa af íslenskum
hljómsveitum. fram koma sveitir á
borð við sometime, dr. spock, Bang
gang, Mammút og Jeff Who? svo
einhverjir séu nefndir. Miðaverð er
2.500 krónur. Nánari upplýsingar er
að finna á midi.is.
n papar á 800
Hljómsveitin papar mun gera allt
tryllt á skemmtistaðnum 800 á sel-
fossi í kvöld. Þessir drengir kunna að
skemmta fólki og ættu ekki að valda
neinum vonbrigðum. Miðaverð er
2.000 kr og hefst fjörið á miðnætti.
n retro stefson dj set á karamba
strákarnir í retro stefson eru miklir
gleðigjafar og munu þeir halda
uppi stemningunni á nýja staðnum
Karamba (gamla 22) í kvöld. Ballið
byrjar á miðnætti og er frítt inn.
n danni deluxxx á prikinu
Þessi ungi drengur veit hvað hann
skratsar. plötusnúðurnn danni
deluxxx heldur uppi fjörinu á prikinu
í kvöld eins og honum einum er
lagið. Það er alltaf móða á gluggun-
um þegar danni spilar.
laugardagur
n Blúsmenn og dj addi intro á
prikinu
Blúsmennirnir mæta klukkan 17 og
spila ljúfa tóna til klukkan 21. Þá
verður húsinu lokað en opnað aftur
á miðnætti er dj addi Intro spilar
fram eftir nóttu.
n 8 Boy bit á sódóma
Breski plötusnúðurinn og pródús-
erinn gerir allt vitlaust á sódóma í
kvöld. dj M.E.g.a úr steed lord og
terrordisco koma einnig fram þetta
kvöldið. Miðaverð er 1.000 krónur í
forsölu og 1.500 við innganginn.
n egó á sjallanum
Hljómsveitin Egó mun stíga á svið
í sjallanum í kvöld með mikinn
fögnuð. Húsið opnað á miðnætti og
kostar 2.000 krónur við innganginn.
n papar á nasa
strákarnir í pöpum eru óstöðvandi
um þessar mundir. papar eru þekktir
fyrir skemmtileg böll og verður þetta
engin undantekning. Miðaverð er
1.800 krónur og opnast húsið á
miðnætti.
n nýdönsk í höllinni í Vest-
mannaeyjum
Hljómsveitin Nýdönsk heldur
heljarinnar tónleika í Höllinni í Vest-
mannaeyjum í kvöld. sveitin hefur
verið ein sú vinsælasta um margra
ára skeið og veldur ekki vonbrigðum
á tónleikum. fjörið byrjar klukkan
21.15 og kostar 2.500 krónur inn.
Hvað er að
GERAST?
pósað Hluti hópsins
fríða sem flytur óper-
urnar um helgina.
an að vinna tónlist þannig því ég er
svo vön að vera ein með sjálfri mér.
Þetta hefur verið virkilega góð til-
breyting að vinna með sveit og það
verða örugglega meiri læti á tónleik-
unum mínum að þessu sinni, sem er
gott. Mér finnst þetta vera góður tími
til þess að vera með læti,“ segir hún
full tilhlökkunar yfir væntanlegu
tónleikaferðalagi.
„Mér fannst tilvalið að fara í smá
tónleikaferðalag um Ísland. Mig hef-
ur alltaf langað til þess að ferðast um
Ísland en ég hef aldrei gert það,“ segir
söngkonan. „Það er mjög sérstakt fyr-
ir mig að spila á Íslandi. Mér þykir svo
vænt um landið og það er svo mik-
il tenging milli Færeyinga og Íslend-
inga. Við skiljum hvert annað nokk-
urn veginn,“ segir hún hlæjandi og
bætir við: „Það er æðislegt að koma
loksins og túra, þetta verður pott-
þétt mjög sérstakt.“ Túrinn um landið
stendur yfir í viku og hlakkar Eivör til
að ferðast um landið og sýna hljóm-
sveitarmeðlimum allt það sem Ís-
land hefur upp á að bjóða. „Við fáum
reyndar bara einn dag í frí. Ég þarf
að láta mér detta eitthvað sniðugt í
hug til þess að sýna þeim,“ segir Eivör
sem mun halda tónleika á fimm mis-
munandi stöðum. „Í rauninni er tón-
leikaferðalagið sjálft algjör upplifun,
kannski slöppum við bara af á með-
an,“ segir hún og hlær.
