Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Síða 17
Þriðjudagur 30. júní 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Bragi Páll
Sigurðarson.“
Hvað drífur þig áfram? „Áhugi á
heiminum.“
Hvar ólstu upp? „í Stykkishólmi og
síðar Mosfellsbæ.“
Við hvað starfar þú? „Ég vinn við
aðstoð við hjúkrun á sambýli við
reykjalund.“
Hverjar eru reglur ræðukeppninn-
ar? „Þessi keppni verður að mestu
leyti eins og venjulegar Morfís-
keppnir nema hvað að ræðutímar
verða mínútu styttri. Þarna mætast
tvö þriggja til fjögurra manna lið. Það
eru þrír ræðumenn í hvoru liði. Þeir
skiptast síðan á að tala. Hver maður
flytur eina ræðu í fyrri hálfleik og
eina í seinni hálfleik. dómarar verða
síðan með dómblöð og gefa stig fyrir
framsögu, málflutning, orðaval og
hina ýmsu hluti sem þykja mikilvægir
í ræðuheiminum.“
Hvernig hefur verið tekið í
hugmyndina? „Það hafa of margir
skráð sig. Ég lagði upp með að hafa
16 lið eins og í Morfís en nú er útlit
fyrir að þetta verði 18 lið.“
Hafa einhverjir frægir boðað
þátttöku? „akkúrat á þessu stigi
málsins er ég í viðræðum við mikið af
þessu fólki en ég get sagt að það eru
Morfís-sigurlið síðustu ára, frá 2002-3
til okkar tíma, sem munu keppa
ásamt öðrum.“
Hvar fer keppnin fram? „Hún fer
örugglega fram í austurbæjarbíói
og lokakeppni mun síðan fara fram á
ingólfstorgi á Menningarnótt.“
Hvers vegna þessi ást á ræðu-
keppnum? „Ætli það sé ekki bara
að þær hafa gefið mér svo mikið og
mig langar að deila þeirri gleði með
öðrum.“
Hefurðu íhugað dómaraval og
hvernig muntu standa að því
í þessum keppnum? „Það voru
margir sem báðust undan því að
keppa og langaði að vera dómarar.
Það er yfirleitt aldrei vandamál.“
Hvenær er fyrsta keppnin? „Mið-
vikudaginn 8. júlí og verður síðan
nokkurn veginn alltaf á þriðjudögum
og fimmtudögum þar á eftir.“
Bragi Páll SigurðarSon,
fyrrverandi Morfís-keppandi, vinnur
nú hörðum höndum að ræðukeppn-
um fyrir almenning sem haldnar
verða tvisvar í viku fram að
Menningarnótt í ágúst. Skærustu
stjörnur Morfís-heimsins hafa boðað
komu sína og hefur skráning farið
fram úr björtustu vonum skipuleggj-
andans.
Deilir gleðinni
með öðrum
maður dagsins
Sumarið er komið yfir sæinn og
vermir nú reit. Þetta land jökla og íss
hefur æ haft yfir sér ævintýraljóma
og tilkomumikil sjón langþreyttum
sægörpum þás og nús. Margar sagn-
ir segja frá gripdeildum forfeðranna í
útlöndum. Var þeim einatt vel fagn-
að með feng sinn þó fengurinn sjálf-
ur hafi líkast hnugginn stigið á land.
Ekki voru til nein alþjóðasamfélög í
þá daga hvað þá hryðjuverkalög en
hámarksrefsing á alþingi íslendinga
skóggangssök sem þýddi að viðkom-
andi væri réttdræpur færi hann ekki
úr landi. Ofurmennið á Hlíðarenda
hætti við á síðustu stundu og galt með
lífi sínu. Flestir völdu því þann kost
að yfirgefa sæluna.
Útrásarvíkingar dagsins í dag hafa
sömuleiðis kosið þann kost að yfir-
gefa sæluna. Gripdeildir þeirra í út-
löndum teljast þær mestu í sögunni
og hagfræðingar heimsins klóra sér
í hausnum yfir því hvernig þetta gat
gerst. Enginn virðist hafa hugmynd
um ránsfenginn, hvar hann sé nið-
urkominn, sjálfskipuð útlegð ræn-
ingjanna á paradísarströndum eina
vísbendingin. Þrátt fyrir slagsíðu
þriggja þjóðarskúta virðist friðhelgi
útrásarvíkinganna endalaus og hlæj-
andi eða grátandi smella þeir sam-
an glösum. Eðlilega vilja fórnarlömb
ræningjanna endurheimta fé sitt og
leita því á venslafólk. Slóðin er því
rakin hingað í ævintýraljómann, þar
sem jökullinn rís. Að vísu lækkaði
hann um átta metra í stjórnartíð Hall-
dórs Ásgrímssonar en það er önnur
saga.
