Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Qupperneq 21
föstudagur 3. apríl 2009 21Helgarblað þægilegt að vera með leigjendur inni á gafli hjá sér. Ég man eftir manni sem leigði borðstofuna og hét Guð- finnur. Hann var alltaf á kenderíi sem mamma kunni mjög illa við, því hún var stök reglumanneskja. Og svo var hann alltaf að þvælast um alla íbúð- ina á slopp. Á endanum rak mamma hann bara út. Þegar fram liðu stundir og skuld- irnar af húsbyggingunni urðu léttari og pabbi kom sér betur fyrir í lífinu, þá hættum við að leigja þessi her- bergi en þetta var svona lengi. Þau pabbi og mamma voru mjög gæt- in í peningamálum og keyptu aldrei neitt fyrr en þau höfðu örugglega efni á því. Þess vegna komu ekki gólfteppi fyrr en við vorum búin að búa á Reynimel 23 í mörg ár, og ís- skáp fengum við 1948, man ég. Svo það var ekkert bruðlað, þótt pabbi og mamma væru ágætlega stæð miðað við ýmsa aðra. Ætli við myndum ekki teljast hafa verið svona millistéttarfólk? Og það var klár stéttaskipting, þvert ofan í það sem sagt var á tyllidögum. Ég varð greinilegast vör við það þeg- ar ég byrjaði í Landakotsskólanum 1947 og fór að kynnast stelpum sem voru úr verkamannabústöðunum við Hringbraut, Hofsvallagötu og Ás- vallagötu. Þá sá maður fátækt. Fólk- ið sem þarna átti heima bjó kannski ekki beinlínis við neyð, þegar þarna var komið sögu, en fátæktin var aug- ljós. Ég man eftir að hafa komið heim til einnar bekkjarsystur minnar þar sem sex manna fjölskylda bjó í lítilli tveggja herbergja íbúð. En ég man líka að fólkinu fannst í rauninni bara fínt að hafa komist þarna að. Verka- mannabústaðirnir voru auðvitað mikil bylting á sínum tíma. Ríku krakkarnir litu stórt á sig Á sama hátt og ég uppgötvaði fátækt- ina í samfélaginu þegar ég byrjaði í skóla, komst ég að því að það var til ríkt fólk. Við á Reynimel 23 vorum auðvitað ágætlega sett en ekki rík. En í Landakotsskóla voru nokkrir sem áttu ríka foreldra. Og það fór ekkert á milli mála. Stéttaskiptingin byrjaði í barnaskóla. Tvær eða þrjár stelpur í mínum bekk voru ríkar. Þær bjuggu við Sólvallagötu og Ásvallagötu og feður þeirra áttu fyrirtæki. Og þær klæddu sig öðruvísi en við hinar, for- eldrar þeirra voru stundum í útlönd- um sem þá var fáheyrt og það voru bílar á heimilunum.“ Voru bílar virkilega ekki orðnir al- gengir á borgaraheimilum á árunum fyrir 1950? „Nei, alls ekki. Pabbi eignaðist lítinn Vauxhall sem hafði númerið R-4265 árið 1948. Þá var hann fer- tugur og í ágætri stöðu hjá SÍS en þó var þetta hans fyrsti bíll. Það áttu fáir feður vina minna bíla. Og ég man að þó pabbi hefði eignast bílinn, þá var hann ekki notaður í hvað sem var. Það hefði til dæmis þótt fáránlegt að nota bílinn í að skutla okkur krökk- unum hingað og þangað eins og nú þykir sjálfsagt. Ég var farin að fara ein í strætó upp í Sundhöllina þeg- ar ég var sex, sjö ára. Það þótti alveg sjálfsagt. Við ferðuðumst svo mikið í strætó, krakkarnir við Reynimel, að einn vinsælasti leikurinn okkar var strætóleikur þar sem við röðuðum stólum upp og lékum bílstjóra og far- þega. Og kunnum allar stoppistöðv- arnar utanbókar. Eða að okkur Braga væri skutlað niður í bæ á dansæfingu á bílnum – ekki að ræða það! Við fór- um bara í strætó eða löbbuðum. En það gegndi svolítið öðru máli með ríku krakkana. Þeir fengu allt mögulegt sem okkur hinum stóð ekki til boða. Og því miður verð ég að viðurkenna að það var alls konar snobb í gangi gagnvart þessum ríku krökkum. Flestir þeirra létu okkur líka rækilega vita að þeir væru rík- ari en við. Þeir gátu til dæmis terr- oríserað okkur óspart með því að bjóða okkur ekki í afmælið sitt. Það var álitshnekkir. Ég var sjaldan boðin í afmæli til ríku stelpnanna í mínum bekk og játa alveg að mér þótti það slæmt. „Leið nánast yfir okkur ...“ Svo gleymi ég því aldrei þegar ég var í níu ára bekk og við vorum lát- in útfylla könnun þar sem var spurt hvað við fengjum mikla vasapen- inga á viku. Þetta var mjög óþægileg spurning því ég hafði aldrei orðið vör við að ég fengi vasapeninga. Ef mig vantaði peninga í bíó var kannski hægt að sarga það út úr þeim hjón- um en um reglulega vasapeninga var ekki að ræða. Eftir heilabrot reiknaði ég út að með mikilli bjartsýni mætti kannski segja að ég fengi um það bil tvær krónur á viku, svo ég skrifaði tvær krónur. En það vakti hálfgert uppistand í bekknum þegar upp- götvaðist að einn ríku strákanna í bekknum skrifaði að hann fengi 20 krónur á viku. Það nánast leið yfir okkur, það var svo óskaplega margt hægt að gera fyrir 20 krónur. Og þú getur ímyndað þér hvernig krökkun- um í verkamannabústöðunum hef- ur orðið við fyrst okkur millistéttar- krökkunum á Reynimel fannst þetta svona mikið.“ Þarna á árunum fyrir 1950, þá var í rauninni kreppa, er það ekki? Íslendingar höfðu strax sólund- að stríðsgróðanum í vitleysu og nú var stíf skömmtun og haftastefnan í algleymingi. Hvernig snerti það ykk- ur? „Já, ég man eftir skömmtunar- seðlunum. Það þurfti skömmtunar- seðla til að kaupa flestöll matvæli á tímabili og líka flestan fatnað. En þar sem ég mundi varla eftir neinu öðru, þá upplifði ég þetta ekki sem eitt- hvert áfall. Þetta var bara svona. Og vöruskorturinn – ja, maður vandist því að kaupa ekki meira en maður nauðsynlega þurfti. Maður fór ekki út í búð og fyllti körfu af einhverjum mat sem maður ætlaði kannski ein- hvern tíma að éta, heldur keypti það sem stóð á miðanum. Fiskur í matinn, aftur og aftur Krakkar í þá daga fylgdust reyndar miklu meira með matarinnkaupum en seinna þótti eðlilegt. Við vorum svo mikið send út í búð. Þegar við fluttum á Reynimel var fátt versl- ana á Melunum. Það var mjólkur- búð á gamla Víðimel og fiskbúð rétt hjá en aðrar verslanir voru ekki fyrr en á Sólvallagötu og Ásvallagötu. Svo við krakkarnir vöndumst á það frá sex, sjö ára aldri að skrönglast yfir Hringbrautina að kaupa í matinn. Auðvitað var Hringbrautin þá ekki sú svakalega umferðargata sem hún var núna, en þó var þarna mikil um- ferð, fannst manni, og þetta var ei- líft hættuspil. En sem betur fer þurfti ekki oft að fara í þessar búðir, því yf- irleitt var soðinn fiskur í matinn. Um helgar var kjöt og kannski einu sinni í viku voru kjötbollur eða bjúgu eða eitthvert snarl, en annars var allt- af fiskur. Mataræðið var fábreytt og það þótti meira að segja tilbreyting í því ef fiskurinn var steiktur, því yfir- leitt var hann soðinn og