Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Page 5
Þriðjudagur 30. júní 2009 3Fréttir Yfirlögfræðingur Kaupþings, Helgi Sigurðsson, gaf stjórn bankans sam- þykki fyrir lögmæti þess að fella nið- ur persónulegar ábyrgðir fyrir lánun- um sem nokkrir af lykilstjórnendum bankans höfðu fengið til að kaupa hlutabréf í bankanum. Helgi var sjálfur einn af þeim lykilstarfsmönn- um Kaupþings sem hafði fengið lán hjá bankanum til að kaupa hluta- bréf í honum. En samkvæmt lána- bók Kaupþings frá sumrinu 2006 námu lánveitingar bankans til Helga 449,5 milljónum króna á þeim tíma þó reikna megi með að Helgi hafi fengið fleiri lán næstu tvö árin þar á eftir. Ákvörðun stjórnarinnar, sem gerð var með samþykki Helga um að niðurfellingin væri lögmæt, hafði því þau áhrif að Helgi losnaði úr allri persónulegri ábyrgð fyrir láninu. Stjórn Kaupþings tók ákvörðun- ina þann 25. september 2008, sama dag og Glitnir hafði óskað eftir fjár- hagsaðstoð frá Seðlabanka Íslands vegna lausafjárvanda síns. Þann 9. október yfirtók Fjármálaeftirlitið svo Kaupþing og eign hluthafanna í bankanum varð að engu. Gaf stjórninni grænt ljós Helgi Sigurðsson, sem enn er yfirlög- fræðingur Kaupþings, segist hafa gef- ið stjórn bankans grænt ljós á að hún hefði heimild til þess, samkvæmt lögum, að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna út af lánveit- ingunum. Helgi segir að til hans hafi verið leitað með spurninguna: „Get- um við tekið þessa ákvörðun?“ „Stjórnin vildi fullvissa sig um að hún væri að taka ákvörðun sem væri í samræmi við lög... Ég taldi að stjórnin hefði lagalegar heimildir til að taka þessa ákvörðun. Mér fannst það blasa við að stjórnin hefði þess- ar heimildir og mér fannst það ekki erfið lögfræðileg spurning,“ segir Helgi. Ákvörðunin stjórnarinnar, ekki hans Aðspurður hvort honum þyki það eðlilegt að hann hafi veitt stjórn bankans álit á máli sem varðar nið- urfellingu ábyrgðar á hans eigin láni segir Helgi að þó að hann beri vissu- lega ábyrgð á öllu því sem komi frá lögfræðisviði bankans hafi aðrir lög- fræðingar bankans unnið álitið um málið því hann sé ekki helsti sér- fræðingur bankans í félagarétti. Helgi segist þó vitanlega ekki hafa komið að því að taka ákvörð- unina um að fella niður ábyrgðirn- ar, það hafi verið stjórn bankans sem gerði það, en að leitað hafi verið til hans til að gefa álit á málinu. Lög- fræðingarnir Viðar Már Matthíasson og Hörður Felix Harðarson komust svo að þeirri niðurstöðu í lögfræði- álitum síðla árs í fyrra, eftir að niður- felling ábyrgðanna komst í hámæli í fjölmiðlum, að stjórnin hefði ekki gerst sek um lögbrot þegar ákvörð- unin var tekin. Viðar og Hörður virð- ast því komast að sömu niðurstöðu og Helgi sem vísar aðspurður til álits Viðars Más þegar hann er inntur eftir rökstuðningi fyrir þeirri niðurstöðu að niðurfellingin standist lög. Framtíðin mun leiða í ljós hvort sérstakur saksóknari, Ólafur Hauks- son, verður á sömu skoðun og Helgi. Ræðir ekki fjármál sín Helgi vill aðspurður hvorki stað- festa né neita að hann hafi fengið tæplega 450 milljóna króna lán frá Kaupþingi: „Ég hef einhvern tímann orðað það þannig að ég hef ekki haft sérstakan áhuga á því að tjá mig um mín fjármál, eða viðskiptavina bank- ans, í fjölmiðlum. Ég tjái mig ekkert um þetta,“ segir Helgi. Í lánabók Kaupþings kemur lán- veitingin til Helga þó skýrt fram og á vef Kauphallarinnar er að finna flagganir þar sem tilkynnt er um að Helgi hafi nýtt sér kauprétti í bank- anum á síðustu árum og því verið hluthafi í bankanum. Í DV á morgun verður greint frá lánveitingum Kaupþings til Sigurð- ar Einarssonar, fyrrverandi stjórnar- formanns Kaupþings, Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra bankans, og til ríkasta manns Eþí- ópíu. Samkvæmt lánabók Kaupþings skuldaði Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Kaupþings, bankanum tæpar 450 milljónir króna sumarið 2006 vegna lána sem hann hafði fengið til hluta- bréfakaupa í bankanum. Helgi vill ekki tjá sig um lánin; telur þau einkamál. úrskurðaði um eigið lán „Ég hef einhvern tím- ann orðað það þannig að ég hef ekki haft sér- stakan áhuga á því að tjá mig um mín fjár- mál, eða viðskiptavina bankans, í fjölmiðlum.