Og nú stendur til að hreppa sögu-
þjóðina í ánauð, breyta hinu hag-
fræðilega undri í gamaldags þræla-
kistu. Ránum og gripdeildum hinna
fornu víkinga skal nú grimmilega
hefnt, tyrkjaránið dugði ekki til.
Þjóðverjar lentu illilega undir
hæl alþjóðasamfélagsins að undan-
genginni heimsstyrjöld. Afleiðingin
sú að hún hlaut nafnið hin fyrri. Að
smáþjóð eins og Íslendingar muni
breyta nafni þeirrar heimsstyrjaldar
í hin fyrsta er harla ólíklegt en miðað
við hlutfallslegar álögur gæti það þó
gerst. Einhverntíma voru brennu-
vargar hundeltir um alla jörð og
taldi einn peninga og hélt því reynd-
ar áfram þó af færi höfuðið. Skyldu
þau örlög bíða einhvers útrásarvík-
ingsins?
Tyrkjaránið dugði ekki til
kjallari
myndin
1 Prince hélt að pabbi sinn
væri að fíflast
Tólf ára sonur Michaels jackson hélt að
faðir hans væri að fíflast þegar hann féll í
stofugólfið á fimmtudaginn.
2 Hannes á þrjú hús í Boston
Séð og heyrt sagði Hannes Smárason eiga
þrjár eignir í úthverfum Boston.
3 Jackson var 50 kíló þegar hann
lést
Samkvæmt krufningarskýrslu var Michael
jackson mjög illa haldinn líkamlega og var
í raun gangandi beinagrind.
4 Faðir Hannesar: á ekki hús
í Boston
Smári Sigurðsson, faðir Hannesar
Smárasonar, segir að frétt Séð og heyrt um
að sonur hans eigi þrjú hús í Boston sé
hreinn uppspuni.
5 lampard skoðar dömurnar
Chelsea-leikmaðurinn Frank Lampard
nýtur nú lífsins í Las Vegas og er óhætt að
segja að kappinn hafi skemmt sér vel við
sundlaugarbakkann.
6 lék sér í sjónum
unga leikkonan Hilary duff sleikti sólina
og lék sér í sjónum á Hawaii er ljósmyndari
náði bikiní-myndum af henni.
7 Vilja að neverland verði
eins og graceland
Svo gæti farið að neverland-búgarðurinn,
sem Michael jackson keypti árið 1988,
verði gerður að minningarstað fyrir
poppkónginn Michael jackson, sem lést í
síðustu viku.
mest lesið á dV.is
Á Alþingi Að sAmþykkjA ríkisÁbyrgð Á icesAve?
„alls ekki. Það eru aðrir sem bera
ábyrgð á þessum skuldum en við
almenningur.“
Helga auStmann
JóHannSdóttir
57 Ára augLýSingaSTjóri
„Ég veit ekkert um þetta.“
Steinn Hermann SigurðarSon
15 Ára STarFSMaður reykjaVík
exCurSionS
„nei. Ég stofnaði sjálfur aldrei til
þessara skulda og hef engan áhuga á
að borga þær.“
ÍSak kJartan PéturSSon
53 Ára VerSLunarMaður
„nei. Það er rosalega ósanngjarnt að
við þurfum að borga fyrir þetta.“
tyler Þór Walle PorcH
17 Ára STarFSMaður HagkauPa
dómstóll götunnar
„Ég held ekki, nei.“
Snorri JóHannSSon
28 Ára SjúkraÞjÁLFari
Hvítir hrafnar eru sjaldséðir þannig að þessi bandaríski ferðamaður lét sér þessa kríu duga í leit sinni að áhugaverðu myndefni
frá íslandi. Fundum þeirra bar saman í kvöldblíðunni við reykjavíkurhöfn í gær en skemmst er frá því að segja að fuglinum varð
nóg um athyglina og flaug á braut. mynd róBert
lÝður árnaSon
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
„Eðlilega vilja
fórnarlömb ræningj-
anna endurheimta
fé sitt og leita því á
venslafólk.“