ekkert múð- ur með það. Nei, það var ekki mikið borið í mat. En ég man ekki til að við höfum kvartað. Þetta var svona á öll- um heimilum þar sem ég þekkti til. Fólkið sem bjó á litla Reynimel var allt á svipuðu efnalegu stigi. Pabbi og mamma voru svona í eldri kantinum, flestir voru líklega um þrítugt. Þetta var fólk sem var á leiðinni til nokkurra efna en ekki komið þangað. Þarna bjuggu iðnaðarmenn, lögmaður bjó í húsinu á móti okkur, og svo framveg- is. Fólk hafði efni á að eignast þessar stóru íbúðir með því að fara að öllu með gát og leigja heilmikið út frá sér í kannski mörg ár eftir að það flutti inn. Enginn bjó í heilu húsi nema í „Fína húsinu“. Það var Reynimelur 27 sem kallaðist „Fína húsið“ út af tilkomu- miklu glerverki framan á því. Og þar bjó líka svo fínt fólk. Ég man satt að segja ekki lengur af hverju heimilis- faðirinn þótti svona fínn en hann átti líka mjög fína frú og þau áttu mjög fína dóttur. En annars bjó við götuna fólk sem var svona að koma undir sig fótunum. Troðið upp í bílskúr á sunnudögum Og í þessum tiltölulega fáu húsum var alveg ógrynni af börnum. Við krakkarnir þurftum heldur varla að fara út fyrir litla Reynimel. Við þekkt- um ekki einu sinni krakkana á gamla Reynimel, nema kannski þá sem voru með okkur í skóla. Það var ekki af því við teldum okkur eitthvað fínni en þau, þó líklega hafi foreldrar okk- ar verið svona ívið betur stæðir en fólkið á gamla Reynimel. Það var svo mikið félagslíf þarna á litla Reynimel að við þurftum ekkert að sækja ann- að. Þegar Grenimelur fór að byggjast kynntumst við svolítið krökkunum þar en annars vorum við að mestu í okkar eigin heimi.“ Og hvað fengust þið við? „Bara allt mögulegt, þetta var náttúrlega í þá daga þegar börn voru enn úti að leika sér. Ég tók að vissu leyti dálitla forystu í því.“ Hvernig? „Ja, nú hef ég ekkert sérstaklega gaman af börnum,“ segir mamma og glottir svo varla verður eftir tekið. „En einhverra hluta vegna fannst mér samt að ég þyrfti að gera eitthvað fyr- ir öll þessi börn þarna á litla Reynimel. Einkum þau sem voru yngri en ég. Svo ég fékk lánaðan bílskúrinn hans pabba og hafði þar lengi sýningar á sunnu- dögum. Þetta voru litlar leiksýningar, grín og gaman og ýmis skemmtiatriði. Stundum fékk Bragi bróðir minn að vera með. Ég undirbjó þetta af kost- gæfni og lagði í þetta mikinn metnað. Meðal annars bjó ég til aðgöngumiða og dreifði í öll húsin við litla Reynim- el. Þeir kostuðu ekkert, því ég leit svo á að ég væri að hafa ofan af fyrir börnun- um, en um þetta leyti var ég sjálf svona tíu ára í mesta lagi. HOLLYWOOD-STJARNAN LANA CHRISTIAN Á MELUNUM Illugi Jökulsson uppgötvaði allt í einu að hann vissi furðu lítið um uppvöxt móður sinnar, Jóhönnu Kristjónsdóttur. Svo hann skundaði á hennar fund og hún sagði honum frá eftirstríðsár- unum í Melahverfinu í Reykjavík þar sem sumir voru fátækir og aðrir ríkir en flestir einhvers staðar þar á milli. Hér segir frá rifrildi samhentra hjóna um pólitík, slagsmálum á Austurvelli 30. mars 1949 og samhentum krakkahóp við Reynimel. Fjölskyldan úti í garðinum á Reynimel Myndin var tekin 1953. Framhald á næstu síðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.