Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Síða 6
6 þriðjudagur 14. júlí 2009 fréttir 23 ára karlmaður dæmdur fyrir kynferðisbrot: Lét 14 ára stúlku fróa sér Tuttugu og þrigga ára karlmaður var dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Brotin áttu sér stað fyrr á þessu ári eftir að hann kynntist stúlkunni á samskiptaforriti á inter- netinu. Í kjölfarið hittust þau og fóru í bíltúr sem endaði á afviknum stað og hófust þar gagnkvæm atlot milli mannsins og stúlkunnar. Hann káf- aði á rassi stúlkunnar og innanklæða á brjóstum hennar. Að lokum fróaði stúlkan manninum. Maðurinn ját- aði brot sín skýlaust fyrir dómi og var framburður hans í samræmi við fram- burð hans hjá lögreglu. Þegar brot- in áttu sér stað var stúlkan 14 ára og þriggja mánaða og hann tuttugu og þriggja ára. Í dómnum segir að báð- um aðilum hafi verið ljóst um aldur hvor annars. Þá segir í dómnum að maður- inn hafi gerst sekur um kynferðisbrot gagnvart unglingsstúlku, sem var rétt liðlega 14 ára þegar atvikin gerðust. Með háttseminni hafi maðurinn brot- ið gegn lagaákvæði um kynferðisleg- an lágmarksaldur sem er miðaður við 15 ár. Refsilágmark vegna brota gegn þessari málsgrein mun vera eins árs fangelsi. Brot mannsins eru talin al- varleg og beindust gegn mikilvægum hagsmunum, eins og segir í dómnum. „Það breytir og engu þótt stúlkan hafi verið fús til að hafa við hann kynferð- islegt samneyti,“ segir í dómnum. bodi@dv.is Eitt ár skilorðs- bundið Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlkunni 200 þúsund krónur í miskabætur. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Svindlað með litaða olíu Morgunblaðið greindi frá því í gær að áætlað er að ríkissjóð- ur verði af 200 til 250 milljón- um króna árlega vegna litaðr- ar olíu. Olían er aðeins ætluð á vinnutæki en þrátt fyrir það er aðgangur að henni óheftur og er hún seld í sjálfsafgreiðslu. Þessu vill embætti ríkisskattstjóra breyta og hefur sent tillögur þess efnis til fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt tillögum ríkisskatt- stjóra verður aðeins heimilt að afgreiða litaða olíu á sjálfsaf- greiðslustöðvum þegar greitt er með sérstöku viðskiptakorti. Þeir sem hafi slíkt kort undir höndum séu þeir einu sem hafi heimild til að nota olíuna. Leitað að mönnum á Þingvallavatni Þyrla Landhelgisgæslunn- ar og björgunarsveitir voru kallaðar út á laugardag vegna tveggja manna sem höfðu í hádeginu farið á bát út á Þingvallavatn frá landi Mið- fells. Mennirnir ætluðu að vera stutta stund en rétt fyrir klukkan sex hafði ekkert til þeirra spurst. Stuttu eftir að hjálparbeiðnin barst komu mennirnir fram og amaði ekkert að þeim. Þeim hafði láðst að láta vita af sér. Barn féll af svefnlofti Barn á öðru ári féll af svefn- lofti niður á gólf í sumarbústað í landi Úthlíðar í gærmorgun. Barnið var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítala til skoð- unar en það fékk höfuðhögg. Meiðsli barnsins eru þó ekki tal- in alvarleg. www.nora.is Dalvegi 16a Kóp. opið: má-fö. 11-18, laugard. 