“ InGI F. VIlHjÁlmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Kæra vegna meintra brota á banka- leynd á hendur fjórum blaða- mönnum, sem birtu upplýsingar upp úr lánabókum fjármálafyrir- tækja opinberlega, er nú til með- ferðar hjá Fjármálaeftirlitinu. Með því að birta upplýsingar úr lána- bók Kaupþings frá árinu 2006 er DV að opna fyrir þann möguleika að blaðið verði einnig kært til Fjár- málaeftirlitsins fyrir meint brot á bankaleynd. Það er hins vegar mat ritstjórn- ar DV að upplýsingar um lánveit- ingar Kaupþings til starfsmanna sinna eigi brýnt erindi við al- menning í opnu lýðræðisþjóðfé- lagi. Ritstjórn blaðsins telur að upplýsingar um þessar lánveit- ingar geti hjálpað til við að útskýra orsakir íslenska efnahagshrunsins fyrir almenningi. Það er því skoð- un ritstjórnar DV, að höfðu sam- ráði við lögmenn, að birting þess- ara upplýsinga sé réttlætanleg því almannahagsmunir séu hér ofar einkahagsmunum og banka- leynd. Litið er til þess að Kaup- þing var almenningshlutafélag á markaði þegar lánin voru veitt til starfsmannanna og persónulegar ábyrgðir þeirra felldar niður. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, segir að kærur sem lagðar voru fram gegn blaða- mönnunum Agli Helgasyni, Kristni Hrafnssyni, Agnesi Bragadóttur og Þorbirni Þórðarsyni fyrir meint brot á bankaleynd séu enn til skoðun- ar hjá embættinu. Blaðamennirnir voru kærðir fyrir að birta fréttir sem byggðar voru á upplýsingum upp úr lánabókum fjármálafyrirtækja sem háðar eru bankaleynd en sam- kvæmt núgildandi íslenskum lögum telst það vera lögbrot að birta slíkar upplýsingar. „Það er enn í skoðun og ekki komin niðurstaða í málið. Endanleg niðurstaða ætti að koma í málið á næstu viku,“ segir Gunnar. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, fordæmir lán- veitingar fjármálafyrirtækja til starfsmanna sinna. „Lánveiting- ar bankanna til starfsmanna fyr- ir hlutabréfakaupum í sjálfum sér er fölsun á eigin fé bankans. Þarna er verið að gefa misvísandi upplýsingar um stöðu bankans. Eigið fé bankans er ætlað að sýna stöðu bankans en hún er ekki rétt ef þetta er gert í stórum stíl,“ segir Vilhjálmur en lán til starfsmanna Kaupþings námu 47 milljörðum af eigin fé bankans þegar hann var yfirtekinn af Fjármálaeftirlitinu í október eða um 9 prósent af eig- in fé bankans. Í samanburði má geta þess að eigið fé Nýja-Kaup- þings er 75 milljarðar samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá því í haust. Lánveitingar til starfs- manna gamla Kaupþings námu því í heildina tæpum 2/3 hlutum af eigin fé bankans eftir ríkisvæð- inguna. Eitt af því sem gerist við slíkar lánveitingar er að eigið fé bank- ans eykst sem nemur upphæð lán- anna án þess að nokkrir peningar komi inn í bankann. Bankinn lít- ur því út fyrir að eiga peninga sem hann á ekki í raun: eigið féð er bara til á pappírunum. almannahagsmunir niðurstöðu að vænta innan viku „Fölsun á eigin Fé bankans“ starfs- og endurhæfingar á vegum Öryrkjabandalags íslands. n mInnI nIÐURSKURÐUR Hægt væri að sleppa um þriðjungi af fyrirhuguðum niðurskurði á Landspít- ala - háskólasjúkrahúsi á þessu ári en framlög til spítalans verða skorin niður um 2,6 milljarða í heildina. n UnICEF Í 18 ÁR Hægt væri að reka uniCEF á íslandi í 18 ár. n SKÓlI FYRIR 80.000 Hægt væri að byggja skóla fyrir 80.000 börn í Síerra Leóne en uniCEF á íslandi hefur unnið að slíkum uppbyggingarverkefnum í landinu. n BjARGA mAnnSlÍFUm Í ÞRIÐjA HEImInUm Hægt væri að kaupa tæplega 1,4 milljónir af malaríunetum handa fátæku fólki í þriðja heiminum. Eitt malaríunet kostar rúmar 600 hundruð krónur og getur skilið á milli feigs og ófeigs á mörgum svæðum í heiminum. úr lánabók kaupþings

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.