Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 20
föstudagur 3. apríl 200920 Helgarblað „Ég man mjög vel eftir 30. mars fyr- ir 60 árum. Þó ég væri ekki nema níu ára hafði ég fylgst heilmikið með að- dragandanum og vissi að þennan dag átti að greiða atkvæði á Alþingi um inngöngu Íslands í NATO. Og ég vissi líka að andstæðingar aðildar- innar vildu fá fólk til að safnast sam- an á Austurvelli til að mótmæla. Á mínu heimili hétu andstæðing- arnir allir sem einn kommúnistar, og kommúnistar voru vondir menn. Það var alveg á hreinu á Reynimel 23. Ég vissi líka að pabbi ætlaði niður á Austurvöll að berjast við kommún- istana. Hann var þá framsóknarmað- ur og trúði því í einlægni að komm- únistarnir væru að svíkja landið. En hann hafði stranglega bannað okkur krökkunum að koma nálægt Aust- urvelli þennan dag. Það gæti orðið hættulegt, kommúnistarnir myndu neyta allra bragða. Og af því í þá daga gerðu krakkar það sem foreldr- ar sögðu þeim – eða það gerðum við að minnsta kosti – þá kom ég ekki nálægt Austurvelli. Ég var í Landakotsskóla og þegar ég var búin í skólanum hefur hasar- inn á Austurvelli sjálfsagt staðið sem hæst. Þó það væru varla meira en 2- 300 metrar úr skólanum að Alþing- ishúsinu og Austurvelli, þá hvarf- laði ekki að mér að óhlýðnast og ég fór bara heim. Hins vegar man ég mjög glöggt eftir því sem við vorum að spjalla saman um á heimleiðinni, ég og ein bekkjarsystir mín. Pabbi hennar var líka framsóknarmaður og þess vegna hafði hún líka áhyggjur af kommúnistum. Og ég man hvað við töluðum um það af mikilli áfergju að bara ef við værum orðnar fullorðnar, þá gætum við líka farið niður á Aust- urvöll og barist gegn kommúnistun- um. Okkur var mikið niðri fyrir í þess- um samræðum. Svo kom pabbi að lokum heim og ég veit ekki hvað hann tók í rauninni mikinn þátt í því að berj- ast við kommúnistana. Hann var að minnsta kosti hvorki rifinn né blóð- ugur né neitt í þá áttina. En ég man hvað hann var rosalega reiður. Það ólgaði í honum. Mamma? Nei, hún fór ekkert nið- ur á Austurvöll. Hún var reyndar pólitísk og studdi Sjálfstæðisflokkinn fram í rauðan dauðann. Svo hún var líka áköf á móti kommúnistunum. En hún tók ekki beinan þátt í svona- löguðu. Hún hefur verið heima að lesa dönsku blöðin.“ Foreldrar mömmu voru Krist- jón Kristjónsson frá Laugarvatni og Elísabet Ísleifsdóttir frá Sauðárkróki. Þau gengu í hjónaband hálfþrítug og eignuðust sitt fyrsta barn, son- inn Braga, árið 1938. Tveim árum seinna fæddist mamma og árið 1945 yngri dóttirin Valgerður. Og þá þótti tímabært að fjölskyldan kæmist í al- mennilegt húsnæði. Melarnir byggjast „Við höfðum búið í leiguhúsnæði á Bjargarstíg og þar man ég fyrst eftir mér. En svo fluttum við á Reynimel 23 í janúar 1946. Pabbi vann um þess- ar mundir hjá SÍS og mamma var að minnsta kosti um tíma í hlutastarfi hjá Iðnskólanum. Melarnir voru þá að byggjast upp og húsalengjurn- ar milli Hofsvallagötu og Furumels höfðu risið einhverjum árum fyrr. Nú var verið að byggja áframhald af Víðimel og Reynimel. Við Reynimel- inn voru fjögur stór hús hvort sínum megin við götuna og þetta kölluðum við „litla Reynimel“ en eldri hlutann „gamla Reynimel“. Nokkru eftir að við fluttum á Reynimelinn var svo farið að byggja Grenimel og Haga- mel.“ Þetta svæði, „litli Reynimelur“, þetta var voðalega fínt hverfi, var það ekki? „Ja, ekki skynjaði ég það nú þannig ...“ Það hlýtur samt að vera. Þetta voru glæsileg hús með risastórum íbúðum. Og þá var enn veruleg fá- tækt í Reykjavík. „Já, vissulega voru íbúðirnar stór- ar. Okkar íbúð á Reynimel 23 var 150 fermetrar. Pabbi og Árni Benedikts- son sem lengi var forstjóri Mjólkur- samsölunnar byggðu húsið í samein- ingu. Hugmyndin var sú að pabbi og mamma ættu neðri hæðina og kjall- arann, þar sem var önnur stór íbúð, en Árni ætti efri hæðina og risið með sinni konu, Jónu Kristjönu Jóhann- esdóttur af Laxamýrarættinni. Þau Árni voru afskaplega vænt fólk, þau voru foreldrar Benedikts Árnason- ar leikstjóra. Þegar til kom var það of stór biti fyrir pabba að eiga allan kjallarann svo helmingur hans var seldur sem sérstök íbúð en við héld- um hinum helmingnum og leigðum hann út. Kenndur leigjandi á slopp Uppi í sjálfri íbúðinni okkar voru líka leigð út tvö herbergi í þó nokkur ár eftir að við fluttum inn. Það var bein- línis gert ráð fyrir því frá byrjun, enda var það alsiða í Reykjavík þá að fólk leigði út frá sér. Ég man að þegar við fluttum inn var ýmislegt enn óklárað í íbúðinni en það hafði verið lögð áhersla á að klára fyrst herbergin sem átti að leigja. Það var ekki alltaf HOLLYWOOD-STJARNAN LANA CHRISTIAN Á MELUNUM V er ö ld sem Va r „Ætli við myndum ekki teljast hafa verið svona millistéttarfólk? Og það var klár stéttaskipting, þvert ofan í það sem sagt var á tyllidögum.“ Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.