Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Síða 3
fréttir 14. júlí 2009 þriðjudagur 3
OFSÓTTIR AUÐMENN
var skvett, í skjóli nætur, á hús Hann-
esar Smárasonar við Fjölnisveg. Þeg-
ar upp komst um skemmdarverkin
voru tveir málarar umsvifalaust kall-
aðir út og máluðu þeir yfir sletturn-
ar.
Í júní braut hópur hústökufólks
sér leið inn í húsið við Fríkirkjuveg
11 og hélt þar til innandyra nokkra
stund. Alveg síðan Björgólfur Thor
keypti húsið af Reykjavíkurborg hef-
ur það staðið tómt. Til stóð að opna
safn í húsinu en ekkert er nú vit-
að um þau áform. Engar skemmdir
voru unnar á húsinu í þetta sinn, en
aðfaranótt 20. júní var rauðri máln-
ingu skvett á vegg hússins.
Rauð málning virðist vera
helsta tæki þeirra sem vilja vinna
skemmdarverk á eigum fyrir-
menna íslensku útrásarinn-
ar. 2. júlí var í annað sinn lát-
ið til skarar skríða við heimili
Hannesar Smárasonar. Þá var
rauðri málningu einnig skvett á
hús Björgólfs Guðmundssonar
og Birnu Einarsdóttur. Birna hef-
ur verið mjög umdeild í starfi eftir
að upp komst að hún þyrfti ekki að
greiða kúlulán sem hún tók til hluta-
bréfakaupa í bankanum, vegna mis-
taka við skráningu.
Öll málin óupplýst
Kristján Ólafur
Guðnason, hjá lög-
reglunni á höfuð-
borgarsvæðinu,
segir að öll málin
séu enn í rann-
sókn og óupp-
lýst. Hann segir
að enginn hafi
verið handtek-
inn vegna mál-
anna, né heldur
hafi nokkur verið
yfirheyrður. Lög-
reglan vill ekki
gefa upp hvort
hún hafi sama
aðilan grunað-
an um að standa
að skemmd-
arverkunum.
Ásgeir Frið-
geirsson, tals-
maður Björg-
ólfsfeðga,
segir að feðg-
arnir hafi
ekki kært
skemmdar-
verkin sem unnin hafa verið á hús-
um þeirra til lögreglu.
Hróp og köll
Það eru ekki aðeins hús auðmanna
sem hafa orðið fyrir skemmdarverk-
um. Fréttir hafa verið sagðar af því að
auðmennirnir sjálfir hafi orðið fyrir
ýmiss konar áreiti á götum úti. Þannig
var veist með hrópum og köllum að
manni, sem heimildir herma að hafi
verið Bjarni Ármannsson fyrrverandi
forstjóri Glitnis, á N1-mótinu á Akur-
eyri á dögunum. Pálmi Haraldsson
í Fons verst nú ásökunum á hendur
sér um að hafa fram-
ið kynferðisbrot.
Dreifimiðum
var dreift í
stórum stíl
í miðbæn-
um fyrr
í mán-
uðinum,
þar sem
ásakanirn-
ar um kyn-
ferðisbrot
voru bornar á
hann. Pálmi
hefur fal-
ið lögmönnum sínum að gæta rétt-
ar síns og vinna í því að fá upptökur
úr eftirlitsmyndavélum lögreglunn-
ar svo kæra megi þá sem stóðu að
því að dreifa miðunum. Þá munu
ákveðnir auðmenn hafa margoft lent
í því að púað er á þá þegar þeir hafa
sést meðal fólks. Mikla athygli vakti
svo síðasta vetur þegar ákafur mót-
mælandi kastaði snjóbolta í höfuð-
ið á Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, þegar
hann var á leið út af fundi.
Fjölnisvegur Hannesar Heim-
ili Hannesar hefur í tvígang verið
útatað með rauðri málningu.
Umdeildir feðgar Björgólfur Thor
Björgólfsson og faðir hans Björgólfur
Guðmundsson hafa orðið fyrir
barðinu á skemmdarverkamönnum.
Hústaka Fríkirkjuvegur 11 var
tekinn yfir af hústökufólki í júní.
Vesturbrún Heimili Björgólfs
Guðmundssonar hefur í tvígang
verið útatað með málningu.
Birna Einarsdóttir
Rauðri málningu var
slett á heimili hennar.