11-16 Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is Fyrir bústaðinn og heimilið „Ég held að við berum öll ábyrgð á því. Það er ekki hægt að undanskilja neinn í því efni,“ sagði Davíð Odds- son, fyrrverandi seðlabankastjóri, aðspurður um hvort honum fyndist hann bera einhverja ábyrgð á efna- hagshruninu. Davíð var gestur í þætt- inum Málefnið á Skjá einum í gær- kvöldi hjá þeim Sölva Tryggvasyni og Þorbirni Þórðarsyni. „Þetta er dap- urlegt,“ sagði Davíð um lánið sem Björgólfsfeðgar fengu hjá Búnaðar- bankanum til að geta keypt Lands- bankann. Hann hafi hins vegar ekki vitað af því. Útilokar ekki pólitík „Það kemur allt til greina. Ég er kátur og hress,“ sagði Davíð um það hvort hann ætlaði að snúa aftur í póli- tík. Hann svaraði því hins vegar ekki hvort það yrði fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Davíð segist hafa tapað þremur eða fjórum milljónum króna vegna bankahrunsins. Það hafi verið pen- ingar í frjálsum lífeyrissparnaði. Landsbankinn var viðskiptabanki Davíðs. „Ég átti engin hlutabréf,“ sagði hann. Allir hafi tapað 25 til 30 prósentum af lífeyrissparnaði. „Ég tel reyndar að þeir hafi brotið reglur þar. Ég þarf að kanna það,“ sagði Davíð að lokum. Engin ríkisábyrgð á Landsbankanum „Hafi hann verið seldur fyrir slikk þá hefði hann verið seldur fyrir ekki neitt ef honum hefði fylgt ríkisábyrgð,“ sagði Davíð þegar hann ítrekaði að Ís- lendingar bæru ekki ábyrgð á Icesave. Davíð sagði að reynt hefði verið að selja Landsbankann nokkrum sinnum án árangurs þegar hann var spurður hvort Landsbankinn hefði ekki verið seldur fyrir of lága upphæð. Þá sagði hann að fara ætti með Icesave-málið fyrir íslenska dómstóla. Davíð gat valdið bankaáhlaupi Davíð viðurkennir að hafa sagt við stjórnendur Landsbankans í upp- hafi árs að þeir gætu sett Björgólf Guðmundsson á hausinn og væru líklega komnir langleiðina með það. Hins vegar gætu þeir ekki sett ís- lensku þjóðina á hausinn. „Þeir tóku því ekkert voðalega vel,“ sagði Davíð og bætti við að þeir hefðu sagt að ef viðhorf þeirra yrðu gerð opinber yrði líklega bankaáhlaup á Icesave-reikn- ingana. Davíð sagði að þeir Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson hefðu túlkað það þannig að það væri ríkisábyrgð á Icesave-reikningunum. „Dettur ykkur í hug að þið getið farið til Bretlands? Byrjað að safna einum milljarði breskra punda án þess að nokkur af íslenskum almenningi viti um það. Svo tvo milljarða punda og upp undir fimm milljarða punda. Á því sé síðan ríkisábyrgð sem Alþingi Íslendinga þurfi aldrei að samþykkja,“ segir Davíð. Hann segist hafa átt fund með stjórnendum Landsbankans aft- ur í júní 2008 og þá hafi þeir tilkynnt honum að ekkert gengi í því að koma Icesave-reikningunum undir breskt dótturfélag. annas sigmunDsson blaðamaður skrifar: as @dv.is Davíð oddsson sagðist bera ábyrgð á bankahrun- inu líkt og aðrir í þættinum Málefnið í gærkvöldi. Hann útilokaði ekki að snúa aftur í pólitík. Hann segist hafa tapað þremur til fjórum milljónum króna á bankahruninu vegna skerðingar á lífeyrissparnaði. Davíð segist hafa sagt stjórnendum Landsbankans í febrúar 2008 að það væri ekki íslensk rík- isábyrgð á Icesave-reikningum í Bretlandi. Davíð tapaði milljón m Útilokar ekki pólitík „Það kemur allt til greina. Ég er kátur og hress,“ sagði Davíð um það hvort hann ætlaði að snúa aftur í pólitík. mYnD siguRÐuR gunnaRsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.