Ný plata er væntanleg frá Eivöru
á haustmánuðum og er hún komin í
fulla vinnslu. „Prógrammið á tónleik-
unum verður mjög blandað af gömlu
efni af fyrri plötum, síðan ætla ég að
kynna nýtt efni. Ég er nú þegar komin
með helling af efni og mér hefur allt-
af þótt gott að spila lögin áður en þau
eru tekin upp. Þau eignast nokkurs
konar líf þannig,“ útskýrir Eivör en er
treg til að tala mikið um nýja efnið.
„Ég er ekki byrjuð að taka neitt
upp þannig að margt getur gerst í því
ferli. Ég þori ekki að tala mikið um
hana en hún verður þottþétt öðru-
vísi,“ segir Eivör. „Mér finnst gam-
an að uppgötva hluti og prófa mig
áfram. Þannig held ég þessu lifandi,“
segir hún spennt.
Tónlistarbransinn hefur tekið
stakkaskiptum hérna á Íslandi sök-
um ólöglegs niðurhals og hafa marg-
ir tónlistarmenn hérna heima sem
og um heim allan þurft að grípa til
nýrra bragða til þess að selja plötur
sínar. Aðspurð segist Eivör sjálf ekki
finna fyrir erfiðleikum. „Tímarnir eru
að breytast í plötuheiminum og við
tónlistarmennirnir þurfum að fylgja
þeim breytingum. Við þurfum að
vinna plöturnar okkar eins og þær
séu okkar besta verk hingað til. Ég sel
ekki eins margar plötur og áður en
það er líka allt í lagi. Mér finnst frá-
bært að það sé hægt að kaupa músík
á netinu.“
Eivör hefur verið búsett í Færeyj-
um síðastliðið eitt og hálft ár og á
nýju plötunni er Eivör undir áhrifum
frá heimalandinu. Hún segir plötuna
mun hrárri en þær sem áður komu.
Eivör keypti sér hús í bænum Götu
á Austurey þar sem hún er uppalin
.„Ég keypti mér hús í Færeyjum fyrir
einu og hálfi ári, í götunni þar sem ég
ólst upp. Húsið er nálægt sjónum og
á æðislegum stað.“ Hún viðurkennir
að heimþráin hafi gripið hana. Eivör
kom til Íslands 17 ára gömul til þess
að stunda söngnám. Hún ætlaði sér
aldrei að stoppa svona lengi, en Eivör
bjó hér á landi í fjögur ár. Þá var ferð-
inni heitið til Danmerkur þar sem
hún bjó um stund.
„Ég hef verið á miklu flakki upp á
síðkastið og þess vegna fannst mér
rosa gott að koma bara heim, í friðinn
þar, “ segir Eivör. Hún bætir því við að
færeyska náttúran hafi einhver tök á
henni.
„Ég þarf algjörlega á því að halda
að vera nálægt náttúrunni. Ætli það
sé ekki ástæðan af hverju égi heill-
aðist svona af Íslandi á sínum tíma?
Íslenska náttúran og auðvitað fólkið
sem er svo svipað Færeyingum. Mér
líður alltaf svolítið eins og ég sé heima
hjá mér þegar ég er á Íslandi. Þetta er
annað heimili mitt.“
Eirvöru líður vel í Færeyjum en
segir þó ómögulegt að vita hversu
lengi hún stoppar þar. „Ég er svo mik-
il flökkukind og hef gaman af því að
ferðast á hina og þessa staði. Það eru
forréttindi að vera tónlistarmaður en
ég fæ að ferðast mjög mikið. Þó er gott
að eiga sér fastan samastað, stað sem
ég fer á þegar ég er í fríi. Ég veit alls
ekki hvar ég verð í framtíðinni en Fær-
eyjar verða alltaf athvarfið mitt.“
Eivör heldur tónleika á NASA í
kvöld. Hún mun síðan halda tvenna
tónleika á Akureyri, eina tónleika á
Skagaströnd og í Borgarfirði. Tón-
leikaferðalaginu lýkur síðan í Vest-
mannaeyjum. Ekkert kostar inn á
tónleikana í Borgarfirði og í Vest-
mannaeyjum sökum þess að heima-
bær Eivarar í Færeyjum er vinabær
Vestmannaeyja og Borgarness.
hanna@dv.is
nýtt efni Verður frumflutt
í kvöld og á tónleikaferð
Eivarar um landið.
Mynd gunni gunn